Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 29 Bláu húsunum Faxafeni • Sími 553 6622 • www.hjortur.is Opið föstudag 11-18 laugardag 11-18 • sunnudag 11-18 30% AF ÖLLUM VÖRUM VIÐ FLYTJUM... BJÖRN Thoroddsen hefur um langt árabil verið í samstarfi við marga þekkta djassleikara erlenda og gefið út tvær geislaplötur í framhaldi af því: Jazz Guitar, þar sem boppið var ráðandi og menn á borð við Doug Raney og Philip Catherine léku með honum, og Jazz í Reykjavík, sem var nærri hinni klassísku sveiflu og var danski fiðlarinn Kristian Jørgensen þar gestur Björns og Jón Rafnsson sló bassann. Nú er það danski klarin- ettuleikarinn Jørgen Svare sem slæst í hópinn og sveiflan enn klassískari en fyrr – þó er diskinum markaður sá bás að aldrei er leikið á hröðustu nót- unum. Klarinettan var eitt helsta hljóð- færi djassins fram að boppinu með menn á borð við Johnny Dodds, Pee Wee Russell og Benny Goodman í fararbroddi. Að vísu voru einstaka klarinettusnillingar eins og Buddy DeFranco í hópi bopparanna en hljóð- færið hafði lifað sitt fegursta í djassi. Þegar New Orleans-djassinn sló að nýju í gegn eftir seinni heimsstyrjöld- ina spruttu upp margir góðir klarin- ettuleikarar í djassheiminum, einkum þó í Evrópu. Einna fremstur þessara manna var Daninn Jørgen Svare, sem var einn af stofnendum Papa Bue vik- ing jazz-bandsins, er básúnuleikarinn Arne Bue Jensen stjórnaði. Hann lék með þeirri sveit til ársins 1985, en hef- ur síðan leikið með eigin hljómsveit- um. Jørgen kom fyrst til Íslands 1996 til að leika á minningartónleikunum um Jonna í Hamborg í Íslensku óp- erunni, en síðan hefur hann komið nokkrum sinnum og þá verið í slag- togi með Birni Thoroddsen. Það er því ekki óeðlilegt að þeir fullkomni verkið og gefi út geislaplötu; fyrstu ís- lensku djassplötuna er kemur sam- tímis út erlendis og á Íslandi síðan á gullaldardögum Mezzoforte. Á plötunni má finna sex söngdansa, sem flestir hafa fylgt djassleikurum bróðurpart síðustu aldar, tvo klassík- era úr söngbók Ellingtons og fjóra ópusa úr smiðju Björns og Jørgens. Falling Down, upphafslag disksins, og A Jazz Air, loka- og titillagið, eru samin af þeim Jørgen og Birni í sam- einingu og er hið fyrrnefnda klassísk- ur svíngari en það síðara á evrópskari nótum. Tangó Björns, sem mér hefur alltaf þótt skemmtilegur, er vel spil- aður af þeim félögum. Björn sér um laglínuna og læðist Jørgen inn á stundum og blæs fínan sóló í þessum mjúka kreólastíl sem hann hefur til- einkað sér á síðari árum með web- sterískum blæ. Það er líka við hæfi að blúsinn hans á plötunni, Blues For Omer, beri nafn eins helsta kreólakl- arinettusnillings djasssögunnar; Omer Simone, sem bæði lék með Jelly Roll og King Oliver. Söngdansarnir eru flestir án mikilla djasstilþrifa, fal- lega blásnir, en bæði í Over The Rain- bow og Lady Be Good, sem er leikið löturhægt, er Björn ferskari í sólóun- um. The Nearness Of You og Næt- urgalinn á Berkeleytorginu eru tíð- indalítil, en útsetningin á Tea For Two er skemmtileg og Jørgen fléttar After You’ve Gonne með elegans inn í Moonglow, þar sem blásturinn er skyldari Jimmy Noone en Benny Goodman. Tveir Ellingtonópusar eru á disk- inum: Caravan eftir básúnuleikara meistarans Juan Tizol, þar sem hin undurfríða Georgia Brown skýtur upp kollinum, og Mood Indigo, sem Ellington samdi upp úr hugmynd Barneys Bigards. Það