Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 44
MINNINGAR
44 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Vilhjálmur Ket-ilsson fæddist á
Túngötu 5 í Keflavík
13. apríl 1950. Hann
varð bráðkvaddur
laugardaginn 6.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Valgerður Sig-
urgísladóttir, f. 13.4.
1931, d. 21.6. 2002,
og Ketill Vilhjálms-
son, f. 14.8. 1929.
Bræður Vilhjálms
eru Magnús, f. 29.4.
1951, Sigurgísli Stef-
án, f. 30.8. 1954, Páll
Hilmar, f. 7.3. 1962, og Valur, f.
6.12. 1963.
Eftirlifandi eiginkona Vilhjálms
er Sigrún Birna Ólafsdóttir, f. 4.9.
1950. Þau voru gefin saman 26.
desember 1970 í Keflavíkurkirkju.
Foreldrar Sigrúnar Birnu eru
Margrét Einarsdóttir, f. 24.1.
1925, d. 14.10. 1966, og Ólafur
Björnsson, f. 22.4. 1924. Núver-
Jón Ingi Jónsson, f. 18.10. 1972,
dóttir þeirra er Vilborg, f. 6.1.
2003, sonur Jóns Inga er Rúnar
Ingi, f. 30.4. 1997.
Vilhjálmur ólst upp á heimili
foreldra sinna og bræðra á Tún-
götu 5 í Keflavík. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Keflavíkur og síðan kennaraprófi
og stúdentsprófi frá Kennaraskóla
Íslands. Með námi starfaði hann
hjá Varnarliðinu og Olíufélaginu
Esso á Keflavíkurflugvelli og
kenndi við Myllubakkaskóla. Þá
var hann æskulýðsfulltrúi í Kefla-
vík 1974–77 og kenndi jafnframt
við Holtaskóla. Vilhjálmur tók við
starfi skólastjóra Myllubakkaskóla
1978 og gegndi því til dauðadags
að undanskildum árunum 1986–
88, þegar hann var bæjarstjóri í
Keflavík. Hann var bæjarfulltrúi
fyrir Alþýðuflokkinn 1986–1994
og gegndi ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn á því tímabili.
Vilhjálmur var í gullaldarliði
Keflavíkur í knattspyrnu og varð
Íslandsmeistari með ÍBK 1969, ’71
og ’73 og lék nokkra leiki með
unglingalandsliði Íslands.
Útför Vilhjálms fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
andi eiginkona Ólafs
er Hrefna Ólafsdóttir,
f. 16.4. 1923. Börn Vil-
hjálms og Sigrúnar
Birnu eru: 1) Garðar
Ketill, f. 15.10. 1967,
kvæntur Kristínu
Jónu Hilmarsdóttur, f.
25.1. 1964, þeirra
börn eru Ásgeir Elv-
ar, f. 4.9. 1991, Brynj-
ar Freyr, f. 30.7. 1995
og Katla Rún, f. 11.6.
1999. 2) Margeir, f.
2.2. 1972, sambýlis-
kona hans er Herborg
Arnarsdóttir, f. 26.5.
1975, sonur þeirra er Dagur, f.
18.5 2003. Sonur Margeirs er Vikt-
or Thulin, f. 6.7. 1995. 3) Ásgeir, f.
18.4. 1973, d. 12.5. 1973. 4) Svanur,
f. 6.3. 1977, sambýliskona hans er
Kellyanne Boyce, f. 31.10. 1976,
dóttir þeirra er Svava Ósk, f. 7.4.
2003. 5) Vilhjálmur, f. 2.8. 1980, d.
15.8. 2000. 6) Vala Rún, f. 9.12.
1982, sambýlismaður hennar er
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga – því er ver
ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
(Vilhj. Vilhj.)
Orð fá ekki lýst þeim hugsunum
sem skotist hafa upp í hugann frá því
ég gerði mér grein fyrir því að þú
hefðir verið hrifinn á brott frá okkur.
