Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 24
LANDIÐ
24 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Sæþór
í Reykjavík vinnur þessa dagana að
dýpkun Grímseyjarhafnar. Með í för
eru dráttarbáturinn Kleppsvík,
skipstjóri á honum er Guðfinnur
Karlsson, Þorlákshöfn, og gröfu-
pramminn Eiðsvík, gröfustjóri Sig-
urður Þorsteinsson, Reykjavík.
Sæþór sér aðallega um dýpkun
vítt og breitt um landið. Hafa Sæ-
þórsmenn verið að dýpka margar
hafnir landsins undanfarið, eins og á
Djúpavogi, í Neskaupstað, á Vopna-
firði, á Þórshöfn og Raufarhöfn.
Sigurður gröfustjóri sagði að ver-
ið væri að hreinsa framburð sem
safnast hefði saman á klöppina hér
og með því skapaðist betri aðstaða
fyrir ferjuna Sæfara og „alvöru
skip“ eins og hann orðaði það. Sig-
urður sagði að ferðin til Grímseyjar
með tækin hefði verið tveggja sólar-
hringa sigling og töluverður barn-
ingur annan siglingardaginn. Verk-
ið sjálft sagði hann að tæki kannski
eina viku.
Héðan fara þeir Sigurður og Guð-
finnur hjá Sæþóri til Flateyjar á
Skjálfanda og taka til hendinni í
höfninni þar.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Sigurður Þorsteinsson gröfustjóri t.v. og Guðfinnur Karlsson skipstjóri á hafnarbakkanum í Grímsey.
Höfnin
dýpkuð
Grímsey
VÍÐA hafa sauðkindur borið bein
sín í Aðaldalshrauni um tíðina, en í
gjótum og sprungum gefur oft að
líta bein af lömbum og fullorðnum
skepnum sem þar hafa beðið dauða
síns.
Nýlega fannst töluvert af beinum í
hraunbolla vestan flugvallarins og
um er að ræða bein af nokkrum full-
orðnum ám og gimbur sem hafa að
öllum líkindum látið fyrir berast í
skjólinu að hausti til fyrir ein-
hverjum áratugum og fennt í kaf en
ekki fundist.
Hausthretin hafa verið mörg í
gegnum tíðina en mönnum er minn-
isstætt hret sem gerði mikinn usla 8.
nóvember 1959 á auða jörð. Var þá
iðulaus stórhríð og gerði á þremur
dögum gríðarlegt stórfenni þannig
að fé fennti bæði í Aðaldalshrauni og
einnig í innsveitum sýslunnar. Margt
af þessu fé fannst í snjónum en
margir metrar voru niður á skepn-
urnar og reyndist mjög erfitt að
finna þær og sumar fundust aldrei. Í
hvaða hausthreti þetta sauðfé sem
hér um ræðir fórst skal ósagt látið
og beinin munu áfram geyma leynd-
ardóminn um dauðdaga kindanna.
Beina-
fundur í
Aðaldals-
hrauni
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Laxamýri
ALÞJÓÐLEGUR samstarfshópur
háskólafólks sem leggur stund á
doktorsnám hélt nýlega námsstefnu
hér á landi. Starfshópurinn kallar
sig Circumpolar Phd Network in
Arctic Environmental Studies. Þátt-
takendur þetta árið komu frá fjöl-
mörgum löndum m.a. Moldavíu,
Búlgaríu, Síberíu, Grænlandi, Finn-
landi, Svíþjóð, Nýja-Sjálandi, Núna-
vút (N-Kanada), Noregi og Íslandi.
Námsstefnan er hluti af fimm ára
verkefni fjölþjóðlegra vísindamanna
og doktorsnema úr þverfaglegum
greinum sem snýst um að skoða
umhverfisáhrif fjölmargra þátta á
líf og starf á norðurslóð. Einn þess-
ara þátta er ferðamennska og ferða-
þjónusta og var verkefnið helgað
honum þetta árið.
Heimsóttu fjölda staða
tengda ferðaþjónustu
Stærstur hluti hópsins dvaldi hér
á landi í tvær vikur og var aðal-
áherslan lögð á tengsl hinna ýmsu
þátta samfélagsins við ferðaþjón-
ustu. Ýmsir ferðamannastaðir á
Vesturlandi voru skoðaðir fyrri vik-
una, meðal annars dvalið í Grund-
arfirði, farið í Flatey, Hildibrandur
í Bjarnarhöfn heimsóttur, farið í
þjóðgarðinn Snæfellsjökul og að
Brekkubæ á Hellnum, þar sem
námsstefnugestir fræddust um upp-
byggingu og sögu staðarins, um-
hverfisstefnu gistiheimilisins, fram-
kvæmd hennar og reynslu af rekstri
umhverfisvænnar ferðaþjónustu. Að
loknum fyrirlestri snæddi hópurinn
kvöldverð á Brekkubæ.