er eina lagið sem þeir Jørgen og Björn hafa ekki útsett. Þar var að verki góðvinur okk- ar Íslendinga Ole Koch Hansen og Bigard-sólóinn er á sínum stað. Hér er upptökutæknin notuð og leikur Jørgen raddað á klarinettuna og Björn slær að sjálfsögðu rýþmann þótt hann sóli eins og víðast á plöt- unni. Jón Rafnsson er þéttur á bass- ann, skilar sínu hlutverki í hrynsveit- inni með prýði og hefði að ósekju mátt fá eins og einn stuttan sóló melódísk- an. Þetta er diskur sem er líklegur til vinsælda þótt hvergi sé slegið af list- rænum kröfum. Birni og Jóni hefur tekist afbragðsvel að laga sig að hin- um danska svíngklarinettumeistara og það verður gaman að heyra þá spila á fæðingarstað íslensks djass – gyllta salnum á Hótel Borg – í kvöld. Þar hljóta aðdáendur hins klassíska djass að fjölmenna. Mjúkur sveifludjass DJASS Geisladiskur Jørgen Svare klarinett, Björn Thoroddsen gítar og Jón Rafnsson bassa. Hljóðritað í BT music, Garðabæ, í maí 2003. JAZZ AIRS - SVARE/THORODDSEN-TRÍÓIÐ Vernharður Linnet TRÍÓ Reykjavíkur hóf starfs- ár sitt með tónleikum í Hafn- arborg á sunnudagskvöld. Á vel samsettri efnisskránni voru þrjú verk; Tríó í e-moll Hob.XV:12, eftir Jósef Haydn, Out of a Got- hic North eftir John Speight og Tríó nr. 3 í C-dúr ópus 27 eftir Jóhannes Brahms. Gunnar Kvaran kynnti verkin hvert fyrir sig á tónleikunum og sagði verk Haydns óvenju dramatískt miðað við önnur verk tónskáldsins, einkum fyrsta þátt- inn, og velti því fyrir sér hvort gerjun í stjórnmálum á þeim tíma er verkið var samið, 1788– 89, hefði ráðið einhverju um það. Svo má vel vera, og rétt að fyrsti þáttur verksins er kraftmikill og dramatískur. Tríó Reykjavíkur lék verkið í heild sinni afar fal- lega. Þó hefði mátt skerpa meira á músíkalskri dramatíkinni í fyrsta þættinum. Í öðrum þætt- inum, angurværum og ljóðræn- um, vantaði meiri söng í píanóið, sem er í stærsta hlutverki í kafl- anum. Þriðji þátturinn var veru- lega vel leikinn, létt og lipurt, og sérstaklega áhrifamikið var hvernig Tríóið lék stef þáttarins í síðasta sinn sem það heyrðist, – dvínandi og undurveikt. Out of a Gothic North eftir John Speight er verk sem sann- arlega má heyrast oftar. Fyrir það fyrsta er það kjarnmikil og góð tónsmíð, og að auki bráð- skemmtileg og grípandi. Ýmis kennileiti bera mark höfundar- ins, eins og mystískir og þéttir hljómaklasar og ómþýðar tvíund- ir sem melódísk stefin vaxa upp úr. Í þessu felast andstæðurnar í verkinu og átakapunktarnir, en líka í angurværum og dulúðug- um einleiksköflum. Íhugult selló- sóló í miðju verksins var mjög fallegt og vel leikið, og sama er að segja um hraðara og „heit- ara“ fiðlusóló. Niðurlag verksins er eitt það fallegasta og áhrifa- mesta sem gagnrýnandi hefur heyrt, og á sinn þátt í hve vel verkið lætur í eyra. Tónskáldinu og Tríói Reykjavíkur var inni- lega fagnað í lok flutningsins. Tríó Brahms í C-dúr er mikið meistaraverk sem krefst mikils af þeim sem það leika. Allt litróf tilfinninganna er þanið; átökin verða mikil, en líka blíðan og mýktin. Í fyrsta þættinum eru átökin spennuþrungin allt til enda og þar dró Tríó Reykjavíkur hvergi af í mögnuðum leik. Annar þátt- urinn er tregaljóð, óhemju fal- legt og fíngert í flutningi Tríós- ins. Scherzo-þátturinn er kraftmikill þar sem fjörug hryn- mynstur brjóta sér leið upp á yf- irborð tónvefjarins úr undirdjúp- unum. Djarfur