Ég veit að þetta kom þér líka alger-
lega í opna skjöldu. En eins og við
vitum eru þær ákvarðanir sem við
tökum harla veigalitlar við hliðina á
þeim sem almættið tekur.
Þú varst okkur öllum góður faðir,
en þú varst líka vinur okkar, leiðtogi
og fyrirmynd. Að vera líkt við þig
hefur alltaf verið mitt mesta hól. Það
veit sá sem allt veit að þú varst elsk-
aður og dáður af þeim sem tóku þátt
í lífinu með þér. Orkuna og ástina
sem í því fólst gafst þú margfalt til
baka.
Það eru mín forréttindi að hafa
verið sonur þinn og blessun barna
minna að eiga þá fegurstu minningu
sem hægt er að hugsa sér um nokk-
urn afa. Sögurnar þínar munu lifa
með okkur áfram og mig grunar að
börnin mín eigi eftir að semja sögu
eða tvær um þig.
Ég held að ef við drögum einhvern
lærdóm af lífinu með þér, þá sé hann
sá að við eigum að vera góð hvert við
annað og koma fram við náungann
eins og við viljum að hann komi fram
við okkur. Kærleikurinn var þér
hjartfólginn og þú veittir okkur hann
ríkulega.
Elsku pabbi. Í þeim anda munum
við hugsa um mömmu og afa fyrir
þig og reyna að sætta okkur við það
sem við fáum ekki breytt, því:
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið það líður allt of fljótt.
(Vilhj.Vilhj.)
Þinn
Garðar Ketill.
Myrkur á Ljósanótt. Regnið lem-
ur rúðurnar. Aksturinn á milli Kefla-
víkur og Reykjavíkur tekur lengri
tíma vitandi það að þú ert dáinn.
Minningarnar hrannast upp í hug-
anum.
Lítill tveggja ára strákur stendur í
glugganum í íbúð á jarðhæð í Skip-
holtinu í Reykjavík. Fyrir utan
gluggann eru ein umferðarþyngstu
gatnamót Reykjavíkur á þeim tíma.
Spurningum rignir inn í íbúðina.
Hvað heitir þessi bíll? Hvað heitir
þessi bíll? Pabbi er kominn um leið
og svarar hverri spurningu sam-
viskusamlega. Þetta voru Cortina,
Mustang, Mercury, Moscvitch,
Skoda, Comet og allt sem nöfnum
tjáir að nefna. Ekki er hætt fyrr en
búið er að fylla viskubrunninn á
hverjum degi.
Fjölskyldan flutti aftur til Kefla-
víkur og þótti drengurinn þar á þess-
um árum nánast til gangandi al-
fræðiorðabók um bílategundir og
vinir og starfsfélagar pabbans gerðu
það til gamans að benda á bíla og
spyrja hvers tegundar væri. Verð-
launin fyrir réttu svörin voru gjarn-
an amerískt sælgæti eða gos í dós-
um, sem fékkst ekki annars staðar
en á Keflavíkurflugvelli á þessum ár-
um. Það var gulls ígildi. Til að svala
hinum mikla bílaáhuga drengsins
var farið í Leikhólma, annan hvern
föstudag, og keyptur einn Matchbox
bíll. Úr varð meira safn bíla en
þekktist á flestum heimilum.
Skömmu áður en skólavist hófst
fékk fjölskyldan þau gleðitíðindi að
pabbi hefði verið ráðinn skólastjóri,
aðeins 28 ára að aldri. Að eiga skóla-
stjóra sem pabba hafði bæði sína
kosti og galla. Aðallega þó kosti.
Pabba farnaðist vel í starfi. Upplýs-
ingar komu oft um það frá krökkum
sem send höfðu verið í tiltal til skóla-
stjórans að þetta væri skrýtinn
pabbi. Að vera boðið uppá Floridana
og kex, þegar búist var við hinum
verstu skömmum þótti í meira lagi
skrýtið.
Á þessum árum var knattspyrna
íþróttin. Pabbi hafði þjálfað eldri
pilta áður með góðum árangri. Það
var því mikið gleðiefni að hann skyldi
þjálfa 5. flokk ÍBK þetta sumarið.