Síðari vikuna dvaldi hópurinn á
Suðurlandi og heimsótti m.a. Garð-
yrkjuskóla ríkisins í Hveragerði,
svo og ýmis ferðaþjónustufyrirtæki,
en Ísland var einmitt talið kjörið til
þessarar námsstefnu vegna hins
mikla vaxtar sem orðið hefur í
ferðaþjónustu hér á landi undanfar-
in ár og vegna hinna miklu nýjunga
sem komið hafa fram innan atvinnu-
greinarinnar. Menn beindu einkum
sjónum sínum að þeirri aukningu
sem hefur orðið á ferðalögum fólks
um heiminn, þeim efnahagslegu
tækifærum sem fylgja í kjölfarið en
einnig þeirri hættu sem viðkvæm-
um vistkerfum á norðurslóð stafar
af þessari aukningu.
Jafnframt var skoðað hvernig
tryggja mætti sjálfbærni á fé-
lagslega og menningarlega sviðinu í
tengslum við aukinn fjölda ferða-
manna og aukin umsvif innan ferða-
þjónustu.
Þátttakendur voru á einu máli
um að námsstefnan hefði tekist frá-
bærlega vel, en um skipulag hennar
og framkvæmd sáu Anna Karlsdótt-
ir lektor í landafræði við Háskóla
Íslands og Jóhanna Oddsdóttir
ferðamálafræðingur sem leggur
stund á framhaldsnám í ferðamála-
fræðum.
Námsstefna um umhverf-
isáhrif á norðurslóð
Hellnar
UM miðjan maí ár hvert koma krí-
urnar í þúsunda tali í Rif í hópum.
Þar hafa þær átt griðland og einka-
rétt á varplandi í undanfarna áratugi.
Friðþjófur Guðmundsson, sem var
bóndi í Rifi á nýliðinni öld, gaf þeim
þennan rétt og sá til þess að kríurnar
fengju að vera í friði yfir varptímann.
Svo virðist sem þessum sumar-
gestum fjölgi ár frá ári og í sumar
var svo komið að kríurnar voru
komnar út um öll holt upp af Rifi alla
leiðina út undir Hellissand.
Síðari hluta ágústmánaðar, þegar
unginn er kominn vel á stjá, flytur
kríuskarinn sig í fjörurnar. Þá eru
þær í stórum hópum á Brimnesinu,
Krossavíkinni úti á Öndverðarnesi
og við höfnina í Rifi. Þarna eru for-
eldrarnir að æfa ungana í flugi og
kenna þeim að afla sér ætis. Ung-
viðið er búið undir ferðina löngu til
Suðurskautsins. Miklar breiður af
ungum og fullorðnum fugli þekja
fjörurnar.
Það er gaman að fylgjast með og
sjá hvernig krían kennir unganum.
Hún kemur með síli í gogginum og
lætur ungann elta sig með það og
sleppir því svo í fjöruna eða sjóinn.
Þangað verður unginn að sækja það
og er síðan furðu fljótur að komast
upp á lag með að ná sér sjálfur í æti.
Nú þegar mannanna börn eru að
setjast á skólabekk eru kríukrakk-
arnir að taka lokaprófin. Hópur eftir
hóp hefur sig til flugs úr æfinga-
svæðunum og heldur í suðurátt. Í
rúma átta mánuði heyrist ekki í kríu
hér undir Jökli. En að þeim tíma
liðnum birtast stórir hópar af kríum.
Þá er sumarið komið.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Kría og fleiri fuglar á Brimnesi utan við Krossavík við Hellissand, en kríu hefur fjölgað mjög á þessum slóðum.
Útskrift í kríuskólanum undir Jökli
Hellissandur
HEILBRIGÐIS- og trygg-
inganefnd Alþingis heimsótti
Heilbrigðisstofnum Suðurlands
2. september til þess að kynna
sér starfsemina, áherslur og
þarfir. Heimsóknin var hluti af
kynningarferð nefndarinnar til
stofnana. Nefndin heimsótti
einnig réttargeðdeildina á
Sogni í Ölfusi og fleiri stofnan-
ir.
Stjórnendur Heilbrigðis-
stofnunarinnar fóru yfir rekstr-
arstöðu stofnunarinnar og þá
uppbyggingarþætti sem fram-
undan eru í starfseminni en þar
ber hæst fyrirhugaða viðbygg-
ingu við Sjúkrahús Suðurlands
á Selfossi.
Kynning-
arferð
um Suð-
urland
Selfoss