Morgunblaðið - 22.03.2003, Qupperneq 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 27
COHEN, sem hefur
mikla reynslu af neyt-
endamálum í sínu
heimalandi og víðar,
sagði að þróunin væri
sú að sífellt væri verið
að bjóða neytendum
meiri upplýsingar um
vöru og þjónustu og
benti á Netið í því sam-
bandi. „Neytendur
þurfa í raun ekki lengur
á upplýsingum um
vörur að halda í versl-
unum enda eru þær
upplýsingar stundum
hlutdrægar og háðar
hagnaðarvon. Með því
að fá upplýsingar um
vöru og þjónustu beint
frá framleiðendum á
Netinu öðlast neytendur betri þekk-
ingu á vörunni og upplýsingarnar
berast hraðar,“ segir hann.
Cohen velti því jafnframt fyrir sér
hvort þessar upplýsingar væru áreið-
anlegar. „Á Netinu fer neytandinn frá
einu vefsetri til annars og hann veit
ekki hve áreiðanlegar upplýsingarnar
eru. En upplýsingar á Netinu eru
venjulega ekki ritskoðaðar og mikið
af þeim eru ekki undir nafni. Neyt-
andinn er því sífellt að fá meira magn
af upplýsingum en þær eru að sama
skapi ekki alltaf áreiðanlegar.
Cohen var spurður að því hvernig
hinn almenni neytandi gæti vitað
hvort matvara sem hann er að kaupa í
verslunum, til dæmis kjöt, grænmeti
eða ávextir, innihaldi ekki einhver
skaðleg efni fyrir líkamann.
„Vandinn í Evrópu nú er að neyt-
endur vita í raun alls ekki hvað þeir
eru að setja ofan í sig. Evrópa er að
fara í gegnum miklar breytingar. Sér-
hvert land er með matvælastofnun
sem hefur eftirlit með því hvort mat-
vælin sem framleidd eru í landinu eru
samkvæmt settum reglum. En vand-
inn er sá að þessar stofnanir geta ekki
fylgst með öllum vörum sem fram-
leiddar eru. Í framtíðinni verður það
þannig að í verslunum verða upplýs-
ingar með matvælunum þar sem
kemur fram hvernig framleiðslunni
hefur verið háttað og upprunaland
hennar. Neytendasamtök í Evrópu
eru að berjast fyrir því
að komið verði á sam-
eiginlegu evrópsku
kerfi svo hægt verði að
rekja hvaðan tiltekin
matvara kemur. Yfir-
völd í Evrópu hafa ekki
áhuga á slíku kerfi nú.
Ég er þó viss um að
þeim á eftir að snúast
hugur síðar vegna þess
að það eru alltaf öðru
hvoru að gerast slys í
umhverfinu sem hafa
áhrif á matvælafram-
leiðsluna. Dæmi um
þetta er kúariðan sem
kom upp í Bretlandi
ekki alls fyrir löngu og
eyðilagði tímabundið
markaðinn á bresku
nautakjöti. Kamfýlobakterían sem
fundist hefur í kjúklingum hefur
einng valdið usla á mörkuðum. Hvað
varðar sölu á lífrænni fæðu þá er
þetta kerfi þar fyrir hendi.“
Framleiðandinn þarf ekki að
sanna hvert innihaldið er
Hvað er hægt að gera ef auglýs-
ingar gefa villandi upplýsingar um
vöru? „Það getur verið erfitt að koma
í veg fyrir rangar upplýsingar í aug-
lýsingum, því það er oft erfitt fyrir
neytandann að sanna að farið sé þar
með rangt mál. Framleiðandinn þarf
heldur ekki að sanna að varan inni-
haldi það sem stendur í auglýsingunni
eða í innihaldslýsingu vörunnar.“
Cohen ræddi um að hinn frjálsi
markaður ætti í framtíðinni eftir að
gefa neytendum möguleika á meira
úrvali af vöru og þjónustu og verð
ætti eftir að verða svipað í Evrópu-
löndunum. Ástæðan væri sú að eftir
að evran var tekin upp væri auðveld-
ara að bera saman verð á vöru og
þjónustu til dæmis á Netinu.
Markaðir að þróast
í átt til einhæfni
„Neikvæða hliðin á þessari þróun
er sú að hún leiðir til ákveðinnar ein-
hæfni. Ef gengið er um verslunar-
hverfi í Amsterdam, Róm eða París
þá er að finna þar næstum því sömu
verslanirnar. Þannig eru staðbundin
einkenni þessara gatna að hverfa. Það
hefur gerst þegar stór alþjóðleg fyr-
irtæki kaupa verslanir eða þjónustu-
fyrirtæki á staðnum og breyta þeim
eða laga að hugmyndum eigin fyrir-
tækis.“
-Á neytandinn ekki eftir að verða
leiður á markaði sem er eins alls stað-
ar þar sem hann kemur?
