Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 55 BIKARMEISTARAR HK í handknattleik hafa gengið frá samn- ingum við litháísku landsliðsmennina Andrius Rackauskas og Augustas Strazdas og samið við þá til þriggja ára. Litháarnir komu til Kópavogsfélagsins til reynslu síðla sumars og fóru aftur utan til að ganga frá sínum málum en eru nú alkomnir til Íslands. Félagaskipti þeirra eru frágengin og þeir eru til- búnir í fyrsta leik HK í forkeppni Íslandsmótsins sem er gegn Selfossi næsta miðvikudag. Rackauskas er 22 ára örvhent skytta og Strazdas, sem er 23 ára, er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað stöðu rétt- hentrar skyttu og sem miðjumaður. HK keypti leikmennina af Granitas Kaunas, fremsta fé- lagsliði Litháens. Hilmar Sigurgíslason, formaður handknatt- leiksdeildar HK, sagði við Morgunblaðið að hann væri nokkuð sáttur við þau viðskipti. „Þeir áttu báðir skamman tíma eftir af sínum samningi svo þetta voru ekki of háar upphæðir, en samt nóg fyrir okkur. Það má segja að þetta sé ásættanlegt og við erum mjög ánægðir með að fá þessa pilta í okkar raðir. Þetta eru efnilegir leikmenn sem vonandi eiga eftir að þrosk- ast enn frekar sem handknattleiksmenn hjá okkur,“ sagði Hilmar. HK keypti Litháana af Granitas Kaunas RONALDO, landsliðsmaður Bras- ilíu og leikmaður spænska liðsins Real Madrid, hefur óskað eftir því við knattspyrnusamband Brasilíu, CBF, að það telji á ný landsliðs- mörkin sem Pele skoraði á ferli sín- um. Samkvæmt gögnum frá CBF skoraði Pele 95 mörk á sínum ferli en hinn 26 ára gamli Ronaldo hefur skorað 49 mörk fyrir Brasilíu fram til dagsins í dag, en hann skoraði í 2:1-sigri Brasilíu gegn Kólumbíu sl. sunnudag í undankeppni fyrir HM árið 2006. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ronaldo óskar eftir því að CBF telji mörkin sem Pele skoraði á ferli sín- um: „Á þessum árum skoraði Pele átta mörk gegn samansettum úr- valsliðum í leikjum sem Brasilía vann 10:0,“ segir Ronaldo og vill að aðeins mörk í leikjum gegn lands- liðum verði tekin með í reikninginn hjá Pele. „Því miður fyrir mig eru slíkir leikir ekki á dagskrá lengur,“ bætir Ronaldo við en hann vill einn- ig að mörkum sem hann skoraði með ólympíulandsliði Brasilíu verði bætt við „markareikning“ sinn. Pele eða „Kóngurinn“ eins og hann er kallaður í heimalandi sínu hefur svarað Ronaldo og segir hinn 62 ára gamli Pele að það sé óraun- hæft að bera saman það sem átti sér stað þegar hann var leikmaður og það sem á sér stað í dag. „Það er aðeins einn Pele til, það var að- eins einn Frank Sinatra og einn Michelangelo. Ég var sá besti,“ seg- ir Pele við sjónvarpsstöð í heima- landi sínu. Ronaldo vill endurskoða markalista Pele Reuters Edson Arantes do Nascimento, öðru nafni Pele. lenskur kylfingur fer til Malasíu að keppa á evrópsku mótaröðinni. Sá sem mest verðlaunafé hefur út úr mótunum samanlagt hreppir aðal- vinninginn en verði tveir eða fleiri með sömu upphæð sker árangur keppenda út um hver fer. Þannig gæti til dæmis komið upp sú staða að Björgvin og Sigurpáll yrðu jafnir og þá ræðst af skori þeirra hvor hreppir hnossið. Þar sem skor keppenda var fremur slakt á Ak- ureyri er ekki ólíklegt að skorið á Hvaleyrarvelli ákveði hver fer til Malasíu, verði tveir eða fleiri jafnir. „Auðvitað er stefnt að því að sigra og komast á Malasíumótið. Það