Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 30
UMRÆÐAN
30 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MÖGULEIKAR til símenntunar
eru nánast óendanlegir og við Háskóla
Íslands skipta leiðirnar hundruðum,
allt frá því að örva
hugann og auka
þekkingu með því að
hlýða á opna fyr-
irlestra um málefni
líðandi stundar, hefja
grunnnám í háskóla,
styrkja stöðu sína á
vinnumarkaði með viðbótarnámi til
starfsréttinda eða til þess að fara í
framhaldsnám á háskólastigi.
Opinn Háskóli
Í Háskóla Íslands er haldinn fjöld-
inn allur af opnum fyrirlestrum og
málþingum, auk ýmissa annarra við-
burða sem standa almenningi opnir.
Oft snerta þessir viðburðir málefni
sem eru ofarlega á baugi, þar sem inn-
lendir sem erlendir fræðimenn úr
fremstu röð varpa ljósi á málin. Marg-
ir virtir og heimsþekktir fyrirlesarar
hafa verið gestir Háskólans í áranna
rás og miðlað af þekkingu sinni. Að-
gangur á slíka viðburði er ókeypis og
allir áhugasamir velkomnir. Upplýs-
ingar er að finna á vefsetri Háskólans,
hi.is, en einnig er greint frá þeim í fjöl-
miðlum.
Stuttar hagnýtar námsleiðir
Símenntun er hver sú leið sem farin
er til að halda áfram að læra og afla
þekkingar. Margir hafa farið beint á
vinnumarkað að loknu stúdentsprófi
og það getur verið átak að hefja há-
skólanám eftir ára, jafnvel áratuga,
hlé á námi. Við Háskóla Íslands eru í
boði nokkrar stuttar hagnýtar náms-
leiðir (diplómanám) sem skipulagðar
eru sem þriggja missera nám. Þessar
leiðir geta hentað þeim sem ekki hafa
tök á að stunda langt háskólanám, eða
stefna á frekara nám síðar. Í boði er
diplómanám í hagnýtri ensku,
spænsku, íslensku, dönsku og þýsku
fyrir atvinnulífið, ferðamálafræði og
tómstundafræði.
Fjölbreytni og þverfaglegt nám
Ein helsta sérstaða Háskóla Ís-
lands er fjölbreytnin í námsframboði
sem opnar nemendum margar leiðir í
samsetningu og sveigjanleika náms,
og veitir þann möguleika að ljúka
grunnnámi með áherslu á fleiri en
Símenntun við Háskóla Íslands
Eftir Guðrúnu J. Bachmann
Höfundur er kynningarstjóri
Háskóla Íslands.
eina námsgrein. Þar er um margar
leiðir að velja en auk þess eru sumar
námsleiðir fyrirfram skipulagðar sem
þverfaglegt nám og eru settar saman
úr námskeiðum úr mismunandi
deildum Háskólans. Meðal leiða í
þverfaglegu námi má nefna almenn
trúarbragðafræði, kynjafræði,
miðaldafræði, borgarfræði og at-
vinnulífsfræði.
Meistaranám og starfstengt
viðbótarnám
Möguleikum í framhaldsnámi hefur
fjölgað gífurlega á liðnum árum og all-
ar deildir Háskólans bjóða meistara-
nám. Þessi öra þróun hefur aukið til
muna möguleika háskólamenntaðs
fólks á framhaldsnámi. Meist-
aranámið er skipulagt sem eins og
hálfs til tveggja ára nám, en nem-
endur geta lokið því á lengri tíma, t.d.
ef þeir stunda vinnu með námi. Einnig
býðst diplómanám á meistarastigi í
vissum námsleiðum.
Auk hefðbundins framhaldsnáms í
deildum eru fjölmargar áhugaverðar
leiðir í þverfaglegum námsleiðum í
meistaranámi. Þar má nefna sjáv-
arútvegsfræði, umhverfisfræði,
tungutækni og opinbera stjórnsýslu
(MPA).
Dæmi um starfstengt viðbótarnám
er m.a. djáknanám, siðfræði, hagnýt
fjölmiðlun, félagsráðgjöf, kennslu-
fræði til kennsluréttinda, bókasafns-
og upplýsingafræði og námsráðgjöf.
MBA-nám
MBA-nám er afar hagnýtt nám
með starfi fyrir þá sem þegar hafa há-
skólapróf og starfsreynslu, vilja efla
þekkingu sína á sviði viðskiptafræði
og auka færni í stjórnun og rekstri.
Námið er í samstarfi viðskipta- og
hagfræðideildar og Endurmenntunar.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Endurmenntun fagnar um þessar
mundir tuttugu ára afmæli. Tilkoma
Endurmenntunar HÍ markaði tíma-
mót í endur- og símenntun á Íslandi
og hefur æ síðan verið leiðandi á því
sviði. Þúsundir Íslendinga hafa sótt
þar fróðleik og menntun og tengsl
Endurmenntunar við atvinnulífið hafa
ávallt verið sterk. Allar nánari upp-
lýsingar má finna á www.end-
urmennt.is.
