Morgunblaðið - 30.03.2003, Side 17
var spilað og sungið. Á pitsu Vittorios
Emanuele var skrifað: „Lengi lifi
Vittorio“ og „Velkomin aftur Savoia“.
Vittorio Emanuele borðaði tvær pits-
ur. Svo var honum gefin pitsa úr gulli
og stytta úr silfri af grínleikaranum
Totó.
Vittorio Emanuele minnist þess að
faðir hans dó fyrir tuttugu árum.
Hann hafði vonast til að geta dáið á
Ítalíu. Hann var mjög veikur þegar
Pertini, þáverandi forseti Ítalíu,
hringdi í Umberto og sagði að hann
myndi fljótlega getað komið til Ítalíu.
Umberto var á sjúkrahúsi í London
þegar hann fékk þessa upphringingu
og flutti Vittorio Emanuele hann þá á
heimili sitt í Genf í Sviss. Umberto
sagði: „Vittorio, farðu strax til Casc-
ais (sem er í Portúgal, en þar var Um-
berto konungur í útlegð). Þú finnur
inn í skáp grá jakkaföt. Taktu þau og
láttu mig fá þau: Þetta eru fötin sem
að ég var í þegar ég fór frá Ítalíu 13.
júní 1946 og ég vil snúa til Ítalíu í
þeim fötum“. Sá draumur átti þó ekki
eftir að verða að veruleika.
Emanuele Filiberto fór á fótbolta-
leik Napolí og Verona. Napolí er í
hættu að falla í 3. deild á næsta leik-
tímabili. Sem betur fer endaði leik-
urinn með jafntefli. Ef Napolí hefði
tapað hefðu þeir getað sagt að Em-
anuele Filiberto væri óheillakráka en
Napolíbúar eru mjög hjátrúarfullir.
Heimsókn Savoia-fjölskyldunnar
lauk með heimsókn í konungshöllina.
Þau fullvissuðu Napolíbúa um að þau
mundu koma aftur en þá muni þau
ekki segja neinum frá því.
Höfundur er fréttaritari Morgunblaðs-
ins á Ítalíu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 17
Fæst í öllum
betri bókabúðum
PARKER
Frontier
í glæsilegr
i gjafaösk
ju:
1795kr.
T
IL
B
O
Ð
hreinsiklútar
fjarlægja andlits- og augnfarða á augabragði
Í hreinsiklútunum er andlitsvatn og kamilla, sem hefur róandi
og nærandi áhrif á húðina og viðheldur réttu rakastigi hennar.
Fást í apótekum og stórmörkuðum.
Dr. Fisher hreinsiklútarnir
eru ofnæmisprófaðir
og henta öllum húðgerðum.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
si
a
.i
s
/
N
M
0
8
9
7
2
Frá og með 1. apríl 2003 mun Ölgerðin Egill Skallagrímsson
hætta að nota margnota glerflöskur fyrir framleiðsluvörur
sínar. Tekin verður upp notkun einnota umbúða í því skyni
að auka gæði framleiðslunnar, efla hreinlæti og draga úr
hættu á gæðavandamálum.
Notkun einnota umbúða hefur í för með sér að álagt skilagjald á
öllum flöskum frá Ölgerðinni verður 9 kr. frá og með 1. apríl nk.
í stað 15 kr. Gildir þetta einnig um þær margnota flöskur
Ölgerðarinnar sem verða áfram í umferð fyrst um sinn.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson í Reykjavík og útibú Ölgerðarinnar
á landsbyggðinni halda áfram að taka á móti margnota
glerumbúðum og greiða 15 kr. skilagjald til 1. september 2003.
Að þeim tíma liðnum verður einungis hægt að skila margnota
gleri til Endurvinnslunnar.
Nýjar umbúðir
sama góða bragðið ...að sjálfsögðu
Umbúðum vegna margnota glers, þ.e. plastkössum, verður áfram unnt að skila
til Ölgerðarinnar í Reykjavík og útibúa Ölgerðarinnar á landsbyggðinni.
am Hussein eða verja vinnubrögð
hans, „en mér sýnist að segja megi
að þeir Bush séu að nokkru leyti
sams konar menn.“ Hann telur að
þrátt fyrir slæmt ástand í Írak eigi
samfélag þjóðanna ekki að skipta sér
af innanríkismálum þar. Og alls ekki
að láta sprengjum rigna yfir landið.
„Þá á ekki að beita nokkurs konar
valdi vegna þess að fólk í Írak hefur
ekki farið fram á það. Heimsbyggðin
gerir sér grein fyrir því að vanda-
málið í Írak er vegna olíu og efna-
hagslegra hagsmuna Bandaríkja-
manna í þessum heimshluta þótt
þeir útskýri aðgerðir sínar með öðr-
um hætti.“
Blaðamaður spyr Prússak hvort
það sé skoðun rússneskra stjórn-
valda að Bandaríkjamenn hafi farið
inn í Írak vegna olíuhagsmuna en
ekki til þess að hjálpa almenningi í
Írak, eins og gefið hefur verið í skyn.
Hann svarar: „Ég get aðeins sagt
mína persónulega skoðun, ég hef
ekki vald til þess að lýsa skoðun
rússneskra stjórnvalda. Allt það sem
ég hef sagt er aðeins mín skoðun. En
ég er sammála Pútín forseta þegar
hann segir Bush forseta hafa gert
mistök. Innrásin er mistök.“ Hann
telur a.m.k. 95% rússnesku þjóðar-
innar sammála Pútín.
Prússak segist þess fullviss að
ýmiskonar vandamál eigi eftir að
steðja að Írökum á næstunni. „Þjóð-
irnar sem taka þátt í innrásinni, sem
hafa skapað það ástand sem nú ríkir,
gera það í eiginhagsmunaskyni og
Írakar munu ekki fá neitt frá þeim;
hvorki fjárhagsaðstoð né mannúðar-
hjálp.“
Prússak ítrekar að Írakar þyrftu
að leysa sín mál sjálfir, utanaðkom-
andi ættu ekki að skipta sér af. En
telur hann það raunhæfan mögu-
leika?
„Ég veit það ekki hvort það er
mögulegt. Mér finnst bara að ríki
heims eigi ekki að skipta sér af og
leysa málið á þennan hátt. Ég er viss
um að Íslendingar yrðu ekki hrifnir
ef einhverjir utanaðkomandi færu að
skipta sér af stjórnmálaástandinu
hér á landi. Það sama má segja um
Rússa. Enginn vill að annað ríki
skipti sér af innanríkismálum, póli-
tík og efnahagsmálum. Ekki heldur
Írakar. Heldur þú að sprengjuregn í
Írak sé einhvers konar aðstoð við al-
menning í landinu?“
skapti@mbl.is