Morgunblaðið - 15.05.2003, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.05.2003, Qupperneq 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 21 Með byltingarkenndri tvíþættri tækni, sem sótt hefur verið um einkaleyfi* á, eykur Expandex™ formúla fyrirferð augnháranna - gerir þau allt að 300% þykkari. Speed-Meter Brush™ sveigjuburstinn, straumlínulagaður og undralipur, rennir sér í augnhárabeygjurnar með ofurskammt af lit. Formúla eitt fyrir ótrúleg augnhár. Svartur, brúnn, blár og fjólublár. Þykk augnhár á ofurhraða Nýtt: MagnaScopic Maximum Volume Mascara Hagkaup Kringlunni • Hagkaup Smáralind Hagkaup Spönginni • Hagkaup Akureyri GJÖFIN ÞÍN Gjöfin þín Gefðu húð þinni þá frábæru meðferð sem hún á skilið. Kannaðu hvað nýjasti farðinn gerir fyrir þig. Finndu angan vors og blóma í yndislegum ilmi. Kaupirðu Estée Lauder vörur fyrir 3.500 kr. eða meira í þessum verslunum Hagkaups dagana 15. - 21. maí færðu fallega gjöf með eftirfarandi glaðningi:* Resilience Lift OverNight Face and Throat Creme, næturkrem Resilience Lift Face and Throat Crème SPF 15, dagkrem Re- Nutriv varalitur Illusionist Maximum Curling Mascara Intuition EDP spr. Fallega bleika snyrtitösku Verðgildi gjafarinnar er kr. 7.100.- * Meðan birgðir endast. www.esteelauder.com *Í Bandaríkjunum og á heimsvísu. FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI SLÁTTUORF GARÐSLÁTTUVÉLAR GARÐSLÁTTUVÉLARSLÁTTUORF HEKK KLIPPUR HANDSLÁTTUVÉLAR REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070 ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST Létt og lipur. Fyrir sumar- bústaðinn og heimilið Sú græna góða. 4,75 hp - 6,5 hp Sú mest selda. 3,5 hp - 6 hp Fyrir þá sem vilja „alvöru“ hekkklippur „Bumbubaninn“ sem bregst ekki Hörkuorf fyrir alla sláttumenn UNNIÐ er að kortlagningu leifa landnámsskálans og bygginganna við hann sem fundust skammt frá Kirkjuvogskirkju í Höfnum í vetur. Notaðar eru viðnámsmælingar til að kanna útlínur bygginganna. Þegar Bjarni F. Einarsson forn- leifafræðingur vann að fornleifa- skráningu fyrir Reykjanesbæ síð- astliðinn vetur fann hann tóftir í Höfnum, skammt frá Kirkjuvogs- kirkju, sem hann taldi gamlar. Var grafið í tóft sem Bjarni taldi skála og þar var komið niður á heillegt gólf frá landnámsöld og hleðslu sem talin var úr langeldinum. Auk þess fundust nokkrir munir. Niðurstöður úr geislakolaaldurs- greiningum á sýnum úr uppgreftr- inum bentu til þess að skálinn væri frá níundu öld eða eldri og að hann væri því með elstu skálum sem fundist hefðu hér á landi. Kortleggur fornleifarnar Í sumar hefur verið unnið að kortlagningu fornleifanna. Tim Horsley, breskur fornleifa- og jarð- eðlisfræðingur, sem vinnur að dokt- orsverkefni við Bradfordháskóla var fenginn til að gera viðnáms- mælingar með jarðsjá. Í síðustu viku mældi hann svæðið eins og það var. Síðan lét Reykjanesbær taka um það bil 50 sentímetra lag ofan af því, undir stjórn Bjarna Einarsson- ar, til þess að sjá muninn og reyna að fá mælinguna nákvæmari og er Tim þessa dagana að endurtaka mælinguna. Hann segir spennandi að sjá hverju það breyti að mæla aftur eftir að búið er að taka ofan af landinu. Tölurnar úr jarðsjánni set- ur hann inn í tölvu og á hann þá að geta séð útlínur húsanna, stærð þeirra og afstöðu hvers til annars, og teiknað þau upp. Jarðvegur hér á landi og berglög eru talsvert frábrugðin því sem er í Bretlandi til dæmis og er Tim að þróa mælitækni við íslenskar að- stæður. Hann hefur komið hingað til lands í þessum tilgangi á hverju sumri frá 1999 og rannsakað forn- leifar á 40 stöðum, meðal annars í Skálholti og á Þingvöllum. Stórkostlegt tækifæri Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu- maður Byggðasafns Reykjanes- bæjar, segir að með þessari tækni sé hægt að spara uppgröft á stöðum innan svæðisins þar sem ekkert er talið vera undir og hægt að einbeita sér að áhugaverðustu stöðunum. Vonandi finnist einnig minni hús og jafnvel öskuhaugar. Hún vonast til að fljótlega verði hægt að hefjast handa við frekari rannsóknir á fornleifunum og þá með uppgreftri. Helst næsta sumar en það sé þó háð fjárveitingum bæj- aryfirvalda. „Ég lít á þetta sem stórkostlegt tækifæri fyrir Suður- nesin að komast almennilega á kortið. Þegar verið er að ræða um íslenska menningu eru Suðurnesin sjaldnast nefnd á nafn. Rannsókn á þessum stað myndi styrkja menn- ingarlega stöðu svæðisins. Fleira kemur í framhaldinu, því þessi vinna mun hjálpa okkur að byggja upp jákvæða ímynd svæðisins og menningartengda ferðaþjónustu,“ segir Sigrún Ásta. Þegar rannsóknunum lýkur verður væntanlega sáð grasfræi í sárið. Moldin kom í góðar þarfir hjá Hafnabúum, víða eru moldarhaug- ar við garða þeirra sem íbúarnir eru að vinna úr við vorverkin í görðunum. Hluti af moldinni var notaður til að útbúa skeifulaga jarðvegsmön við fornleifasvæðið. Þar verður aðstaða fyrir ferðafólk til að fylgjast með rannsóknum og skoða tóftirnar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tim Horsley gengur með jarðsjána skipulega yfir tóftir landnámsskálans og annarra fornra bygginga. Unnið að undirbúningsrannsóknum við Kirkjuvogskirkju Teikna upp landnámsskál- ann eftir viðnámsmælingar Hafnir SÖNGSVEITIN Víkingar heldur sína árlegu vortónleika í kvöld, fimmtudaginn 15. maí kl. 20.30, í Ytri-Njarðvíkurkirkju og í Safnaðar- heimilinu í Sandgerði á morgun, föstudag, einnig kl. 20.30. Söngsveitin Víkingar var stofnuð 1994 og er Suðurnesjamönnum að góðu kunn. Sveitin er undir stjórn Sigurðar Sævarssonar. Á efnisskránni er léttleikinn í fyr- irrúmi, blanda af íslenskum og er- lendum lögum frá ýmsum tímum. Hluti söngskrárinnar er fluttur án undirleiks en að öðru leyti er undir- leikurinn dillandi harmoníka. Vortónleikar Víkinganna Njarðvík/Sandgerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.