Morgunblaðið - 22.03.2003, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG hlustaði í útvarpi á Sverri tala
um kvótamál og get verið sáttur við
sumt, en það sem hann sagði um út-
hafstogara, það væri ekki norðanátt
eins og stundum var sagt. Hefur
Sverrir ekki heyrt minnst á að allri
lifur er hent svo eitt sé nefnt? Þeg-
ar ég var á útilegubátum sem voru
rétt um 100 tonn þá var öll lifur og
gota sett í tunnur og meira að segja
á trollbátum hér í buktinni var hirt
lifur. Þegar pabbi var á togurum
fyrir stríð voru lifrarpeningarnir
aðal kaupið. Þegar svonefndir ný-
sköpunartogarar komu var það tek-
ið fram um breytingar frá þeim
eldri að nú þyrftu kallarnir ekki að
bera lifrina, henni væri skotið utan
af dekki, en nú fer hún beint í sjó-
inn. Sagt var frá því þegar fyrstu
stóru togararnir komu að nú stæði
til að hirða slóg og gera úr því
meltu þannig að allt væri hirt sem
inn kæmi. Ekkert varð úr öllum
þessum ráðagerðum. Það er hægt
að selja þurrkaða hausa úr landi á
sæmilegu verði svo það er ekki
ástæðan fyrir því að þeim er hent.
Ég hefði haldið að jafn glöggur
maður og Sverrir vissi um þetta og
myndi taka á þessu í ræðu sinni um
útgerð og veiði og kvótabrask en
hann minntist ekki einu orði á að
milljónum væri hent í sjóinn á tog-
urunum. Ég hélt að hann gerði
kröfu um að lifur (lýsi) og bein
væru sett í land í hverjum veiðitúr
eins og flökum. Þegar veiðar eru
skammtaðar eins og nú er, veitir
ekki af að gera verðmæti úr öllu
sem veiðist. Veiði á línu er best fall-
in til að fá góðan fisk. Þess vegna
ætti að gefa þær frjálsar á vertíð-
inni en sleppa neðanmörkum. Það
gæti orðið liður í að ná upp fiski-
stofnum. Ég vona að Sverrir og
Guðjón taki sjávarútvegsstefnu
sína til skoðunar og taki á brott-
kasti alls konar verðmæta.
Við höfum ekki efni á að kasta
fiskinum í sjóinn aftur. Ef hann
tekur fastar á í þessum efnum, þá
óska ég þeim góðs gengis í vor.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178.
Feilnóta í sjávarút-
vegssinfóníu Sverris
Hermannssonar
Frá Guðmundi Bergssyni
STJÓRNMÁLAMENN og aðrir
framámenn á landinu, svo sem for-
ystumenn verkalýðsfélaga, tala
mikið um fátækt þessa dagana.
Þessir menn eru að uppgötva það
sem ávallt hefur verið til staðar en
þeir sjá það ekki úr þeim fílabeinst-
urni sem þeir hafa reist sjálfum sér
til dýrðar. Þessir menn keppast við
að komast í sjónvarp, útvarp og
blöð til að tjá sig um hve slæmt
þetta fólk hefur það. Þeir segja að
þetta sé ólíðandi, sem þetta nátt-
úrulega er, og það verði að gera
eitthvað til að vinna bót á þessu
máli.
Mikið er ég sammála þeim að það
verði að vinna bug á þessu en ég
verð að segja að ég og þeir erum
ekki sammála um leiðir að þessu
marki.
Fyrir allmörgum árum var ég á
félagsfundi í verkalýðsfélaginu
Dagsbrún sem þá var og hét. Um-
ræðuefnið var kjarasamningur sem
verið var að reyna að keyra í gegn
af forsvarsmönnum félagsins. Þeim
var mjög í mun að koma þessum
samningum í gegn en margir voru
þeirrar skoðunar að lægstu launin
hækkuðu ekki nógu mikið og vildu
reyna að gera betur. Ég var einn
þeirra sem mæltu með því að reynt
yrði að bæta hag þeirra lægst laun-
uðu og stakk þá og geri enn upp á
að forsvarsmenn verkalýðsfélaga
fengju greitt fyrir sína vinnu miðað
við þann lægsta taxta sem verka-
lýðsfélagið býður upp á. Þannig
myndi formaður Eflingar fá t.d. 2,5-
faldan lægsta taxta félagsins fyrir
fulla vinnu. Til að hækka í launum
yrði formaðurinn að hækka lægstu
launin. Þegar þessi fundur var
haldinn í Austurbæjarbíói voru for-
svarsmenn félagsins búnir að
stefna þangað nógu mörgum já-
mönnum til að samþykkja samning-
inn og hafa það eftir sem áður allt
of gott miðað við félagsmennina
sem þeir hafa samningsrétt fyrir.
Ég mæli því enn með að laun
stjórnenda verði miðuð við þá
smánartaxta sem greiddir eru. For-
stjórar fá laun í samræmi við
lægstu laun sem fyrirtæki þeirra
greiða og verkalýðsforingjar í takt
við þá samninga sem þeir gera.
Ríkisstjórn og þingmenn eiga að fá
greidd laun í samræmi við það sem
ríkið greiðir þeim lægst launuðu.
Þessir menn myndu þá e.t.v. sjá
með eigin augum hvernig laun í
landinu liggja. Það erum við kjós-
endur og félagsmenn í verkalýðs-
félögum sem eigum að krefjast þess
að þessir menn beri hag okkar fyrir
brjósti og nota kosningarétt okkar í
þingkosningum og á almennum
verkalýðsfundum til að fá þessu
framgengt en ekki sitja og bíða og
vona. Þá gerist aldrei neitt.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
Tjarnarlöndum 13,
Egilsstöðum.
Fátækt á Íslandi
er staðreynd
Frá Sigurði Sigurðarsyni