Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 5
MS-Stoðmjólk er mjólk sem ætluð er börnum frá 6 mánaða til 2 ára aldurs. Hún var þróuð af Mjólkursamsölunni að beiðni og í samvinnu við samstarfshóp um næringu ungbarna.* Nýja Stoðmjólkin er unnin úr íslenskri mjólk og er líkari móðurmjólk en nýmjólkin og tekur samsetning hennar sérstaklega mið af næringar- þörfum ungra barna hér á Íslandi. Hún hentar vel til notkunar samhliða brjóstagjöf og mælt er með áframhaldandi brjóstagjöf svo lengi sem hugur stendur til hjá móður. Mælt er með notkun Stoðmjólkur í nýjum ráðleggingum Manneldisráðs og Miðstöðvar heilsuverndar barna um næringu ungbarna. Stoðmjólkin er m.a. járnbætt og er að mati sérfræðinga talin tryggja næringarbúskap barna mun betur en nýmjólk. Próteinsamsetning hennar virðist henta ungbörnum betur en prótein- samsetning þurrmjólkurafurða sem unnar eru úr mjólk úr erlendum kúakynjum. Stoðmjólkin er jafnframt hentugri þar sem hún er tilbúin til drykkjar. Nánari upplýsingar um næringu ungra barna fást hjá fagfólki ung- og smábarnaverndar og heilsugæslu. *Samstarfshópur um næringu ungbarna starfar á vegum Manneldisráðs, Landlæknisembættisins, barnalækna við Landspítala-háskólasjúkrahús, félags barnahjúkrunarfræðinga og félags heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. Í starfshópnum sátu fulltrúar ofangreindra aðila auk sérfræðinga frá Miðstöð heilsuverndar barna og rannsóknarstofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahús. Einnig fékk málið stuðning barnalækna í ung- og smábarnavernd. FYRIR ÁRA H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA barnsins sto› og stytta STO‹MJÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.