Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Mynd Sólveigar Anspach, Stormviðri, sem meðal ann- ars gerist í Vestmannaeyjum, verður frumsýnd í næstu viku. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við hana. Ótrauður Bowie David Bowie er á miklu flugi þessa dagana og gefur út hverja plötuna á fætur annarri. Á mánudag er ný plata væntanleg frá Bowie og ber hún nafnið Veruleikinn. Á kajökum við Grænland Náttúra Grænlands er fögur og hrikaleg, blíð og hrjóstrug. Ólafur Örn Haraldsson lýsir kajakferðalagi við austurströnd nágrannalandsins í vestri. Stormur Sólveigar á sunnudaginn ANNA LINDH LÁTIN Leiðtogar um allan heim lýstu í gær harmi sínum vegna morðsins á utanríkisráðherra Svíþjóðar, Önnu Lindh. Óþekktur karlmaður réðst á ráðherrann með hníf að vopni í verslun í Stokkhólmi á miðvikudag og lést Lindh í gærmorgun af sárum sínum. Sænskir stjórnmálaleiðtogar eru sammála um að þrátt fyrir morð- ið beri ekki að fresta þjóðaratkvæði um evruna sem fer fram á sunnudag. Harmi slegnir Ráðamenn á Íslandi eru felmtri slegnir yfir fréttum af morðinu á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar. Davíð Oddsson forsætisráð- herra segir að öllum sé brugðið og Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra segir morðið einn hörmu- legasta atburð sem hann hafi upp- lifað. Víða mátti sjá flaggað í hálfa stöng hér á landi í gær. Morðið hefur vakið spurningar um það hvort ör- yggis norrænna ráðamanna sé nægi- lega gætt, m.a. hér á landi. Færeyingar í aðgerðir hér Færeyingar hafa sýnt áhuga á að koma til Íslands í hjartaaðgerðir. Hafa þeir óskað eftir upplýsingum um hvort möguleiki sé á að ákveðnar hjartaaðgerðir verði framvegis framkvæmdar hér á landi í stað Danmerkur þar sem þær hafa verið gerðar hingað til. Samson kaupir í Eimskip Samson Global Holdings Limited keypti í gær 7% hlut í Eimskipa- félagi Íslands en félagið átti engan beinan hlut í Eimskip fyrir við- skiptin. Viðskiptin fóru fram á geng- inu 7,6 og er kaupverð um 2.741 milljón króna. F Ö S T U D A G U R 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 0 3 B L A Ð B MIKILVÆGUR hluti af heildarútlitinu er skófatnaðurinn. Í haust og vetur eru stíg- vélin ómissandi og þá er ekki átt við þægileg gúmmístígvél, heldur misháhæl- uð leður- og rúskinnsstígvél, oftast frekar támjó. Stígvélin eru mishá en þröngu stígvélin sem ná rétt upp undir hné með nokkuð háum pinnahæl eru orðin klassísk. Út- færslan getur svo verið ýmiss konar, t.d. með reimum, rennilás eða smellum. Svo eru það stígvélin sem ná upp á læri, svip- uð og Julia Roberts klæddist í Pretty Woman á sínum tíma, en eru varla farin að sjást í skóverslunum hér á landi. Og síðast en ekki síst eru stígvélin sem ná upp á miðjan kálfa og yfirleitt með lægri hæl, stundum nánast flatbotna. Það er sem sagt ekkert lát á vinsældum leðurstígvélanna, en nú bætast rúskinnsstígvélin við og útlitið er fjöl- breyttara. Það eru víð stígvél sem geta krumpast niður kálfann og er þar tenging við árin í kringum 1980. Og það eru þröng stígvél úr leðri eða rúskinni, sem virðast oft sniðin á spóaleggi. Það er kannski bót í máli að það er víst hægt að fara með þau til skósmiðsins og láta víkka. Stígvélin í haust og vetur eiga það yf- irleitt sameiginlegt að vera támjó en til eru undantekningar frá því. Þar má t.d. nefna ljós stígvél frá 38 þrepum sem gætu átt við þjóðlegan búning Eskimóa. Í þeim sameinast líka tvennt sem er sérstakt við stígvélatísku haustsins, annars vegar ljósi liturinn sem er óvenju áberandi miðað við árstíma og hins vegar hve há þau eru, eða upp fyrir hné, þótt reyndar sé ætlast til þess að þau séu allt eins brett niður. Morgunblaðið/Ásdís LEÐUR á leggi Frá vinstri: Svona há stígvél eru það sem koma skal í stígvélatískunni. Rauð stígvél frá Valmiki, marglit frá Skór.is, reimuð frá Karen Millen og loks lág stígvél frá Bossanova. Víð rúskinnsstígvél frá GS skóm. Ljós og lág frá GS skóm. Eskimóa- stígvélin frá 38 þrepum.  ATLAS-HEILKENNIÐ – MEÐ HEIMINN Á HERÐUM SÉR/2  TÖLVUKRYDD/4  HÖNNUN – ALLT SEM MENN SKAPA/6  AFHJÚPUN ÍMYNDA/7  AUÐLESIÐ/8  Yf ir l i t Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er dreift á landsbyggðinni. Í dag Sigmund 8 Minningar 36/46 Viðskipti 12 Staksteinar 50 Erlent 14/17 Bréf 48 Höfuðborgin 18/19 Skák 47 Akureyri 20 Dagbók 50/51 Suðurnes 21 Brids 49 Landið 24/25 Leikhús 56 Listir 26/29 Fólk 56/61 Umræðan 30/31 Bíó 58/61 Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62 Viðhorf 36 Veður 63 * * * Í KRINGUM fjögur kíló af hassi fundust í bifreið við hefð- bundið eftirlit með Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar í gær- morgun. Hassið var mjög vand- lega falið í bifreið íslensks pars. Var parið yfirheyrt fyrst á Seyð- isfirði og síðan á Egilsstöðum en samkvæmt upplýsingum sýslu- mannsembættisins var rann- sókn málsins hér um bil lokið seint í gærkvöld og fólkið ekki lengur í vörslu lögreglu. Verður ákæra væntanlega gefin út inn- an skamms. Hasshundur frá ríkistoll- stjóra var með í eftirliti lögreglu og tollayfirvalda í Norrænu „og átti hann sinn þátt í að efnið fannst“ að sögn lögreglunnar. Tekin með fjögur kíló af hassi HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir heilmikið bera á milli í viðræðum um aukið frelsi í heims- viðskiptum á ráðherrastefnu Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar sem fram fer í Cancún í Mexíkó og að hann eigi erfitt með að geta sér til um árangur af viðræðunum, fram að þessu, sem lýkur á sunnudag. Flestir telji þó líklegt að niðurstaða náist á fundinum og hafa beri í huga að markmiðið hafi ekki verið að ljúka viðræðunum í Cancún heldur sé stefnt að því að ná samkomulagi um ramma sem samningamenn eigi að styðjast við í áframhaldandi viðræð- um. Minntist Önnu Lindh Halldór flutti erindi á fundinum í gær og minntist í upphafi máls síns nýlátinnar starfssystur sinnar Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Í ræðu sinni lagði utanríkisráð- herra áherslu á mikilvægi þess að þjóðir heims semdu um réttlátar reglur í viðskiptum sín á milli og að þær hefðu svigrúm til að taka tillit til ólíkra framleiðsluskilyrða í landbún- aði af náttúrunnar hendi. Benti hann á að taka yrði tillit til þess að allar þjóðir ættu að hafa rétt til að við- halda kunnáttu til að lifa af landi sínu, því gætu sömu reglur ekki gilt fyrir landbúnað og aðrar greinar sem gætu búið við sambærileg fram- leiðsluskilyrði óháð ytri aðstæðum. Í gær héldu fulltrúar íslensku sendinefndarinnar og fulltrúar átta annarra ríkja sem náð hafa saman um sameiginlegar áherslur, blaða- mannafund. Þá var ráðgert í gær að EFTA-ríkin myndu hittast síðar um daginn og í dag munu Norðurlöndin