Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 47
STÓRMEISTARARNIR Helgi
Ólafsson (2.498) og Hannes Hlífar
Stefánsson (2.560) hafa staðið sig
mjög vel á Norðurlandamótinu í skák
sem nú stendur yfir í Árósum í Dan-
mörku. Eftir fimm umferðir eru Ís-
lendingarnir sterku, eins og Berl-
ingske Tidende kallar þá, einu
keppendurnir á mótinu sem ekki
hafa tapað skák.
Mótið er nú tæplega hálfnað og
það virðist ætla að rætast sem Lars
Schandorff sagði áður en það hófst
að baráttan um sigurinn verði mjög
jöfn og spennandi.
Staðan á mótinu er þessi:
1.–4. Hannes Hlífar Stefánsson,
Helgi Ólafsson, Jonny Hector,
Curt Hansen 3½ v.
5.–6. Evgenij Agrest,
Davor Palo 3 v.
7. Heikki Lehtinen 2½ v.
8.–10. Heikki Kallio, Einar Gausel,
Lars Schandorff 2 v.
11. Kjetil A. Lie 1 v.
12. Flóvin Þór Næs ½ v.
Öllum skákum fimmtu umferðar
lauk með jafntefli:
Kjetil A. Lie – Helgi Ólafsson ½–½
Jonny Hector – Hannes Hlífar ½–½
Lars Schandorff – Flóvin Næs ½–½
Evgenij Agrest – Curt Hansen ½–½
Heikki Kallio – Einar Gausel ½–½
Davor Palo – Heikki Lehtinen ½–½
Í fjórðu umferð sigraði Hannes
norska alþjóðlega meistarann Kjetil
A. Lie (2.440), en Helgi gerði jafntefli
við danska stórmeistarann Lars
Schandorff (2.525).
Teflt er daglega á mótinu, en í gær
var frídagur. Í sjöttu umferð, sem
tefld verður í dag, mætir Hannes
sænska stórmeistaranum Evgenij
Agrest (2.605) og Helgi teflir einnig
við sænskan stórmeistara, Jonny
Hector (2.538). Þetta er því afar mik-
ilvæg umferð fyrir Íslendingana.
Helgi vann góðan sigur í þriðju
umferð gegn færeyska keppandan-
um á mótinu.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Flovin Tór Næs
Drottningarbragð
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4
Be7 5. Bf4 0–0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5
8. a3 dxc4 9. Bxc4 a6 10. Dc2 b5 11.
Ba2 Rbd7
(Nýr leikur í stöðunni. Þekkt er
(breytt leikjaröð) 11. – Bb7 12. Hd1
Db6 13. 0–0 Rc6 14. Bb1 g6 15. Bg5
Be7 16. Re4 Rxe4 17. Dxe4 Had8 18.
Dh4 Hxd1 19. Hxd1 Hd8 20. Hf1 Dc7
21. Be4 Hd7 22. Bxe7 Rxe7 23. Rg5
h5 24. g4 De5 25. gxh5 f6 26. Bxb7
fxg5 27. De4 Dxe4 28. Bxe4 gxh5 29.
Hc1 Kg7 30. Hc5 Kf6, með 11 leikjum
síðar (Soos-Radulov, Sofia 1967).
Í framhaldi skákarinnar geymir
Helgi að hróka, en notar tímann í
staðinn til að ná góðri stöðu fyrir
menn sína. Dæmi um skák, þar sem
hvítur hrókar strax, er 11 … Db6
12. 0–0 Rbd7 13. Had1 Bb7 14. Bb1
g6 15. e4 Hfc8 16. De2 Rh5 17. Bh6
Rdf6 18. Rg5 Bd4 19. Df3 Hc7 20.
Hd2 Re8 21. Hxd4 Dxd4 22. Rxe6
Hxc3 23. Rxd4 Hxf3 24. Rxf3 Rd6 25.
Rd2 Hc8 26. Hd1 Rg7 27. f3 Re6 28.
Be3 og hvítur á gott peð yfir, þótt
hann tapaði skákinni (Caoili-Medic,
kvennaflokkur á ólympíuskákmótinu
í Bled 2002).
12. Hd1 Db6 13. Rg5 g6 14. Rce4
Be7 15. Bd6! Bxd6 16. Rxd6 b4?
