Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 246. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Með heiminn
á herðum sér
Atlas-heilkennið og útkeyrðu
ofurpabbarnir Daglegt líf 2
Orgelkvartettinn Apparat í
góðum málum Fólk 57
Girndin efni-
viður heimsins
Hanif Kureishi, einn kunnasti rithöf-
undur Breta, tekinn tali Listir 28
ÍSLENSK stjórnvöld og forystumenn
stjórnmálaflokkanna eru felmtri slegnir yf-
ir morðinu á Önnu Lindh utanríkisráðherra
Svíþjóðar. Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að sér sé brugðið vegna morðsins,
ekki síst vegna þess að slíkir atburðir eigi
helst ekki að geta gerst á Norðurlöndum.
„Öllum er brugðið, hér á í hlut einn af
fremstu forystumönnum Svíþjóðar sem
hefur rækt sitt starf afar vel eftir því sem
við þekktum til. Þetta er mikið áfall,“ segir
forsætisráðherra.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
segir morðið á Lindh einn hörmulegasta at-
burð sem hann hafi upplifað. „Anna Lindh
var þannig manneskja að hún eignaðist vini
en ekki óvini. Ég get ekki ímyndað mér að
nokkur hafi borið haturshug til hennar.“
Leiðtogar annarra flokka segja mikinn
missi að Lindh. „Þetta er hörmulegur at-
burður og kemur ákaflega illa við mann.
Það er stutt síðan hún var hér í heimsókn
og áttu þá margir Íslendingar samskipti við
hana,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagði atburðinn leiða
hugann að því hvort afleiðingin verði sú að
stjórnmálamenn neyðist til að taka upp
aðra umgengnishætti við kjósendur og
haga sér með öðru móti. Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda flokksins,
segir skelfilegt til þess að hugsa verði þró-
unin sú að stjórnmálamenn á Norð-
urlöndum geti ekki gengið óáreittir um göt-
ur borganna.
Sendu samúðarskeyti
Davíð Oddsson forsætisráðherra sendi
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar
og sænsku ríkisstjórninni, samúðarkveðjur
í gær vegna morðsins á Lindh. Þá sendi for-
seti Íslands Karli Gústafi Svíakonungi og
Göran Persson samúðarskeyti. Í Reykjavík
mátti víða sjá fána dregna í hálfa stöng í
gær, t.d. við öll sendiráð erlendra ríkja, við
Norræna húsið og aðalbyggingu HÍ. Sam-
úðarbók liggur frammi í sænska sendi-
ráðinu við Fjólugötu í dag milli 14 og 17.
„Mikið
áfall“
Íslensk stjórnvöld/10
LEIÐTOGAR sænsku stjórnmála-
flokkanna samþykktu í gær að þjóð-
aratkvæðagreiðslan um evruna yrði
haldin á sunnudag, þrátt fyrir morð-
ið á Önnu Lindh utanríkisráðherra.
Ráðist var á Lindh í verslun í mið-
borg Stokkhólms síðdegis á mið-
vikudag og lést hún af sárum sínum
snemma í gærmorgun. Tilræðis-
maðurinn hefur enn ekki verið
handtekinn og lögregla virðist hafa
takmarkaðar vísbendingar um hver
framdi verknaðinn. Upptökur ör-
yggismyndavéla hafa þegar verið
kannaðar en munu ekki hafa komið
lögreglunni að neinu gagni. Eftirlit
með flugvöllum og ferjum var eflt
mjög í gær.
Þjóðarsorg ríkir í Svíþjóð vegna
morðsins en Lindh var meðal virt-
ustu og vinsælustu stjórnmála-
manna þjóðarinnar. Vottuðu stjórn-
málaleiðtogar um allan heim Lindh
virðingu sína í gær.
Minningarbækur liggja frammi
víðs vegar um Stokkhólm og víða
kom almenningur fyrir blómum til
minningar um Lindh. Fyrir utan að-
alinngang verslunarinnar NK, þar
sem tilræðið átti sér stað, var stöð-
ugur straumur fólks og fljótlega
hafði fjall af rauðum rósum hlaðist
upp.
Segjast munu virða
niðurstöður kosninganna
Síðdegis voru haldnar minningar-
athafnir um Lindh í þinginu og í
Storkyrkan í Stokkhólmi. Peter Er-
iksson, formaður Umhverfisflokks-
ins, sagði að loknum fundi flokks-
leiðtoganna að hann vildi hvetja fólk
til að kjósa. „Það er okkar leið til að
sýna lýðræði í verki. Við munum
virða atkvæðagreiðsluna og niður-
stöður hennar,“ sagði hann við
fréttamenn að loknum fundi leiðtog-
anna í stjórnarráðsbyggingunni
Rosenbad.
Bo Lundgren, formaður Hægri-
flokksins, sagði að ef ákveðið hefði
verið að fresta atkvæðagreiðslunni
hefði falist í því uppgjöf. Hann sagð-
ist ekki hafa velt því fyrir sér hvort
voðaverkið myndi hafa áhrif á nið-
urstöðurnar. „Annað er mér efst í
huga. Hún var einstök kona og
tveggja barna móðir. Þetta er harm-
leikur fyrir börnin,“ sagði Lund-
gren.