Liðið komst taplaust í úrslitakeppni
sem leikinn var á Akureyri. Fyrir lið-
ið var þetta sem heimsmeistara-
keppni. Það kom þeim sem þekktu
pabba ekki á óvart að hann barðist
með sínum mönnum alla leið. Einn
dómari fékk að kenna á því og skóla-
stjórinn var settur í bann í síðasta
leik í riðlakeppninni. Eitt jafntefli og
liðið missti af úrslitaleik á marka-
tölu. Einhver hafði á orði um hann að
það væri ótrúlegt hvað knattspyrna
gæti breytt slíku ljúfmenni.
Á þessu ári var lífslexían kennd. Í
kringum knattspyrnuleik. Maddi
minn, maður á ekki bara hugsa um
sjálfan sig. Allar rósirnar í garðinum
þurfa að fá að blómstra. Garður með
einu fallegu blómi er ekki fallegur
garður. Hjálpaðu rósunum í kring-
um þig að blómstra.
Það er erfitt að sætta sig við að þú
sért farinn frá okkur langt fyrir ald-
ur fram. Þú áttir alltaf nóg til að gefa
af þér. Nú voru það barnabörnin sem
mest fengu að njóta, enda vildu þau
öll helst búa hjá ykkur mömmu á Há-
holtinu. Góðar minningar munu
fylgja okkur alla tíð.
Hvíldu í friði, elsku pabbi minn.
Takk fyrir allt.
Þinn
Margeir.
Elsku pabbi. Það er ferskt í minni
mínu samtal okkar sem við áttum á
laugardaginn. Þá eins og svo oft áður
voru barnabörnin hjá afa sínum þar
sem þeim þótti svo gott að vera. En
heimur minn hreinlega hrundi síðar
um kvöldið þegar mamma hringdi og
tilkynnti mér að þú værir dáinn.
Hverning getur það verið, full-
frískur maður á besta aldri? Þetta
sýnir mér að við eigum okkur öll
merktan dag og þegar hann rennur
upp er hvorki spurt um stað né
stund.
Öll skólagangan í skólanum hjá
þér var frábær og sérréttindi að fá
að eiga pabba sem skólastjóra. Þeg-
ar þú varst bæjarstjóri hótaði ég að
reka mann og annan úr bænum ef
þeir voru eitthvað að plaga mig.
Þvílíkt var álitið á þér að ég taldi
þig allsráðandi.
Skorradalsferðirnar eru mér sér-
staklega minnisstæðar og sögurnar
sem sagðar voru alla leiðina voru
einstakar. Var sérstaklega gaman að
upplifa þær aftur með barnabörnum.
Þegar ég var á sjónum hafðir þú
allaf brennandi áhuga að vita hvern-
ig gekk og ef við vorum ekki í síma-
sambandi fylgdist þú með í gegnum
tilkynningaskylduna.
Mér er sérstaklega minnisstætt
einn dag í ágúst árið 1997 er ég kom
heim ofan af jökli þar sem ég vann.
Þá varst þú búinn að fylla út og
senda fyrir mig umsókn um skólavist
í Ameríku sem hafði verið að blunda í
mér í talsverðan tíma og sagðir að ef
ég kynni ekki við mig gæti ég bara
hætt og komið heim. Í dag á ég þessu
námi sem að þú ýttir mér út í það að
þakka að ég á yndislega konu og litla
dóttur.
Þau eru mér líka í fersku minni
skiptin sem þið mamma komuð í
heimsókn til okkar í Manchester og
við fórum í leikhús draumanna, Old
Trafford. Þótt þú værir harður
Leedsari skemmtum við okkur kon-
unglega vel.
Allar þær yndislegu minningar
sem fljóta um í huga mínum eru mér
mjög dýrmætar en það sem syrgir
mig meira en nokkuð annað er að
Svava Ósk dóttir mín fái ekki að
kynnast afa sínum í eigin persónu.
