Morgunblaðið - 08.04.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KA-MENN leika við lið frá Bosníu-
Herzegóvínu í fyrstu umferð Int-
ertoto-keppninnar í knattspyrnu í
sumar. Leikið er tvær síðustu helg-
arnar í júní og sigurliðið í þessari
viðureign spilar tvær fyrstu helg-
arnar í júlí við lið frá Belgíu eða
Andorra.
Ekki liggur ljóst fyrir fyrr en eft-
ir nokkrar vikur hvaða lið um er að
ræða. Miðað við stöðu mála í Bosníu
er líklegast að það verði ann-
aðhvort Sarajevo eða Siroki, sem nú
eru í 3. og 4. sæti 1. deildar, talsvert
á eftir tveimur efstu liðunum, Zelj-
eznicar og Leotar, og nokkuð á und-
an næstu liðum. Skagamenn mættu
einmitt Zeljeznicar síðasta sumar í
forkeppni meistaradeildarinnar og
töpuðu 3:0 ytra og 1:0 á Akranesi.
Bæði Sarajevo og Siroki komust í
2. umferð UEFA-bikarsins í fyrra.
Sarajevo sló út Sigma frá Tékklandi
eftir vítaspyrnukeppni í síðari leik
og Siroki vann tvo sigra, 3:0 og 2:1,
á Senec, 2. deildar liði frá Slóvakíu.
Í 2. umferð voru bæði slegin út,
Sarajevo af Besiktas frá Tyrklandi
(2:2, 0:5) og Siroki af Sparta frá
Tékklandi (0:1, 0:3).
KA tekur í fyrsta skipti þátt í
þessari keppni og í annað sinn í
Evrópukeppni frá upphafi. Fyrra
skiptið var árið 1990 en þá lék fé-
lagið í Evrópukeppni meistaraliða.
KA-menn unnu þá búlgörsku meist-
arana CSKA, 1:0, á Akureyri en töp-
uðu, 3:0, í Sofia.
KA-menn fara til
Bosníu-Herzegóvínu
EF farið væri eftir úrslitum í
viðureignum liðanna í 1. deild-
inni í vetur yrðu það Haukar,
FH, ÍR og KA sem kæmust í
undanúrslitin á Íslandsmóti
karla í handknattleik.
Haukar unnu báða leikina
gegn Fram á sannfærandi
hátt, 32:26, í Safamýrinni í
nóvember og 34:26 á Ásvöllum
í mars.
FH og Valur gerðu jafn-
tefli, 24:24, í Kaplakrika í nóv-
ember en FH vann seinni leik-
inn á Hlíðarenda, 26:23, í
mars.
ÍR vann Þór, 33:29, í Breið-
holtinu í október en Þór vann
seinni leikinn á Akureyri,
24:21, í febrúar.
KA vann HK, 32:28, í
Digranesi í október og aftur,
26:25, á Akureyri í febrúar.
Haukar, FH,
ÍR og KA
höfðu betur
mjög skemmtilegt að horfa á leiki hjá
þessum liðum. Liðin hafa verið mjög
öflug á sínum heimavöllum og það
kannski gefur manni tilefni til að ætla
það að KA-menn hafi betur í þessum
slag. KA nýtur heimavallarins ef til
oddaleiksins kemur sem ég tel nokk-
uð víst að verði. Ungu strákarnir hjá
KA hafa leyst verkefni sín af mikilli
aðdáun og það sem mér hefur fundist
til mikillar fyrirmyndar hjá KA-
mönnum í vetur er þessi mikla bar-
átta og vilji sem fleytt hefur liðinu
mjög langt. Mér fannst botninn detta
nokkuð úr leik HK-liðsins eftir að það
varð bikarmeistari en nú er aftur
komið mjög áhugavert verkefni fyrir
leikmenn liðsins. Árni Stefánsson
Morgunblaðið fékk Guðmund tilað spá í spilin fyrir baráttuna
sem fram undan er en mikil spenna
er ríkjandi á meðal
handboltaáhuga-
manna nú þegar
slagurinn er að hefj-
ast fyrir alvöru. Það
er reiknað með fjörugum rimmum og
verður barist á fjórum vígstöðum í
kvöld – að Ásvöllum í Hafnarfirði, að
Hlíðarenda og í Austurbergi í
Reykjavík og í KA-húsinu á Akur-
eyri.
KA – HK 2:1
„Þarna mætast tvö baráttuglöð-
ustu lið deildarinnar og yfirleitt er
kemur örugglega til með að kveikja í
sínum mönnum og honum mun ekki
leiðast að mæta sínum gömlu læri-
sveinum. Það er óhætt að segja að
þarna mætist stálin stinn og í æsi-
spennandi baráttu hallast ég að því
að Íslandsmeistarar KA hafi vinning-
inn og sigri, 2:1.“
Gangi þessi spá Guðmundar eftir
mætast Haukar og KA í undanúrslit-
unum annars vegar og hins vegar
Valur og ÍR.
Leikir kvöldsins hefjast allir
klukkan 19.15 og á fimmtudaginn eig-
ast liðin við öðru sinni á sama tíma.
Þurfi að grípa til oddaleikja í 8 liða
úrslitunum fara þeir fram á sunnu-
dag.
