Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 17
Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands, sem hefur eignast meira en 9/10 hluta af hlutafé í Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf., og stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf., hafa á grundvelli 24. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995 tekið ákvörðun um innlausn hluta í Útgerðarfélagi Akureyringa
hf. Félögin hafa falið LOGOS lögmannsþjónustu að annast innlausn hlutafjárins.
Samkvæmt hlutafélagalögum skal tilkynning um innlausn birt með sama hætti og aðalfund-
arboð. Kveða samþykktir félagsins á um að það skuli gert með auglýsingu í dagblaði eða á
annan sannanlegan hátt. Tilkynning mun í dag einnig verða send hluthöfum bréflega á þau
heimilisföng sem fram koma í hlutaskrá félagsins.
Innlausnarverðið sem byggir á mati KPMG Endurskoðunar hf. miðast við kaupgengið 7,2.
Rétt er að vekja athygli á því, að niðurstaða mats KPMG Endurskoðunar hf. sýnir að inn-
lausnarverðið er hluthöfum hagstætt.
Hér með er skorað á hluthafa Útgerðarfélags Akureyringa hf. að snúa sér til LOGOS lög-
mannsþjónustu sem mun annast greiðslu innlausnarverðsins gegn framsali hlutafjárins fyrir
30. apríl 2003. Verði hluthafar ekki við áskorun um framsal er heimilt að greiða innlausnar-
verðið á geymslureikning á nafni hluthafa og telst Hf. Eimskipafélag Íslands frá og með þeim
tíma eigandi hlutafjárins.
Hlutafélagalög mæla svo fyrir um að vakin skuli athygli á því að vilji hluthafar, sem sæta
þurfa innlausn, ekki sætta sig við skilmála innlausnarinnar og matsgrundvöll innlausnarverðs-
ins, megi hluthafar skjóta því til ákvörðunar matsmanna sem dómkvaddir skulu á heimilis-
varnarþingi Útgerðarfélags Akureyringa hf. Ef ákvörðun matsmanna leiðir til hærra innlausn-
arverðs en boðið er, gildir það fyrir alla sem sæta verða innlausninni. Kostnað við ákvörðun
verðsins greiðir sá sem innlausnarinnar krefst nema dómstóll telji, vegna sérstakra ástæðna,
að viðkomandi minnihluti hluthafa skuli að nokkru eða öllu leyti greiða kostnaðinn.
Hluthöfum er bent á að snúa sé til LOGOS lögmannsþjónustu í síma 5 400 300 vegna
innlausnarinnar eða með tölvupósti á netfangið sigridurk@logos.is.
f.h. Hf. Eimskipafélags Íslands og Útgerðarfélags Akureyrar Hf.
Pétur Guðmundarson hrl.
TILKYNNING UM INNLAUSN
HLUTABRÉFA Í
ÚTGERÐARFÉLAGI AKUREYRINGA HF.
Til hluthafa í Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
Heimsóttu
íraska
stríðsfanga
Genf. AFP.
FULLTRÚAR alþjóða Rauða
krossins tilkynntu í gær að þeir
væru byrjaðir að heimsækja
íraska stríðsfanga sem bandarísk-
ar og breskar hersveitir hafa tek-
ið til fanga frá því að stríðið í
Írak hófst fyrir þrettán dögum.
Fimmtán manna hópur á veg-
um Rauða krossins fór í gær í
fangabúðir við Umm Qasr í Suð-
ur-Írak, að því er fram kom í yf-
irlýsingu frá höfuðstöðvum sam-
takanna í Genf, en þar hafa
bandamenn í haldi um 3.000
íraska stríðsfanga.
Aðbúnaður skoðaður
Markmið heimsókna sem þess-
ara er skv. Genfar-samningunum
að skoða aðbúnað stríðsfanga og
taka við skilaboðum frá þeim til
náinna ættingja.
Rauði krossinn hefur farið
fram á það við írösk stjórnvöld
að fulltrúum samtakanna verði
veittur aðgangur að stríðsföngum
sem Írakar hafa í haldi, en eng-
um sögum fer enn af viðbrögðum
yfirvalda í Bagdad.
Reuters
Ung írösk stúlka gægist út um rifu á bárujárnsgirðingu í Umm Qasr í gær.
HERSKÁ íslömsk hreyfing í
Norður-Írak, Ansar al-Islam,
sem bandarísk stjórnvöld segja
að tengist hryðjuverkasamtök-
unum al-Qaeda, kvaðst í gær
hafa safnað liði aftur og vera að
undirbúa sjálfsmorðsárásir á
hermenn innrásarliðsins í Írak.