(Betra er 16 … Bb7 17. e4 (17.
Rgxf7 Bd5!) o.s.frv.)
17. Rgxf7! b3?
(Meira viðnám veitti 17 … Rc5 (17.
– Hxf7 18. Bxe6)18. Hd4 b3 19. Bxb3
Rxb3 20. Hb4 Dc5 21. Dxb3 Dc1+ 22.
Dd1 Dxd1+ 23. Kxd1 Kxf7, þótt hvít-
ur standi betur í því tilviki.)
18. Bxb3 Rc5 19. Ba2 Hxf7 20. b4
Hc7 21. bxc5 Hxc5 22. Dd2 Dc6 23.
0–0 Bd7 24. Dd4 Hf8 25. e4 Kg7 26.
f4 –
26 … Hc3?
(Svarta staðan er töpuð, því að
hann á peði minna, veika kóngsstöðu
og svo á hann ekkert skynsamlegt
svar við hótuninni 27. e4–e5.
Eftir 26. – Hc2 27. Bb3 Hc3 28. e5
Rh5 29. Ba4 Dxa4 30. Dxc3 Rxf4 31.
Db4 Dxb4 32. axb4 á hvítur skipta-
mun yfir og unnið tafl, þótt úrvinnsl-
an taki tíma.)
27. Rc4! Hxc4 28. Bxc4 Hc8?
(Með 28 … Bc8 hefði svartur getað
barist lengur, vonlítilli baráttu, og
vonast eftir kraftaverki.)
29. e5 Rd5 30. Bxd5 exd5
(Eða 30 … Dxd5 31. Da7 Ha8 (31. .
. Dc5+ 32. Dxc5 Hxc5 33. Hxd7+)
32. Dxd7+ og hvítur vinnur.)
31. e6+
(og svartur gafst upp. Liðsmunur
er orðinn of mikill, hvíti
í hag, eftir 31 … Kg8
32. exd7 Dxd7 33.
Dxd5+ Dxd5 34. Hxd5
o.s.frv.).
Fjöltefli á
Breiðholtsdaginn
Breiðholtsdagurinnn
var haldinn í Mjóddinni
5. september sl. Félög í
Breiðholti kynntu þar
starfsemi sína og
margt var til gamans
gert, dansað og spilað,
farið í leiki og teflt.
Stórmeistararnir Helgi
Áss Grétarsson og
Lenka Ptacnicova
tefldu fjöltefli við 30 andstæðinga.
Leikar fóru þannig að Helgi Áss
lagði alla andstæðinga sína, en
Lenka tapaði fyrir Róbert Róberts-
syni og gerði jafntefli við Þorra, fjög-
urra ára son Róberts, sem fór sæll og
glaður heim á eftir, en aðrir andstæð-
ingar kvennastórmeistarans máttu
játa sig sigraða.
Hrókurinn og Haukar í úrslit
Skákdeild Hauka sigraði Taflfélag
Vestmannaeyja í undanúrslitum
hraðskákkeppni taflfélaga sem fram
fór á Ásvöllum sl. miðvikudagskvöld.
Haukar unnu 43½–28½ eftir að hafa
leitt 22–14 í hálfleik. Ásgeir P. Ás-
björnsson stóð sig best heimamanna
en Einar K. Einarsson best gest-
anna. Þetta er í fyrsta sinn sem
Haukar taka þátt í keppninni og því
glæsilegur árangur hjá þeim að kom-
ast í úrslit.
Hin viðureignin í undanúrslitunum
vakti ekki síður athygli, en þar áttust
við Hrókurinn og TR. Hrókurinn
sigraði 39½–32½ eftir að hafa leitt
21½–15½ í hálfleik. Bestir Hróks-
manna voru þeir Ivan Sokolov
(2.693), sem nú er í 20. sæti heimslist-
ans, en hann hlaut 9½ vinning, og
Luke McShane (2.619), sem er í 74.
sæti heimslistans, en hann hlaut 8½
vinning. Það er athyglisverð ný-
breytni hjá Hróknum að ferja er-
lenda stórmeistara í heimsklassa til
landsins til að tefla hraðskák eina
kvöldstund við landann. Það skilaði
þó tilætluðum árangri og sigurinn
var Hróksins. Árangur TR-inga var
mjög jafn en stórmeistarinn Þröstur
Þórhallsson (2.444) hlaut þó flesta
vinninga þeirra, eða 6½.