Haukar – Fram 2:0
„Ég sé fyrir að róður Framaranna
geti reynst ansi þungur. Haukar hafa
verið að sækja mjög í sig veðrið eftir
því sem liðið hefur á tímabilið og eru
eiginlega illviðráðanlegir fyrir hvaða
lið sem er um þessar mundir. Fram-
arar hafa þó sýnt mjög góða leiki inn
á milli og skemmst er að minnast
stórsigurs þeirra á Val þar sem bæði
sóknar- og varnarleikur þeirra var til
fyrirmyndar. Ef Framarar ætla að
komast í þá aðstöðu að ná fram odda-
leik þá þurfa þeir að ná algjörum
toppleik til að leggja Haukana að
velli. Haukarnir eru með betur
mannað lið en Fram og hvert sem lit-
ið er eru Haukarnir með góða menn í
öllum stöðum. Ég vil hins vegar ekki
afskrifa Framararana en mín spá
segir að Haukar hafi þetta, 2:0.“
Valur – FH 2:1
„Það er gríðarlega erfitt að spá
fyrir um þessa viðureign. Þó svo að
Valsmenn hafi misst af deildarmeist-
aratitlinum á síðustu metrunum þá
skyldi enginn afskrifa þá. Auðvitað
setti strik í reikninginn fyrir Vals-
menn að missa Bjarka Sigurðsson en
ég held að þeir nái að leysa það
vandamál í úrslitakeppninni. FH-lið-
ið hefur tekið gríðarlegum framför-
Morgunblaðið/Golli
Einar Friðrik Hólmgeirsson, leikmaður ÍR, í leik gegn Þór Akureyri, þar sem Aigars Lazdins og
Bergþór Mortens standa í vörninni og gera eflaust einnig í kvöld þegar liðin mætast í Austurbergi.
Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknatt-
leik spáir í spilin í átta liða úrslitunum í handknattleik karla
Heimavöllurinn
vegur þungt
GUÐMUNDUR Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, segir mjög erfitt að spá fyrir um viðureignirnar í 8 liða úrslit-
unum um Íslandsmeistaratitilinn sem hefjast í kvöld en hann hall-
ast þó að því að heimavöllurinn ráði úrslitunum þegar upp verður
staðið. KA-menn eiga titil að verja en norðanmenn hrósuðu sigri í
fyrra eftir spennandi úrslitaeinvígi við Val þar sem úrslitin réðust í
hreinum úrslitaleik í Valsheimilinu.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson
BARRY Ferguson, fyrirliði
Rangers og einn lykilmanna skoska
landsliðsins, hefur verið útnefndur
leikmaður ársins í Skotlandi. Það
voru leikmenn skosku úrvalsdeild-
arinnar sem stóðu að valinu og kom
það ekki á óvart að Ferguson skyldi
hljóta útnefninguna enda hefur
hann leikið sérlega vel með Rang-
ers og skoska landsliðinu í vetur.
EVERTON hefur slegið af fyrir-
hugaða æfinga- og keppnisferð til
Kína í næsta mánuði. Ástæðan er
lungnabólgufaraldurinn sem geisað
hefur á þessu svæði og hefur dregið
fjölda fólks til dauða.
HARRY Kewell, ástralski miðju-
maðurinn í liði Leeds United, er nú
orðaður við Manchester United og
herma heimildir að Alex Ferguson,
stjóri United, sé tilbúinn að punga
út 6 milljónum punda til að fá Kew-
ell í sínar raðir. Kewell á eitt ár eft-
ir af samningi sínum við Leeds.
FORSVARSMENN Leeds neita
þeim fréttum að þeir hafi samþykkt
tilboð United í Kewell og segja
Ástralann ekki fylgja fordæmi Rio
Ferdinands og ganga í raðir Man-
chester United.
CHELSEA og Bayern München
er sögð vera komin í kapphlaup um
að krækja í hollenska framherjann
Roy Makaay sem leikur með
Deportivo La Coruna á Spáni. Vit-
að er að njósnarar frá Chelsea hafa
fylgst með Makaay, sem hefur sett
20 mörk í vetur á Spáni.
MARK Crossley, markvörður hjá
Stoke, sem er í láni frá Middles-
brough, verður hjá Stoke út keppn-
istímabilið. Crossley hefur leikið
fimm leiki með Stoke á leiktíðinni
og hefur aðeins einu sinni þurft að
hirða knöttinn úr neti sínu. Fjórum
af þessum fimm leikjum hefur lykt-
að með markalausu jafntefli.
ADE Akinbiyi, framherjinn sem
Stoke er með í láni frá Crystal Pal-
ace meiddist í fyrsta leik sínum með
Stoke á laugardaginn og svo getur
farið að hann geti ekki leikið meira
á tímabilinu. Akinbiyi tognaði illa
og fór út af eftir klukkutíma leik.
RAY Lewington, knattspyrnu-
stjóri Watford, hyggst hvíla nokkra
af lykilmönnum sínum í leiknum á
móti Crystal Palace í ensku 1.
deildinni í kvöld. Lewington vill
hafa sína menn ferska fyrir sunnu-
daginn en þá mætir Watford liði
Southampton í undanúrslitaleik
ensku bikarkeppninnar.
HEIÐAR Helguson, sem misst
hefur af síðustu leikjum Watford
vegna meiðsla, lætur væntanlega á
það reyna í kvöld hvort hann sé
tilbúinn í slaginn fyrir næstu helgi
en Lewington hefur í hyggju að
láta Heiðar leika einhvern hluta af
leiknum gegn Palace.
FÓLK