„Jú, það held ég. Það jákvæða við
þessa þróun er þó að verðið verður
lægra. Við þessar kringumstæður
þarf hið opinbera að vera vel á verði
að þessi þróun leiði ekki til fákeppni
sem getur leitt til hærra vöruverðs.
Slíkt getur auðveldlega gerst, ekki
síst í litlu samfélagi eins og á Íslandi.
Við verðum líka að hafa í huga hve
gríðarlega stór og öflug þessi fyrir-
tæki eru. Þótt nauðsynlegt sé að opna
dyrnar fyrir öðrum mörkuðum meg-
um við ekki opna alveg upp á gátt. Því
þá er hætta á að ýmsir þættir úr
menningu okkar hverfi. Það þarf að
finna jafnvægi á þessu sviði sem
gengur upp. Eins og ég hef sagt áður
þá lifum við á tímum örra breytinga
svo þjóðir þurfa að fara að móta
stefnu í þessum málum áður en það er
um seinan.“
Cohen segir ofangreinda þróun síð-
ur muni ná til þjónustustofnana eins
og banka og tryggingarfélaga, að
minnsta kosti fyrst um sinn. Segir
hann að ein af ástæðunum fyrir því sé
sú að skattakerfið sé mismunandi í
Evrópulöndunum. Þegar skattakerfi
landanna verði samræmt muni það
leiða til þess að bankar og trygging-
arfélög færi út kvíarnar í meira mæli
til annarra landa.
Neytendadómstóll æskilegur
Það kemur fram í máli Cohens að
neytendavernd er á háu stigi í Evrópu
og neytendalögin í hverju landi eru
með ágætum. Þegar reyni á þau sé
stundum aðra sögu að segja. Þetta
komi sérstaklega illa við neytendur
þegar verið sé að kaupa hluti sem
kosti innan við 10 þúsund krónur. „Ef
leitað er ráða hjá lögfræðingi í svona
tilvikum greiðir neytandinn meira
fyrir þjónustu hans en sem nemur
verði hlutarins. Þannig að neytandinn
getur í sumum tilvikum verið mjög
vanmáttugur. Þessu þarf að breyta
með því að setja á laggirnar lítinn
neytendadómstól þar sem hinn al-
menni borgari getur fengið úrlausn
mála sinna. Dómstóllinn þyrfti að
vera skjótvirkur og allir yrðu að hafa
aðgang að honum. Menn þyrftu ekki
að ráða sér lögmann til að sækja mál
sitt fyrir þessum dómstóli. Kostnaður
neytandans við að nýta sér dómstól-
inn yrði auðvitað að vera í lágmarki.“
Neytendur vita
oftast ekki hvað þeir
setja ofan í sig
Felix Cohen, forstjóri hollensku neytenda-
samtakanna Consumentenbond, var fyr-
irlesari á ráðstefnu Neytendasamtakanna
á Grand hótel Reykjavík nýlega. Hildur
Einarsdóttir ræddi við hann um stöðu
neytenda í Evrópu framtíðarinnar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Neytandinn fær sífellt meiri upplýsingar um vöru og þjónustu en því miður
getur hann oft ekki treyst þeim upplýsingum.
Felix Cohen, forstjóri
hollensku neytenda-
samtakanna, Consum-
entenbond.
NÚ ER búið að gera endurbæt-
ur á verslun Nóatúns við Þver-
holt í Mosfellsbæ. Ávallt verður
heitt kaffi á könnunni, aukið úr-
val af brauði og sætabrauði,
ókeypis ísmolar og hægt að
kaupa lottómiða við kassann.
Þá verður afgreiðslutíma
verslunarinnar einnig breytt.
Um helgina verður opnun-
arhátíð í versluninni og kynn-
ing á fjölmörgum íslenskum
vörum og mörg tilboð.
Nóatún í
Mosfellsbæ
Breytt
búð og
tilboð
PÉTUR Péturs-
son ehf. kynnir
endurnýjaðar
húðvörur frá
Skinwonder sem
sagðar eru nær-
andi og rakagef-
andi fyrir þurra og viðkvæma húð. Í
tilkynningu frá innflytjanda segir að
Skinwonder-vörur hafi verið unnar
úr hinni afrísku smjörbaun, sem
þekkt sé fyrir fjölómettaðar fitusýr-
ur. „Skinwonder-vörur henta öllum
húðgerðum og veita vörn gegn sólar-
ljósi. Auk þess þykja þær veita góða
vernd gegn kuldaexemi og hafa nýst
gegn ýmsum húðvandamálum, svo
sem þurrum blettum og psoriasis,“
segir ennfremur.
NÝTT
Húðvörur úr
smjörbaun