Morgunblaðið - 22.03.2003, Page 58

Morgunblaðið - 22.03.2003, Page 58
58 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 2.45. Sýnd kl. 6, 8, 10 og kraftsýnig kl. 12. Sýnd kl. 4 Sýnd kl. 10. B.i. 16.Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16. Sýnd kl. 3 og 4.30. Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta mynd og besti leik- stjóri 10  HJ MBL Frábær spennu- tryllir sem hræðir úr þér líftóruna. Þegar röðin er komin að þér þá flýrðu ekki dauðann! Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS SV. MBL HK DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 13 Tilnefningar til Óskars- verðlauna þ. á. m. besta mynd Sýnd kl. 5.45 og 8. B.i 12. Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 1.40, 3.45 og 5.50. Sýnd kl. 2.Sýnd kl. 3, 8 og 10.20. B.i. 16 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5,50, 8 og 10.10. b.i. 12. kl. 8 og 10.20 Einnig sýnd í LÚXUSSAL kl. 4. B. i. 12. Skemmtilegasta rómantíska gamanmyndin síðan Pretty Woman! Rómantík, grín og góð tónlist í frábærri mynd!  HJ MBL  Radíó X  Kvikmyndir.com X-IÐ Frá Óskarverðlaunahöfunum James Cameron sem leikstýrði Titanic og Steven Soderberg sem leikstýrði Traffic kemur einstætt meistaraverk. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd! GEORGE CLOONEY Frá Óskarverðlaunahöfunum James Cameron sem leikstýrði Titanic og Steven Soderberg sem leikstýrði Traffic kemur einstætt meistaraverk. Nú í Smárabíói. Missið ekki af þessari mögnuðu mynd! THE YARDBIRDS er ein áhrifa- mesta hljómsveit sem sjöundi ára- tugurinn gaf popp/rokksögunni, þótt langt í frá sé hún sú þekkt- asta. Með henni störfuðu þrír heimsfrægir gítarleikarar, þeir Er- ic Clapton, Jeff Beck og Jimmy Pag, og hún var með þeim allra fyrstu sem hófst handa við að opna upp popp-formið og sníða því til- raunavænni stakk en áður hafði þekkst. Pressan var óþægileg Jim McCarty hefur verið í Yard- birds frá upphafi tíma og stýrir nú sveitinni ásamt gítarleikaranum Chris Dreja. McCarty er fjölhæfur tónlistarmaður auk trommusláttar- ins og þannig semur hann fimm af þeim sjö nýju lögum sem prýða væntanlega plötu, Birdland. „Við vorum í Bandaríkjunum í síðustu viku, nokkuð stíft ferðalag. En þetta gekk vel,“ útskýrir McCarty rólegri röddu. Myndin sem maður fær í gegnum símann er af hæglátum, hógværum manni; enda kemur í ljós þegar á líður að hann er laus við allt stærilæti og sér fortíðina ekkert endilega í gullnum ljóma, er til muna áhuga- samari um það sem Yardbirds eru að gera núna. „Þetta féll saman á sínum tíma af hinum og þessum ástæðum,“ út- skýrir McCarty þegar hann er beðinn um að líta til baka yfir fer- ilinn og endalok Yard- birds, en sveitin hætti endanlega störfum ár- ið 1968. „Það var t.d. óþægi- leg pressa á okkur hvað nýjar smáskífur varðaði. Á þessum tíma snerist allt um smáskífur og undir restina þá vorum við bara búnir á því og gátum ekki snarað þessu út líkt og við gerðum. Við leituðum því á náðir Mickie Most (upptökustjóri Animals, Donovan, Herman’s Hermit o.fl.) og hann gerði með okkur Little Games plötuna. En það gekk ekki upp og eftir á að hyggja voru það mis- tök.“ Á áttunda áratugn- um stofnaði McCarty svo framsæknu rokk- sveitina Renaissance ásamt Keith Relf, fyrrum félaga í Yard- birds. Þar náðu þeir að endurskapa sig tónlistarlega og Rena- issance er í dag álitin hin sæmilegasta stærð í rokksögunni. McCarty hefur á þennan hátt alltaf ver- ið með puttana í tón- list, kom t.d. sveitinni Box of Frogs á kopp- inn upp úr 1980, en hún innihélt m.a. nokkra fyrrum Garðfugla. Einnig kom hann eigin blússveit á stofn og hefur gefið út nokkrar einherjaskífur. Nýja platan viss eldraun Í dag skipa Yardbirds, ásamt þeim McCarty og Dreja, þeir John Idan bassaleikari og söngvari, Al- an Glen munnhörpuleikari og Gyp- ie Mayo gítarleikari (sjá hliðar- grein). Það var upp úr ’97 sem sveitin var endurreist en ekki fyrr en nú sem hljómskífa kemur út. Auk nýju laganna eru þar útgáfur af eldri lögum eins og „For Your Love“, „Shapes Of Things“ og „Happenings Ten Years Time Ago“. Á plötunni kemur við sögu sannkallað stjörnustóð gítarleik- ara; Jeff „Skunk“ Baxter, Steve Lukather, Brian May, Joe Satr- iani, Slash og Steve Vai – allir eru þeir þarna og gítarhetjur því aldr- ei langt undan þegar Yardbirds fara á kreik. „Í stað þess að gera bara plötu með gömlu lögunum ákváðum við að semja nýtt efni líka og vera „nú- tímalegir“,“ segir McCarty og kím- ir. Hann segir enn fremur að löng fæðing plötunnar sé m.a. tilkomin vegna þess að útgáfufyrirtæki höfðu takmarkaðan áhuga á nýju Yardbirds-efni. „Það var ágætis eldraun að fara út í það að semja ný lög sem myndu standa með þessum sí- gildu,“ heldur hann áfram. „En það fer ágætlega um þau þarna, þau eru í þessum Yardbirds-stíl. Sá sem stýrði upptökum gerði líka vel (Ken Allardyce en hann hefur unnið með Weezer, Green Day og The Yardbirds leika á Broadway í næstu viku „Það lögðu allir til sinn skerf…“ Hinir fornfrægu – og nú endurreistu – Yardbirds eru væntanlegir til landsins eftir helgi. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við trymbilinn Jim McCarty um allar uppákomurnar sem átt hafa sér stað, 35 árum eftir sokkabandsárin. The Yardbirds þykja orkumikið tónleikaband í dag – líkt og í gamla daga. Jim McCarty: „Mel- ódíurnar koma bara í hausinn á mér…“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.