Morgunblaðið - 12.09.2003, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 25
ÞAÐ er ekki algengt að sjá bylgj-
andi kornakra í Þistilfirði en sú er
raunin þetta haust og uppskera er
mjög góð.
Þeir Axel Jóhannesson á Gunn-
arsstöðum og Eggert Stefánsson í
Laxárdal settu niður korn í tvo
hektara í vor; Axel 22. apríl og
Eggert tveimur vikum síðar en
mjög hlýtt var í veðri um það leyti.
Tíðarfar var óvenjulegt síðasta
vetur; einstaklega mildur vetur og
jörð fraus aldrei að neinu marki
og þess vegna mögulegt að plægja
mjög snemma vors.
Þetta er að líkindum í fyrsta
sinn sem Þistilfjarðarbændur
þreskja korn en hingað til hefur
það aðeins verið ræktað sem
grænfóður og sprettutími þá mun
styttri.
Bændurnir keyptu þreskivél frá
Snæfellsnesi til að vinna upp-
skeruna sem var um 8 tonn af
hvorum hektara, heldur meiri á
þeim hektara sem fyrr var sett
niður í og eru þeir Axel og Eggert
að vonum ánægðir með árang-
urinn.
Kornið er sett í stórsekki og síð-
an pakkað í rúlluplast en er síðan
nýtt sem fóðurbætir fyrir líflömbin
og einnig fyrir fengitíð. Eftir svo
góða reynslu af kornrækt er útlit
fyrir að Þistilfjarðarbændur haldi
áfram á sömu braut og nýti þreski-
vélina en Axel verður einnig við
þreskingu í Vopnafirði með vélina
á næstu dögum því þar bíða líka
kornakrar eftir þreskingu.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Eggert Stefánsson í Laxárdal og Axel Jóhannesson á Gunnarsstöðum á öðrum kornakrinum í Þistilfirði.
Góð kornuppskera í Þistilfirði
Þórshöfn
TEKIÐ hefur verið í notkun nýtt
fjarnámskerfi við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri. Kerfið boðar
byltingu í samskiptum nemenda og
kennara á vefnum. Við þróun þess
var reynt eftir megni að taka tillit til
lélegra gagnatenginga sem enn eru
sums staðar í sveitum landsins.
Fjarnemar í búnaðarfræðum
komu í hefðbundna heimsókn að
Hvanneyri til að taka þátt í tveggja
daga dagskrá í upphafi náms. Við
það tækifæri var þeim sýnd notkun
nýja fjarnámskerfisins. Kerfið er
hugsað til notkunar jafnt í staðar-
námi sem og í fjarnámi og jafnt á
framhaldsskólastigi og háskólastigi.
Vonast er til þess að það verði ekki
bara gagnabanki fyrir námsefni og
verkefni, heldur líka vettvangur til
náms og rauntímaskoðanaskipta
innan veggja skóla sem og utan.
Kerfið, sem ber nafnið Námskjár,
hefur þegar verið tekið í gagnið í
hluta staðarnáms á háskólastigi og
standa vonir til að þáttur þess í stað-
arnámi á báðum kennslustigum skól-
ans fari vaxandi.
Kerfið er hannað af hugbúnaðar-
fyrirtækinu Nepal í Borgarnesi. Það
er algerlega miðlægt og geta nem-
endur því stundað nám í mörgum
skólum samtímis, svo lengi sem við-
komandi skólar nota kerfið. Land-
búnaðarháskólinn er fyrsti notandi
kerfisins og hefur haft töluverð áhrif
á þróun þess.
Með tilkomu þessa nýja kerfis er
vonast til að bilið sem er á milli fjar-
nema og staðarnema minnki og hægt
verði að samkenna þessum tveimur
hópum í einhverjum tilvikum, að
hluta til eða í heild. Áframhaldandi
þróun kerfisins verður unnin í sam-
vinnu við notendur þess, bæði kenn-
ara og nemendur.
Eins og áður var tekið fram var
við hönnun þessa kerfis reynt eftir
megni að taka tillit til lélegra gagna-
tenginga í sveitum landsins og auk
þess var kerfið reglulega prófað á
gervihnattatengingum.
Umsjónarmaður fjarnáms við
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri er Edda Þorvaldsdóttir.
Nýtt fjarnáms-
kerfi á Hvanneyri
Skorradalur
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Þór Þorsteinsson frá Nepal í Borgarnesi kennir fjarnemum í búnaðar-
fræðum á Hvanneyri að nota nýtt fjarnámskerfi, sem nefnt er Námskjár.
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um að hefja háskólanám
í Stykkishólmi. Að samkomulaginu
standa Stykkishólmsbær, Háskól-
inn á Akureyri og Símenntunar-
miðstöðin á Vesturlandi. Þar er
kveðið á um aðgengi íbúa Stykk-
ishólms og nágrennis að fjarnámi á
háskólastigi frá Háskólanum á Ak-
ureyri.
Háskólinn á Akureyri starfrækir
fjarnám í viðskiptafræði og sjáv-
arútvegsfræði. Um er að ræða
þriggja ára BS-nám og er skipulag
fjarnámsins miðað við að fólk geti
stundað vinnu meðfram náminu og
það dreifist því á lengri tíma.
Stykkishólmsbær leggur til og
kostar námsver. Símenntunarmið-
stöðin heldur utan um námið og
annast kynningu námsframboðs.
Stykkishólmsbær keypti Egils-
hús á síðasta ári og hefur gert
miklar endurbætur á húsinu innan-
dyra. Þar verður aðstaða háskóla-
nemanna og er húsnæðið tilbúið til
notkunar með fullkomnum tölvu-
búnaði til fjarkennslu.
Í fjarnámið hafa verið skráðir
níu nemar, átta þeirra í viðskipta-
fræði og einn í sjávarútvegsfræði,
og er kennsla að hefjast.
Að sögn Óla Jóns Gunnarssonar
bæjarstjóra er verið að stíga stórt
spor í framfaraátt í fræðslumálum
Hólmara. Það hefur ekki svo lítið
að segja að geta boðið heimafólki
að stunda háskólanám í sinni
byggð. Það auðveldar fólki að
sækja sér menntun án þess að
raska öllu heimilislífi. Óli Jón segir
þetta skref vera mikilvægt byggða-
mál og þakkar öllum þeim aðilum
sem gerðu háskólanám í Stykkis-
hólmi að veruleika. Hann vill sér-
staklega þakka rektor Háskólans á
Akureyri, Þorsteini Gunnarssyni,
en hann hefur sýnt þessu verkefni
sérstakan áhuga og verið ötull í því
að koma náminu í framkvæmd.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Samkomulag um háskólanám í Stykkishólmi undirritað. Þorsteinn Gunn-
arsson, rektor HA, Inga Sigurðardóttir, forstöðumaður Símenntunar-
miðstöðvar Vesturlands, Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri. Fyrir aftan eru
fyrstu háskólanemarnir: Björn Sverrisson, Áslaug Kristjánsdóttir, Íris Sig-
urbjörnsdóttir, Ólöf Edda Eysteinsdóttir og Egill Valberg Benediktsson.
Háskólanám
hafið í
Stykkishólmi
Stykkishólmur
ÁTTA tilboð bárust Vega-
gerðinni í gerð Reynishverf-
isvegar frá hringveginum
skammt frá Vík í Mýrdal að
Prestshúsum, sem og hluta
Dyrhólavegar. Alls er um
nærri fimm kílómetra kafla
að ræða sem á að vera tilbú-
inn í júlí á næsta ári.
Lægsta tilboð kom frá
Sandvirki ehf. í Þorlákshöfn
upp á rúmar 24 milljónir
króna. Áætlaður verktaka-
kostnaður hjá Vegagerðinni
var rúmar 27 milljónir. Tvö
önnur tilboð voru undir áætl-
un; frá Framrás ehf. í Vík og
Græði sf. í Önundarfirði.
Hæsta boð kom frá Nóntindi
ehf. í Búðardal upp á tæpar
50 milljónir króna.
Aðrir bjóðendur voru Vöru-
bílstjórafélagið Mjölnir á Sel-
fossi, Sigurjón Á. Hjartarson
í Grímsnesi, Jón og Tryggvi
ehf. á Hvolsvelli og Kluftir
ehf. í Reykjavík.
Átta til-
boð í veg
um Reyn-
ishverfi
við Vík
Mýrdalur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111