Lars Leijonborg, formaður Þjóð-
arflokksins, tók í sama streng. „Við
megum ekki láta undan ofbeldinu.
Hins vegar getum við ekki haldið
áfram eins og ekkert hafi í skorist …
Og hver hefði valkosturinn verið?
Að láta þau skilaboð berast út að
hægt sé að stöðva lýðræðisferlið
með því að fremja voðaverk?“
Talið er óhjákvæmilegt að morðið
á Önnu Lindh muni hafa einhver
áhrif á niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Helst er talið að fylgi
við evruna muni aukast í kjölfarið en
skoðanakannanir til þessa hafa yf-
irleitt gefið til kynna að mikill meiri-
hluti Svía sé andvígur upptöku
hennar. Alf Svensson, formaður
flokks kristilegra demókrata, sagði
að búast mætti við því að niðurstöð-
ur atkvæðagreiðslunnar yrðu
dregnar í efa þegar fram í sækti.
„Margir munu segja að niðurstaðan
hafi verið ómerk vegna þessa at-
burðar. Niðurstaðan mun hins veg-
ar gilda. Það verður ekki hægt að
hnika henni, ég mun sjálfur aldrei
gera neinar athugasemdir við nið-
urstöðuna. Það má ekki gerast að
morðingi fái að stjórna störfum lýð-
ræðisríkis,“ sagði Svensson en
flokkur hans berst fyrir upptöku
evrunnar.
Fréttaskýrandi sænska ríkissjón-
varpsins lýsti hins vegar yfir
áhyggjum af því að ef upptaka evr-
unnar yrði samþykkt með naumum
meirihluta myndi það leiða til stöð-
ugra deilna um túlkun í framtíðinni.
„Það væri martraðarkennd staða.
Hins vegar held ég að stjórnmála-
mennirnir hafi ekki átt annarra
kosta völ,“ sagði hann.
„Við megum ekki láta
undan ofbeldinu“
Evrukosningar
verða haldnar
þrátt fyrir
morðið á Lindh
Þjóðarsorg
ríkir í Svíþjóð
vegna dauða
ráðherrans
Reuters
Almenningur í Stokkhólmi vottar minningu Önnu Lindh virðingu sína
við verslunina þar sem morðingi hennar lagði til atlögu í fyrradag. Á
minni myndinni sést sænski fáninn í hálfa stöng ásamt fánum hinna
Norðurlandanna við Norræna húsið í Reykjavík í gær.
Morgunblaðið/Kristinn
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
GÖRAN Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, flutti í gærkvöld
sjónvarpsávarp frá skrifstofu
sinni þar sem hann minntist Önnu
Lindh. Hann rifjaði m.a. upp
minningarorð er hún flutti við út-
för Olof Palme forsætisráðherra
er var myrtur árið 1986 en þá
sagði Lindh að Svíar myndu halda
baráttu hans áfram. Persson sagði
jafnaðarmenn hafa misst mikinn
leiðtoga og Svíar helsta andlit sitt
gagnvart umheiminum
Sænska stjórnin hittist í gær-
morgun þar sem haldin var minn-
ingarathöfn um Lindh. Síðar um
morguninn komu leiðtogar stjórn-
málaflokkanna sjö saman til fund-
ar þar sem samþykkt var sameig-
inleg yfirlýsing um að ekki yrði
horfið frá áformum um að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna
á sunnudag. Persson las upp sam-
eiginlega yfirlýsingu flokkanna.
Hins vegar lýstu þeir því jafn-
framt yfir að flokkarnir myndu af-
lýsa allri kosningabaráttu. Kosn-
ingamiðstöðvar verða áfram
opnar með það að markmiði að
veita þeim upplýsingar sem sækj-
ast eftir þeim. Engir frekari fund-
ir eða kappræður munu hins veg-
ar fara fram. Ákveðið var í gær að
taka niður mörg þúsund vegg-
spjöld víðs vegar um landið með
myndum af Lindh.
Engin kosningabarátta
STJÓRNVÖLD í Ísrael ákváðu í gær að
reka Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, úr landi en frestuðu aðgerðinni um
hríð. Bandaríkjastjórn ítrekaði í gær áður
yfirlýsta andstöðu sína við hugmyndina.
Þúsundir stuðningsmanna Arafats söfn-
uðust þegar saman við stöðvar hans í Ram-
allah á Vesturbakkanum. Fögnuðu þeir
ákaft er hann hætti sér í út í dyrnar en leið-
toginn hefur um langt skeið verið í eins kon-
ar stofufangelsi.
„Við munum styðja þig með blóði okkar
og sál, Abu Ammar,“ hrópaði fólkið og not-
aði þá stríðsheiti Arafats. Lífverðir hans
báru hann í stól í mannfjöldanum, Arafat
sendi frá sér fingurkossa og gaf sigurmerk-
ið með fingrunum. Hrósaði hann viðstödd-
um fyrir hugrekki. „Ég vil segja við stjórn
Ísraels: hér sjáið þið hvernig þjóð okkar
bregst við ákvörðun ykkar,“ sagði hann.
Hyggjast
reka Arafat
úr landi
Jerúsalem, Ramallah, Washington. AFP.
Spila í Pomp-
idou-safninu
Anna Lindh/14, 32,33
♦ ♦ ♦