Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 11 ÞAÐ er ekki algeng sjón að sjá bát með dráttarvél í togi á hafi úti. Það gerðist þó nú í vikunni er flytja þurfti tvær dráttarvélar frá Tyrðilmýri við Ísafjarðardjúp og út í Æðey. Það var Vegagerð ríkisins sem stóð fyrir flutning- unum en Sjóflutningar Hafsteins og Kiddýjar önnuðust flutning- inn. Útbúinn var sérstakur prammi til verksins. Sóttist ferð- in fremur seint vegna sjólags en vel var tekið á móti flutn- ingamönnum er þeir komu út í Æðey. Þar var þeim boðið upp á kaffi og meðlæti þar til veður lægði og hægt var að halda í land á nýjan leik. Ljósmynd/Þorsteinn J. Tómasson Bátur með dráttarvél í togi rek á sviði umhverfismála og vakið börn, unglinga og fullorðna til vitundar um eitt eða fleiri mál- efni sem tengjast umhverfinu. Frestur seinni umferðar til- nefninga er runninn út og voru tveir hópar tilnefndir frá hverju Norðurlandanna, en tilkynnt verður um verðlaunahafann á fundi í Stokkhólmi 26. septem- ber. Verðlaunaafhendingin fer síð- an fram í tengslum við Norð- urlandaráðsþing í Osló 27. til 29. október nk. NEMENDUR í Hamarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja og umhverfissamtökin Blái herinn eru á meðal þeirra sem tilnefndir eru vegna náttúru- og umhverf- isverðlauna Norðurlandaráðs 2003. Úthlutað í níunda sinn Í ár úthlutar Norðurlandaráð náttúru- og umhverfisverðlaun- unum í níunda sinn. Að þessu sinni verða verðlaunin veitt ung- um einstaklingi eða ungmenna- samtökum sem unnið hafa stóraf- Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2003 Tveir íslenskir hópar tilnefndir EMBÆTTI landlæknis bárust 224 kvartanir og/eða kærur með form- legum hætti á síðasta ári sem beind- ust gegn heilbrigðisstarfsmönnum og/eða heilbrigðisstofnunum. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu emb- ættisins fyrir árið 2002. Eru þetta talsvert færri kvartanir en borist höfðu næstu þrjú ár á und- an og skýrist einkum af breyttri skráningu. Í ársskýrslunni segir að í fyrra hafi í meira mæli en áður verið lögð áhersla á að erindi bærust skriflega. Ýmis erindi bárust þó eftir öðrum leiðum, aðallega símleiðis, og var tekið á móti miklum fjölda símtala á kvartana- og kærusviði embættisins. Flest kvörtunarmálin vörðuðu meint mistök heilbrigðisstarfsmanna en meintir samskiptaörðugleikar komu þar næst á eftir. Segir í skýrslunni að dæmi um kvartanir í garð starfs- manna heilbrigðisstofnana hafi verið allt frá því að þeir hafi sýnt kulda- lega framkomu til þess að ekki hafi verið staðið rétt að tiltekinni aðgerð. Fjórir sviptir starfsleyfi Í ársskýrslu landlæknis kemur einnig fram að embættið hafði af- skipti af þó nokkrum heilbrigðis- starfsmönnum á síðasta ári. Fjórir voru sviptir starfsleyfi, fimm fengu formlega áminningu í samræmi við lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og fundið var að störf- um eða einstökum ákvörðunum all- margra. Alls fjallaði embættið um 212 starfsleyfisumsóknir í fyrra, þar af voru 68 umsóknir um sérfræðileyfi, 53 um lækningaleyfi og 20 umsóknir um lyfjafræðingsleyfi. Í flestum tilvikum var umsóknum svarað jákvætt og leyfi veitt en þó fengu þrír synjun um lækningaleyfi og 19 um sérfræðileyfi. Skýringin á því síðastnefnda er að sögn Matt- híasar Halldórssonar aðstoðarland- læknis einkum sú að fjölmargar um- sóknir um sérfræðileyfi berast erlendis frá þar sem skilyrðum er þá ekki fullnægt hjá viðkomandi lækni. Einnig eru dæmi um að íslenskum læknum sé synjað og þá yfirleitt af tæknilegum ástæðum þar sem ein- hverja mánuði vantar upp á að þeir uppfylli öll skilyrði. Árið 2002 sögðu 218 einstaklingar sig úr miðlægum gagnagrunni á heil- brigðissviði en til samanburðar voru úrsagnir á árinu 2001 tæplega 600. Í árslok 2002 höfðu alls 20.385 einstak- lingar, eða ríflega 7% landsmanna, sagt sig úr grunninum. Kemur þetta fram í ársskýrslu Landlæknisemb- ættisins. Landlækni bár- ust 224 kvartanir á síðasta ári Ársskýrsla landlæknisembættisins JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp til að fara yfir rekstrargrundvöll Landspítala-há- skólasjúkrahúss og þau rekstrar- vandamál sem blasa við