Morgunblaðið - 08.04.2003, Side 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 37
LENA Zielenski fór mikinn að
venju og stóð efst eftir forkeppnina
á Sveini Hervari frá Þúfu en nú
eins og oft áður í vetur var fyrsta
sætið ekki þau örlög sem henni
voru ætluð því Hans og Hjörtur
voru hlutskarpari á hægatöltinu og
það dugði þeim til sigurs þótt
naumur væri. Þau voru hnífjöfn á
hraðabreytingum en Lena og
Sveinn Hervar höfðu yfirhöndina í
fegurðartöltinu sem kemur í stað
yfirferðar í venjulegri töltkeppni.
Að sjálfsögðu voru skiptar skoð-
anir um hvort þeirra ætti skilið
efsta sætið eins og gengur en víst
er að sigurinn gat lent hvorum
megin sem var.
Nú fengu Sunnlendingar að sjá
þessa nýju stjörnu sem Hans Kjer-
úlf teflir fram og víst er að þótt
hann hefði verið kynntur á Laufa
frá Kollaleiru, sem verið hefur
keppnishestur Hansa um langa tíð,
hefði enginn tekið eftir því svo líkir
sem þeir eru klárarnir.
Sveinn Hervar er í feiknastuði
þessa dagana hjá Lenu og verður
spennandi að sjá hann í gæðinga-
keppni í vor ef hann heldur þessum
dampi. Það var hinsvegar dapur-
legt fyrir marga gesti Skautahall-
arinnar að Hraun frá Húsavík
skyldi ekki mæta í sparifötunum en
vafalítið hafa margir komið gagn-
gert að sjá þann kostagrip. Hún
einfaldalega náði sér ekki á strik á
ísnum sem alltaf getur gerst eins
og reyndar henti nokkra kunna
keppnishesta sem tóku þátt í
keppninni að þessu sinni. Það er
alltaf nokkur áhætta að mæta með
hross á ísinn og aldrei fyrirséð
hvernig þau bregðast við á svellinu.
Af öðrum athygliverðum hross-
um má nefna glæsihryssuna Lydíu
frá Vatnsleysu sem stóð vel fyrir
sínu og minnir mjög á móður sína
Lissý frá Vatnsleysu. Knapi á
henni var Björn Jónsson frá Vatns-
leysu.
Þrír efnilegir stóðhestar voru
sýndir í hléum þeir Parker frá Sól-
heimum sem Tryggvi Björnsson
sýndi. Þá mætti Lena með tvo
hesta þá Goða frá Auðsholtshjá-
leigu og Gust frá Lækjarbakka, allt
efnisfolar. Hrymur frá Hofi forfall-
aðist á síðustu stundu og mætti því
ekki á svellið en dregnir voru út
tollar hjá þessum hestum í hléi en
miðar á sýninguna voru um leið
happdrættismiðar.
Ágætlega tókst til með ístöltið að
þessu sinni, ekkert hross fékk
byltu í sjálfri keppninni en eitthvað
var Björn orðinn æstur að lokinni
verðlaunaafhendingu og skrikaði
Lydíu fótur í einni beygjunni og
lágu þau þar flöt eða því sem næst.
Vel var mætt að venju í áhorf-
endapallanna en það verður þó að
viðurkennast að stemmningin með-
al þeirra hefur oft verið meiri þótt
ekki væri annað að sjá en fólk
skemmti sér hið besta.
Dómararnir brugðust ekki frekar
en fyrri daginn og voru ósparir á
háu tölturnar enda tilheyrir það á
slíkri hátíðarstundu.
Ístöltið í Skautahöllinni í Laugardal
Enn sigra þeir Hjörtur
og Hans á ísnum
Hinir langförulu fé-
lagar Hans F. Kjerúlf
og Hjörtur frá Úlfs-
stöðum unnu frækileg-
an sigur eftir æsi-
spennandi keppni á
ístöltinu í Skautahöll
Reykjavíkur á laugar-
dag. Valdimar Krist-
insson dvaldi um stund
á köldum klaka og tók
myndir og fylgdist
með úrvals tölturum
heyja harða keppni.
Morgunblaðið/Vakri
Enn einn sigurinn rennur úr greipum Lenu Zielenski á ögurstundu þrátt
fyrir góða frammistöðu hennar og Sveins Hervars frá Þúfu.
Morgunblaðið/Vakri
Það eru engin smá verðlaun veitt í ístöltinu og jafnhendir Hans hér þá tvo
bikara sem hann fékk fyrir sigurinn.
Morgunblaðið/Vakri
Laufi frá Kollaleiru? Nei, ekki aldeilis, þetta er Hjörtur frá Úlfsstöðum, hin
nýja stjarna sem Hans keppir á þessa dagana.