Sigurvegarar fyrri ára í keppninni,
Hellir (fimm sigrar), TR (tveir sigr-
ar) og Skákfélag Hafnarfjarðar (einn
sigur) verða nú fjarri góðu gamni og
ljóst að nýtt félag mun bætast í þenn-
an hóp. Úrslit þurfa að fara fram eigi
síðar en 20. september. Umsjón
hraðskákkeppni taflfélaga er í hönd-
um Taflfélagsins Hellis.
Barna- og unglingaæfingar
Hellis hafnar
Taflfélagið Hellir býður upp á
ókeypis skákæfingar fyrir börn og
unglinga 15 ára og yngri alla mánu-
daga kl. 17:15 í Hellisheimilinu, Álfa-
bakka 14a í Mjódd. Hjörvar Steinn
Grétarsson hefur sigrað á fyrstu
tveimur æfingunum. Æfingin sl.
mánudag var afar sterk, en úrslit
urðu þessi:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 5 v.
2. Ingvar Ásbjörnsson 4 v.
3. Hallgerður H. Þorsteinsdóttir 4 v.
o.s.frv. Þátttakendur voru 18.
Norðurlandamet
í kvennafjöltefli?
Landsliðskonur/skákkonur Tafl-
félagsins Hellis ætla að gera atlögu
að Norðurlandametinu í kvennafjöl-
tefli. Stefnt er að því að ná um 100
konum að taflborðinu. Búist er við
ráðherrum, þingkonum, leikkonum,
söngkonum, rithöfundum, listakon-
um, íþróttakonum og fleirum til leiks.
Hægt er að skrá sig á forsíðu www.
hellir.is, en skráning er hafin.
Kvennafjölteflið verður haldið í Ráð-
húsi Reykjavíkur sunnudaginn 21.
september kl. 14. Allar velkomnar!
Fjölteflið er liður í fjáröflun
kvennadeildar Hellis fyrir Evrópu-
mótið á Krít 26. sept.–5. okt. Fyr-
irtæki geta „keypt“ sér eina eða fleiri
viðureignir og þannig fengið nafnið
sitt á þau borð sem keypt eru.
Kvennalið Hellis á EM skipa:
1. borð Lenka Ptacnikova
2. borð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
3. borð Áslaug Kristinsdóttir
4. borð Anna Björg Þorgrímsdóttir
Helgi og Hannes í
1.–4. sæti á NM í skák
SKÁK
Árósar, Danmörk
SKÁKÞING NORÐURLANDA 2003
6.–17.9. 2003
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
Helgi
Ólafsson
dadi@vks.is
Samkoma að Ystafelli í Ljósa-
vatnshreppi verður á morgun, laug-
ardaginn 13. september kl. 13.30.
Þann dag fyrir hálfri öld var vígt
minnismerki, sex metra há marm-
arasúla, um stofnfund Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga. Í tilefni
dagsins verður afhjúpað upplýs-
ingaskilti á Ystafelli. Þá verður far-
inn söguhringur „Vagga sam-
vinnuhreyfingarinnar á Íslandi“, þar
sem elstu kaupfélagshúsin verða
m.a. skoðuð á Húsavík og gamli bær-
inn á Þverá í Laxárdal, þar sem
fyrsta kaupfélagið, Kaupfélag Þing-
eyinga, var stofnað 1882. Allir vel-
komnir.
Haustmarkaður Kristniboðs-
sambandsins Hinn árlegi grænmet-
is- og haustmarkaður Kristniboðs-
sambandsins verður á morgun,
laugardaginn 13. september kl. 14, í
húsi KFUM og K, Holtavegi 28 í
Reykjavík. Konur í Kristniboðsfélagi
kvenna standa fyrir markaðinum.
Selt verður ýmiss konar grænmeti,
ávextir og ber, o.fl. eftir því hvað
kristniboðsvinir og aðrir velunnarar
vilja leggja fram af uppskeru sum-
arsins. Allt er vel þegið, kál, kart-
öflur, gulrætur, sultur, pakkamatur,
kökur og hvað sem er matarkyns,
einnig blóm.
Tekið er á móti framlögum í dag,
föstudaginn 12. september kl. 17–19.