spítalanum í dag. Í nefndinni eru fulltrúar úr fjárlaganefnd Alþingis, formaður fjárlagaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins og yfirmaður fjárlaga- skrifstofu heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytis. Hvar „einstaklingsframtakið og spítalinn mætast“ „Þeir munu fara yfir rekstrar- grundvöllinn og þessi rekstrar- vandamál dagsins og munu vinna að því áfram í fjárlagagerðinni að undirbúa ákvörðun í þessum mál- um,“ segir Jón. Þá hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að skipa annan starfshóp til að fara yfir málefni spítalans til frambúðar og „fara yfir hvar ein- staklingsframtakið og spítalinn mætast ef svo má segja og hvað er skynsamlegt að vinna þar inni og hvað annars staðar. Við verðum að taka þessa umræðu en ég verð að ætla þessum hópi lengri tíma. Þetta eru raunar tvö aðskilin mál. Ég reikna ekki með að niðurstaða liggi fyrir þegar fjárlög verða af- greidd,“ segir ráðherra. Hann minnir á að fréttir af fjöldaupp- sögnum á spítalanum séu ekki frá ráðuneytinu komnar og vonast til að hægt verði að búa þannig um hnútana að ekki þurfi að koma til þeirra. „Ég ætlaði að koma þessum nefndum af stað sem allra fyrst, önnur nefndin er reyndar komin á laggirnar og er jafnvel byrjuð að starfa en ég ætlaði að skipa hina nefndina helst í þessum mánuði og hún myndi þá byrja að starfa núna í haust.“ Starfshópi ætlað að skoða rekstrargrundvöll LSH Ráðherra skipar nefnd til að skoða málefni spítalans FYRSTU fregnir af alvöru sjóbirt- ingsskotum í skaftfellskum ám hafa verið að síast inn. Þetta eru ekki hrikalegar tölur, en það leynir sér þó ekki að vertíðin þar eystra er að hrökkva í gang. Hjá SVFR fengust þær upplýs- ingar að tvö síðustu holl í Tungu- fljóti hefðu orðið vel vör, fyrst hafi hópur fengið 6 birtinga, síðan kom hópur, sem lauk veiðum 8. sept- ember og veiddi átta birtinga og tvo laxa. Virðist hafa komið dálítil ganga á undan Skaftárhlaupinu, en þau aflaga vatnamót Ása-Eldvatns og Tungufljóts allrækilega. Má bú- ast við að göngur hressist verulega þegar hlaupið hefur sjatnað til fulls. Þetta voru nær allt 4 til 7 punda birtingar, engin tröll, sem Fljótið er þekkt fyrir, enn sem komið er. Flestir veiddust á vatna- mótum við Ása-Eldvatn. Hjá Keflvíkingum hafa þær fregnir fengist að fyrsta alvöru sjóbirtingsskotið hafi komið í Geir- landsá um síðustu helgi, átta fisk- ar hafi þá verið dregnir á þurrt og jafnmargir lekið af önglinum. Enn- fremur náðust fjórir laxar og nokkrar fínar bleikjur. Mest veiddist í Ármótum og Fjárhúsa- bakka. Stærsti birtingurinn var 12 pund. Fréttir af löxum Veiði í Langá hefur dalað að- eins, en áin er þó búin að losa vel 2.000 laxa. Ingvi Hrafn er þó ekki bjartsýnn á að metið, 2.400 stk., frá 1978 falli. Það er þó aldrei að vita, nokkrir dagar eftir og mergð af laxi í ánni. Grímsá hefur náð góðum loka- spretti eins og í fyrra og hefur nú gefið um 1.000 laxa. Enn eru nokkrir dagar til stefnu. Þá er útlit fyrir að Laxá í Dölum sigli yfir tölu sína frá síðasta ári. en um helgina var hún komin afar nærri 880 löxum sem er einmitt talan frá 2002. Þegar öll kurl voru komin til grafar í Norðurá lá fyrir lokatalan 1.453. Það er talsvert undir loka- tölu síðasta árs, þá veiddust 2.217 laxar, en viðunandi eigi að síður, sérstaklega í ljósi aðstæðna, en skilyrði voru afar slæm afar lengi veiðitímans. Ballið að byrja fyrir austan Ragnar Lövdal með 19 punda hæng sem hann veiddi nýverið í Hafralónsá. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? LÖGREGLAN á Ísafirði hef- ur nú upplýst tvö innbrot, sem framin voru í húsnæði Grunnskólans á Ísafirði ný- lega. Á miðvikudagskvöld játaði karlmaður á fertugsaldri að hafa brotist inn í skólann. Hefur hann margsinnis komið við sögu lögreglunnar vegna ýmissa brota, s.s fíkniefna- og auðgunarbrota. Í leit að lyfjum Innbrotin voru framin í húsnæði skólans aðfaranótt 6. september sl. og aftur aðfara- nótt 10. sama mánaðar. Mikið tjón hlaust af í bæði skipti. Svo virðist sem tilgangur þeirra hafi verið að leita að lyfjum í skólanum. Innbrot í grunnskóla upplýst Ísafjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.