Morgunblaðið - 22.03.2003, Síða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 53
EFTIR slæma byrjun undir stjórn
Teits Þórðarsonar, hefur Lyn held-
ur betur tekið við sér. Þegar Lyn
lagði Molde í gær, 2:0, í æfingaleik
voru það íslensku framherjarnir Jó-
hann B. Guðmundsson og Helgi Sig-
urðsson sem voru hetjur liðsins. Jó-
hann B. skoraði bæði mörkin – það
fyrra eftir sendingu frá Helga og
seinna markið úr vítaspyrnu sem
Helgi fiskaði – er brotið var á honum
innan vítateigs.
NORSKIR fjölmiðlar sögðu að
leikmenn Lyn hefðu yfirspilað leik-
menn Molde og væru þeir til alls lík-
legir þegar 1. deildarkeppnin hefst í
Noregi. Mörkin sem Jóhann B. skor-
aði tryggðu Lyn sinn fyrsta sigur í
æfingaleik síðan 8. febrúar.
MARTIN O’Neill, knattspyrnu-
stjóri skoska liðsins Celtic, mun
stjórna sínum mönnum í viðureign
við portúgalska liðið Boavista í und-
anúrslitum UEFA-keppninnar.
Fyrri leikurinn fer fram í Glasgow
10. apríl og seinni leikurinn í Portú-
gal 24. apríl. Ítalska liðið Lazio mæt-
ir portúgalska liðinu Porto í hinni
undanúrslitaviðureigninni. Úrslita-
leikur UEFA-keppninnar fer fram í
Sevilla á Spáni 21. maí.
IPSWICH er skuldum vafið og
segir blaðið Daily Mirror að Matt
Holland, fyrirliði liðsins, sé á förum
til Charlton á tvær millj. punda. Hol-
land vildi ekki fara til Aston Villa sl.
sumar, en liðið bauð Ipswich fjórar
millj. punda fyrir hann.
HOLLAND sagði í gær að fram-
tíð hans væri greinilega óljós. „Ég
hef sjálfur ekkert frétt um sölu,“
sagði Holland, sem vill vera áfram
hjá Ipswich. Nokkur önnur lið í úr-
valsdeild hafa sýnt honum áhuga,
eins og Middlesbrough, WBA og
Southampton.
SVEN Göran Eriksson lands-
liðsþjálfari Englendinga er ekki
sammála þeim mörgum sem segja að
vináttulandsleikir séu marklausir.
„Mér finnst þessir leikir ekki tímasó-
un og finnst betra að geta teflt leik-
mönnum fram í 45 mínútur og skoð-
að þá frekar en ekki neitt. Fyrir
leikmenn er mikill heiður að spila
fyrir England en það er vel skiljan-
legt að þegar vináttuleikir eru á dag-
skrá á milli deildarleikja, bikarleikja
og Evrópuleikja að ekki sé hægt að
búast við of miklu af leikmönnum.“
ENGLENDINGAR töpuðu fyrir
Áströlum, 3:1, á Upton Park í síð-
asta mánuði og var Eriksson harð-
lega gagnrýndur fyrir að skipta öllu
byrjunarliði sínu af velli og senda
nýtt lið inná til leiks í síðari hálfleik.
JACQUES Santini, landsliðs-
þjálfari Frakka í knattspyrnu, segir
ástæðuna fyrir því að hann valdi ekki
Marcel Desailly og Emmanuel Petit,
leikmenn Chelsea, í landsliðshópinn
fyrir leikina á móti Möltu og Ísrael
vera þá að þeir eigi við meiðsli að
stríða. Læknar Chelsea-liðsins segja
hins vegar að þeir séu búnir að ná
sér og verði í leikmannahópi liðsins í
leiknum við Manchester City í dag.
FÓLK
MANCHESTER United mætir
Evrópumeisturum Real Madrid í
8-liða úrslitum í Meistaradeild
Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram
í Madrid 8./9. apríl og seinni leik-
urinn í Manchester viku síðar.
Sigurvegarinn í viðureign liðanna
mætir sigurvegaranum úr við-
ureign Juventus og Barcelona í
undanúrslitum.
Úrslitaleikur Meistaradeild-
arinnar fer fram á Old Trafford
28. maí og er það draumur Sir
Alex Ferguson og leikmanna
Manchester að taka þátt í úrslita-
leiknum á heimavelli sínum.
