Morgunblaðið - 28.03.2003, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Löglærðir fulltrúar
Vegna aukinna umsvifa er óskað eftir löglærð-
um fulltrúum til starfa sem fyrst á lögmanns-
stofunni DP Lögmönnum. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi þegar aflað sér lögmannsrétt-
inda. Hlutastörf koma til greina. Í boði eru
áhugaverð og krefjandi verkefni í góðu um-
hverfi. Umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og starfsreynslu skal senda á skrifstofuna
eigi síðar en 7. apríl nk. Nánari upplýsingar
gefur Dögg Pálsdóttir hrl. í dogg@dp.is .
DP LÖGMENN
Hverfisgötu 4-6 - 101 Reykjavík - sími 561 7755
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn
föstudaginn 4. apríl nk. á 14. hæð í
Húsi verslunarinnar og hefst hann kl. 16.00.
Aðalfundur
Aðalfundur Starfsmannafélags ríkisstofnana
verður haldinn á Grettisgötu 89 laugardaginn
29. mars kl. 13.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Skólakynning
Skrúfudagur
Vélskóla Íslands
Kynningardagur
Stýrimannaskólans
í Reykjavík
laugardaginn 29. mars
kl. 13.00 — 16.30.
Starfsemi skólanna ásamt tækjum og
kennslugögnum kynnt. Fyrirtæki og
stofnanir í þágu sjávarútvegs og siglinga
kynna starfsemi sína og þjónustu.
Kvenfélögin Hrönn og Keðjan verða
allan daginn með kaffiveitingar og frá-
bærar kökur og tertur á vægu verði í
matsal Sjómanmnaskólans á 1. hæð.
Allir velkomnir
Skólameistarar.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Óskum eftir
íbúð til leigu
Erum að leita að 4ra-5 herbergja
íbúð í gamla vesturbænum (101).
Reglusöm og snyrtileg hjón, með 2
börn, að flytja heim eftir langa dvöl
erlendis, vantar íbúð til leigu sem fyrst.
Vinsamlega hafið samband í s. 896 1282
eða á netfangi: vantaribud@mac.com
TILKYNNINGAR
Auglýsing
Deiliskipulag íbúðabyggðar í landi
Ásgarðs, Grímsness- og Grafningshreppi
Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997 er hér með
lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag
íbúðabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsness-
og Grafningshreppi. Skipulagstillögur liggja
frammi á skrifstofu Grímsness- og Grafnings-
hrepps frá 28. mars til 28. apríl 2003.
Skriflegum athugasemdum við skipulagstillög-
urnar skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins
fyrir 14. maí 2003. Þeir, sem ekki gera athuga-
semdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
tillögunni.
Sveitarstjóri Grímsness-
og Grafningshrepps.
Fyrirsöngur í
Íslensku óperunni
28. apríl til 3. maí
Fyrirsöngur verður haldinn í Íslensku óperunni
dagana 28. apríl til 3. maí nk. Þeir, sem áhuga
hafa á þátttöku, eru beðnir að senda upplýsing-
ar um nám og söngferil, ásamt lista yfir 5 aríur
sem þeir vilja syngja, til Íslensku óperunnar,
pósthólf 1416, 121 Reykjavík, fyrir 10. apríl nk.
Sömu daga verður fyrirsöngur fyrir hina árlegu
Hans Gabor Belvedere keppni fyrir unga
söngvara, sem fram fer í Vínarborg 30. júní
til 6. júlí nk. Nánari upplýsingar um keppnina
er að finna á vefslóðinni:
www.belvederecompetition.at
Færsla Hringbrautar
í Reykjavík
Mat á umhverfisáhrifum — athugun
Skipulagsstofnunar
Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa tilkynnt
til athugunar Skipulagsstofnunar matsskýrslu
um færslu Hringbrautar í Reykjavík.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 28. mars til 9. maí
2003 á eftirtöldum stöðum: Í Ráðhúsi Reykja-
víkurborgar, á skrifstofu borgarverkfræðings,
í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Línu-
hönnunar: www.lh.is .
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
9. maí 2003 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á deiliskipulagsáætlun í Reykjavík.
Víðidalur Fákur.
Tillagan gerir ráð fyrir að nýr reiðstígur komi
sunnan við Brekkuás, reiðstígur norðan við
hesthúsin færist ofar í brekkuna, ný reiðgata
komi sunnan við byggð í D-tröð og ný reið-
göng komi undir Breiðholtsbraut, sunnan nú-
verandi ganga sem verða eingöngu fyrir
göngu- og hjólreiðafólk.
Einnig gerir tillagan ráð fyrir að leyfðar verði
ofanábyggingar húsa með takmörkunum sem
skilgreindar eru í skilmálum og skýringar-
myndum og einnig hvað varðar taðþrær.
Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir fyrir hverfið,
vestan við A-tröð og norðan hesthúsa milli B
og C- traðar. Handan Brekkuáss er lóð fyrir
bílastæði fyrir reiðhöll og gert er ráð fyrir
áframhaldandi rekstri á dýraspítala við
Brekkuás.
Tillagan liggur frammi á skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborgar í Borgartúni
3, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 28.03 2003
til 09.05. 2003. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Kynningargögn er einnig að finna á
heimasíðu skipulags- og byggingarsviðs,
skipbygg.is. Ábendingum og athugasemdum
við þær skal skila skriflega til Skipulags- og
byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 09.04. 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 28. mars 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Berghóll II, íb. í risi, 010201, Hörgárbyggð , þingl. eig. Hörður Jóns-
son, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., miðvikudaginn 2. apríl 2003
kl. 10:00.
Ægisgata 11, Hrísey, þingl. eig. Stefán Björnsson, gerðarbeiðendur
Kaldbakur fjárfestingarfélag hf., Sparisjóður Svarfdæla, sýslumaður-
inn á Akureyri og Vélaverkstæði Dalvíkur ehf., miðvikudaginn
2. apríl 2003 kl. 12:15.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
27. mars 2003.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.