Ágóðinn af markaðinum rennur til
kristniboðsstarfsins í Eþíópíu og
Kenýa.
Heilsu- og hvatningardagar í Vetr-
argarði Smáralindar á morgun,
laugardaginn 13. og sunnudaginn 14.
september. Ísland á iði stendur fyrir
heilsu- og hvatningardögum.
Sambandsaðilar ÍSÍ kynna það starf
sem er í gangi innan íþróttahreyfing-
arinnar og bjóða gestum og gangandi
að spreyta sig. Ný Lýðheilsustöð
mun vera með bás þar sem Manneld-
isráð, Áfengis- og vímuvarnaráð og
Tóbaksvarnaráð kynna sitt starf og
veita ráð. Á vegum Landlæknisemb-
ættisins munu Geðrækt og ,,Þjóð
gegn þunglyndi“ kynna sín viðfangs-
efni og aðrir samstarfsaðilar Ísland á
iði þ.e. Beinvernd og Félag íslenskra
sjúkraþjálfara munu bjóða upp á
mælingar og ráðgjöf. Einnig verður
kynningarefni frá Hjartavernd.
Haustgöngur skógræktarfélag-
anna í Mosfellsbæ og á Blönduósi
verða á morgun, laugardaginn 13.
september kl. 10.
Í Mosfellsbæ verður safnast saman
við Hlégarð í Mosfellsbæ og gengið
upp með Varmánni. M.a. verður
gengið í gegnum Álafosskvosina.
Hressing verður boðin við Grund-
arbæ. Göngustjóri: Oddgeir Þór
Árnason, garðyrkjustjóri í Mos-
fellsbæ.
Frá Blönduósi verður lagt af stað frá
veitingahúsinu „Við Árbakkann“
(bláa húsið) og gengið um eldri hverfi
bæjarins. Hressing verður boðin í
göngulok. Göngustjóri: Páll Ingþór
Kristinsson.
Opið hús hjá Félagi eldri borgara í
Reykjavík á morgun, laugardaginn
13. september kl. 14–16, í Ásgarði í
Glæsibæ. Vetrardagskráin með
söng, leiklist, dansi, ýmiss konar
hreyfingu, spilamennsku, hand-
mennt o.fl. verður kynnt. Í vetur
verður einnig bryddað upp á ýmsum
nýjungum í dagskránni. Ólafur
Ólafsson, formaður félagsins, mun
segja frá þróun hagsmunamála sem
félagið hefur lagt áherslu á, á und-
anförnum misserum.
Árangursrík barátta gegn brott-
vísun Opinn fundur verður í Al-
þjóðahúsinu Hverfisgötu 18, 3. hæð,
á morgun, laugardaginn 13. sept-
ember kl. 15. Róger Calero, aðstoð-
arritstjóri tímaritsins Perspectiva
Mundial og blaðamaður á viku-
blaðinu The Militant í Bandaríkj-
unum, talar um baráttu gegn brott-
vísun út landi og svarar spurningum.
Túlkun er til staðar. Calero stóð ný-
verið frammi fyrir því að vísa átti
honum frá Bandaríkjunum, þar sem
hann býr og starfar, en hann er
fæddur í Nicaragua.
Calero er á ferð um heiminn til að
ræða um hvaða lærdóm megi draga
af árangursríkri baráttu hans og til
að sýna öðrum, sem heyja svipaða
baráttu, samstöðu.
Starfsemi Heimspekiskólans í
Reykjavík hefst á morgun, laug-
ardaginn 13. september. Skólinn
býður námskeið fyrir börn á aldr-
inum 5–15 ára. Á heimspeki-
námskeiðum fá þau þjálfun í gagn-
rýninni og skapandi hugsun. Börnin
gerast þátttakendur í heimspekilegri
samræðu, sem þýðir að þau setja
fram stórar spurningar um lífið og
allt milli himins og jarðar, og leita
svara í sameiningu.
Allar nánari upplýsingar um heim-
speki með börnum og unglingum, og
starfsemi skólans má nálgast hjá
skólastjóra Heimspekiskólans, Bryn-
hildi Sigurðardóttur. Starfsemi
Heimspekiskólans í Reykjavík hefst
næstkomandi laugardag.