Ístölt 2003 Skautahöllinni í Reykjavík
1. Hans Kjerúlf, Freyfaxa, og Hjörtur frá Úlfsstöð-
um, 8,33/8,88
2. Lena Zielinski, Fáki, og Sveinn-Hervar frá Þúfu,
8,57/8,80
3. Vignir Siggeirsson, Geysi, og Reynir frá Hóls-
húsum, 7,90/8,52
4. Björn Jónsson, Stíganda, og Lýdia frá Vatnsleysu,
8,07/8,67
5. Hafliði Halldórsson, Fáki, og Ásdís frá Lækjar-
botnum, 8,0/8,41
6. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, og Grunur frá Odd-
hóli, 8,07/8,40
7. Christina Lund, Sleipni, og Trymbill frá Glóru,
7,73/8,22
8. Sigurður Sigurðarson, Geysi, og Skuggabaldur
frá Litla-Dal, 7,90/8,04
Vetrarleikar Gusts
í Glaðheimum
Karlar
1. Steingrímur Sigurðsson, Gusti, og Kveikur frá
Miðsitju
2. Þorvaldur Gíslason, Gusti, og Fókus frá Feti
3. Bjarni Sigurðsson, Gusti, og Eldur frá Hóli
4. Haraldur Gunnarsson, Gusti, og Geisli frá Ak-
urgerði
5. Guðlaugur Pálsson, Herði, og Védís frá Lækj-
arbakka
Heldri menn og konur
1. Magnús Matthíasson, Gusti, og Dynur frá Haf-
steinsstöðum
2. Ásgeir Heiðar, Andvara, og Þorri frá Forsæti
3. Victor Ágústsson, Gusti, og Kyndill frá Bjarn-
arnesi
4. Svanur Halldórsson, Gusti, og Gúndi frá Kópavogi
5. Elvar Ólafsson og Gammur frá Múlakoti
Konur
1. Erla G. Gylfadóttir, Andvara, og Smyrill frá
Stokkhólma
2. Ásta B. Benediktsdóttir, Herði, og Snót frá Ak-
ureyri
3. Birgitta D. Kristinsdóttir, Gusti, og Sif frá Höfða
4. Ragnhildur G. Benediktsdóttir, Gusti, og Röst frá
Krossanesi
5. Oddný M. Jónsdóttir, Gusti, og Sjöstjarna frá
Svignaskarði
Ungmenni
1. Tryggvi Þ. Tryggvason, Gusti, og Skrekkur frá
Sandfelli.
2. Sigvaldi L. Guðmundsson, Gusti, og Brynja frá
Skógskoti
3. Guðmundur M. Skúlason, Snæfellingi, og Hvati
frá Saltvík
4. Ólafur A. Guðmundsson, Gusti, og Blökk frá
Skógskoti
5. María Einarsdóttir, Gusti, og Venus frá Vind-
heimum
Unglingar
1. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson, Gusti, og Vængur frá
Köldukinn
2. Linda R. Pétursdóttir, Herði, og Hvessingur frá
Sperðli
3. Hólmfríður Kristjánsdóttir, Gusti, og Amor frá
Hellu
4. Anna G. Oddsdóttir, Andvara, og Þruma frá
Stokkhólma
5. Daníel Gunnarsson, Andvara, og Díana frá Heiði
Pollar
1. Steinunn E. Jónsdóttir, Andvara, og Glampi
2. Sigrún G. Sveinsdóttir, Gusti, og Huginn frá
Hörgshóli
3. Rúna Halldórsdóttir, Gusti, og Barón frá Kópa-
vogi
4. Helena R. Leifsdóttir, Gusti, og Skröggur frá
Tjörn
5. Valdís B.Guðmundsdóttir, Gusti, og Litli-Rauður
frá Svignaskarði
Börn
1. Sigrún Ý. Sigurðardóttir, Gusti, og Sörli frá Kálf-
hóli
2. Guðný B. Guðmundsdóttir, Gusti, og Fjöður frá
Svignaskarði
3. Ólöf Þ. Jóhannsdóttir, Andvara, og Stjörnudís frá
Kjarnholtum
4. Bára B. Kristjánsdóttir, Gusti, og Laski frá
Kirkjubæ
5. Berta M. Hreiðarsdóttir, Gusti, og Bleikur
100 m. flugskeið
1. Logi Guðmundsson og Dillon frá Núpi, 13 v.
brúnn, 8,84 sek.
2. Victor Ágústsson og Viðja frá Birtingarholti 13 v.
brún, 10,37 sek
3. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson og Elja frá Reykjavík
9 v. brún 10,54 sek.
4. Guðmundur H. Ólafsson og Blekking frá Há-
varðarkoti, 8 v. brún 10.60 sek
5. Hreiðar H. Hreiðarsson og Jaguar frá Huga, 8 v.
jarpur 11,15 sek
3. vetrarmót Geysis á Gaddstaðaflötum
Opinn flokkur
1. Haukur Tryggvason, Hvinur frá Holtsmúla
2. Sigurður Sigurðarsson, Gellir frá Árbakka
3. Ævar Ö. Guðjónsson, Sunna frá Kaldbak.
