Morgunblaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 53 FÓLK  STOKE gekk í gær frá lánssamn- ingi við Ade Akinbiyi, framherja frá Crystal Palace, og Paul Warhurst varnarmann frá Bolton. Báðir verða leikmennirnir hjá Stoke til loka leik- tíðar í vor.  READING náði samningum við Manchester United um að halda Luke Chadwick til loka leiktíðarinn- ar. Chadwick, sem hefur verið í láni frá United undanfarnar vikur, hefur leikið vel fyrir Reading sem er í bar- áttu um að tryggja sér sæti í auka- keppni 1. deildarinnar um laust sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.  ASTON Villa og Birmingham hafa bæði fengið ákæru frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins en grannaslagur liðanna á Villa Park á dögunum þótti með afbrigðum rudda- legur og var íþróttinni til skammar að mati aganefndarinnar.  DION Dublin framherji Aston Villa er með tvær ákærur á bakinu frá aganefndinni en hann fékk að líta rauða spjaldið í umræddum leik. Önn- ur ákæran lítur að því þegar Dublin skallaði í andlit Robbie Savage og hin hvernig hann brást við þegar honum var vikið af velli fyrir brotið. Dublin gæti því fengið sex leikja bann í það heila.  CHRISTOPH Dugarry leikmaður Birmingham fékk sömuleiðis ákæru og á yfir höfði sér þriggja leikja bann fyrir að spýta á Jóhannes Karl Guð- jónsson.  HOLLENDINGURINN Peter Hoekstra vill gjarnan framlengja samning sinn við Stoke City en samn- ingur hans og fleiri leikmanna liðsins rennur út í sumar. Hoekstra, sem er 29 ára gamall og skoraði bæði mörk Stoke í sigri á Watford um síðustu helgi, segist mjög ánægður með veruna hjá Stoke og hann líkir ensku 1. deildinni við hollensku úrvalsdeild- ina að styrkleika.  ZINEDINE Zidane mun bera fyr- irliðabandið hjá Frökkum í leikjunum á Möltu og í Ísrael í undankeppni EM í stað Marcels Desailly sem ekki var valinn í liðið. Zidane og Patrick Vieira, fyrirliði Arsenal, kepptust um að fá fyrirliðastöðuna og á endanum ákvað landsliðsþjálfarinn Jacques Santini að fela Zidane hlutverkið. Zidane hefur leikið 80 landsleiki fyrir Frakka en Vieira 61.  ALGIMANTAS Liubinkas nýr landsliðsþjálfari Litháa í knattspyrnu hefur neyðst til að gera talsverðar breytingar á landsliðshópi sínum fyr- ir leikinn á móti Þjóðverjum í und- ankeppni EM á laugardaginn en þjóð- irnar leika í sama riðli og Íslendingar.  FJÓRIR leikmenn Litháa eru meiddir og einn tekur út bann og því hefur þjálfarinn þurft að kalla inn nýja og óreyndari leikmenn í lið sitt. Litháar eru með þrjú stig í riðlinum eftir sigur á Færeyingum en þeir töp- uðu fyrir Þjóðverjum á heimavelli, 2:0, og 3:0 fyrir Íslendingum á Laug- ardalsvelli. KENNY Miller, leikmaður Wolves, er talinn líklegur til að leika í fremstu víglínu hjá Skotum gegn Ís- lendingum á morgun, eða þá að hann komi snemma inn á sem vara- maður. Miller, sem hefur í nokkur ár verið talinn efnilegasti sóknarmaður Skota, á aðeins einn A-landsleik að baki en hann spilaði í 10 mínútur í vináttuleik gegn Pólverjum fyrir þremur árum. Í vetur hefur hann skorað um 20 mörk fyrir Wolves í ensku 1. deildinni, megnið af þeim eftir áramótin, og var þá á tímabili kominn með 12 mörk í 9 leikjum. Ívar Ingimarsson lék með Miller framan af vetri, áður en Ívar var lánaður frá Wolves til Brighton í febrúar. „Miller er góður sókn- armaður og við verðum að hafa sér- stakar gætur á honum ef hann kem- ur við sögu í leiknum. Hann er flinkur og ákafur leikmaður, vill gera hlutina hratt og af krafti, þann- ig að varnarmenn mega ekki gefa honum svigrúm. Hann minnir mig að mörgu leyti á Ruud van Nistel- rooy, nema hann er ekki eins fljótur. Það kæmi mér ekki á óvart þó Miller yrði með, hann er í feiknarlegu formi um þessar mundir, með mikið sjálfstraust, og þetta er í raun versti tíminn til að mæta honum. En við verðum þá að taka vel á honum, það er ekki um annað að ræða,“ sagði Ív- ar Ingimarsson. Ívar líkir Kenny Miller við Ruud van Nistelrooy Heimamenn reyndu að opna vörnVals með hröðum leik en það gekk ekki vel til að byrja með. Hin- um megin spilaði Fram 3-2-1 vörn en hún gekk ekki upp fram að miðjum fyrri hálfleik. Þá skellti Magnús Gunnar Erlendsson marki Fram í lás, vörnin small sam- an og slökkti á öllum sóknartilburð- um Valsmanna, sem áttu ekkert svar og horfðu uppá Fram skora 11 mörk á móti einu svo að staðan í hálfleik var 17:8. Stuðningsmenn Fram eigruðu órólegir um gangana í leikhléi – sögðu þetta of gott til að vera satt. Leikmenn voru ekki á sama máli og hófu síðari hálfleik af sama krafti en þegar Magnús Gunnar varði úr opnu færi á fyrstu mínútu og tvö vítaskot fóru forgörðum var allur vindur úr Val. Þeim tókst ekki að rífa sig upp úr doðanum og Fram bætti forskotið um eitt mark fyrir leikslok. „Mér hefur alltaf gengið vel með Val,“ sagði Magnús Gunnar mark- vörður Fram eftir leikinn en hann lagði öðrum fremur grunninn að sigrinum. „Við ætluðum alveg eins og í fyrri leiknum að spila 3-2-1 vörn, vera grimmir og leyfa skyttum þeirra ekki að komast inn fyrir níu metrana því þar eru þeir öflugastir. Það var jafnvel smáskrekkur í okk- ur í byrjun því það var pressa á okk- ur fyrir leikinn en hún var líka á Völsurunum og þegar þeir fengu mótlæti held ég að þeir hafi ekki þolað það.