Morgunblaðið - 30.03.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 87. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Eftirlitsmenn segja stefnu Schröders hafa verið
„brjálæðislega“ „Stjórnarfar óttans“ 10/11
KOMIÐ hefur verið í
veg fyrir hryðjuverka-
árásir að undirlagi
Íraka í að minnsta kosti
tveimur ríkjum í Mið-
Austurlöndum en vís-
bendingar eru um, að
lagt hafi verið á ráðin
um margar aðrar.
Richard Boucher,
talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins, sagði, að vænt-
anlegir hryðjuverkamenn hefðu verið
handteknir í samstarfi við stjórnvöld í við-
komandi ríkjum. Haft var eftir öðrum
bandarískum embættismanni, að fundist
hefðu vísbendingar um, að íraska leyni-
þjónustan hefði skipulagt hryðjuverk í um
11 borgum, flestum í Mið-Austurlöndum,
Asíu og hugsanlega í London. Sagði hann,
að tilmæli Bandaríkjastjórnar til um 60
ríkja að vísa burt íröskum sendimönnum
hefðu átt mikinn þátt í að upp um þetta
komst.
Bandaríkjastjórn hefur einnig varað við
yfirvofandi hryðjuverkaárásum í Jemen
og hefur hún hvatt þegna sína til að yf-
irgefa landið.
Hryðjuverk-
um afstýrt
Washington. AFP.
Richard Boucher
EKKERT lát er á sókn banda-
manna til Bagdad og voru gerðar
miklar loftárásir á skotmörk í borg-
inni og á varnarlínuna umhverfis
hana allan síðasta sólarhring. Enn
er barist um borgir í Suður-Írak og
hernaðurinn í norðurhluta landsins
færist í aukana. Þar hafa Írakar
hörfað síðustu daga og ætla aug-
ljóslega að verjast í olíuborginni
Kirkuk.
Ákafar loftárásir voru gerðar á
Bagdad í gær og á stöðvar Íraka
fyrir sunnan borgina. Héldu Írakar
uppi mikilli loftvarnaskothríð en
ekkert lát varð á sprengjugnýnum
langtímum saman. Áður höfðu
bandamenn varpað sprengjum á
íraska upplýsingaráðuneytið og
virtust beina þeim helst gegn fjar-
skiptaneti stjórnarinnar í borginni.
Urðu árásirnar til að trufla blaða-
mannafund þar sem fram kom, að
62 menn hefðu týnt lífi í árásunum á
borgina frá því á föstudag.
Fram kom í fjölmiðlum í gær, að
bandamenn hygðust gera hlé á
sókninni til Bagdad í því skyni að
treysta aðflutningsleiðir herjanna
en Al Lockwood, talsmaður breska
herliðsins, vísaði þeim fréttum á
bug og sagði, að sókninni yrði hald-
ið áfram af fullum þunga.
Bandamenn sitja enn um borg-
irnar Basra og Nasiriya í suður-
hlutanum en segjast munu haga
sókninni inn í þær í samræmi við
aðstæður. Í fyrrakvöld vörpuðu
þeir stórri, leysistýrðri sprengju á
tveggja hæða hús í Basra en talið
var, að þar væru um 200 íraskir
hermenn samankomnir. Síðustu
daga hafa meginskotmörk banda-
manna í Basra verið aðalstöðvar
Baath-flokksins, flokks Saddams
Husseins Íraksforseta, enda þykja
þær táknrænar fyrir yfirráð hans.
Í Nasiriya beinast aðgerðirnar
einkum að því að tryggja yfirráð yf-
ir þjóðveginum, sem liggur um
borgina og til Bagdad.
Mikil átök við Karbala
Bandarískar Apache-þyrlur
gerðu í gær harða hríð að Medina-
herdeild Lýðveldisvarðarins í
Karbala, sem er um 80 km fyrir
sunnan Bagdad, en hún á að verjast
framsókninni frá vestri til Bagdad.
Í Norður-Írak eru bandarískar
sveitir og liðssafnaður Kúrda að
hefja nýja sókn og í gær hörfuðu
Írakar frá einni víglínunni og héldu
til olíuborgarinnar Kirkuk. Má bú-
ast við hörðum bardögum þar.
Fimm bandarískir hermenn
týndu lífi í gær í sjálfsmorðsárás við
borgina Najaf. Var leigubifreið
stöðvuð við varðstöð og þegar her-
mennirnir nálguðust var hún
sprengd í loft upp.
Harðir bardagar og
ný víglína í norðri
Fimm banda-
rískir hermenn
féllu í sjálfs-
morðsárás
SLÖKKVILIÐSMENN berjast við olíuelda í einni lind
á Rumalya-olíuvinnslusvæðinu í Suður-Írak. Mjög
erfitt getur reynst að slökkva eldana vegna þess hve
mikill þrýstingur er á olíunni á þessum slóðum.
