Morgunblaðið - 08.04.2003, Qupperneq 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 15
www.mba.is
MBA nám í Háskóla Íslands er í senn krefjandi og gefandi
nám sem skilar miklum ávinningi.
Allir sem eru að velta fyrir sér MBA námi eru velkomnir á
kynninguna þar sem leitast verður við að svara eftirfarandi
spurningum:
Ert þú að spá
í MBA nám?
Kynning á MBA námi í
Háskóla Íslands
Hátíðasal í aðalbyggingu Háskóla Íslands
Fimmtudaginn 10. apríl kl. 8.30-10.00
Hvert er inntak MBA námsins?
Hver er sérstaða þess?
Hver er ávinningurinn?
Verður þú í þriðja MBA hópnum í Háskóla Íslands
sem byrjar haustið 2004?
Háskóli Íslands
Vi›skipta- og hagfræ›ideild
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri í vor til að dveljast við
frábærar aðstæður á suðurströnd
Spánar í 2, 3 eða 4 vikur á ótrú-
legum kjörum. Beint flug til
Benidorm þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann og fyrir þá sem vilja
njóta vorsins á Spáni er þetta
fallegasti tími ársins. Þú bókar
núna og 4 dögum fyrir brottför
segjum við þér hvað þú gistir.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Benidorm
27. apríl
frá kr. 29.962
Verð kr. 29.962
Flugsæti á mann m.v. hjón með 2 börn,
með sköttum.
Verð kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 27.
apríl, 17 nætur, stökktu tilboð.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í íbúð, 17 nætur. Flug, gisting,
skattar. Stökktu tilboð.
Benidorm – 27. apríl
VERÐBRÉFASTOFAN hf. hef-
ur fyrir hönd stærstu hluthafa í
Plastprenti hf. sem samanlagt
eiga 48,62% í félaginu, gert öðrum
hluthöfum tilboð í þeirra hluti.
Verð samkvæmt tilboðinu miðast
við gengið 1,0 fyrir hverja krónu
nafnverðs, að því er fram kemur í
tilkynningu Verðbréfastofunnar
til Kauphallar Íslands. Verðið er
nokkuð yfir síðasta skráða við-
skiptagengi félagsins 28. mars sl.
sem var 0,90.
Tilboðið stendur til 28. apríl nk.
Í framhaldinu er stefnt að af-
skráningu félagsins af Vaxtalista
Kauphallarinnar.
Ekki yfirtökutilboð
Sigurður Bragi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Plastprents,
sem jafnframt er einn stærstu
eigenda félagsins og einn tilboðs-
gjafa, segir að ekki sé um yfir-
tökutilboð að ræða heldur sé til-
gangurinn með tilboðinu einfald-
lega sá að geta afskráð félagið
sem fyrst úr Kauphöll Íslands.
Hann segir að afskráning gangi
mun fljótar fyrir sig liggi sam-
þykki sem flestra hluthafa fyrir
sem fyrst. Að öðrum kosti geti
Kauphöllin frestað afskráningu
um allt að 12 mánuði, eftir að fé-
lagið leggur fram slíka ósk. „Ætl-
unin með þessu er eingöngu sú að
komast sem fyrst úr Kauphöll-
inni.
Fyrir 2–3 mánuðum lentum við
í útistöðum við Kauphöllina og
vorum beittir févíti en við vorum
mjög ósáttir við vinnubrögðin sem
viðhöfð voru í því máli. Eftir það
fórum við yfir öll okkar samskipti
við Kauphöllina og komumst að
því að fyrir utan vonbrigðin vegna
févítisins, fylgir því mikill kostn-
aður að vera skráður í Kauphöll
Íslands og því fylgir líka mikið
óhagræði vegna upplýsingaskyld-
unnar. Auk þess er það sérstakt
við íslenska markaðinn, sem
bendir reyndar til þess að það eigi
síður við hér en í fjölmennari
samfélögum að vera með Kaup-
höll, að oft eru bara örfá fyrirtæki
á markaðnum í hverri starfsgrein
og þegar eitt þeirra er skráð á
markað en hin ekki skekkist sam-
keppnisstaðan,“ segir Sigurður
Bragi og telur að fleiri fyrirtæki
eigi eftir að feta í fótspor Plast-
prents af ástæðunum sem hann
nefnir.