Daginn áður var skýrt frá því að
bandarískir hermenn og sveitir
íraskra Kúrda hefðu náð á sitt
vald búðum Ansar al-Islam í
norðaustanverðu landinu þar
sem bandarískir embættismenn
segja að liðsmenn al-Qaeda hafi
átt athvarf.
Ansar al-Islam sagði í yfirlýs-
ingu á vefsíðu róttækra íslam-
ista í gær að „innrásarlið kross-
faranna“ hefði gert loftárásir á
stöðvar hreyfingarinnar í Norð-
ur-Írak og hún hefði því „ákveð-
ið að flytja búðir mújahedínanna
[heilögu stríðsmannanna] á aðra
staði til að þeir yrðu ekki fyrir
loftárásum“.
Í yfirlýsingunni kemur enn-
fremur fram að „emír Ansar al-
Islam í Kúrdistan“, Abu Abdul-
lah al-Shafei, hafi boðað „písl-
arvættisaðgerðir“, þ.e. sjálfs-
morðsárásir, á bandaríska og
breska hermenn í Írak. Yfir 300
liðsmenn hreyfingarinnar hafi
þegar lofað að fórna lífi sínu.
Segjast telja að um sé að
ræða lík al-Qaeda-liða
Richard Myers hershöfðingi,
formaður bandaríska herráðs-
ins, sagði á sunnudag að banda-
rískir hermenn og sveitir Kúrda
hefðu náð á sitt vald búðum
Ansar í norðaustanverðu Írak.
„Nokkur líkanna sem við höfum
fundið þar eru ekki lík Íraka
eða Írana,“ sagði Myers. „Við
vitum það ekki fyrir víst en lík-
lega eru þetta lík liðsmanna al-
Qaeda.“
Talið er að Ansar al-Islam
(Stuðningsmenn íslam) hafi
staðið fyrir sjálfsmorðsárás sem
varð áströlskum blaðamanni að
bana í Norður-Írak 22. mars.
Fjórir bandarískir hermenn létu
einnig lífið í sjálfsmorðsárás
Íraka við bæinn Najaf í Suður-
Írak á laugardaginn var.
Segja búðir
al-Qaeda
herteknar
Herská hreyfing íslamista í
N-Írak hótar sjálfsmorðsárásum
Dubai, Washington. AFP.
Skutu úr
sjúkrabíl
Suður-Írak. AFP.
ÞRÍR bandarískir hermenn særðust í
gær, þar af einn alvarlega, þegar íraskir
hermenn skutu á þá úr sjúkrabifreið sem
merkt var Rauða hálfmánanum.
Heimildir AFP-fréttastofunnar hermdu
að hermennirnir hefðu orðið fyrir skothríð
er þeir nálguðust sjúkrabifreiðina skammt
fyrir utan borgina Nasiriya. Rauði hálf-
máninn, hin múslímsku systursamtök
Rauða krossins, hefur dreift hjálpargögn-
um til nauðstaddra íbúa í Suður-Írak.
Bandamenn hafa ítrekað greint frá því
að þeir hafi orðið fyrir árásum íraskra her-
manna sem klæðist borgaralegum fatnaði
auk þess sem liðsmenn „Píslarvottasveita“
Saddams Husseins iðki að skýla sér á bak
við óbreytta borgara.
Óttast
eyðileggingu
fornminja
Moskvu. AFP.
MIKHAÍL Shvydkoí, menningar-
málaráðherra Rússlands, varaði í gær við
eyðileggingu fornra minja í Írak og af-
henti bandaríska sendiherranum í
Moskvu lista yfir fornminjasvæði, sem
hætta steðjar að í Íraksstríðinu.
„Þessar fornminjar tilheyra mannkyni
öllu, ekki aðeins Írökum, og við höfum
áhyggjur af þeim,“ sagði Shvydkoí í við-
tali við ITAR-TASS-fréttastofuna. Á list-
anum eru til dæmis rústir Babýlonborg-
ar, ýmis listaverk og áletranir, assýrískar
og súmerískar hallir og hinar fornu borg-
ir Úr, Úruq, Lagash, Nippúr og Bagdad.
Talið er, að fyrstu borgirnar hafi risið í
Mesópótamíu, Landinu á milli fljótanna,
fyrir um 6.000 árum.
♦ ♦ ♦