er alveg frábært að fá svona mót hingað til lands og að miklu að keppa fyrir okkur. Bæði eru ágæt peningaverðlaun og ekki síður er það flott að sigurvegaranum sé boð- ið á evrópsku mótaröðina til Malas- íu. Ég geri mér grein fyrir því að Fyrri helmingur mótsins, 36 hol-ur, var leikinn á Jaðarsvelli á Akureyri síðasta föstudag og þar lék Björgvin á 146 höggum og fékk 100.000 króna verð- laun fyrir sigur. Sig- urpáll Geir Sveins- son, GA, varð annar á 148 höggum og fékk 60.000 krónur og Auðunn Einarsson, GO, fékk 40.000 fyrir þriðja sætið. Það eru Carlsberg og Flugfélag Íslands sem eru styrkt- araðilar mótsins og verður sama upphæð í verðlaun fyrir efstu sætin í Hvaleyrinni auk þess sem sá sem nær bestum árangri samanlagt úr mótunum báðum fær veglegan vinning, þátttökurétt á Opna Mal- asíumótinu í febrúar í boði Carls- berg og verður allur kostnaður greiddur. Kapparnir leika 36 holur í dag og að þeim loknum skýrist hvaða ís- þetta verður erfitt en maður gerir sitt besta og reynir í það minnsta að láta hina hafa eitthvað fyrir hlut- unum,“ sagði Björgvin Sigurbergs- son í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að það hefði verið erf- itt að leika á Akureyri í síðustu viku. „Það var ansi erfitt, en ég reyndi að leika af skynsemi og það þýddi ekkert að vera með einhver læti og það var tómt mál að tala um að eltast stíft við einhverja pinna,“ sagði Björgvin. Honum var bent á að veðurspáin væri svipuð fyrir mótið hjá Keili – en hann var með allt á hreinu: „Jú, jú, en við erum svo heppnir hérna í Hafnarfirði að það er alltaf logn á Hvaleyrinni. Raunar getum við ver- ið óheppnir þannig að það verði ein- hver gola hérna að þessu sinni!“ Samhliða þessu móti eru golf- kennarar einnig í keppni því sam- anlagður árangur þriggja bestu golfkennaranna á mótunum tveimur veitir rétt til þátttöku í liðakeppni Evrópu PGA á Spáni í desember en mótið er haldið í tengslum við Evr- ópuráðstefnu golfkennara. Morgunblaðið/Arnaldur Björgvin Sigurbergsson, GK, stendur best að vígi fyrir síðari hluta fyrsta atvinnumannamótsins í golfi hér á landi. Frábært ef maður kæmist til Malasíu BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, stendur best að vígi fyrir síðari hluta fyrsta atvinnumannamótsins í golfi sem haldið er hér á landi, en hann verður leikinn á Hvaleyrarvelli Keilismanna í dag. Björgvin lék manna best í miklum strekkingi á Akureyri fyrir viku. Skúli Unnar Sveinsson skrifar SPÁNVERJAR og Ítalir tryggðu sér í gær rétt til að leika í undanúrslitum EM í körfuknattleik. Undan- úrslitaleikirnir verða á laug- ardaginn og þá mætast Frakkar og Litháar annars vegar og Spánn og Ítalía hins vegar. Spánverjar lögðu Ísrael 78:64 í gær og var sigurinn aldrei í hættu þótt munurinn yrði aldrei mikill. Pau Gasol fór á kostum í síðasta leik- hluta og gerði þá 14 stig í röð en hann gerði alls 25 stig í leiknum og tók sjö fráköst. Síðari leikur gærkvöldsins var meira spennandi en þar mættust Grikkir og Ítalir. Ítalir voru stigi yfir eftir fyrsta leikfjórðung en Grikkir 36:32 yfir í leikhléi. Í þriðja leikhluta náðu Ítalir undirtökunum, unnu þann hluta 17:11 og þann síðasta 13:12 þannig að Ítalir sigr- uðu 62:59. Grikkir komust mest sjö stig yfir og Ítalir mest sex. Spánn og Ítalía í undanúrslit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.