Við Tungumálamiðstöð HÍ fer fram
sjálfsnám í dönsku, frönsku, spænsku
og þýsku fyrir alla sem skráðir eru í
Háskólann. Nemendur af öllum
fræðasviðum hafa nýtt sér þennan
möguleika, enda er tungumálakunn-
átta drjúgt veganesti fyrir fólk á al-
þjóðlegum vinnumarkaði.
Fjarnám og fræðasetur
Háskóli Íslands er skóli allra lands-
manna. Hann er í nánu samstarfi við
símenntunarmiðstöðvar um land allt,
jafnframt því sem Háskólinn starf-
rækir fræðasetur víða um land í sam-
starfi við sveitarfélög. Fjarnám við
Háskólann fer m.a. fram í gegnum sí-
menntunarmiðstöðvarnar. Á þessu
skólaári er í boði fjarkennsla í ís-
lensku, ensku, opinberri stjórnsýslu
og sagnfræði, en einnig stendur nú yf-
ir einstaklega vel heppnað til-
raunaverkefni á fjarnámi í náms- og
starfsráðgjöf.
Síðustu ár hefur gífurleg uppbygg-
ing átt sér stað á vefkerfi HÍ, sem
þjónar nemendum og kennurum. Með
tilkomu nýrrar tækni dregur hratt
saman með fjarnámi og staðbundnu
námi, því möguleikarnir sem vefkerfi
Háskólans opnar gera nemendum
kleift að stunda námið að miklu leyti á
vefnum, þótt ekki sé um hefðbundið
fjarnám að ræða. Margir spá því að
þróunin á næstu árum verði sú að bilið
milli fjarnáms og staðnáms þurrkist
út.
Margvíslegur stuðningur,
leiðsögn og þjónusta
Háskólinn leitast við að styðja nem-
endur í hvívetna jafnt í vali og sam-
setningu náms sem í sjálfu náminu.
Nemendaráðgjafar eru til staðar í
deildum og skorum og á vegum Fé-
lagsstofnunar stúdenta og Stúdenta-
ráðs er margvísleg þjónusta, ráðgjöf
og stuðningur.
Námsráðgjöf Háskólans hefur um
áraraðir unnið frumkvöðlastarf á þeim
vettvangi og er þjónusta Námsráð-
gjafar opin jafnt nemendum skólans
sem þeim sem hyggja á háskólanám.
Heimsókn til þeirra og á vefsetur Há-
skóla Íslands, hi.is, gæti verið fyrsta
skrefið í átt að símenntun – möguleik-
arnir eru nær óþrjótandi.
Á SUNNUDAGINN verður haldinn í íþróttahúsinu á Ísafirði fundur sem
mun að öllum líkindum snúast um ábyrgð alþingismanna gagnvart kjós-
endum. Ábyrgðin snýr að málflutningi þeirra í kosningabaráttunni, hverju
var lofað og hvort ætlunin sé að standa við loforðin.
Í þessu tilfelli snýst málefnið um línuívilnun til dagróðr-
arbáta. Báðir stjórnarflokkarnir höfðu gert samþykktir um
málefnið fyrir kosningar og því kom það ekki á óvart að
það skyldi sett inn í stjórnarsáttmálann. Flestir bjuggust
því við að línuívilnun yrði samþykkt strax og þing kæmi
saman 1. október og ekki síst þar sem forsætisráðherra
hafði gefið afar greinargóð svör um það á fundi á Ísafirði
22. apríl. Hann „sagði línuívilnun dagróðrarbáta koma til framkvæmda í
haust ef allt gengi eftir enda hafi hún verið samþykkt á nýafstöðnum
landsfundi Sjálfstæðisflokksins og hann vissi ekki til þess að aðrir flokkar
hefðu sett sig á móti þessari tillögu.“ (RÚV 23. apríl.)
Óvænt útspil sjávarútvegsráðherra varð til þess að málið tók skyndilega
aðra stefnu. Hann lýsti því yfir að hann hygðist afnema byggðakvótann og
koma á línuívilnun í staðinn. Formaður Framsóknarflokksins sagði hug-
myndir um afnám byggðakvóta ekki hafa verið bornar undir ríkisstjórn
og sagði að aldrei hefði verið rætt um þann möguleika að afnema
byggðakvótann. Það stendur í stjórnarsáttmála að það eigi að athuga
möguleika á því að auka hann. (Fréttab. 10. júlí.)
Fylgismenn línuívilnunar sáu þá að það var ekki ætlun sjávarútvegs-
ráðherra að koma á línuívilnun í haust eins og lofað var. Viðtal við hann
birtist á sunnudag í Morgunblaðinu og hann sagði: „Ég hef ekkert svik-
ið.“ Því miður var ekki rætt um ábyrgð hans gagnvart þeim málflutningi
sem sumir flokksbræðra hans sögðu að hefði trúlega tryggt meirihluta
stjórnarflokkanna. Er það miður að ráðherrann hafi ekki verið spurður
um slíkt, þar sem kveðið er skýrt á um málefnið í stjórnarsáttmálanum.
