Morgunblaðið - 16.07.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.07.2003, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2003 37 ARNAR E. Gunnarsson (2.348) náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli með því að leggja ungverska stórmeistarann Attila Jakab (2.442) í tíundu umferð First Saturday mótsins í Ung- verjalandi. Til að fá útnefningu sem alþjóðlegur meist- ari þarf Arnar nú að ná 2.400 skák- stigum. Bragi Þor- finnsson (2.373) staðfesti einnig styrkleika sinn á mótinu með því að ná sínum fjórða áfanga að alþjóð- legum meistaratitli, en þetta eru einu áfangarnir sem náðst hafa á mótinu. Ekki eru gerðar kröfur um nema þrjá áfanga og stendur Bragi því frammi fyrir sama markmiði og Arnar, þ.e. að koma skákstigum sínum upp fyrir 2.400. Líklegt verður að teljast að stutt sé í það. Bragi Þorfinnsson gerði jafn- tefli við úkraínska stórmeistarann Sergei Ovsejevitsch (2.497) í tí- undu umferðinni og Jón Viktor Gunnarsson (2.411) gerði jafntefli við Rússann Sergei Reutsky (2.307). Þeir Arnar og Bragi eru nú í 3.–6. sæti með 5½ vinning, en Jón Viktor er í 9.–10. sæti með 4½ vinning. Hann sýndi skemmtilega takta gegn bandarísku skákkon- unni Jennifer Shahade (2.366) í sjöttu umferð, en hún er alþjóð- legur skákmeistari kvenna. Hvítt: Jennifer Shahade Svart: Jón Viktor Frönsk vörn 1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rd2 Be7 4.Rgf3 Rf6 5.e5 Rfd7 6.c3 c5 7.Bd3 Rc6 8.0–0 a5 9.He1 g5!? Nýr og hraustlegur leikur, þótt þessi sama hugmyndi hafi áður sést eftir 9..cxd4 10. cxd4. 10.h3? -- Betra er að leika 10.dxc5 Rxc5 (10...g4 11.Rd4 Rcxe5 12.Bb5 Bf6 13.Rf1 Dc7 14.Bf4 Hg8 15.Bxe5 Bxe5 16.c6 bxc6 17.Rxc6 Kf8 18.Rxe5 Rxe5) 11.Bb5 Bd7 12.Rb3 Rxb3 13.Dxb3 g4 14.Rd4 Rxd4 15.cxd4 Bxb5 16.Dxb5+ Dd7 17.Dd3 með betra tafli fyrir hvít. 10...h5 11.g4 -- Eftir 11.dxc5 g4 12.Rd4 Rdxe5 13.Bb5 Bd7 14.Rxc6 Rxc6 15.hxg4 hxg4 16.Dxg4 Bxc5 á svartur gott tafl. 11...hxg4 12.hxg4 cxd4 13.cxd4 Db6 (sjá stöðumynd 1.) Þessi staða kom upp með breyttri leikjaröð í skák ensku meistaranna Daniel Gormally og Neil McDonald á Ólympíuleikum hugaríþrótta í London 2001. Gormally kaus að leika 14. Da4, sem líklega er aðeins betri leikur, og þá er komin upp staða sem áð- ur hefur sést á skákmóti í Búda- pest! Það var árið 2000 í skákinni Yelena Dembo – D. Driamin. Dembo sem þá var 16 ára náði einmitt áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og stórmeistaratitli kvenna á einu og sama First Sat- urday mótinu það ár. 14.Rb1 Rxd4 15.Rc3 Hh3 16.Rh2 -- Eða 16.Rxd4 Dxd4 17.Rb5 (17.Bf1 Hg3+ 18.Bg2 Dxd1 19.Rxd1 Hxg4) 17...Dxd3 18.Rc7+ Kd8 19.Dxd3 Hxd3 20.Rxa8 b6 21.b4 Bb7 22.Rxb6 Rxb6 23.bxa5 Rc4 og svartur stendur mun bet- ur. 16...Rc6 17.Rb5 -- Eftir 17.Bf1 Hxh2 18.Kxh2 Dxf2+ 19.Bg2 Rdxe5 20.Rb5 Rf3+ 21.Dxf3 Dxe1 22.Dg3 Dxg3+ 23.Kxg3 Kf8 á svartur þremur peðum meira og unnið tafl. 17...Rdxe5 18.Be3 d4 19.Bxd4 -- Eða 19.Rxd4 Hxe3 20.Hxe3 (20.fxe3 Rxd4 21.exd4 Dxd4+ 22.Kh1 Rxd3) 20...Dxd4 og svart- ur á yfirburðatafl. 19...Rxd4 20.Hxe5 Bd7 21.Bf1 -- Hvítur getur enga björg sér veitt, t.d. 21.Rxd4 Dxd4 22.Bb5 Dxe5 23.Dxd7+ Kf8 24.Rf1 De4 25.Rg3 Hxg3+ 26.fxg3 Bc5+ 27.Kh2 (27.Kf1 Df3+ 28.Ke1 Bb4+ 29.Dd2 De3+ 30.Kf1 Dxd2) 27...Kg7 28.De8 (28.Hf1 Hh8+ mát) 28...Hxe8 29.Bxe8 o.s.frv. 21...Hg3+! 22.fxg3 -- Eða 22.Bg2 Bxb5 23.fxg3 (23.Kh1 Hd3) 23...Re2+ 24.Kf1 (24.Kh1 Rxg3+ mát) 24...Dg1+ mát). Ef 22.Kh1 (í stað 22.Bg2), þá kemur 22.-- Bc6+ 23.f3 Hg1+! 24.Kxg1 Re2+ 25.Kg2 (25.Kh1 Dg1+ mát) 25...Dg1+ 26.Kh3 Rf4+ mát. 22...Re2+ 23.Kg2 -- 23.Kh1 Dg1+ mát. 23...Bc6+ 24.Rf3 -- 24.Kh3 Rg1+ mát. 24...Dg1+ og hvítur gafst upp. Mát í næsta leik: 25.Kh3 Dxg3+. Þorvarður F. Ólafsson skákmeistari Hafnarfjarðar Eftir gríðarlega skemmtilegt einvígi gegn Sigurbirni Björns- syni (2.302) náði Þorvarður Fann- ar Ólafsson (2.068) að tryggja sér sigur í baráttunni um titilinn skákmeistari Hafnarfjarðar. Þetta voru úrslit sem enginn átti von á fyrir einvígið og jafnvel Þorvarður sjálfur hafði tekið undir það. Eftir fyrstu skákina virtist líka allt stefna í þá átt, en þar sigraði Sig- urbjörn eftir stutta og snarpa við- ureign. Þorvarður svaraði hins vegar í sömu