Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 33

Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 33
Ríkisstjórn á villigötum S ÍÐAST liðið haust skrif- aði ég grein á þessum vettvangi þar sem ég færði rök fyrir því að yfirvofandi árás á Írak og umsókn Íslands um sæti í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna kallaði á umræðu um örygg- isstefnu Íslands. Við gætum ekki leyft okkur þann munað kald- astríðsáranna að fylgja „góða lið- inu“ í blindni. Innrás í Írak er nú hafin í andstöðu við vilja meiri- hluta þjóða í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna (SÞ). Ríkisstjórnin hefur lýst yfir stuðningi við þess- ar aðgerðir. Yfirlýsingar eru nokkuð á reiki. Rökin fyrir af- stöðunni liggja ekki fyrir. Utan- ríkisráðherra hefur þó sagt að hann hafi aldrei útilokað einhliða aðgerðir gegn Írak, ályktun ör- yggisráðsins nr. 1441 réttlæti inn- rás og loftárásirnar á Kosovo séu fordæmi. Gera verður at- hugasemdir við allt þrennt. Forsætisráðherra sagði raunar snemma hausts „að einstök ríki fari með einhliða hernaði á hend- ur Írak“ ef ekki náist samstaða um slíkar aðgerðir á vettvangi SÞ. Þessi orð féllu áður en Bandaríkin ákváðu að leita sam- þykkis öryggisráðsins á ályktun 1441. Eftir þá samþykkt hefur ut- anríkisráðherra marglýst stuðn- ingi við hlutverk SÞ við lausn Íraksdeilunnar. Þrátt fyrir leit hef ég hvergi fundið stuðning hans við einhliða stríð fyrr en í þessari viku og þá raunar ekki í orði heldur verki. Fram til þessa hafði ég talið mig vera sammála stefnu utanríkisráðherra gagnvart Írak. Að virða hlutverk Samein- uðu þjóðanna. Að friðsamlegrar lausnar væri leitað í lengstu lög þó að hótun um valdbeitingu væri nauðsynleg við afvopnun Íraks. Ég taldi mig jafnframt hafa stað- festingu fyrir því að utanrík- isráðherra teldi útilokað að beita hervaldi nema eftir viðurkenndum leikreglum þjóðaréttar og með víðtækum alþjóðlegum stuðningi. Utanríkisráðherra kynnti þessa stefnu í skýrslu um utanríkismál á Alþingi 27. febrúar síðast liðinn. „Sameinuðu þjóðirnar hafa grund- vallarhlutverki að gegna og engin stofnun kemur í þeirra stað,“ sagði utanríkisráðherra. Stefnu Íslands sagði hann byggjast á ályktun 1441 og þeirri skoðun að vopnaeftirlitsmenn ættu að fá meiri tíma. „Ísland styður frið- samlega lausn og stríð er neyð- arúrræði.“ Ekki er lengra síðan en 11. mars að þessi afstaða var ítrekuð af fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á opn- um fundi öryggisráðsins. Hvergi í máli hans, frekar en í máli utan- ríkisráðherra, kom fram stuðn- ingur við einhliða aðgerðir ef ör- yggisráð SÞ heimilaði ekki vopnavald með nýrri ályktun. Á Alþingi 27. janúar sagði utanrík- isráðherra þvert á móti „alveg ljóst af okkar hálfu að við teljum algjörlega nauðsynlegt að þetta mál komi til umfjöllunar örygg- isráðsins á nýjan leik, það höfum við margsagt.“ Og mánuði síðar að „ef gripið verður til þess neyð- arúrræðis, [væri mikilvægt] að um það verði góð alþjóðleg sam- staða.“ Ekkert hald hefur reynst í þessum orðum. Ísland er í fá- mennum hópi ríkja sem styðja tafarlausar hernaðaraðgerðir gegn Írak einsog frægt er orðið. Öryggisráðið vann afrek þegar ályktun 1441 var samþykkt ein- róma í ráðinu. Með því töldu margir því forðað að til einhliða aðgerða gegn Írak kæmi. Í álykt- un 1441 segir að uppfylli Írakar ekki skilyrðislaust kröfur SÞ um afvopnum standi þeir frammi fyr- ir alvarlegum afleiðingum. Ljóst var að þær gætu verið marghátt- aðar og harðar. Hervald var ekki útilokað í framhaldinu. Jafnljóst var þó að til þess þyrfti nýja ályktun öryggisráðsins. Þetta „margsagði“ utanríkisráðherra í janúar. Þetta var forsenda hins víðtæka stuðnings. Bandaríkin og Bretland hefðu ekki undirbúið nýja samþykkt í síðustu viku ef ríkin hefðu talið ályktun 1441 heimila innrás að alþjóðalögum. Rök