og bjartur lokaþátturinn er líka átakamikill og talsvert gengur á, áður en yf- ir lýkur. Leikur Tríós Reykjavíkur í verki Brahms var ákaflega góð- ur. Þar hefur sitt að segja hversu vel samhæfð þau Guðný, Gunnar og Pétur eru orðin eftir áralangan samleik, en ekki síður það músíkalska innsæi og tilfinn- ing sem hvert og eitt þeirra hef- ur til að bera. Með þessa tón- leika að viðmiði lofar veturinn hjá Tríói Reykjavíkur góðu. Skemmtilegur Speight og djarfur Brahms TÓNLIST Kammertónleikar Tríó Reykjavíkur lék Tríó í e-moll Hob.XV:12, eftir Jósef Haydn, Out of a Gothic North eftir John Speight og Tríó nr. 3 í C-dúr ópus 27 eftir Jóhann- es Brahms. Tríóið skipa Pétur Máté, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran. Sunnudagskvöld kl. 20.00. Hafnarborg Bergþóra Jónsdóttir Gallerí Dvergur, Grundarstíg 21 Sýningu Péturs Más Gunnarsson- ar lýkur á sunnudag. Galleríið er opið frá fimmtudegi til sunnudags kl. 17–19. Gallerí Fold, Rauðarárstíg Sýningu Helgu Kristmundsdóttur á olíumálverkum í Baksalnum og ljósmyndum Sigríðar Bachmann í Ljósfold lýkur á sunnudag. Gallerí Fold er opið daglega kl. 10–18, laugardaga til 17 og sunnu- daga kl. 14–17. Sýningum lýkur FERÐAÞJÓNUSTAN Ferð og saga tekur upp þráðinn frá því í fyrrahaust og býður upp á dagsferð á slóðir Einars Ben á sunnu- dag. Leikararnir Guð- rún Ásmundsdóttir, Eyvindur Erlendsson og Margrét Ákadóttir eru sögumenn og ljóða- flytjendur í ferðinni. Tónlist flytja Guðríður Júlíusdóttir og Haukur Guðlaugsson. Rúta mun bíða farþega fyrir utan Höfða í Borgar- túni kl. 11. Ekið verður að Laugarnesi í Safn Sigurjóns Ólafssonar. Þaðan er för heitið til Krýsuvíkur og komið við í Krýsuvíkurkirkju. Haldið verður áfram til Herdísarvíkur og komið við í Strandar- kirkju. Síðan verður farið að Eyrarbakka. Í stássstofu Hússins á Eyrarbakka verður flutt dagskrá um sögu hússins og hvernig Einar Benediktsson tengist henni. Ferðinni lýkur um kl. 21 við Höfða. Á slóðum Einars Ben Einar Benediktsson INGVELDUR Ýr söngkona og Guðríður St. Sigurðardóttir pí- anóleikari eru nú enn á ný komnar til Vesturheims. Í þetta sinn hefur þeim verið boðið að halda tónleika á hinu virta safni Detroit Institute of Arts í Detroit í Bandaríkjunum. Þar munu þær halda tvenna tón- leika: Í kvöld, föstudagskvöld, og nk. sunnudag. Tónleikarnir eru eftirfylgja tónleikaferðar sem þær stöllur fóru um allar borgir í Kanada á síðasta ári. Í Detroit munu þær flytja og kynna íslensk sönglög; einnig flytja skandinavísk sönglög auk franskrar og bandarískrar kabaretttónlistar. Upplýsingar um tónleikana má finna á vefsíðunni; http:// www.dia.org. Ingveldur Ýr Guðríður Íslenskar tónlistar- konur í Detroit Í LISTASAFNI Íslands verður á morgun, laugardag, opnuð yf- irlitssýning á verkum Júlíönu Sveinsdóttur listmálara (1889- 1966). Í tengslum við sýninguna verð- ur haldið námskeið þar sem þær Dagný Heiðdal, Harpa Þórdóttir og Hrafnhildur Schram listfræð- ingar fjalla um líf og list Júlíönu Sveinsdóttur, listmálarann, vef- arann og lífið í Danmörku. Námskeiðið verður 18. sept- ember, 25. september og 2. októ- ber kl. 16.30–18. Umsjón með námskeiðinu hefur Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Íslands. Skráning er til 16. september næstkomandi. Eitt verka Júlíönu. Námskeið um líf og list Júlíönu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.