Morgunblaðið - 30.03.2003, Síða 44

Morgunblaðið - 30.03.2003, Síða 44
MINNINGAR 44 SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARKÚSÍNA GUÐNADÓTTIR hárgreiðslumeistari, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstu- daginn 28. mars. Helena Alma Ragnarsdóttir, Jón Ingvar Ragnarsson, Sigurður Egill Ragnarsson, Bryndís S. Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum þeim sem sýndu okkur vináttu og samúð við fráfall GUÐRÚNAR J. ÞORSTEINSDÓTTUR píanóleikara, og heiðruðu minningu hennar. Elísabet Waage, Helgi Kristinsson, Benedikta G. Waage, Hallur Árnason, Jón Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Birgisdóttir, María S. Gunnarsdóttir, Gérard Lemarquis, Guðmundur Óli Gunnarsson, Hörður Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG KRISTÍN ELÍASDÓTTIR, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. apríl kl. 10.30. Trausti Jóhannsson, Jastrid J. Andersen, Þorlákur Jóhannsson, Sigríður Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hringbraut 50, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 15. mars sl. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Helga Guðmundsdóttir. Útför elskulegrar systur okkar, HELGU HÖNNU MAGNÚSDÓTTUR, Holtsgötu 19, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 31. mars kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á MS-félagið. Fyrir hönd aðstandenda, Þórný Magnúsdóttir og Hörður Jónsson. ✝ Katrín HuldaTómasdóttir fæddist í Reykjavík 10. júlí 1917. Hún andaðist á hjúkrun- arheimilinu Skóg- arbæ 19. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Tómas Guðmundsson sjó- maður, f. 21. septem- ber 1891, d. 20 mars 1942, og Ingibjörg Sveinsdóttir, f. 9. maí 1892, d. 15. febrúar 1930. Systkini Katr- ínar Huldu eru Ingi- björg Ída, f. 12. febrúar 1920, Haf- steinn Sverrir, f. 27. febrúar 1922, d. 28. maí 1967, og Hilmar Harry, f. 22. september 1923, d. 5. júní 1968. Katrín Hulda giftist 1. janúar 1944 Gunnari Aðalsteinssyni, f. 5. júní 1921, d. 17. janúar 1986. For- eldrar hans voru Aðalsteinn Guð- mundsson, f. 11. september 1884, d. 25. ágúst 1953, og Hervör Frí- mannsdóttir, f. 20. ágúst 1894, d. 6. desember 1981. Katrín Hulda og Gunnar eignuðust fjögur börn: 1) Ingibjörg Sesselja, f. 22. desem- ber 1945, maki Magnús K. Helga- son, f. 13. júní 1944, d. 28. ágúst 1994, börn þeirra: a) Gunnar, f. 11. nóvember 1964, sambýliskona Ásta Agnarsdóttir, f. 20. apríl 1951, b) María Málfríður, f. 12. maí 1971, sambýlismaður Bergur Stefánsson, f. 21. maí 1974, henn- ar sonur Heiðar Örn Helgason, f. 21. júní 1994. 2) Guðmundur Að- alsteinn, f. 6. október 1947, maki Guðleif Bender, f. 16. febrúar 1953, börn þeirra eru Friðrik Örn, f. 21. ágúst 1976, Eva Dögg, f. 1. apríl 1981, og Brynj- ar Freyr, f. 11. maí 1985; 3) Jóhanna, f. 28. maí 1952, hennar börn eru Tómas Hilmar Ragnarsson, f. 18. september 1970, sonur hans er Guðmundur Hilmar, f. 7. ágúst 1990, og Katrín María Birgis- dóttir, f. 9. maí 1983. 4) Katrín Gunnvör, f. 24. september 1957, maki Hákon Örn Arnþórsson, f. 17. maí 1956, börn þeirra eru Arndís Huld, f. 5. nóv- ember 1985, og Davíð Örn, f. 9. nóvember 1988. Katrín Hulda ólst upp í for- eldrahúsum til ellefu ára aldurs eða þar til móðir hennar veiktist af berklum og fór á Vífilsstaði og átti ekki afturkvæmt þaðan. Systkinahópnum var þá komið í fóstur. Katrínu Huldu var komið fyrir á Sunnuhvoli, Ingibjörgu Ídu á Háteigi, en Hafsteini og Hilmari var komið í fóstur í Keflavík. Katrín lauk prófi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík. Prófi frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands lauk hún 1940. Hún starfaði alla tíð sem hjúkrunarkona, fyrst í Vestmannaeyjum, síðan á Siglu- firði og því næst var hún yfir- hjúkrunarkona á Sjúkrahúsi Húsavíkur. Frá árinu 1946 starf- aði hún á Landspítalanum, fyrst á VI. deildinni, en síðar á röntgen- deild Landspítalans eða allt til ársins 1985 er hún lét af störfum. Bálför Katrínar Huldu fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 27. mars, að ósk hinnar látnu. Kveðja til móður. Ó, heita og margreynda móðurást, milda og sterka, sem aldrei brást, og Drottins vors dýrasta gjöfin. Hve lík er hún elsku lausnarans, er leiðarstjarna hvers einasta manns, er lýsir um hauður og höfin. Hún hugsar ekki’ um sinn eigin hag, en öllu fórnar og nótt og dag ég veit, að hún vakir og biður. Hún heyrir barnanna hjartaslátt og hlustar og telur hvern andardrátt, hún beygir sig bljúg að þeim niður. Hún kyssir þau, vaggar þeim blítt í blund, hún brosir og grætur á sömu stund, að brjósti sér viðkvæm þau vefur og veitir þeim af sínu lífi líf, er ljós þeirra, vernd og bezta hlíf. Hún er engill, sem Guð oss gefur. Guð blessi þig, móðir, í gleði og þraut, og geislar frá himins stjörnu braut þér