mynt í annarri skák- inni og jafnaði metin. Til að knýja fram úrslit voru þá tefldar tvær atskákir, en það dugði heldur ekki til og þeir stóðu enn jafnir að þeim loknum. Að lokum voru tefldar tvær hraðskákir og þá loks hafði Þorvarður betur og sigraði 1½-½. Þetta er í fyrsta skipti sem Þor- varður er skákmeistari Hafnar- fjarðar, en Sigurbjörn hefur hins vegar margoft unnið þann titil. Skákhátíðin í Saint-Lô Þrír íslenskir skákmenn tefla nú á alþjóðlegri skákhátíð í Saint- Lô í Frakklandi. Ágúst Bragi Björnsson (1.640) sigraði franska skákmanninn Marine Lenoel (1.360) í sjöttu umferð í barna- og unglingaflokki, en Svanberg Már Pálsson (1.485) tapaði fyrir Frakkanum Flore Clementiaux (1.330). Ágúst Bragi hefur hlotið 3½ vinning, en Svanberg er með þrjá vinninga. Páll Sigurðsson (1.790), sem teflir í opnum flokki, tapaði fyrir Gael Lejeune (2.100) og er með 3½ vinning. SKÁK Búdapest FIRST SATURDAY 5.–15. júlí 2003 Stöðumynd 1. Arnar E. Gunnarsson Arnar náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson dadi@vks.is ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I „Au pair“ í Köben Fjölskylda í Kaupmannahöfn óskar eftir „au pair“ til að gæta 3ja barna á aldrinum 5 til 13 ára. Einnig þarf viðkomandi að sinna heimilisstörfum. Sveigjanlegur vinnutími. Umsóknir sendist augldeild Mbl. eða á box@mbl.is merkt „K — 13899“ fyrir 21. júlí.Fasteignasala Sölumaður óskast á framsækna en rótgróna fasteignasölu. Góð starfsaðstaða. Aðeins duglegt, sjálfstætt og ábyrgt fólk kemur til greina. Laun eru árangurstengd. Vinsam- lega sendið umsókn með tölvupósti á box@mbl.is merkt: „Fasteignasala — 13895.“ Fiskbúðin Vör óskar eftir góðum starfsmanni Viðkomandi verður að vera einstaklega þjón- ustulipur, með reynslu í afgreiðslu á fiski, sam- viskusamur og kurteis. Mjög gott væri ef við- komandi kynni að flaka eða væri með reynslu úr fiskbúð eða fiskvinnslu, þó ekki bráðnauð- synlegt. Við leitum eftir starfsmanni frá klukkan 9.00—18.30, og einnig frá klukkan 8.00—15.00. Áhugasamir hafi samband við Kristján í síma 896 0602 eða í fiskbúðinni Vör, Höfðabakka 1, 110 Reykjavík. Ekki yngri en 24 ára nema við- komandi hafi góða reynslu og þekkingu á fiski. Góð laun geta verið í boði fyrir góðan starfs- mann. Tannlæknastofa Aðstoð vantar á tannlækna- stofu nálægt Hlemmi frá kl. 12-16. Viðkomandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur og reykja ekki. Umsóknir berist auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „M — 13894“ fyrir 21. júlí. R A Ð A U G L Ý S I N G A R KENNSLA Innritun Dagana 17. og 18. júli, milli kl. 10 og 13 mun standa yfir innritun nýrra nema á fiðlu, víólu og selló. Einungis börn búsett í Reykjavík, fædd ´97—´99 koma til greina. Innritun fer fram í símum 551 5774 og 551 5777. TILBOÐ / ÚTBOÐ Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði. Breytingin verður til sýnis í afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs, Strandgötu 8-10, þriðju hæð, frá 16. júlí 2003–6. ágúst 2003. Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskipulagi. Þeim, sem telja sig hagsmuna eiga að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til bæjarskipulags í Hafnarfirði, eigi síðar en 20. ágúst 2003. Þeir, sem ekki gera athugasemd við breytinguna, teljast samþykkir henni. Útboð Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi fyrir „Iðnaðarsvæði austan Reykjavíkur- vegar“ vegna Reykjavíkurvegar 74 í Hafnarfirði. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 27. maí 2003 að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi fyrir „Iðnaðarsvæði aust- an Reykjavíkurvegar“ vegna Reykjavíkurvegar 74 í Hafnarfirði í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin felst í megin atriðum í færslu og breyttri lögun byggingarreits. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Háaleitisbraut 58—60 Samkoma í Kristniboðssaln- um í kvöld kl. 20:00. „Hvenær skal fasta“ (Lúk. 5,33— 39). Ræðumaður: Páll Friðriks- son. Heitt á könnunni eftir sam- komuna. Allir hjartanlega vel- komnir. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. mbl.is ATVINNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.