Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurapríl 2003næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930123
    45678910

Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 24
NEYTENDUR 24 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLAND er fremst Evrópulanda í notkun á háhraðasítengingum. Það er líklega eingöngu í S-Kórea og Taívan sem slíkar tengingar njóta meiri vinsælda en hér á landi. Segja má að uppbygging á ADSL þjónustunni hafi gengið bæði hratt og vel hér á landi. Um mitt þetta ár munu sveitafélög þar sem 500 íbúar eða fleiri búa í þéttbýli standa þjón- ustan til boða, eða rétt um 90% þjóðarinnar. Bæði Síminn og Íslandssími bjóða ADSL-þjónustu. Síminn er með þessa þjónustu um allt land en Íslandssími einbeitir sér að höfuð- borgarsvæðinu, Reykjanesi og Ak- ureyri. Hér gefur að líta verð á ADSL- háhraðasítengingum félaganna. Síminn og Íslandssími/Tal með tilboð á ADSL-háhraðasítengingum Stofngjaldið fellt niður ADSL-háhraðasítengingar njóta vinsælda hér á landi  .++  &1 G"01/< GH'5"< G* G @+0"" "  # &  "B C42I C 42I CD  &1 GG%"17 1%+%1"+ G(% !#3  G?+!#7+ G !+ #%1!/5$%+1  8' E   '  ' 8' 8' + " &" $+ %$$20  $+    $+  $+  $+  $+ &  "B $+  $+ $+ $+ ' "B &1 G"01/< GH'5"< G* "  # &  "B C42I C 42I CD  &1 G%"17 G(% !#3    ' G?+!#7+ GF!+%$/J/5% K/!"!%$/!! G01 E   '  ' 8' 8' + " &" $+ $+ $+    $+  $+  $+  $+ &  "B $+ $+ $+  $+ "B FG"   8/<1+/*"%" !+9 ,1*""!+1%+%<! !+9 $#7<09%+ 8/<1+/*"%" !+9 Morgunblaðið/Ásdís Ísland er líklega fremst Evrópulanda í notkun á háhraðasítengingum. Síminn og Íslandssími/Tal eru af og til með tilboð. Sem dæmi um það má nefna að til 15. apríl næstkomandi er stofngjald fellt niður hjá báðum félögum. Viðskiptavinur sem kaupir Startpakkann og 12 mánaða áskrift á ADSL II 512 kb/s og 100 MB hjá Íslandssíma/Tali greiðir 3.750 kr. á mánuði. Með Startpökkum hjá Íslandssíma/Tali fylgir PC tölvuleikur. Við- skiptavinir geta valið einn af þremur titlum frá Skífunni. Síminn býður upp á svokallaðan Gulan pakka en hann er með 12 mánaða bindingu. Hér er um að ræða ADSL 512 Kb/s og 100 MB. Pakkinn kostar 4.820 á mánuði. Innifalið er stofngjald ADSL teng- ingar, USB mótald, smásía og vefmyndavél. Einnig er hægt að fá Gula pakkann í níu mánuði en þá fylgir vefmyndavélin ekki með. Þess má geta að Guli pakkinn er í boði á sömu kjörum með sams- konar búnaði fyrir ISDN línur. EAS bætiefna- framleiðandinn hefur nú sett nýja vöru á markað sem heitir Carb Control og er drykkur tilbú- inn til neyslu. Eins og segir í fréttatilkynn- ingu er Carb Control þróað fyrir það fólk sem kýs að borða minna af kolvetnum. Drykk- urinn inniheldur 15 grömm af próteinum og aðeins 2 grömm af kolvetnum ásamt öllum helstu vítamínum og steinefnum. Drykkjarins skal neytt á milli mála eða í stað máltíða. Carb Control er fáanlegur í flestum matvöruverslunum. Einnig eru fáanlegar Carb Control stangir með 26 grömm- um af próteinum og 0-2 grömm af sykri. Dreifingaraðili EAS er B. Magnússon hf. NÝTT Kolvetna- snauð máltíð TRY ME buxur í miklu úrvali Hallveigarstíg 1 588 4848 Fermingarhárskraut Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12 Mörkinni 3, sími 588 0640. Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15 Brúðkaupsgjafir Br úð ar gj af al is ta r Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands, sem hefur eignast meira en 9/10 hluta af hlutafé í Skagstrendingi hf. og stjórn Skagstrendings hf., hafa á grundvelli 24. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 tekið ákvörðun um innlausn hluta í Skagstrendingi hf. Félögin hafa falið LOGOS lögmannsþjónustu að annast innlausn hlutafjárins. Samkvæmt hlutafélagalögum skal tilkynning um innlausn birt með sama hætti og aðalfundarboð. Kveða samþykktir félagsins á um að það skuli gert með auglýsingu í dagblaði eða á annan sannanlegan hátt. Tilkynning mun í dag einnig verða send hluthöfum bréflega á þau heimilisföng sem fram koma í hlutaskrá félagsins. Innlausnarverðið sem byggir á mati KPMG Endurskoðunar hf. miðast við kaupgengið 7,2. Rétt er að vekja athygli á því, að niðurstaða mats KPMG Endurskoðunar hf. sýnir að innlausnarverðið er hluthöfum hagstætt. Hér með er skorað á hluthafa Skagstrendings hf. að snúa sér til LOGOS lögmannsþjónustu sem mun annast greiðslu innlausnarverðsins gegn framsali hlutafjárins fyrir 30. apríl 2003. Verði hluthafar ekki við áskorun um framsal er heimilt að greiða innlausnarverðið á geymslureikning á nafni hluthafa og telst Hf. Eimskipafélag Íslands frá og með þeim tíma eigandi hlutafjárins. Hlutafélagalög mæla svo fyrir um að vakin skuli athygli á því að vilji hluthafar, sem sæta þurfa innlausn, ekki sætta sig við skilmála innlausnarinnar og matsgrundvöll innlausnarverðsins, megi hluthafar skjóta því til ákvörðunar matsmanna sem dómkvaddir skulu á heimilisvarnarþingi Skagstrendings hf. Ef ákvörðun matsmanna leiðir til hærra innlausnarverðs en boðið er, gildir það fyrir alla sem sæta verða innlausninni. Kostnað við ákvörðun verðsins greiðir sá sem innlausnarinnar krefst nema dómstóll telji, vegna sérstakra ástæðna, að viðkomandi minnihluti hluthafa skuli að nokkru eða öllu leyti greiða kostnaðinn. Hluthöfum er bent á að snúa sé til LOGOS lögmannsþjónustu í síma 5 400 300 vegna innlausnarinnar eða með tölvupósti á netfangið sigridurk@logos.is. f.h. Hf. Eimskipafélags Íslands og Skagstrendings Hf. Pétur Guðmundarson hrl. Til hluthafa í Skagstrendingi hf. TILKYNNING UM INNLAUSN HLUTABRÉFA Í SKAGSTRENDINGI HF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 89. tölublað (01.04.2003)
https://timarit.is/issue/251327

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

89. tölublað (01.04.2003)

Aðgerðir: