Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 28

Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 28
HEILSA 28 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ R annsóknir hafa sýnt að það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig. Jafnvel þegar komið er á efri ár hefur regluleg hreyfing jákvæð áhrif:  Eykur vöðvastyrk og liðleika – og þar með hreyfigetu.  Eykur þol, bætir starfsemi lungna og hjarta – vinnur á móti þreytu – blóðþrýstingur helst stöðugur.  Efnaskipti batna – auðveldara að viðhalda kjörþyngd.  Styrkir beinin – minnkar hættu á beingisnun og þar með beinbrotum.  Bætir jafnvægi og samhæfingu, eykur hraða og öryggi hreyfinga – fólk dettur síður.  Hefur róandi áhrif og léttir lund – vinnur gegn streitu og þunglyndi.  Skapar möguleika á félagsskap – vinnur gegn einmanaleika og of mikilli inniveru. Með því að hreyfa sig samtals 30 mínútur eða meira á dag sem flesta daga vikunnar er ekki aðeins líklegt að þú bætir árum við lífið heldur, það sem er ekki síður mikilvægt, lífi við árin. Hvernig hreyfing er valin veltur á getu hver og eins og áhuga. „Maður hættir ekki að leika sér af því að maður eldist – maður eldist af því að maður hættir að leika sér.“ Veldu þá hreyfingu sem þér finnst skemmti- leg. Ganga, dans, sund, tai-chi, garðvinna, golf og ýmiss konar leikir eru dæmi um hreyfingu sem hentar ungum sem öldnum. Umfram allt er mikilvægt að velja hreyfingu í stað hreyfingarleysis þegar það er mögu- legt. Ganga og gönguæfingar Ganga hentar flestum sem vilja hreyfa sig reglulega. Mikilvægt er að laga gönguhraðann að viðbrögðum líkamans. Ekki ganga hraðar en svo að hægt sé að spjalla við þann sem gengið er með. Klæddu þig í þægileg- an fatnað í samræmi við veður og hugaðu vel að skóbúnaði. Fjögurra stiga gönguáætlun Best er að bæta 2–3 mín. við göngutúrinn í hverri viku. 1. stig: 5–10 mín. á dag, 3–4 x í viku, í 1–3 vikur. 2. stig: 10–15 mín. á dag, 4–5 x í viku, í 1–3 vikur. 3. stig: 15–20 mín. á dag, 4–5 x í viku, í 1–3 vikur. 4. stig: 20–30 mín. á dag, 5–7 x í viku, alla ævi. Þá er bara að setja upp brosið, reima á sig skóna og bjóða fjölskyldunni og/eða félögum með í göngutúr. Hreyfðu þig og njóttu þess!  Gígja Gunnarsdóttir, sviðsstjóri almenningsíþrótta- og umhverfissviðs Íþrótta- og ólympíusambands Íslands – Frá Landlæknisembættinu Heilsan í brennidepli Hreyfing eldri borgara – aldrei of seint að byrja! Hreyfing bætir árum við lífið. Sonur minn sem er 15 ára hefur þjáðst af kvíða og einskonar fælni frá barnæsku. Hann á nán- ast enga vini, er hættur að iðka íþróttir, líður illa í skólanum, verður ekki beint fyrir einelti en er afar viðkvæmur og feiminn gagnvart skóla- félögum og ókunnugum almennt. Þegar hann er heima og með okkur fjölskyldunni er hann mun eðlilegri og glaðari, en bregst ókvæða við ef við reynum að ræða vandamálið við hann. Nú í seinni tíð þykir okkur hann vera orðinn ansi þungur í skapi, uppstökkur og þjakaður af kvíða. Við höfum heyrt að til sé lyf sem heitir Seroxat, sem hefur verið notað á kvíða, þung- lyndi og fælni. Er þetta lyf sem gæti hjálpa syni okkar? Við erum komin á það stig að okkur finnst allt reynandi til að hjálpa honum, meira að segja að setja hann á geðlyf. Við erum búin að leita sálfræðiaðstoðar og tala við náms- ráðgjafa, án nægilegs árangurs að okkar mati. SVAR Þessi saga bendir vissulega tilað drengurinn þjáist af fé- lagsfælni (og trúlega einnig geðdeyfð), en það er þó alls ekki hægt að slá þessum sjúkdóms- greiningum föstum út frá þessari sögu einni saman. Nauðsynlegt væri að ræða við dreng- inn og átta sig á því hvaða hugsanir liggja að baki umræddri líðan og hegðun og einnig úti- loka ýmsa líkamlega þætti, auk áfengis- eða vímuefnaneyslu. Ef niðurstaðan yrði að um félagsfælni (og geðdeyfð) væri að ræða, þá eru helstu með- ferðarmöguleikar viðtalsmeðferð á nótum hugrænnar atferlismeðferðar með eða án