Morgunblaðið - 30.03.2003, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2003 55
UM síðastliðin mánaðamót fór hópur stúlkna frá
Skautafélagi Reykjavíkur – listhlaupadeild – til
Svíþjóðar. Hér var á ferðinni yngri deildin og
tóku þær þátt í sænska meistaramótinu í sam-
hæfðum skautadansi en Svíar standa mjög fram-
arlega í greininni. Eldri stelpurnar fara hins veg-
ar til Kanada í apríl og munu taka þátt í
heimsmeistaramótinu. Þessi grein skautaíþrótta
er tiltölulega ung og á ætt sína að rekja til Norð-
ur-Ameríku en þar var fyrsta liðið stofnað árið
1956. Mikil gróska hefur hins vegar verið í grein-
inni undanfarna tvo áratugi og verður hún þann-
ig gerð að ólympíugrein árið 2006.
Ungar skauta-
stúlkur í
Svíþjóð
Milli svefns og vöku
(Waking Life)
Teiknimynd
Bandaríkin 2002. Skífan VHS. Bönnuð
innan 12 ára (102 mín.). Leikstjórn Rich-
ard Linklater. Aðalhlutverk Trevor
Brooks, Lorelie Linklater, Wiley Wiggins
og Glover Gill.
ÞAÐ er satt best að segja harla
erfitt að átta sig á henni þessari. Hún
er hreint ótrúlega vel gerð tæknilega
og frumleikinn á bakvið sjálfa kvik-
myndagerðina er aðdáunarverður.
Myndin var nefnilega þannig gerð að
fyrst var hún skotin á hefðbundinn
máta en svo teikn-
að ofan í filmuna
þannig að útkoman
er einhver magn-
aðasti sýndarheim-
ur sem maður hef-
ur séð – of
raunverulegur til
að vera teiknimynd
en um leið of fjar-
lægur til að vera
raunverulegur. Í ofanálag fjallar
myndin um skilin milli draums og
veruleika, en hún segir frá ungum
manni sem er að reyna að átta sig á
og leita svara við hvort hann er vak-
andi eða sofandi, hvaðan draumarnir
koma og hvernir hann fari að því að
vakna, sé hann þá sofandi. Hann
svífur milli samræðna við gesti og
gangandi sem ólmir vilja fílósófera
við hann um lífið og tilveruna,
drauma, veruleika, sjálfið og ég veit
ekki hvað. Eins áhugaverð og öll
tæknivinnan nú er og listræna út-
færslan þá eru þessi samtöl svo hrút-
leiðinleg og tilgerðarleg að ég hef
bara ekki orðið vitni að öðru eins. Ef
ég tek dæmi um eitt atriði þar sem
Ethan Hawke og Julie Delpy – af öll-
um – eru að fílósófera yfir sig í ból-
inu, skilja menn þá hvað ég á við með
tilgerð?
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Fílósófer-
að yfir sig
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050