Annars var drátturinn þannig í
8-liða úrslitum:
Real Madrid - Manchester Unit-
ed
Juventus - Barcelona
Sigurvegararnir mætast í
undanúrslitum 6./7. og 13./14.
maí.
Inter Mílanó - Valencia
Ajax - AC Milan
Sigurvegararnir mætast í
undanúrslitum.
Manchester United
mætir Real Madrid
Átökin eiga
ekki að hafa
áhrif á ÓL
BANDARÍKIN og Írak eiga
bæði að vera meðal þátt-
tökuþjóða á Ólympíu-
leikunum í Aþenu, hvað sem
á gengur þeirra á milli á
vígvellinum, segir Thomas
Bach, varaforseti alþjóðaól-
ympíunefndarinnar, IOC.
„Ég vona að átökin í Írak
hafi ekki áhrif á íþróttalífið
í heiminum. Íþróttirnar eru
hluti af samskiptum þjóð-
anna og við þurfum að halda
þeim gangandi. IOC mun
vinna að því að á Ólympíu-
leikunum í Aþenu verði
íþróttamenn frá Bandaríkj-
unum og Írak, frá Norður-
og Suður-Kóreu og frá Ísr-
ael og Palestínu. Á okkar
vegum má ekki reisa múra
með því að hóta því að
hundsa leikana – við eigum
þvert á móti að byggja brýr
sem eru sjáanlegar á Ólymp-
íuleikunum,“ sagði Thomas
Bach í gær.
Bárður spáði fyrir Morgunblaðiðum leikina í 8-liða úrslitunum.
Hann spáði rétt fyr-
ir um tvær viður-
eignir, það er að KR
mundi leggja Njarð-
vík, 2:0 og Grindavík
Hamar, 2:1. Bárður spáði sömuleið-
is rétt fyrir um að Keflavík hefði
betur á móti ÍR en hann tippaði á
2:0 sigur Keflvíkinga en einvígið
endaði, 2:1. Bárður reyndist hins
vegar ekki sannspár um viðureign
Hauka og Tindastóls. Hann spáði
Haukum sigri, 2:1, en Tindastóls-
menn höfðu betur, 2:1.
Grindavík og Tindastóll mætast í
fyrsta leik undanúrslitanna í dag en
til að komast í úrslitin um Íslands-
meistaratitilinn þarf lið að vinna
þrjá leiki. Grindavík vann báða
deildarleikina í vetur, 83:78, á Sauð-
árkróki og 84:77 í Grindavík.
Grindvíkingar hafa dalað
„Ég er alveg sannfærður um að
Tindastóll á eftir að veita deildar-
meisturunum mjög harða keppni en
ég hallast þó að því að Grindvíking-
ar hafi þetta, 3:2. Mér finnst reynd-
ar Grindavíkurliðið ekki hafa verið
að spila eins vel upp á síðkastið eins
og það gerði fyrr í vetur og það er
eins og liðið hafi aðeins dalað eftir
að Darryl Lewis meiddist. Hann er
reyndar kominn í gang aftur en mér
fannst Grindvíkingar ekki á sama
flugi í leikjunum við Hamar eins og
fyrr á tímabilinu, einbeitingin ekki
sú sama og leikur þeirra ekki eins
agaður. Ef Grindavíkurliðið dettur í
stuð og fær að leika sinn hraða leik
þá verður á brattann að sækja fyrir
leikmenn Tindastóls,“ segir Bárður.
Stígandi hjá Tindastóli
Um lið Tindastóls, sem mörgum á
óvart sló lið Hauka út, segir Bárður:
„Leikmenn Tindastóls eru á sigl-
ingu og það hefur verið góður stíg-
andi í leik þeirra. Það kæmi mér
ekkert á óvart ef Tindastóll tækist
að vinna þetta einvígi. Liðið hefur
burði til þess en ég held samt að
þeim takist það ekki. Breiddin hefur
verið meiri hjá Grindvíkingum en
menn mega ekki gleyma því að í liði
Tindastóls eru leikmenn eins og
Sigurður Sigurðsson og Einar Örn
Aðalsteinsson sem hafa kannski
ekki náð að sýna sínar réttu hliðar.