lýsi um ófarin árin. Og sál þín gleðjist við hjarta hans, vors hjartkæra, góða frelsarans, er skilur bezt tregann og tárin. (Sumarliði Halldórsson.) Með þessu fallega ljóði viljum við kveðja þig elsku móðir, sem veittir okkur ómælda ást og umhyggju. Hvíl í friði. Þínar dætur. Ömmu er sárt saknað og minn- ingarnar um hana streyma fram. Þegar ég var lítil var ég mikið hjá henni, þeim árum mun ég aldrei gleyma. Hún var sem mamma mín og stundum gerði ég ekki greinar- mun á orðinu amma og mamma. Hún var alltaf svo góð við mig og sama hvað ég gerði af mér þá sagði hún að það væri í lagi. Ég man þeg- ar hún fór með mig á appelsínugulu snjóþotunni minni í leikskólann sem var rétt hjá heimili hennar og var þá alveg sama hvernig viðraði. Hún var þolinmóð og gaf sér alltaf tíma til þess að spila við mig og leyfði mér oftar en ekki að vinna af því að ég var svo tapsár, en hvernig hún fór að því veit ég ekki. Ég var í skól- anum eftir hádegi og eldaði amma alltaf eitthvað handa mér áður en ég fór í skólann og man ég þó sér- staklega eftir því þegar hún útbjó spælt egg í brauði, hún vissi hvað mér þótti það gott. Amma var mikil húsmóðir í sér og allt sem hún gerði gerði hún rosalega vel og hætti aldr- ei við hálfklárað verk. Hún sagði oftar en ekki – hálfnað er verk þá hafið er. Ömmu fannst sem ég og Tómas bróðir minn værum eins og hennar eigin börn og sagði hún alltaf ef ein- hver spurði að við værum börnin hennar ekki barnabörn. Við systk- inin áttum mjög margar góðar stundir með henni. Amma var hjúkrunarkona og vann á krabbameinsdeild Landspít- alans. Eftir að hún hætti að vinna fórum við þangað í heimsókn. Mér er minnisstætt hvað allir tóku vel á móti henni og voru ánægðir að sjá hana og töluðu um hvað þau sökn- uðu hennar og spurðu hvort hún vildi ekki bara koma aftur að vinna. Því eins og allir vita sem þekktu hana var hún alveg einstök mann- eskja, trú, góðhjörtuð og vildi gera allt sem í hennar valdi stóð til að fólki liði vel og eins og hún sagði alltaf: „Ef þér líður vel þá líður mér vel.“ Ég er stolt af að bera nafnið hennar. Amma hugsaði alltaf fyrst um aðra og síðan um sig. Hún var svo nægjusöm og ánægð jafnvel þótt að ég gerði aðeins einhvern lítinn hlut fyrir hana tók hún utan um mig og knúsaði mig – takk fyrir. Það er sárt að kveðja, en mín hamingja er að hafa átt hana sem ömmu öll þessi ár og minningarnar um hana mun ég alltaf geyma í hjarta mínu. Það var gott að fá að vera hjá henni síðustu dagana. Amma mín, ég mun alltaf elska þig og ég veit að þú verður hjá mér. Guð geymi elsku ömmu mína. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þitt lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. (Páll Jónsson.) Þín Katrín María. Elsku amma, það er svo sárt til þess að hugsa að þú sért farin, en ég veit að þú ert komin á betri stað og líður vel. Hvert sem þú fórst fylgdi þér ró, friður og hlýja. Þú varst svo góð og gerðir allt í þínu valdi til að öllum í kringum þig liði vel. Þér tókst það svo sannarlega. Það eru svo margar fallegar minningar sem ég á um þig og þær mun ég varð- veita að eilífu. Ég er svo þakklát að hafa fengið að vera hjá þér síðustu dagana og vaka yfir þér. Jafn örláta, góða, hlýja og yndislega manneskju eins og þig er mjög erfitt að finna og þín verður sárt saknað. Elsku amma mín, ég elska þig og með þessu ljóði langar mig til að kveðja þig. Jesús, af hjarta þakka’ eg þér, þú, Jesús, varst í dag með mér, gef þú mér, Jesús, glatt og rótt, góða og sæla værðarnótt. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Góða nótt, elsku amma, og sofðu rótt. Þín Arndís Huld. Elsku amma, með þessum orðum langar mig til að kveðja þig. Þú varst mér alltaf góð og huggaðir mig þegar ég var leiður. Þótt það hafi verið erfitt að kveðja þig var það huggun að vita að þú varst kom- in á betri stað. Það sem þú skilur eftir þig eru góðar minningar. Þú hafðir frábæran persónuleika. Það var ekkert illt til í þér og þú vildir alltaf hjálpa öllum og vera góð við alla. Ég er hér með ljóð handa þér, Ömmuljóð eftir Jóhannes úr Kötl- um. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans, breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Amma mín, ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna. Hvíl í friði. Ég elska þig. Davíð. KATRÍN HULDA TÓMASDÓTTIR Móðir mín, tengdamóðir og amma, BERGÞÓRA EGGERTSDÓTTIR fyrrv. kennari, lést á dvalarheimilinu Hlíð þann 18. mars sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Kærar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Hlíðar fyrir frábæra umönnun. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Elín Berg, Þorsteinn Kjartansson, Halldór Heimir Þorsteinsson, Valgerður Lilja Daníelsdóttir, Sindri Snær Þorsteinsson, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.