funda saman. „Það er afskaplega erfitt að segja til um það hvernig þetta stendur, það ber heilmikið á milli en samt telja nú allir líklegt að það takist að ná nið- urstöðu,“ segir Halldór um árangur fundarins. „Hér eru 146 ríki samankomin og það er venjan að velja á milli 20 og 30 lönd til þess að setjast niður og reyna að ná niðurstöðu og það er verið að velja þau nú. Mér þykir líklegt að Sviss og Japan verði í þeim hópi og við munum hafa okkar aðalsamráð við Sviss um þessi mál. „Hér er verið að tala um ramma sem síðan verður að fylla inni í. Það liggur fyrir að þetta er aðeins rammi og síðan þarf að fylla allar töl- ur þar inn. Þessi fundur er hins vegar mikilvægur á þeirri leið og ef ekki næst samkomulag um þennan ramma er mikil hætta á að það muni koma afturkippur í þessi mál, sem getur þá haft þær afleiðingar að menn gefist upp á þessum hlutum í bili og leggi þá áherslu á árangur í tvíhliða viðræðum, samninga milli Evrópusambandsins og Bandaríkj- anna og samninga þessara blokka við ýmsar þjóðir heims. Þannig að það getur haft alvarlegar afleiðingar í sambandi við samskipti ríkra þjóða og fátækra.“ Halldór segir að íslensku full- trúarnir hafi fyrst og fremst lagt áherslu á smæð íslenska landbúnað- arins sem framleiði tiltölulega fáar afurðir. „Við erum að leggja á það áherslu að hafa möguleika til að aga landbúnað okkar að nýjum aðstæð- um og halda áfram að framleiða vörur eins og mjólkur- og kjötvörur.“ Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra tók til máls á ráðherrastefnu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í gær Heilmikið ber á milli í viðræðum þjóðanna FORSETI Marsfélagsins á Bret- landi Bo Maxwell er staddur hér á landi með hópi hugsanlegra fjár- festa en félagið hefur hug á að reisa geimrannsóknarstöð á Kröflusvæð- inu og er sem fyrr stefnt að því að hægt verði að hefjast handa á næsta ári en ætlunin er að vís- indamenn búi og geri tilraunir sem auki skilning þeirra á landslagi og lífríki á Mars. Fjárfestar með í förinni nú Tilgangur ferðarinnar nú er að sögn Maxwell að sýna fjárfestum heppilega staði þannig að þeir geti betur gert sér grein fyrir áformum félagsins og séð staðhætti. Maxwell segir félagið enn hafa fullan hug á að hefja rannsóknir hér á landi næsta sumar en til þess þurfi að tryggja fjármögnun verkefnisins og ná endanlegu samkomulagi við landeigendur hér. „Við stefnum að því að hefjast handa á næsta ári. Þetta er stórt alþjóðlegt verkefni og við erum vongóðir um að okkur muni takast að ná samningum um það. Allir líta þetta verkefni já- kvæðum augum og við vonumst til þess að ná samkomulagi við land- eigendur í náinni framtíð en að öðru leyti eru samningaviðræður á viðkvæmu stigi.“ Maxwell segir fjármögnun verkefnisins vera á al- þjóðlegum grunni. „Það eru fjögur lönd sem einkum koma að verkefn- inu, Bretland, Frakkland, Þýska- land og Holland en auk þess kemur til stuðningur frá Belgíu, Frakk- landi og Ítalíu. Þá hafa Bandaríkja- menn hjálpað til við að útvega bún- að vegna verkefnisins.“ Viðræður vegna geimrannsóknarstöðvar á Kröflusvæðinu Fjárfestar komnir til að skoða aðstæður Morgunblaðið/Birkir Fanndal Forsvarsmenn Marsfélagsins með fjárfestum og landeigendum á ferð á Norðurlandi í gær. Einnig var með í för erlent fjölmiðlafólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.