Ung vinstri græn og Reykjavík-
urfélag VG boða til laugardags-
fundar um hnattvæðingu og fund
WTO í Cancún. Fundurinn verður
haldinn í Hafnarstræti 20, 3. hæð, á
morgun, laugardaginn 13. september
kl. 11. Framsögumenn eru Páll
Hannesson og Einar Ólafsson. Heitt
verður á könnunni og allir velkomnir.
Lokamótið í Enduro mót-
orhjólakeppninni 2003 við Kolvið-
arhól verður á morgun, laugardaginn
13. september fyrir neðan skíða-
svæðið við Hengilinn. Keppt verður á
um 10 km langri braut sem verður á
og við gömlu túnin í landi Kolvið-
arhóls, á vegum Vélhjólaíþrótta-
klúbbsins. Um 90 keppendur eru
skráðir til keppni, þar af 50 í Bald-
ursdeild en í henni er keppt á meðan
Meistaradeild tekur hlé í 60 mín.
Ræsing í Baldursdeild ætti að vera á
bilinu 12.40–13. Í Meistaradeild er
keppt í tvisvar sinnum 90 mín. með
60 mín. hléi og verða eknar 5. og 6.
umferð á laugardaginn og er ræs í
meistaradeild ráðgert kl. 10 og seinni
umferðin um kl 14.30. Einnig er
keppt í liðum og eru liðin í Íslands-
meistarakeppninni 10. Liðin eru
þannig skipuð að allt að 4 geta verið
saman í liði, en efstu 3 úr liðinu í
hverri keppni telja stig fyrir liðið sitt.
Aðkoma að keppnissvæðinu er eins
og þegar farið sé á skíði á Heng-
ilssvæðinu, beygt er fyrir neðan
brekkuna sem er fyrir neðan Skíða-
skálann Hveradölum. Aðgangur er
ókeypis og er í boði Orkuveitu
Reykjavíkur og Vélhjólaíþrótta-
klúbbsins, en Orkuveita Reykjavíkur
er eigandi landsins sem keppnin fer
fram á.
Á MORGUN
Námskeið til að styrkja for-
ystuhæfileika verður haldið hjá
Háskólanum í Reykjavík dagana 15.,
17., 22. og 24. september kl. 16–18.
Leiðbeinandi er Ásdís Halla Braga-
dóttir, MPA, bæjarstjóri í Garðabæ.
Á námskeiði Stjórnendaskóla HR,
Að ná árangri í krefjandi umhverfi,
er lögð áhersla á að styrkja for-
ystuhæfileika þátttakenda m.a. með
því að gera skýran greinarmun á
hlutverki stjórnenda og leiðtoga.
Námskeið í notkun Excel í fjár-
málum verður í Háskólanum í
Reykjavík dagana dagana 15., 17. og
18. september kl. 15–19. Leiðbein-
andi er Kristján M. Bragason við-
skiptafræðingur. Farið verður yfir
lykilþætti sem hægt er að nýta sér
við vinnslu tölulegra gagna. Skoðuð
eru fjármálaföll og texta- og leit-
arföll og fl. Einnig er fjallað um
möguleika Pivot-taflna.
Nánari upplýsingar og skráning á
námskeiðið hjá Háskóla Reykjavík-
ur er á heimasíðu Stjórnendaskól-
ans: www.stjornendaskoli.is.
Á NÆSTUNNI
Frítt helgarnámskeið í jóga og
sjálfsvitund verður haldið í Tón-
skóla Sigursveins, Hraunbergi (við
hliðina á Gerðubergi). Námskeiðið
er í boði Kaffihússins Garðsins og
Heilsubúðarinnar. Í dag, föstudag-
inn 12. september, kl. 20–22 verður
fjallað um leynda hæfileika manns-
ins og leiðir til að efla sjálfstraust og
sjálfsaga o.fl. Á morgun, laugardag-
inn 13. september, kl. 10–12 og kl.
13–17 verður fjallað um einbeitingu
og hugleiðslu, sköpun og innsæi og
haldnir tónleikar ef tíminn leyfir.
Sunnudaginn 14. september kl. 13–
17 verður fjallað um líkamlega og
andlega heilsu o.fl. Leiðbeinandi er
Snatak Matthíasson.
Að helgarnámskeiðinu loknu er boð-
ið upp á ókeypis 2 vikna framhalds-
námskeið.
Í DAG