meðferðar með viðeigandi þunglyndislyfjum, sem jafnframt hafa áhrif á kvíðasjúkdóma. Best væri, ef hægt væri að beita hugrænni atferlismeðferð einni sér, m.a. vegna aldurs drengsins. Í mjög stórum dráttum byggir hugræni þátturinn á því að leiðrétta „hugs- anaskekkjur“, þar sem skynjun og túlkun á áreitum og umhverfi er skekkt, bæta sjálfs- mynd og sjálfstraust. Í félagsfælni er í grunni um ótta við neikvæða umfjöllun annarra að ræða. Viðkomandi óttast að koma kjánalega fyrir í félagslegum samskiptum, ekki hafa neitt að segja, hugurinn „frjósi“, hann muni sýna kvíðaeinkenni eins og roða, svita, skjálfta, o.fl. Þannig býst hann fyrirfram við því að félagsleg samskipti muni aðeins geta leitt til niðurlægingar fyrir hann. Atferlisþátt- urinn byggir á því að útsetja sig í þær að- stæður, sem valda með honum kvíða og vinna á sama tíma í því að leiðrétta umræddar hug- rænar „hugsanaskekkjur“. Mismunandi er hvernig gengur að ná tökum á kvíðanum og fælninni með þessari aðferð einni sér, en það fer m.a. eftir persónuleikagerð, innsæi, getu og vilja til að takast á við vandann, og ekki síst hvort annar geðrænn vandi er einnig til staðar, eins og þunglyndi, eða þá áfengis- eða vímuefnaneysla. Reyndin er mjög oft sú, að hugræn atferlis- meðferð dugir ekki ein sér, af ýmsum ástæð- um, og er þá gripið til viðeigandi lyfjameð- ferðar. Félagsfælnin hefur oft og tíðum staðið lengi þegar meðferðar er leitað, er orðin „rótgróin“ með mikilli hömlun. Jafnframt hafa þá oft önnur geðræn vandamál bæst við, eins og þunglyndi, aðrir kvíðasjúkdómar, o.fl., og heildarástand er orðið alvarlegt. Við þær að- stæður er þörf á eins kröftugri og fljótvirkri meðferð og völ er á, og kemur þá ekki annað til greina en viðeigandi lyfjameðferð. Nauð- synlegt er að uppræta fyrst þætti eins og geð- deyfð og áfengisvandamál, áður en fýsilegt er fara að takast á við félagsfælnina sjálfa. Undanfarin ár hafa staðið yfir miklar rann- sóknir á félagsfælni. Niðurstöður hafa sýnt að sjúkdómurinn er algengur, miklu algengari en áður var talið, og þær hafa sýnt fram á gagn- semi ýmissa lyfja í meðferðinni. Þar sem spurt er sérstaklega um Seroxat, þá er því til að svara að það lyf hefur verið töluvert rann- sakað við félagsfælni, og sýnt fram á að það getur verið áhrifaríkt. Meðal skráðra ábend- inga fyrir lyfið er bæði félagsfælni og þung- lyndi. Fleiri lyf koma þó einnig til greina við meðferð á félagsfælni. Einstaklingar sem þjást af félagsfælni hafa venjulega verulegt innsæi í sitt vandamál, og oft raunar mjög gott, og finnst súrt í broti að ná ekki að nýta getu sína og hæfileika með eðlilegum hætti. En þeir hafa tilhneigingu til að fara leynt með líðan sína, skammast sín fyrir hana, og hafa tilhneigingu til að fresta því að leita meðferðar, og eykur það venjulega á vandann. Á viðkvæmum aldri er hætt við stöðnun á félagsþroska og önnur vandamál bætast gjarnan við, eins og áður kom fram. Aðeins það að geta rætt líðan sína, mæta skilningi, og að hafa hafið meðferð, veldur venjulega miklum létti. Viðeigandi þung- lyndislyf geta minnkað kvíða (og geðdeyfð þegar hún er jafnframt til staðar), aukið áræðni, og bætt jarðveginn til að geta með áhrifaríkum hætti tekist á við félagsfælnina. Þegar lyfjameðferð er beitt ætti jafnan að beita hugrænni atferlismeðferð samhliða. Það eykur mjög líkur á því að ná tilætluðum ár- angri og varanlegri. Félagsfælni Eftir Brján Á. Bjarnason Viðtalsmeðferð er möguleiki ........................................................... persona@persona.is Höfundur er sérfræðingur í geðlækningum á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Lesendur Morg- unblaðsins geta komið spurn- ingum varðandi sálfræði-, fé- lagsleg og vinnu- tengd málefni til sérfræðinga á vegum persona.is. Senda skal tölvupóst á persona@per- sona.is og verður svarið jafn- framt birt á persona.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.