Morgunblaðið - 15.05.2003, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÞÝSK lögregluyfirvöld hafa í samvinnu við lög-
regluyfirvöld hér á landi upprætt þýskan fíkni-
efnahring en starfsemi hans náði hingað til
lands. Þannig handtók þýska lögreglan fimm
manns og fann rúmlega 20 kíló af hassi við 14
húsleitir í smábæ rétt utan við Hamborg í
fyrradag. Málið tengist handtöku tveggja
manna hér á landi í haust, Þjóðverja og Íslend-
ings sem hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan, að
sögn Ásgeirs Karlssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. Alls eru því sjö manns í haldi nú vegna
málsins. „Þýska lögreglan hóf að fylgjast með
hópi manna þar í landi í lok síðasta sumars en
er böndin höfðu borist til Íslands hafði hún
samband við lögregluyfirvöld hér og óskaði eft-
ir samvinnu.“
Íslendingurinn áður
tengst fíkniefnamálum
Hann bendir á að sú vinna hafi leitt til hand-
töku Þjóðverja á sextugsaldri á Keflavíkurflug-
velli er hann reyndi að smygla hingað kílói af
hassi og 900 grömmum af amfetamíni. Í kjölfar-
ið var Íslendingur um þrítugt handtekinn í
Reykjavík og er sá búsettur hér á landi. Báðir
eru þeir enn í haldi, búið er að gefa út ákæru á
hendur þeim og verður málið tekið fyrir í hér-
aðsdómi innan tíðar.
Íslendingurinn mun áður hafa komið við sögu
lögreglu vegna fíkniefnamála. Ásgeir vill ekki
gefa upp hvort búist sé við að málið sé viða-
meira en segir að rannsókn þess muni halda
áfram í samvinnu við þýsku lögregluna. Rann-
sókn málsins hefur verið nokkuð umfangsmikil,
m.a. hafa þýskir lögreglumenn komið tvisvar
hingað til lands vegna þess. Ásgeir segir sam-
vinnuna við þýsku lögregluna hafa gengið afar
vel og bætir við að samvinna af þessu tagi á
milli landa sé sífellt að aukast.
Þýsk-íslenskur fíkniefnahringur upprættur með samvinnu landanna
Tengist Íslendingi sem hand-
tekinn var hérlendis í haust
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið hf.,
sem rekur Skjá einn, hefur ákveðið
að ný áskriftarsjónvarpsstöð hefji
sendingar í haust og mun hún bera
nafnið Skjár tveir. Nýja stöðin
verður fáanleg á breiðbandi Símans
sem nú þegar er tengt við 33.000
heimili á landinu.
Skjár einn verður rekinn með
óbreyttu formi. Félagið fyrirhugar
að kynna dagskrá nýju stöðvarinn-
ar í ágústmánuði en á stöðinni verð-
ur bæði erlent efni og íslensk dag-
skrárgerð.
Kristinn Þ. Geirsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir útlit
fyrir að Skjár einn skili hagnaði á
þessu ári og því telur hann sterkan
grundvöll til að útvíkka starfsem-
ina.
Vilja öflugt fjölmiðlafyrirtæki
Metnaður félagsins stöðvast þó
ekki við Skjá tvo. „Allir sem eru
eitthvað að vinna í fjölmiðlum velta
því alltaf fyrir sér hvernig væri að
stofna stórt, öflugt fjölmiðlafyrir-
tæki sem rekur alls kyns fjölmiðla,
þar sem áherslan er á að framleiða
fréttir og afþreyingarefni,“ segir
Gunnar Jóhann Birgisson, stjórn-
arformaður Íslenska sjónvarps-
félagsins. „Síðan væri efninu komið
til skila, hvort sem það væri með
prentmiðlum, eða í gegnum sjón-
varp og útvarp. Auðvitað erum við
að velta fyrir okkur slíkum hug-
myndum líka. Þetta eru í dag hálf-
gerðar vísindaskáldsögur en það er
allt raunhæft í þessu.“
Kristinn segir að nú sé rekstur
félagsins kominn í góðan farveg og
því sé Skjár tveir góð viðbót.
„Með þessari [nýju] stöð ætlum
við ekki að tryggja rekstur Skjás
eins líkt og margir halda, heldur er
þetta þveröfugt og kemur Skjár
tveir frekar sem viðbót við Skjá
einn,“ sagði Gunnar.
Íslenska sjónvarpsfélagið sendir út á Breiðbandinu
Skjár tveir í loftið í haust
Sjónvarpsstöð/10
Girðingarmál á
Kjalarnesi í sjálfheldu
Málið bítur
í skottið
á sér
BÚFJÁRSAMÞYKKT sem bannar
lausagöngu búfjár á Kjalarnesi fæst
ekki samþykkt vegna þess að ekki er
komin girðing á milli Kjalarness og
Kjósar og hafa Bændasamtökin því
lagst gegn staðfestingu samþykktar-
innar. Hins vegar er ekki hægt að
setja girðinguna upp fyrr en búfjár-
samþykktin hefur verið staðfest.
Þannig virðist málið vera komið í
sjálfheldu.
