Morgunblaðið - 22.03.2003, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 22.03.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 39 var afar dagfarsprúður og ljúfur drengur. Hinir krakkarnir tóku vel á móti honum og kynntust honum smám saman. Í Danmörku hafði hann aldrei þurft að taka próf í skólanum, því veltu foreldrar hans og kennarar því fyrir sér í byrjun hvar hann stæði í samanburði við jafnaldrana á Íslandi. Það kom fljótlega í ljós hve afburða námsmaður hann var, það þurfti ekki einu sinni að hafa áhyggjur af íslenskri réttritun hjá honum. Þegar bekkjarfélagarnir höfðu orð á góðu einkunnunum hans og spurðu hvernig hann færi að þessu var fátt um svör. Hann horfði bara á þá með stóískri ró og brosti út í annað. Þegar hann tók við öllum verð- laununum fyrir frábæran námsár- angur við lok 10. bekkjar var hann farinn að brosa hálfvandræðalega, hann var kallaður svo oft upp. Á stundum sem þessum er gott að eiga góðar minningar um ljúfan dreng og traustan vin. Minningar úr skólanum, úr skemmtilegu skólaferðalagi 10. bekkjar síðastlið- ið vor og svo mætti áfram telja. Toppurinn á því ferðalagi fannst Hauki vera flúðasiglingin í Skaga- firði. Annað sem honum fannst frá- bært við það ferðalag var að þar kynntist hann krökkunum úr hinni bekkjardeild 10. bekkjar á nýjan hátt. Með þessum orðum er Hauki Böðvarssyni þökkuð samveran í Borgarhólsskóla. Við biðjum algóðan guð að styrkja foreldra, bræður og aðra ástvini á erfiðum tímum. Með sorg í hjarta kveðjum við í dag okkar kæra vin og bekkjar- félaga, Hauk Böðvarsson. Við viljum þakka fyrir að hafa fengið að njóta samveru hans og hann mun alltaf eiga stað í huga og hjörtum okkar allra. Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt ljóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson.) Við viljum votta fjölskyldu Hauks og ástvinum dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja þau og styðja í sorginni. Guð geymi þig, kæri vinur. Bekkjarfélagar úr árgangi ’86 á Húsavík. Kveðja frá Framhaldsskólanum á Húsavík Stórt skarð er höggvið í nem- endahóp Framhaldsskólans á Húsavík. Á augabragði batt hörmu- legt slys enda á dýrmætt líf ungs manns sem var að stíga sín fyrstu skref inn í veröld fullorðinna og var í raun óvenju vel undirbúinn til að takast á við lífið og tilveruna í sinni fjölbreyttustu mynd. Eftir sitja ást- vinir, náinn vinahópur, skólafélag- ar, kennarar og Húsvíkingar allir, sorgmæddir, hnípnir og í vanda. Haukur Böðvarsson hóf nám á náttúrufræðibraut við Framhalds- skólann á Húsavík síðastliðið haust. Hann kom vel undirbúinn með glæsilegan vitnisburð úr grunn- skóla, tók námið föstum tökum og á þessum stutta tíma sannfærði hann kennara sína um að hann væri af- burða nemandi sem þeir bundu miklar vonir við og hlökkuðu til að vinna með allt til stúdentsprófs. Haukur var sérlega vel að sér í stærðfræði og raungreinum. Þann- ig vantaði hann aðeins herslumun að komast í úrslit 20 bestu í stærð- fræðikeppni framhaldsskólanna á yngra stigi á þessu skólaári og var þó á fyrra ári þess stigs. Sama gilti um aðrar greinar. Hann var fremst- ur meðal jafningja á grunnskóla- prófi í íslensku þrátt fyrir áralanga dvöl og grunnskólanám í Danmörku fram í miðjan áttunda bekk. Að flytja heim reyndist honum mikil áskorun því hann var vin- margur og leiðtogi í sínum vinahópi í Danmörku. Félagsleg hæfni hans kom vel í ljós á þessum tíma og að hálfu ári liðnu hafði hann myndað sterk tengsl við góðan vinahóp sem hefur síðan haldið vel saman. Haukur var hæglátur að eðlisfari og dagfarsprúður, fyrirmyndar nemandi í hvívetna. Síðustu mánuði hafa kennarar merkt vel vaxandi þroska hans og mikla getu til að takast á við þyngri verkefni í nám- inu og um leið hafa samskiptin orðið opnari og persónulegri eins og ger- ist þegar kynni aukast og gagn- kvæmt traust verður til. Haukur var áhugasamur tónlist- armaður og líkamsrækt stundaði hann reglulega. Hann var heil- steyptur, reglusamur og sannur drengur sem foreldrar og fjölskyld- an öll voru stolt af. Í Framhaldsskólanum á Húsavík ríkir sorg og söknuður yfir sárum missi. Foreldrum, bræðrum og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Guðmundur Birkir Þorkels- son skólameistari. Það er svo skrítið hve fljótt lífið breytist, það getur allt umturnast á einum degi. Við gátum ekki trúað því þegar okkur var sagt að Haukur væri dáinn. Það var bara um síðustu helgi sem þú varst hjá okkur og við eydd- um yndislegum tíma saman. Við spjölluðum og hlógum en núna ert þú farinn. Öll eigum við okkar einstöku minningar um Hauk sem við mun- um geyma að eilífu. Til dæmis þeg- ar Elín kom og heimsótti ykkur til Danmerkur. Elín og Haukur voru allan daginn í tennis á götunni fyrir framan húsið ásamt því að tala um allt milli himins og jarðar en meðal annars þá var hann að reyna að kenna henni dönsku. Og líka allar þær stundir sem Kalli og Haukur hafa verið saman í Danmörku, bæði þegar Kalli fór með fjölskyldunni og þegar hann fór einn en sú ferð var Kalla mikils virði. Ekki hafa samverustundirnar verið síðri eftir að Haukur flutti heim til Íslands. Við eigum margar góðar minn- ingar um þig og þær stundir sem við áttum saman og þessar minn- ingar munum við alltaf geyma í hjarta okkar. Okkur þykir vænt um þig. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (121. Davíðssálmur.) Elsku Íris, Böðvar, Bjarni og Símon. Megi Guðs blessun hvíla yfir ykkur og veita ykkur styrk í þessari miklu sorg. Elín, Karl og Tómas. Elsku Haukur. Fyrir rúmum sextán árum fórum við hjónin til Danmerkur í heim- sókn til Írisar og Böðvars. Við það tækifæri var annað barn þeirra hjóna skírt, í lítilli sveitakirkju fyrir utan Maribo, og hlaut það nafnið Haukur. Allar götur síðan höfum við fylgst með þessum dreng og þeim ótrúlegu hæfileikum sem hann var gæddur. Við getum ósköp lítið sagt en tilfinningum okkar er best lýst í Söknuði, ljóði Vilhjálms Vilhjálmssonar. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. Elsku Íris, Böðvar, Bjarni og Símon. Megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Sökn- uðurinn um ljúfan og góðan dreng er sár, en minningin um góða vininn okkar mun áfram lifa í hjörtum okk- ar. Ástarkveðjur, Lilja og Njáll. Við viljum kveðja góðan vin okk- ar, sem eins og margir aðrir snill- ingar var kvaddur of snemma. Það er aðeins ein eftirsjá; að of fáir hafi fengið að kynnast honum eins og við þekktum hann. Honum verður aldrei gleymt og viljum við kveðja hann með þessum orðum. Skjótt vill bregða sól á sumardegi, sorgarskuggar falla á ævivegi. Leifturhraði lífsins slítur þráð, lítt við skiljum alföðurins ráð. Gekkst þú burt svo glaður og frjáls í sinni, glöð við treystum afturkomu þinni. Helfregn þín er hjó svo djúpa und, heim til okkar barst á samri stund. Lifðu heill í ljóssins sölum björtum, lifir minning þín í vina hjörtum, ótal bænir um þig vefja nú, ástúð, gleði, kærleik, von og trú. (Rannveig Guðmundsdóttir.) Haukur, við vonum að þú sért á betri stað og þér líði vel. Þínir vinir, Ágúst, Árni Þór, Ásgeir Logi, Björgvin Bessi, Helgi, Helga, Óli og Þorgrímur. Elsku hjartans Haukur. Þér verður ekki lýst í fáum orðum. Þú varst, ert og verður alltaf engill. Við erum enn ekki búnar að átta okkur á að þú sért farinn, en það er gott að hugsa til þess hvað þú varst glaður seinast þegar við sáum þig. Þú varst mesti snillingur sem við höf- um kynnst og verður það alltaf. Það voru forréttindi að fá að kynnast þér og við munum aldrei gleyma þér. Við vottum fjölskyldu og vinu- mokkar innilegustu samúð. Við áttum ljós svo undur hlýtt og bjart, á okkar veg það stráði geislum sínum. Það dró upp ský svo dauðans ógnar svart. Einn dag var ljósið horfið okkur sýnum. En þó það hyrfi skín það bak við ský, skynjum ei þann geisla, er frá því stafar. En aftur birtir efalaust á ný; það okkur lýsir hinummegin grafar. Í minninganna skara skulum eld; Hann skotið getur bjarma fram á veginn og yljað þar til kemur ævikveld og kæra ljósið birtist hinum megin. Er að því kemur, óska viljum þess, að eina hvílu bæði megum gista og vakna í afturelding saman hress, þá endurheimtum ljósið okkar missta. (Arnór Sigmundsson.) Minning þín lifir að eilífu. Með virðingu og söknuði, þínar vinkon- ur, Ásgerður Heba, Birgitta, Dagný og Rebekka. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA KONRÁÐSDÓTTIR, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði sunnudaginn 16. mars sl. Jarðsett verður frá Hveragerðiskirkju í dag, laugardaginn 22. mars, kl. 14.00. Guðný Jóhanna Kjartansdóttir, Ólafur Hannes Kornelíusson, Björn Guðjónsson, Ásta Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir, Óskar Elíasson, Sigurður Guðjónsson, Ólöf Geirmundsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir, Ómar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR, Laufási 7, Egilsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á Egilsstöðum. Vilhjálmur Emilsson, Björg Vilhjálmsdóttir, Emil Vilhjálmsson og fjölskyldur. Elskuleg móðursystir mín og systir, VALGERÐUR H. MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis á Háaleitisbraut 153, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudag- inn 19. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Skúladóttir, Guðrún Magnúsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR, Nesvegi 58, Reykjavík, andaðist á Landspítala Fossvogi að kvöldi fimmtudagsins 20. mars. Björn Friðriksson, Helga Friðriksdóttir, Smári Haraldsson, Elín Smáradóttir, Friðrik Hagalín Smárason, Halldór Smárason. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, ÓSKAR SIGURÐSSON fyrrum verkstjóri, til heimilis á Hrafnistu Hafnarfirði, andaðist að kvöldi fimmtudagsins 20. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Bragi Óskarsson, Sonja Håkansson, Guðfinna Óskarsdóttir, Guðmundur Ívarsson, Sigurður Óskarsson, Sigurbjörg Símonardóttir, Sigurður R. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.