4. Sigurður Ó. Kristinsson, Straumur frá Kirkubæ
5. Haraldur Arngrímsson, Sindri frá Laugardælum
6. Guðjón Steinarsson ( Ævar Örn), Dropi frá Heiði.
7. Jón Þ. Steindórsson, Týr frá Árbakka
8. Katla Gísladóttir, Prýði frá Leirubakka
9. Þórunn Kristjánsdóttir, Orka frá Árnagerði
10. Ingunn B. Ingólfsdóttir, Svarti-Pétur
Áhugamenn
1. Katla Gísladóttir, Viðja frá Neðra-Seli
2. Jón Á. Jónsson, Muggur frá Hafsteinsstöðum
3. Elín H. Sigurðardóttir, Sæli frá Holtsmúla
4. Mille Kyl, Bjarki frá Sunnuhvoli
5. Róbert Einarsson, Bob frá Hólakoti.
6. Einar Hafsteinsson, Kórina frá Sigtúni
7. Bára Elíasdóttir, Sprækur frá Ármótir.
8. Hannes Árnason, Flóki frá Sólvöllum.
9. Theresa Sundberg, Gormur frá Votmúla
10.Ragnhildur Eggertsdóttir, Tinna frá Kirkjulæk
Unglingar
1. Hildur Ágústsdóttir, Vopni frá Vestra-Fíflholti
2. Elín H. Sigurðardóttir, Esjar frá Holtsmúla.
3. Rósa Eiríksdóttir, Snær frá Mosfellsbæ
4. Signý Egilsdóttir, Léttingur frá Berustöðum
5. Bergrún Ingólfsdóttir, Klængur frá Króki
6. Sigurborg Rútsdóttir, Tandri frá Skíðbakka
7. Lóa Dagmar Smáradóttir, Gíjar frá Mykjunesi.
8. Hrönn Svansdóttir, Silfra frá Litlu-Tungu
Börn
1. Ragnheiður H. Ársælsdóttir, Gletta frá Bakkakoti
2. Rakel N. Kristinsdóttir, Vígar frá Skarði
3. Hekla K. Kristinsdóttir, Assa frá Ölversholti.
4. Lárus J. Guðmundsson, Freyja frá Efri-Rauða-
læk
5. Freyja Smáradóttir, Smiður frá Búlandi
6. Eysteinn Eiríksson, Spenna frá Kanastöðum
7. Arna Albertsdóttir, Nett frá Hurðarbaki.
8. Herdís Rútsdóttir, Taktur frá Skíðbakka
9. Klara S. Ásmundsdóttir, Völundur frá Hildisey
10.Elín H. Kjartansdóttir, Lómur frá Lækjarmótum
Pollar
1. Elísabet R. Ágústsdóttir, Haukur frá Vestra-Fífl-
holti.
2. Eyþór Eiríksson, Völundur frá Kanastöðum
3. Rúnar S. Gunnarsson, Svartstjarna frá Varmadal
4. Elínborg Önundardóttir, Noðri frá Akureyri
5. Bjarki Rúnarsson, Lúlli frá Varmadal
6. Hekla D. Ásmundsdóttir, Bleik frá Hildisey
7. Helga Þ. Steinsdóttir, Skuggi frá Sólvöllum
8. Jóna G. Guðmundsdóttir, Fluga.
9. Ingibjörg J. Steinsdóttir, Heljar frá Hólmum
Samanlagðir sigurvegarar úr þremur
vetrarmótum Geysis 2003
Börn
Ragnheiður H. Ársælsdóttir, Gletta frá Bakkakoti.
Unglingar
Elín H. Sigurðardóttir, Esjar frá Holtsmúla
Áhugamenn
Katla Gísladóttir, Viðja frá Neðra-Seli
Opinn flokkur
Haraldur Arngrímsson, Sindri frá Laugardælum
Opið töltmót Andvara
í Reiðhöllinni Kjóavöllum
Opinn flokkur
1. Þórunn Hannesdóttir, Andvara, Gjöf frá Hvoli,
5,90/6,81
2. Siguroddur Pétursson, Andvara, og Saga frá
Sigluvík, 6,50/6,73
3. Jón Ó. Guðmundsson, Andvara, og Regína frá
Flugumýri, 5,87/6,70
4. Jón Styrmisson, Herði, og Gnótt frá Skollagróf,
6,20/6,64
5. Sveinbjön Bragason, Mána, og Sleipnir frá
Litlu Tungu, 5,47/6,23
5. Elías Þórhallsson, Herði, og Elva, 5,77/6,11
Yngri flokkur
1. Dagrún Aðalsteinsdóttir, Andvara, og Týr frá
Lambleiksstöðum, 6,06/6.03
2. Teitur Árnason, Fáki, og Öðlingur frá Stóra
Hofi, 5,77/5.83
3. Ragnar Tómasson, Fáki, og Perla frá Bringu,
5,60/5,78
4. Camilla P. Sigurðardóttir, 5,53/5,68
5. Viggó Sigurðsson, Sörla, og Fröken Sara frá
Hvítárvöllum, 5,605,51
Úrslit