ríkisstjórnarinnar standast ekki. Loftárásirnar í Kos- ovo eru heldur ekki nothæft fordæmi til að styðjast við í Íraksmál- inu. Umdeilt er hvort þær hafi staðist alþjóðalög sem leyfa að- eins valdbeitingu í sjálfsvörn eða með samþykki öryggisráðs SÞ. Fjölmargir hafa þó rökstutt lög- mæti loftárásanna sem íhlutun af mannúðarástæðum. Allir þátttak- endur þeirrar umræðu hafa þó viðurkennt að ströng skilyrði þurfi að vera fyrir hendi til að ganga fram hjá öryggisráði SÞ. Forsenda slíks sé yfirvofandi harmleikur sem öryggisráðið sé ófært til að taka á vegna beinna hagsmuna einhvers fasta- fulltrúanna sem beitt geti neit- unarvaldi gegn aðkallandi aðgerð- um. Í Kosovo var yfirvofandi þjóð- armorð sem koma mátti í veg fyr- ir með íhlutun. Skilyrði um víð- tækan alþjóðlegan stuðning var jafnframt uppfyllt. Kosovo- aðgerðirnar voru studdar af NATO, Evrópusambandinu og meginþorra ríkja innan Samein- uðu þjóðanna. Þar á meðal sjö næstu nágrönnum Serbíu. Í þriðja lagi þurfti að liggja fyrir að ekki væri hægt að ná sömu mark- miðum án vopnavalds. Jafn- klárlega og Kosovo-aðgerðirnar uppfylla þessi skilyrði blasir við að innrás í Írak gerir það ekki. Ekki vegna þess að forseti lands- ins sé ekki jafnsvikull og slæmur og af er látið. Hann er einfaldlega ekki sú ógn að það réttlæti að ör- yggisráð SÞ sé sniðgengið. Vopnaeftirlitsmenn og fjölmörg ríki telja að afvopna hefði mátt Írak án innrásar. Síðast en ekki síst geta afleið- ingar Íraksmálsins verið ógn við frið og stöðugleika. Öryggiskerfi heimsins og alþjóðalög eru í upp- námi. Samstaðan í baráttunni gegn hryðjuverkum er rofin. Klofningur er kominn upp innan NATO og Evrópusambandins. Engin leið er að spá fyrir um af- leiðingar innrásarinnar fyrir botni Miðjarðarhafs. Við slíkar að- stæður hlýtur framlag Íslands að geta verið annað og ígrundaðra en skilyrðislaus stuðningur við stríð. Morgunblaðið setur fram kaldastríðs rök fyrir stuðningi við Bandaríkin. Stuðningur þeirra hafi reynst okkur dýrmætur í þorskastríðum. Flestir sagnfræð- ingar myndu þó ekki síður stað- næmast við að nýr breskur utan- ríkisráðherra trúði á friðsamlegar lausnir deilumála og að barátta Íslands og fleiri á vettvangi SÞ hafi leitt til viðurkenningar á 200 mílna lögsögu í alþjóðalögum. Þorskastríðin réttlæta því ekki að Ísland taki sér stöðu með stríði en gegn reglum þjóðaréttar og friðsamlegri lausn deilumála. Fá- ar þjóðir eiga meira undir vexti og viðgangi alþjóðastofnana og virðingu fyrir grundvallarreglum í samskiptum ríkja. Eftir Dag B. Eggertsson ’ Stefnan stangast á viðþjóðarétt, rök og fyrri yfirlýs- ingar utanríkisráðherra. ‘ Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. Netfang: dagur@reykjavik.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 33 í, hvaða m um að nir þess in. Inn- og skil- á þingi r ldu af rdeilum lands, hafa á und- im báð- tri ins veg- all for- m, fngilti nan vé- g sam- sluna ru and- væði mfylk- da- gar s- og r raunar a sterk i verið eim, að -isma? rfum. ds- ríkja- stjórn. Með því er Jacques Chirac að fylgja stefnu í anda Charles de Gaulles. Að lokum gekk Chirac of langt að mati Blairs. Bretar og Bandaríkjamenn féllu frá tilraunum til að fá nýja ályktun samþykkta í ör- yggisráði SÞ á þeirri forsendu, að Frakkar mundu beita neitunarvaldi, hvað sem yrði í boði. Í kalda stríðinu var talað um tvípóla-veröld, sem skiptist milli austurs og vesturs. Nú er sagt, að ver- öldin sé orðin einpóla, þar sem Bandaríkin hafi ekk- ert mótvægi vegna hernaðarlegra yfirburða. Frakkar hafa alls enga burði til að skapa mótvægi við hern- aðarmátt Bandaríkjamanna. Frakkar vilja hins vegar veita Bandaríkjamönnum pólitískt aðhald. Franska neitunarvaldið innan öryggisráðsins er öflugasta tæki þeirra til þess. Spurning er, hvort ein afleiðing átakanna við Sadd- am verður breyting á reglunum um