Ef þeir ná sér upp í þessum leikjum
mun breiddin aukast til mikilla
muna í Tindastólsliðinu. Tindastóll
er með leikmenn sem geta klárað
leiki upp á eigin spýtur og þá á ég
við Clifton Cook og Kristin Frið-
riksson. Ef þeir fá að leika lausum
hala þá eiga Grindvíkingar ekki von
á góðu.“
Keflavík og Njarðvík hafa í gegn-
um árin eldað grátt silfur saman og
á Bárður ekki von á öðru en að há-
spenna lífshætta verði til staðar
þegar þessir erkifjendur á körfu-
boltavellinum hittast. Íslandsmeist-
arar Njarðvíkinga unnu báða deild-
arleikina sem voru æsispennandi,
83:81 í Njarðvík og 88:77 í Keflavík.
„Stríðsástand er líklega rétta orð-
ið til að lýsa þessari rimmu og ég
held að hver einasti leikur verði
slagur. Þarna mætast stálin stinn og
ég er alveg handviss um að rimman
verður æsispennandi út í gegn. Ég
spái samt að Njarðvíkingar standi
uppi sem sigurvegarar og vinni,
3:2,“ segir Bárður.
Viljinn aðalvopn Njarðvíkinga
„Bæði lið er mjög sterk um þess-
ar mundir og koma vel undirbúin til
leiks og þá sérstaklega Njarðvík-
ingarnir. Ef eitthvert lið getur
stöðvað Keflvíkingana eru það
Njarðvíkingar. Að mínu mati kemur
leikur Njarðvíkinga mikið til með að
byggjast upp á því hvernig Páli
Kristinssyni tekst upp. Ef hann nær
sér á strik í vörn og sókn gæti hann
orðið lykillinn að sigri Njarðvíkinga.
Njarðvíkurliðið hefur lent í tölu-
verðum hremmingum og valdið
mörgum vonbrigðum en eftir að nýi
útlendingurinn kom hefur liðið
smollið saman. Sjálfstraustið hefur
skinið út úr leikmönnum liðsins og
Teitur hefur verið magnaður í und-
anförnum leikjum og hann hefur svo
sannarlega verið tveggja manna
maki. Það er gífurlegur vilji hjá
Njarðvíkingum sem ég held að geti
fleytt þeim áfram úr þessum slag
auk þess sem mjög erfitt er við þá
að eiga þegar þeir eru komnir á
þetta skrið.“
Keflvíkingar vel mannaðir
„Keflvíkingar hafa bæði mann-
skap og getu til að vinna einvígið og
eins og ég sagði um leiki Grindvík-
inga og Tindastóls þá yrði ég ekkert
hissa þó svo að Keflvíkingar hefðu
betur. Ég held samt að Keflvíkingar
eigi í vændum mjög erfiða leiki og
spurning hvernig þeim tekst að eiga
seigluna og baráttuna í liði Njarð-
víkinga. Keflvíkingar eru feikilega
vel mannaðir í flestum stöðum og
eiga afbrags skyttur og þá eru
Bandaríkjamennirnir Saunders og
Johnson mjög sterkir leikmenn.
Saunders fær á sig mjög sterkan
varnarmann sem Friðrik Stefáns-
son er og því er lykilatriði fyrir
Keflvíkinga að Damon Johnson nái
sér á strik. Ég hlakka mikið til að
fylgjast með báðum undanúrslit-
arimmunum og vonandi fáum við
oddaleiki á báðum vígstöðvum.“
Njarðvíkingar erfiðir
UNDANÚRSLITIN í úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefjast í dag
með leik Grindvíkinga og Tindastóls í Grindavík og á morgun leiða
saman hesta sína grannaliðin Keflavík og Njarðvík í Keflavík. Bárð-
ur Eyþórsson, þjálfari Snæfells í Stykkishólmi, reiknar með mjög
spennandi einvígjum en hann hallast að því að Grindavík og Njarð-
vík hafi betur í oddaleikjum og mætist í úrslitunum um Íslands-
meistaratitilinn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þeir verða á ferðinni um helgina – Damon Johnson, Keflavík, og Darryl Lewis, Grindavík.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson
Bárður Eyþórsson spáir fyrir um undanúrslitin um Íslandsbikarinn