Eins og mamma hennar segir; þá
hefur hún aldrei kynnst yndislegri
manni en þér. Það hef ég ekki heldur
gert og mun aldrei gera.
Ég veit það, pabbi minn, að fríður
flokkur hefur tekið á móti þér hand-
an móðunnar miklu með bræður
mína Villa og Ásgeir fremsta í flokki
ásamt ömmu.
Það er með mikilli sorg og miklum
söknuði sem ég kveð þig í hinsta
sinn, elsku besti pabbi minn.
Þinn sonur
Svanur.
Elsku besti pabbi minn. Ég sit
hérna og hugsa með mér hvernig sé
eiginlega best að minnast þín. Mér
finnst svo stutt síðan við vorum öll að
ganga í gegnum þetta sama og við
erum að gera núna. Munurinn er sá
að núna ert þú bara hinum megin við
borðið og við hin sitjum eftir og skilj-
um bara alls ekki af hverju þú af öll-
um varst tekinn frá okkur líka.
Þegar ég hugsa til baka dettur
mér fyrst í hug sundferðirnar okkar
upp í gömlu sundlaug. Þú varst svo
duglegur að kenna mér að synda og
svo alltaf þegar við komum heim þá
sagðir þú öllum að ég hefði staðið
mig svo vel og ég væri sko þvílík
sunddrottning! Þú varst alltaf að
kenna mér eitthvað nýtt.
Svo er ekki laust við að hugurinn
leiti upp í Skorradal. Þar áttum við
öll svo ótrúlega góðar stundir. Þú
varst alltaf að finna eitthvað handa
okkur að gera. Við fórum í óteljandi
fjallgöngur, ferðir út á bát, berja-
tínsluferðir inn dalinn, í fótbolta
niðri á velli og að gefa hestunum
brauð. Við munum öll alltaf eftir sög-
unum um Brún og brauðið. Þessum
sögum og öllum ævintýrunum hefur
þú síðan haldið á lífi og núna eru það
barnabörnin þín sem hlusta og segja
öðrum frá. Til dæmis bíða allir
spenntir eftir að keyra framhjá
rebbahúsinu á leiðinni inn dalinn.
Ég er búin að hugsa mikið um
hvernig þú hefur alltaf staðið við
bakið á mér. Ég hef ekkert alltaf far-
ið réttar leiðir í lífinu eins og við vit-
um, en þú studdir samt sem áður
alltaf við bakið á mér. Þú og mamma,
klettarnir mínir. Ég hef í raun og
veru aldrei fengið tækifæri til að
þakka þér fyrir það. Eins og þegar
litla Vilborg veiktist og þú og
mamma komuð inn á spítala um há-
nótt og þú stappaðir í okkur stálinu
þó svo að þú hafir verið alveg jafn-
hræddur um hana og við.
Það máttu eiga, elsku pabbi minn,
að þú varst alltaf snillingur í að láta
mér líða betur.
Ég mun aldrei koma til með að
skilja hvernig þú varst tekinn frá
okkur. En eins og þú sagðir svo oft
eftir að Villi bróðir fór, okkur er ekk-
ert ætlað að skilja svona. Við ráðum
engu um það hvenær eða hvernig við
förum. Ég trúi því að ævi manns sé
ráðin daginn sem maður fæðist.
Manni er ætlað sitt hlutverk visst
lengi og svo er það undir manni sjálf-
um komið hvernig maður kýs að
leysa þetta hlutverk af hendi.
Þú leystir þitt betur en nokkur
annar og í mínum augum verður þú
alltaf hetja. Hetjan okkar allra.
Núna er aftur komið myrkur hjá
hjá okkur fjölskyldunni því að eitt
skærasta ljósið í okkar lífi er farið.
Við grátum þig öll, elsku pabbi, en þó
enginn eins og öll litlu barnabörnin
þín. Sem betur fer hafa þau ekki öll
vit á því hvað er að gerast, en ég skal
lofa þér því að þau eiga öll eftir að
muna eftir Villa afa. Besta afa í
heimi.
