Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 22
AUSTURLAND 22 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Til að kynna nýjan a la carte matseðil og nýjan vínlista býður Hótel Rangá**** gömlum og nýjum viðskiptavinum sérstakt kvöldverðartilboð í ágúst 2003: * Toast Rangá * * Andarbringa með appelsínusósu * * Hindberja frauð * * Eitt glas vín hússins eða bjórglas * * Kaffi/te * Verð kr. 4.200 Nýr matreiðslumeistari: Martin Samuelsson-Kvist. 50% afsláttur af herbergjaverði 22., 24., 25., 29. og 31. ágúst 2003 Pantanir í síma 487 5700 • hotelranga@icehotel.is ÞAÐ er Ríkharður Valtingojer myndlistarmaður á Stöðvarfirði sem er hugmyndasmiðurinn að baki áformum um alþjóðlegt grafíkverk- stæði. Hann hefur um árabil verið með listasmiðju á sumrin fyrir ís- lenska myndlistarmenn, ekki síst í grafík og var nýlega, með bættri að- stöðu í húsnæði sínu, með sænska listamenn á námskeiði. Ríkharður er frá Austurríki og er vel þekktur grafíklistamaður hér- lendis og í Evrópu. Hann lærði silf- ursmíði og myndlist í Graz í Aust- urríki og útskrifaðist frá málaradeild Listaakademíunnar í Vín. Hann kenndi lengi við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands, síðar Listahá- skóla og hefur í mörg ár ýmist búið á Stöðvarfirði, í Reykjavík eða erlend- is. Hann er nú fyrir fullt og fast flutt- ur á Stöðvarfjörð og rekur þar Gall- erí Snærós með konu sinni, Sólrúnu Friðriksdóttur, sem einnig er mynd- listarmaður. Gamla skólahúsið á Stöðvarfirði, sem einnig hefur gegnt hlutverki kvikmynda- og samkomuhúss, verð- ur væntanlega nýtt undir væntanlegt alþjóðlegt grafíkverkstæði. Fram- vinda málsins byggist þó á afstöðu nýrrar sveitarstjórnar sameinaðra Búða- og Stöðvahreppa, sem kosin verður síðar í mánuðinum. Komist grafíkverkstæðið fót, með sýningar- sal og annarri aðstöðu, hyggst Rík- harður leggja safninu til allt að 150 verk eftir sjálfan sig, ásamt fjölda verka þekktra grafíklistamanna. Hann telur ákjósanlegt að nýta gamla skólahúsið, en það þarfnast nokkurra endurbóta. Meðal annars þarf að smíða sýningarsal á bak við húsið og laga það allt að utan. Sveit- arstjórn Stöðvarhrepps hafði, að sögn Ríkharðs, gefið vilyrði fyrir því að framkvæmdir hæfust í sumar sem leið, en vegna sameiningarmála muni þær tefjast hið minnsta fram á næsta sumar, ef af þessu verði yfirhöfuð. Stöðvarfjörður í góðum tengslum við umheiminn Ríkharður hefur búið á Stöðvar- firði með hléum frá árinu 1985. „Það er fínt að vinna að myndlist hérna“ segir Ríkharður. „Ég sel verkin mín víða, hér eru þau helst seld ferðamönnum, en annars sel ég mest erlendis, ekki síst í Austurríki, Sviss og á Ítalíu. Þar eru gallerí að selja fyrir mig og svo seljast alltaf myndir á alþjóðlegum sýningum.“ Ríkharður segir ekki vera neitt vandamál að halda uppi samskiptum á milli Stöðvarfjarðar og útlanda, hann sé vel tengdur starfsbræðrum sínum um víða veröld. Vinnur að nýrri tækni í grafíklistinni Ríkharður hefur undanfarin ár verið í tilraunastarfsemi í grafíkinni og haldið fyrirlestra víða um lönd um nýja tækni sem hann hefur þróað. Hann kom nýlega fyrir hjá sér mjög fullkominni pressu og hefur verið að endurbæta húsnæði þeirra Sólrúnar, þannig að nú er auðveldara að bjóða upp á námskeið og listsmiðjur þar. „Þessi nýja tækni er byggð á göml- um og nýjum hugmyndum mínum og annarra, sem ég vef saman á nýjan hátt og úr verður spennandi grafíkaf- brigði,“ segir Ríkharður. „Þetta er gert á koparplötum sem eru með ljósnæmri gelatínhúð. Þegar platan er lýst herðast ákveðnir hlut- ar gelatínhúðarinnar, sem skapa ljós- ari fleti. Herslan byggist á ljósmagn- inu. Síðan er platan sett í vatn og gelatínið, sem ekki hefur herst, er skolað í burtu lag fyrir lag. Þá er hún lögð í sýrubað og sýran étur sig gegnum gelatínið á mismunandi hátt eftir þykkt þess.