“ Ásamt honum fór Valdi- mar Þór Þórsson á kostum og Har- aldur Þorvarðarson, Stefán Baldvin Stefánsson og Hjálmar Vilhjálms- son áttu góðan leik. „Við misstum niður um okkur,“ sagði Pálmar Pétursson markvörð- ur Vals eftir leikinn en hann tók stöðu Roland Vals Eradze eftir hlé og varði vel. „Það var góð stemmn- ing í liðinu fyrir leikinn en hinir voru ákveðnari og langaði meira í sigur. Við reiknuðum frekar með vörn þeirra aftarlega en eigum að eiga svar við öllu, erum efsta liðið og eig- um að geta eitthvað á móti liði í ní- unda sæti, með fullri virðingu fyrir Fram.“ Aðrir leikmenn lögðu lítið á vogarskálarnar, helst Markús Máni Mikaelsson og Ragnar Ægisson. Morgunblaðið/Sverrir Þorbjörn Gunnarsson, leikmaður Fram, er hér kominn framhjá Ragnari Ægissyni og skorar eitt af þremur mörkum sínum – sendir knöttinn framhjá Roland Eradze, markverði Vals. Fram í gang og Valur brotlenti HARKALEGASTA brotlending vetrarins átti sér stað í Safamýrinni í gærkvöldi þegar Valur sótti Fram heim. Gestirnir höfðu nauma for- ystu en síðan hrundi leikur þeirra um leið og Framarar fundu heldur betur fjölina sína, stungu Valsmenn af og linntu ekki látum fyrr en 13 mörk skildu liðin að, 29:16. Sigurinn skilar Fram upp í 7. sæti og þar með inn í úrslitakeppnina þegar ein umferð er eftir. Þó að möguleikar á að halda sig inni í úrslitakeppninni séu frekar meiri en minni vita þeir manna best að kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Stefán Stefánsson skrifar Fyrstu mínúturnar voru daufarog lítið var skorað framan af. Varnir beggja liða voru sterkar og var mikið af skotum utan af velli – sem flest fóru forgörð- um. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn, með Einar Hólmgeirsson fremstan í flokki, voru þó ívíð sterkari, en for- skot þeirra varð þó aldrei meira en tvö mörk. Þegar síga tók á seinni hluta hálfleiksins var jafnt á öllum tölum og bæði lið gengu til bún- ingsklefa með ellefu mörk. Leikur liðanna var gjörbreyttur í síðari hálfleik, talsvert meiri harka var og virtist sem leikmenn áttuðu sig á að þeir væru komnir til að sigra. Það tók ÍR-inga þó að- eins lengri tíma því eftir tíu mín- útna leik höfðu gestirnir skorað sjö mörk á móti tveim heimamanna – þar með voru þeir komnir fimm mörkum framúr. Þá tóku heima- menn leikhlé og við það hresstist leikur þeirra til muna og var tekið til við að grynnka á muninum. Arn- ór Atlason var tekin úr umferð – þá hafði hann gert fimm mörk – og það tók ekki nema átta mínútur fyrir ÍR að breyta stöðunni úr 13:18 í 19:20 og tólf mínútur til leiksloka. Lokamínúturnar voru spennandi og skemmtilegar. Heimamenn fengu mýmörg tæki- færi til að jafna leikinn, þar á með- al fékk Sturla Ásgeirsson vítakast sem hann misnotaði, en sterk vörn norðanmanna gaf hvergi eftir, þrátt fyrir að missa tvo menn útaf með rautt spjald á stuttum tíma. KA-menn réðu ferðinni síðustu mínúturnar og þrátt fyrir að hafa aðeins sigrað með einu marki, 23:24, var sigurinn ekki í neinni hættu. „Ég er sáttur með sigurinn en við þurftum þrjú mörk til að kom- ast upp fyrir ÍR innbyrðis, við vissum það fyrir leikinn og um tíma var það alveg möguleiki. Við vorum klaufar, fengum of mikið af brottvísunum á okkur og sóknir fóru forgörðum. Það lá ljóst fyrir að það yrði erfitt að sækja þá heim, en við unnum vel fyrir sigr- inum og tókum þá úr baráttunni um efsta sætið,“ sagði fyrirliði KA, Jónatan Magnússon, en hann gerði fimm mörk og dreif sína menn áfram í leiknum. KA-menn lögðu ÍR ÁHORFENDUR í Austurbergi fengu peninga sinna virði í gær- kvöld þegar ÍR-ingar fengu fríska KA-menn í heimsókn. Eft- ir hnífjafnan fyrri hálfleik náðu norðanmenn vænlegri stöðu snemma í þeim síðari, hetjuleg barátta heimamann til að grynnka á muninum dugði ekki til og fóru KA-menn með góðan sigur á hólmi, 23:24. Andri Karl skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.