Reuters
Glímt við elda í olíulindum
LÍFEYRIR frá lífeyrissjóðum op-
inberra starfsmanna var að með-
altali nærfellt þrefalt hærri á
árinu 2001 en lífeyrir frá lífeyr-
issjóðum á almennum markaði. Þá
er hlutfall örorkulífeyris miklu
mun hærra hjá lífeyrissjóðum á
almennum markaði en hjá lífeyr-
issjóðum opinberra starfsmanna,
þar sem makalífeyrir er aftur á
móti mun hærri en hjá lífeyris-
sjóðum á almennum markaði.
Á árinu 2001 fengu 41.260 líf-
eyrisþegar í lífeyrissjóðum á al-
mennum markaði greidda saman-
lagt tæpa 12,6 milljarða króna í
elli-, örorku- og makalífeyri eða
rúmlega 305 þúsund kr. að með-
altali hver og einn. Á sama tíma
fengu 11.263 lífeyrisþegar í lífeyr-
issjóðum opinberra starfsmanna
greidda samanlagt rúma 9,8 millj-
arða kr. í elli-, örorku- og makalíf-
eyri eða rúmar 868 þúsund kr. að
meðaltali hver og einn, sem eru
185% hærri bætur en að meðaltali
voru greiddar í lífeyri úr lífeyr-
issjóðum á almennum markaði.
Þetta má lesa út úr skýrslu
Fjármálaeftirlitsins um rekstur
lífeyrissjóðanna á árinu 2001, en
rétt er að benda á að lífeyriskerfi
opinberra starfsmanna er mun
eldra og því hefur lengur verið
greitt til þess en til lífeyriskerf-
isins á almennum markaði sem að
stórum hluta til er frá árinu 1970.
Þegar samsetning lífeyrisins er
skoðuð kemur í ljós að rúmlega
fjórðungur eða 25,3% af lífeyri úr
lífeyrissjóðum á almennum mark-
aði er örorkulífeyrir, 10,9% maka-
lífeyrir, 2,2% barnalífeyrir og
60,4% ellilífeyrir.
Önnur mynd blasir hins vegar
við þegar samsetning lífeyris úr
opinberu lífeyrissjóðunum er
skoðuð. Þar er einungis tæpur
tuttugasti hluti eða 4,9% örorku-
lífeyrir, tæpur fjórðungur eða
23,1% er makalífeyrir, 0,2% er
barnalífeyrir og 71,7% er ellilíf-
eyrir.
Mikill munur á greiðslum úr opinberum og almennum lífeyrissjóðum
Nær þrefalt hærri líf-
eyrir opinberu sjóðanna
! "
Doha, Bagdad. AP, AFP.
BANDARÍSKAR sveitir hafa gripið til
aðgerða á laun í þéttbýliskjörnum í
Írak og er þeim ætlað að taka af lífi fé-
laga í innsta hring Saddams Husseins,
forseta Íraks. Þar á meðal eru embætt-
ismenn úr Baath-flokknum og yfir-
menn Lýðveldisvarðarins, að því er
haft er eftir embættismönnum, meðal
annars frá Bandaríkjunum.
Leynisveitirnar eru úr röðum banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, og sér-
sveita hersins. Þar á meðal eru leyni-
skyttur og sprengjusérfræðingar.
Samkvæmt heimildum hafa þessar
sveitir verið að störfum í að minnsta
kosti viku og þegar hafa nokkrir ein-
staklingar fallið fyrir hendi þeirra.
Þrýst á að ráða Saddam bana
Þykir þetta benda til þess að Banda-
ríkjamenn leggi nú meiri áherslu á það
að höggva skörð í raðir íraskra forystu-
sveita en áður var talið. Hefðbundinn
herafli bandamanna hefur mætt öflugri
mótspyrnu en búist var við og því er
sagt að aukist hafi þrýstingur á sér-
sveitir hersins og CIA um að koma
Saddam fyrir kattarnef, steypa stjórn
hans og leiða þar með stríðið til lykta.
Aðgerðir þessara sérsveita fengust
ekki staðfestar. Bæði varnarmálaráðu-
neytið og CIA hafa hins vegar lagt
mikla áherslu á sálfræðihernað í því
skyni að koma lykilmönnum í stjórn-
kerfi Íraks úr jafnvægi og fá þá til að
snúast gegn Hussein.
Einn heimildarmaður sagði að ekki
mætti rekja allar sprengingar, sem orð-
ið hefðu í Bagdad, til flugskeyta og eld-
flauga og gaf í skyn að einhverjum
þeirra hefði verið komið fyrir af sér-
sveitarmönnum.
Leynisveit-
ir til höfuðs
leiðtogum
Washington. The Washington Post.