fastafulltrúa og neitunarvald í öryggisráðinu. Lengi hefur verið á döf- inni að breyta skipan og starfsháttum öryggisráðsins. Krafan um það verður háværari eftir því sem erf- iðara er fyrir SÞ að gegna hlutverki sínu vegna ágreinings innan öryggisráðsins. Þótt oft hafi verið harkalega deilt í ráðinu í kalda stríðinu, voru línur þó alltaf skýrari en nú og enginn hafði hag af því að leggja þennan samráðsvettvang niður. Enginn hefur heldur hag af því núna en and- rúmsloft til breytinga er allt annað eftir að spenna kalda stríðsins hvarf. Ný hernaðarstefna kemur til sögunnar með innrás- inni í Írak. Hún er kennd við „pre-emption“ á ensku, en á íslensku hefur orðið verið þýtt sem forkaups- réttur eða það að tryggja sér eitthvað á undan öðr- um. Við skilgreiningu á þróun öryggis- og alþjóða- mála, er nauðsynlegt að finna gott íslenskt orð um það, að grípa til vopna gegn andstæðingi sínum til að afstýra því, að hann geri árás. Hingað til hefur kjarni hernaðarstefnunnar byggst á „containment“, innilok- unarstefnu, það er þeirri stefnu að hamla gegn því að óvinveitt ríki færi út hernaðarlegt eða stjórnmálalegt yfirráðasvæði sitt, eins og segir í Ensk-íslensku orða- bókinni. Að „pre-emptive“ skref hefur verið stigið til að af- vopna Saddam á eftir að móta umræður um varn- aráætlanir og hernaðarstefnu framvegis. x x x Tony Blair sagði í sjónvarpsávarpi á fimmtudags- kvöld: „Í 12 ár hefur veröldin reynt að afvopna Saddam; eftir stríð hans, þar sem hundruð þúsunda hafa fallið. Eftirlitsmenn SÞ segja, að enn sé ekki vitað um mik- ið magn af efna- og sýklavopnum eins og anthrax, VX taugaefni og sinnepsgasi í Írak. Svo val okkar er skýrt: að draga saman seglin og skilja Saddam eftir enn öflugri en áður; eða að stíga skref til að afvopna hann með valdi. Að hörfa kynni að veita okkur stundarró en ég held, að í mörg ár mundum við iðrast yfir veiklyndi okkar. Það er rétt, að Saddam er ekki eina ógnin. Hitt er einnig satt – eins og við Bretar vitum – að besta ráðið til að takast friðsamlega á við framtíðarógnir er að bregðast við augljósri ógn af staðfestu. Að fjarlægja Saddam verður til góðs fyrir íbúa Íraks. Fjórar milljónir Íraka eru í útlegð. 60% íbú- anna þurfa matvælaaðstoð. Þúsundir barna deyja ár hvert vegna fæðuskorts og sjúkdóma. Hundruð þús- unda hafa verið hraktar frá heimilum sínum eða myrtar.“ Þegar hugað er að þessum staðreyndum, er erfitt að átta sig á því, hvernig unnt er í nafni mannúðar eða umhyggju, að snúast gegn því, að Saddam sé steypt af stóli. Andstæðingar stríðsins bregðast þó jafnan ókvæða við, þegar sagt er, að mannúðarsjón- armið búi að baki andstöðunni við Saddam. Þeir vilja frekar ræða um vopnaeign Saddams en ofbeldi hans gegn írösku þjóðinni. Því fyrr sem Saddam Hussein áttar sig á raunveru- legri og vonlausri stöðu sinni, því betra fyrir Íraka og okkur öll. Uppgjöf er skynsamlegasta úrræði Sadd- ams. ræði Saddams bjorn@centrum.is ga og réttar, þjónusta borgara og vernda þá með öllum til- um. Sú mikla áhersla sem rík- efur á undanförnum árum lagt ngu fíkninefnalögreglu hringinn andið hefur skilað sér margfalt samfélagsins í heild. Öflugt for- eftirlitsstarf er rekið af hálfu ar um allt land, og langar mig a í því sambandi að minnast á m náðst hefur á þessum vett- ögreglunni á Ísafirði, sem víða athygli. Efling götueftirlits á rsvæðinu hefur einnig skilað ngri og rétt er að nefna gott og tollgæslunnar og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli í þessu sambandi. Ýmis áhugaverð verkefni eru í gangi í þessu sambandi, eins og t.d. átak lögreglu- embættanna á Suðurnesjum þessa dagana hefur sýnt og sannað. Lögreglan gerir nú minna upptækt af E-pillunni svokölluðu en áður, sem lögreglan telur til marks um ár- angur af löggæslu og þyngri refsingum. Það virðist einfaldlega orðið áhættusam- ara fyrir