Morgunblaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 15
fari nú um hringveginn á milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur að innan nokk-
urra ára sé óhjákvæmilegt að endur-
byggja verulegan hluta af þeirri leið
og breikka hringveginn af öryggis-
ástæðum. „Það mun kosta verulega
fjármuni sem hægt er að spara með
því að leggja þá í staðinn í þann veg
sem ég er að tala um. Ég sé það fyrir
mér að hann verði hannaður með það
fyrir augum að þungaflutningar fari
um hann, þess vegna verði meiri
burður í honum en öðrum vegum og
hann verði svo breiður að fyllsta ör-
yggis sé gætt. En auðvitað nýtist veg-
urinn þeim mönnum líka sem eiga er-
indi suður eða norður, og ferða-
mönnum því þessi leið mun þykja
mjög eftirsótt og til þess fallin að
styrkja stöðu alls Norðurlands og í
raun Austurlands líka í ferðamálum.“
Halldór leggur áherslu á að hug-
myndir sínar séu vitaskuld á frum-
stigi. „Nú liggur fyrir að athuga veð-
urlag á þessari leið og snjóalög og
síðan tekur það sinn tíma að hanna
veginn og ég geri ráð fyrir því að um-
hverfismat muni taka um tvö ár þann-
ig að ef til kemur verður ekki hægt að
hefjast handa fyrr en eftir fimm eða
sex ár. Við höfum því tíma fyrir okkur
en það er nauðsynlegt í samgöngu-
málum að hafa sýn og horfa nokkur ár
fram í tímann,“ segir Halldór Blön-
dal.
skapti@mbl.is
%&' ()*+,%-.+
&
+/
'
'"($)
*+
+
#
*
, )
!
kvæmdastjóri hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar, sagði að þeir sem vildu
styðja hjálparstarf vegna stríðsins
gætu gert það með ofangreindum
hætti, en ekki stæði til að fara í stóra
landssöfnun enn sem komið væri.
Hann sagði að samtökin ætluðu að
bíða um sinn og sjá hverjar afleið-
ingar stríðsins yrðu. Samtökin vinna
náið með Alþjóðlegu hjálparstarfi
kirkna sem nú þegar hefur hafið öfl-
ugt hjálparstarf.
Hjá Rauða krossi Íslands eru fjór-
ir Íslendingar í viðbragðsstöðu til að
fara til Íraks og nágrannalanda til að
sinna hjálparstarfi vegna stríðsátak-
anna. Rauði krossinn hefur einnig
opnað söfnunarsíma sinn. Allir geta
stutt málefnið með því að hringja í
907-2020 og þá fara 1.000 krónur
sjálfkrafa af næsta símareikningi.
„Við höfum tilkynnt alþjóða Rauða
krossinum að við séum tilbúin að
senda allt að fimm sendifulltrúa
núna. Það er einn farinn og tveir í
viðbragðsstöðu,“ sagði Þórir Guð-
mundsson, upplýsingafulltrúi RKÍ.
BORIST hefur beiðni til utanríkis-
ráðuneytisins um fjárframlag til
neyðaraðstoðar vegna stríðsins í
Írak. Samkvæmt upplýsingum frá
Finnboga Rúti Arnarsyni, sendifull-
trúa og umsjónarmanni íslensku
friðargæslunnar, verður ráðuneytið
ekki við þeim óskum strax, heldur
hefur ákveðið að bíða og sjá hvernig
ástandið þróast. Hann sagði að
flóttamannastraumur frá landinu
væri minni en búist hefði verið við.
„Ráðuneytið mun fjármagna aðgerð-
ir til friðargæslunnar. Svo er spurn-
ing hvort ríkisstjórnin leggur fé til
mannúðar- og uppbyggingastarfs,“
sagði Finnbogi Rútur. Friðargæslan
fékk 245 milljónir króna á þessu ári
frá ríkinu, en þar var ekki tekið tillit
til neyðaraðstoðar vegna stríðs.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur
opnað reikning sinn, 1150-26-27 og
tekur þar við frjálsum framlögum.
Einnig hefur verið opnað símanúm-
erið, 902-2002, en þúsund krónur
bætast við símareikning þess sem
hringir. Jónas Þórisson, fram-
Aðstoð undirbúin vegna Íraksstríðsins
Vilja sjá hvernig
ástandið þróast