“ Ríkharður segir þetta albestu grafíktæknina, en hún sé afar vandasöm. Hann tekur sem dæmi að hafa eyðilagt allt að 70 plöt- ur við gerð einnar myndar. „Þetta er í sjálfu sér gömul tækni, en áður fyrr þurftu menn að gelat- ínhúða plöturnar sjálfur og það var flókið mál. Núna er hægt að fá for- húðaðar koparplötur, sem einfaldar verkið töluvert“ segir hann. Ríkharður segist ætla að halda áfram að bjóða myndlistarmönnum, íslenskum og erlendum, í smiðju til sín til að kanna möguleika þessarar tækni og hefjast svo handa við und- irbúning alþjóðlega grafíkverkstæð- isins þegar gefið verður grænt ljós á framkvæmdina, sem vonandi verður að veruleika. Nú er í undirbúningi opnun alþjóðlegs grafík- verkstæðis á Stöðvar- firði. Er hugmyndin sú að þar verði einnig stór sýningaraðstaða og gestaíbúð fyrir myndlist- armenn. Steinunn Ás- mundsdóttir heimsótti Ríkharð Valtingojer grafíklistamann í Galleríi Snærós á Stöðvarfirði. Stöðvarfjörður Ríkharður Valtingojer, myndlistar- maður á Stöðvarfirði, vill hefja undirbúning að alþjóðlegu grafík- verkstæði og sýningarsal. Vill opna alþjóðlegt grafík- verkstæði á Stöðvarfirði Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Grafíkverk unnið með nýrri tækni sem Ríkharður hefur rannsakað. ÞRÁTT fyrir að haustið sé komið með tilheyrandi veð- urbreytingum og önnum í mannlífinu, una þær sér bærilega Egilsstaðakýrnar á vel sprottnum túnskika við þjóðveg 1, Egilsstaði. Merkja má kul í lofti þessa dagana, en veðrið hefur þó leikið við íbúa Fljótsdals- héraðs upp á síðkastið með sólfari og þýðum vindi. Egilsstaðakýrnar una sér bærilega Egilsstaðir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir HALLGRÍMUR læknir Magnússon á Djúpavogi og Breiðdalsvík lætur ekki deigan síga. Þegar fréttaritari Morgunblaðsins á Djúpavogi var að spássera úti á söndum á dögunum var þar fyrir í fjöruborðinu Hall- grímur að synda í haustblíðunni. Hann segist iðka sjósund sem oftast og telur það allra meina bót. Morgunblaðið/Steinunn Sjósundið allra meina bót Djúpivogur FRÆÐSLUNET Austurlands opnaði nýlega starfsstöð í Grunnskólanum á Fáskrúðs- firði. Þar er nú háhraðanet fram- haldsskóla og símenntunar- miðstöðva, FS, aðgengilegt. Það tengist sambærilegu neti háskóla landsins og eru allar símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar tengdir FS- netinu. Fræðslunet Austur- lands hefur boðið nokkrum sveitarfélögum til samstarfs um að koma upp útibúum FS- nets og Búðahreppur, Djúpa- vogshreppur og Vopnafjarðar- hreppur hafa þegið boðið. Á þessum þremur stöðum er nú 21 nemandi í reglulegu fjar- námi. Á heimasíðu Fáskrúðsfjarð- ar kemur fram að þar séu nú tíu nemendur í öldungadeild framhaldsskólanna, á Djúpa- vogi þrír nemendur í auðlinda- deild Háskólans á Akureyri og á Vopnafirði séu átta nemend- ur í leikskólafræði við Háskól- ann á Akureyri. Auk þessa noti nemendur í náminu „Fært fólk – nám fyrir ófaglært starfsfólk grunnskóla“ teng- inguna bæði á Fáskrúðsfirði og Djúpavogi. Fræðslunet Austurlands opnað á Fá- skrúðsfirði Fáskrúðsfjörður EKKI hefur orðið vart við neitt af þeim þrjú þúsund löxum sem sluppu úr kví í höfninni í Neskaup- stað í síðasta mánuði, að undan- skildum um 120 löxum sem voru fangaðir fljótlega eftir að þeir sluppu. Ekki einn einasti eldislax hefur veiðst í Norðfjarðará og virðist hann ekki hafa gengið upp í ána. Mönnum er því hulin ráðgáta hvað orðið hefur um laxinn. Bleikjuveiði hefur aftur á móti verið þokkaleg í ánni í sumar og bleikjan sem veiðst hefur verið óvenju væn. Ráðgáta hvað orðið hefur af laxinum Neskaupstaður Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.