fíkniefnasalana að koma þeim í umferð. Tengsl vímuefna við ýmis önnur alvarleg afbrot eru öllum ljós og því alveg skýrt að barátta lögreglunnar við innflytj- endur og sölumenn dauðans er eitt af brýnustu verkefnum hennar. Frelsi til hvers? Í þriðja lagi hefur verið fullyrt að menn eigi að hafa frelsi til að gera hvað sem er og segja þeir sem því halda fram að það styðji lögleiðingu kannabisefna. Ég hef vissulega verið talsmaður frelsis en tel það ekki spurningu um frelsi að fá heimild til að eyðileggja sjálfan sig og þar með valda fjölskyldu og vinum ómældum þjáningum, áhyggjum og jafnvel skaða. Slíkt frelsi skrifa ég ekki upp á. Höldum baráttunni áfram Úrtöluraddir heyrast gjarnan í tengslum við umræðu um lögleiðingu kannabisefna þess efnis að barátta yf- irvalda gegn fíkniefnum sé töpuð. Er þá vísað til þess að þrátt fyrir allt sem gert hafi verið sé fíkniefnaneysla algeng og mikið böl í samfélaginu. Það er rétt en þó eru ýmis jákvæð teikn á lofti, t.d. sýna rannsóknir að dregið hefur úr hassneyslu grunnskólanema á síðustu árum. Við skul- um einnig spyrja okkur hvernig ástandið væri ef fíkniefni hefðu fengið að flæða yfir landið mótstöðulaust og enginn áróður væri rekinn gegn neyslunni. Hver væri staðan ef lögreglan hefði ekki verið efld, meðferðarúrræðum fjölgað og forvarn- arstarfið aukið? Auðvitað má og á að gera betur, en töfralausnin gegn fíkniefnavand- anum er ekki sú að gefast upp. Slíkt hefði skelfilegar og ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Það verður ekkert gefið eftir í þessum efnum fái ég einhverju um það ráðið. áttunni gegn fíkniefnum vernig efðu mót- ur væri Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra. gir, að afstaða ríkisstjórn- i mörgum sinnum komið fram í í utanríkismálanefnd. Hjá utan- ra kom aldrei fram, að Íslend- að ljá land og lofthelgi undir m tæki þátt í stríðinu í Írak. Hið ð utanríkisráðherra hafði allt n en ríkisstjórnin hefur núna. r breytt afstöðu sinni. Honum var því enn skyldara en ella að gera utan- ríkismálanefnd grein fyrir sinnaskiptum sínum. Það er svo annar, og sérkennilegur vink- ill á málinu, að það skuli vera Davíð Odds- son, sem kemur fram og ver ákvörðun rík- isstjórnarinnar. Hefur hann tekið yfir mótun utanríkisstefnunnar? Það er lítil furða, þótt bál logi víða í Framsókn- arflokknum yfir ákvörðun ríkisstjórn- arinnar. Á Stöð 2 í sagðist utanríkisráðherra vera ósáttur við, hvernig Bandaríkjamenn túlka afstöðu Íslands. Með leyfi að spyrja: Vissi utanríkisráðherra ekki hvað hann sagði sjálfur við bandarísk stjórnvöld? Eða var það kannski einhver annar sem tjáði þeim afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar? Var það kannski forsætisráðherrann? Í Írak eru yfir ellefu milljónir barna. Stöðug styrjaldarógn hefur hvílt eins og mara yfir þeim. Hún hefur markað allt þeirra litla líf. Sum þeirra vilja ekki halda því áfram. Það er sorglegt að ógnin, sem vofir yfir lífi þeirra, hefur verið þeim slík sálræn þjáning að fjórum af hverjum tíu börnum í Írak finnst lífið ekki þess virði að lifa því. Það er ein af niðurstöðum kan- adískrar skýrslu sem kom út í janúar um líðan íraskra barna sem búa í skugga stríðs. Þessi börn, og saklausir óbreyttir borg- arar í Írak, eru kennileitin sem gnæfa upp úr bakgrunni ákvörðunarinnar um árás- arstríð gegn Írak. Höfum í huga, að RÚV greindi frá því í miðnæturfréttum í fyrra- kvöld að sérfræðingar teldu mögulegt að hundruð þúsunda óbreyttra borgara yrðu fórnarlömb árásarstríðsins. Sem stjórn- málamanni og sem íslenskum borgara finnst mér það óendanlega dapurlegt að Ís- land skuli vera komið á lista yfir þjóðir, sem viljugastar eru til að styðja stríðið. Það er ekki hlutverk lítillar, friðsamrar þjóðar. g Írak sem ís- r það sland skuli r, sem vilj- ríðið.“ Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.