Kjalarnes liggur að Kjós þar
sem lausaganga er heimil
Ástæða þess að Bændasamtökin
leggjast gegn staðfestingu búfjár-
samþykktarinnar er að hún á sér
ekki stoð í lögum, að sögn Ólafs Dýr-
mundssonar, ráðunautar hjá
Bændasamtökunum. Ekki sé hægt
að banna lausagöngu búfjár á Kjal-
arnesi vegna þess að nesið liggur að
Kjós þar sem lausaganga er heimil.
Á meðan ekki sé girt á milli sé ekki
hægt að banna lausagöngu á nesinu.
Þannig virðist málið bíta í skottið á
sér – búfjársamþykktin fæst ekki
samþykkt þar sem girðingin er ekki
fyrir hendi og ekki hægt að setja
girðinguna upp þar sem ekki er búið
að staðfesta búfjársamþykktina.
Girðingarmál/19
Morgunblaðið/RAX
Samkeppnishæfni
smærri þjóða
Ísland í ní-
unda sæti
ÍSLAND er í níunda sæti af 29
þjóðum á lista svissneska IMD-
viðskiptaháskólans yfir sam-
keppnishæfni þjóða sem hafa
færri en 20 milljónir íbúa. Á
sama mælikvarða lenti Ísland í
ellefta sæti árið 2002.
Litið var til fjögurra mæli-
kvarða við mat á samkeppnis-
hæfni. Ísland lenti í 26. sæti
hvað varðar stöðu efnahagslífs
og féll úr því sautjánda. Guðrún
Mjöll Sigurðardóttir, sérfræð-
ingur hjá Háskólanum í
Reykjavík, sem sá um gagna-
öflun fyrir rannsóknina hér á
landi, segir að smæð landsins
hafi haft hamlandi áhrif í þessu
tilliti. Sumir þeirra þátta sem
horft hafi verið til lúti beinlínis
að stærð lands og þjóðar.
Hvað varðar skilvirkni hins
opinbera lenti Ísland í sjöunda
sæti og hækkaði sig um átta
sæti frá fyrra ári. Skilvirkni í
viðskiptum var hin þriðja
mesta meðal þjóðanna 29 og
innviðir íslenska efnahagslífs-
ins lentu í fjórða sæti.
Samkeppnishæfni/B1
FYRSTA þrívíddarkvikmyndin í heiminum
sem tekin er með 360 gráða sjónarhorni var
tekin á Langjökli á mánudag. Bandarískur
einkaaðili stendur að gerð myndarinnar
sem verður fjögurra mínútna löng og kost-
ar 300 milljónir króna. Myndin verður sýnd
í sérstökum sal vestanhafs, þar sem frost
verður 10 gráður og búin til snjókoma til að
auka sem mest á stemmninguna meðan
horft er á jöklamyndina. Þessi tækni er tal-
in fýsilegur kostur í þróun á tölvuleikjum í
framtíðinni og í þjálfun hermanna og lög-
reglu svo dæmi séu tekin.
Bandarískir kvikmyndatökumenn frá
Hollywood voru hér á landi á dögunum og
biðu færis að komast upp á Langjökul með
kvikmyndavél, sem fest var neðan á þyrlu
áður en loftmyndatakan hófst. Tökuvélin er
búin níu linsum og eru þrjár slíkar vélar til í
heiminum.
Hugmyndin kviknaði í fyrra þegar Krist-
ján Kristjánsson hjá ferðaþjónustufyrir-
tækinu Mountain Taxi var að aka höfundi
myndarinnar um Langjökul. Hefur undir-
búningur staðið í sex mánuði. Auk Mount-
ain Taxi aðstoðuðu Þyrluþjónustan og
Norðvestur kvikmyndagerð við verkefnið.
Ljósmynd/Craig Pavilionis
Nýstárleg þrí-
víddarkvikmynd
tekin á Langjökli
MARGIR samfögnuðu Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands, í Borgarleikhúsinu í gær í tilefni 60 ára
afmælis hans. Listamenn skemmtu og ávörp voru
flutt. Davíð Oddsson forsætisráðherra þakkaði
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta öll samskipti og
samstarf fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og handhafa
forsetavaldsins og færði honum gjöf frá ríkisstjórn-
inni í tilefni tímamótanna.
Morgunblaðið/Sverrir
Forseti Íslands sextugur
Fjölmenni/4
FLUGLEIÐIR eru í 9. sæti á lista yfir 23
evrópsk flugfélög sem týna sjaldnast ferða-
töskum flugfarþega. Samtök evrópskra
flugfélaga gefa út listann en sagt er frá hon-
um í norska blaðinu Hangar. Þar kemur
fram að 7,7 af hverjum þúsund farþegum
glata farangri sínum þegar flogið er með
Flugleiðum. Flugfélagið Turkish Airlines er
í fyrsta sæti en einungis 1,3 töskur glöt-
uðust hjá hverjum þúsund farþegum í mars-
mánuði. Spanair er í öðru sæti og SN Bruss-
els Airlines í því þriðja. Luxair frá
Lúxemborg vermir neðsta sæti listans en af
hverjum þúsund farþegum þeirra týna 21,9
töskunni sinni.
Flugleiðir
týna sjaldan
töskum
♦ ♦ ♦