Hluthafar um 200
Hluthafarnir sem að tilboðinu
standa eru Prentsmiðjan Oddi,
Kvos hf., Sigurður Bragi Guð-
mundsson, Skeljungur, eignar-
haldsfélag S.E. og Sjóvá-Al-
mennrar tryggingar hf. en alls
eru hluthafar í Plastprenti um 200
talsins, flestir smáir.
Gunnar Már Petersen, sérfræð-
ingur hjá Verðbréfastofunni hf.,
segir að lítil viðskipti hafi verið
með bréf Plastprents síðustu
misseri og lítil verðmyndun á fé-
laginu. Hann segir að tilboðið gefi
hluthöfum kost á að losna við bréf
sín í félaginu. „Eftir að félagið
hefur verið afskráð eins og stefnt
er að verður erfiðara um vik fyrir
hluthafa að koma bréfum sínum í
verð. Þarna gefst þeim hinsvegar
kostur á að losna við hluti sína á
verði sem er yfir markaðsverði fé-
lagsins,“ sagði Gunnar í samtali
við Morgunblaðið. Hann sagði
jafnframt að hluthafar væru þeg-
ar farnir taka tilboðinu.
Sameinast Sigurplasti
Í tilkynningunni frá Verðbréfa-
stofunni segir að sameina eigi
Plastprent og Sigurplast: „Gert
er ráð fyrir að starfsemi Plast-
prents hf. verði óbreytt frá því
sem verið hefur og engar breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á næst-
unni á samþykktum félagsins.
Eins og áður hefur verið tilkynnt
er fyrirhugað að sameina Plast-
prent og rekstur á Sigurplasti.“
Hluthöfum Plastprents gert tilboð á genginu 1,0
Vilja losna sem fyrst
úr Kauphöllinni
3$6!
= 9
8
,$ "&&%
/5#*H "+.91
/*+1%"1="+!!+91
$%/!!+91
8+<91
G+. "7 91
(*$5/L$61O
4!6F2$91
C1%.+/#%+!+
++="8+ +<5""+
1"91
(71 9+%66!+
C1%.+/'$"+
C1%.+/ +N
-#%'7 #+0
C1%.+//5
++9!"91+
"
,
",
,
,
,
%,
",
" ÁLFYRIRTÆKIÐ Alcoa hagnaðist
um 151 milljón Bandaríkjadala á
fyrsta fjórðungi þessa árs, eða tæpa
12 milljarða íslenskra króna. Ef und-
an er skilið óreglulegir liðir og breyt-
ingar á bókhaldsaðferðum var
rekstrarhagnaður fyrirtækisins hins-
vegar 195 milljónir Bandaríkjadala,
eða 15,4 milljarðar króna, eða 23 sent
á hlut. Þessi niðurstaða er töluvert
umfram spá sérfræðinga á fjármála-
markaði upp á 19 senta hagnað á hlut.
Hlutabréf fyrirtækisins hækkuðu
um 7,93% á markaði í Bandaríkjun-
um í gær, en niðurstöður ársfjórð-
ungsins voru birtar eftir lokun mark-
aða sl. föstudag.
Tekjur fyrirtækisins á tímabilinu
jukust um fjögur prósent, og voru 5,1
milljarður Bandaríkjadala, á sama
tíma og fyrirtækið minnkaði kostnað
hjá sér um 52 milljónir dala. Fram-
legð félagsins jókst úr 19,2% á síðasta
fjórðungi síðasta árs í 20,3% nú.
Alcoa sagði í fréttatilkynningu að
það hygðist halda áfram að einbeita
sér að kostnaðaraðhaldi og aukinni
framleiðslugetu. Jafnframt ætlar fyr-
irtækið að halda áfram að selja frá
sér þá hluta sem ekki teljast til
kjarnastarfsemi þess.
Í fyrra sagði Alcoa upp 10.000
starfsmönnum en heildarfjöldi starfs-
manna var 127.000 við árslok 2002.
Hagnaður Alcoa
umfram væntingar