Núna er komið að okkur að standa
eins og klettar við bakið á mömmu
og við bakið á hvert öðru. Vera dug-
leg og hjálpa hvert öðru í gegnum
þessa erfiðu tíma. Ég veit að við er-
um ekki þau einu sem eigum um sárt
að binda. Við huggum okkur við það
að núna ertu kominn til beggja
drengjanna þinna, Villa og Ásgeirs,
mömmu þinnar og ömmu og afa og
við vitum að þau hafa öll tekið vel á
móti þér.
Elsku pabbi minn, fyrir mína hönd
og hönd fjölskyldu minnar kveð ég
þig með mikinn trega í hjarta, ég var
alls ekki tilbúin að sjá á eftir þér. Ég,
Nonni, Rúnar og sérstaklega Vil-
borg eigum eftir að sakna þess mikið
að fá þig ekki í heimsókn rétt fyrir
klukkan átta á kvöldin til þess eins
að gera hana pínulítið óþekka áður
en hún færi að sofa.
Ég bið góðan Guð að vaka yfir þér,
pabbi minn, og ég þakka fyrir þann
tíma sem við fengum að eiga saman.
Minningin um besta og yndislegasta
pabba í heimi mun lifa að eilífu í
hjörtum okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Þín dóttir,
Vala Rún.
Elsku Villi. Þú varst kallaður í
burtu frá okkur öllum svo óvænt að
við sitjum öll og varla trúum að þetta
hafi gerst. En lífið getur stundum
verið svo óréttlátt.
Þú sem varst sá heilbrigðasti af
okkur öllum. En í sorg okkar verðum
við að trúa því að Guð hafi annað og
mikilvægara verkefni fyrir þig. Þú
varst kletturinn í lífi okkar, sá sem
við gátum alltaf treyst á ef eitthvað
bjátaði á. Mér finnst bara eins og það
hafið verið í gær sem við stóðum í
þessum sporum og syrgðum Villa
yngri, en þó eru liðin þrjú ár. Við
getum huggað okkur við það að nú
eru þið feðgar saman og mamma þín
hjá ykkur líka.
Ég vil bara vera eigingjörn og mér
finnst þetta mjög ósanngjarnt, þótt
ekki sé nema út af öllum afabörn-
unum. Þau voru þitt líf og yndi. Þú
elskaðir þau öll svo mikið og varst
óspar á að hvísla því í litlu eyrun
þeirra. Ég heyrði oft til þín og mér
þótti svo ofsalega vænt um það. Ég
veit að það verður erfitt fyrir þau að
skilja að afi kemur ekki aftur því þú
varst svo stór hluti af lífi þeirra.
Hvort sem það voru ferðir í Skorra-
dalinn, sundferðir, hjólaferðir, eða
gistinætur á Háholtinu, sem voru
ósjaldan.
Lengi vel voru afastrákarnir bara
þrír en svo bættist lítil prinsessa í
hópinn. Þá var afi ánægður. Eftir því
VILHJÁLMUR
KETILSSON
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar,
tengdasonar, barnabarns, bróður og mágs,
KRISTJÁNS VIÐARS HAFLIÐASONAR,
Ásaheimum,
Króksfjarðarnesi.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem komu að
björgunarstörfum við Borgarfjarðarbrú.
Erla Björk Jónsdóttir,
Aron Viðar Kristjánsson,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Hafliði Viðar Ólafsson,
Jenný Jensdóttir, Jón Hörður Elíasson,
Sigríður Júlíusdóttir, Njáll Guðmundsson,
Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir,
Sigurður Rúnar Hafliðason, Bryndís Elfa Geirmundsdóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást-
kærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ENGILBERTS RAGNARS
VALDIMARSSONAR,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar
A-4 á Hrafnistu fyrir alúð og góða umönnun.
Engilbert R. Engilbertsson, Ragnheiður Brynjólfsdóttir,
Bergþór Engilbertsson, Stefanía Helgadóttir,
Jón N. Engilbertsson, Guðbjörg Vallaðsdóttir
og afabörn.