Mál hafa nú þróast svo að Elding – félag smábátaeigenda á norð-
anverðum Vestfjörðum – hefur haft forystu um að efna til fundar um
málefnið á Ísafirði eins og áður hefur komið fram.
Yfirskrift fundarins er: „Orð skulu standa.“
Þar skýra væntanlega þingmenn ríkisstjórnarflokkanna afstöðu sína
gagnvart útspili sjávarútvegsráðherra. Þeir lofuðu en hann ekki. Ef þeir
efna þá svíkur hstv. sjávarútvegsráðherra heldur engan. Hann væri að
framfylgja samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Hvað það er sem
rekur sjávarútvegsráðherra inn á þessa hliðargötu skal ósagt látið en
það er von mín að hann komi aftur inn á aðalgötuna og fylgi henni í
þessu máli svo samþykkt Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnar sem hann
er aðili að nái fram að ganga.
Munu orð standa?
Eftir Örn Pálsson
Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamband smábátaeigenda.
SKÓLASTARF, bæði almennt og
sérhæft, er afar mikilvægt frá þjóð-
félagslegu sjónarmiði. Það skiptir
miklu máli fyrir nem-
endur, aðstandendur
þeirra og samfélagið
allt að hæfileikaríkir
og metnaðarfullir
einstaklingar veljist
til kennarastarfa.
Það skiptir einnig
miklu máli að þeir sem stunda upp-
eldis- og kennslustörf kunni til verka
svo að nám nemenda þeirra verði ár-
angursríkt, þeir fái markvissan
stuðning á þroskaferli sínum og öðl-
ist menntun sem nýtist bæði þeim
sjálfum og þjóðfélaginu í heild. Ef til
vill skiptir þó mestu að þeir sem
leggja kennslu og uppeldi fyrir sig og
mennta sig til slíkra starfa líti aldrei
svo á að þeir séu fullnuma. Fagvitund
og fagmennska eru ekki síst í því
fólgin að halda áfram að læra í starfi
af eigin reynslu og annarra. Til þess
að svo megi verða þurfa kennarar að
hafa fræðilega afstöðu til starfsins, til
eigin þekkingar og viðhorfa.
Skuldbundin fagstétt
Kennaramenntun ber að ætla stór-
an og vaxandi hlut í breyttu sam-
félagi þar sem öflun og miðlun þekk-
ingar mun skipta sköpum fyrir
möguleika einstaklinga og sam-
félagsins í heild. Hugtökin kennari
og kennsla hafa öðlast nýtt umfang
og inntak í þekkingarsamfélaginu
þar sem nám fer fram bæði utan
skólastofnana og innan þeirra. Því
má ekki gleyma að störf kennara eru
í raun undirstaða þróunar nútíma-
samfélagsins.
Kennsla, uppeldi og umönnun eru
siðferðilega skuldbundin störf sem
byggjast ekki einungis á mikilli
þekkingu og tæknilegri færni heldur
einnig á samskiptum við annað fólk,
virðingu og umhyggju fyrir nem-
endum, hvort sem í hlut eiga börn,
unglingar eða fullorðnir. Þeir sem
taka að sér það samfélagslega hlut-
verk að kenna öðrum, miðla þekk-
ingu og gildum og laða fram þá hæfi-
leika sem hverjum og einum eru í
blóð bornir eru, eða ættu að vera,
skuldbundin fagstétt í besta skilningi
þess orðs.
Kennarar eru sérfræðingar
Þjóðfélagið þarf að meta að verð-
leikum þá sem mennta sig til og taka
að sér að sinna þessum mikilvægu
störfum. Kennarar eru sérfræðingar
hver á sínu sviði. Það verður að skapa
þeim slík kjör að störfin verði eft-
irsóknarverð og að gott fólk haldist
við í starfi. Það verður einnig að veita
þeim nægjanlegt svigrúm og búa
þeim aðstæður sem nauðsynlegar
eru til þess að þeir geti unnið störf
sín vel og náð árangri.
Kennarar vinna við nýsköpun, úr-
vinnslu og miðlun þekkingar á fjöl-
mörgum sviðum. Þeir þurfa að þjálf-
ast í meðferð ritaðs og talaðs máls, í
beitingu upplýsingatækni og í mann-
legum samskiptum. Þeir vinna skipu-
lega að því að afmarka og skilgreina
fjölbreytileg verkefni, setja raunhæf
markmið, vinna að framkvæmd
þeirra á vettvangi og meta hvernig til
hefur tekist. Þeir verða vissulega að
geta unnið með öðrum, en líka að
bera ábyrgð á eigin verkum gagnvart
skjólstæðingum og aðstandendum
þeirra, samstarfsfólki og samfélag-
inu í heild.
Kröfurnar eru miklar
Þau störf sem hér um ræðir verða
ekki unnin í einrúmi svo vel fari. Þau
krefjast teymisvinnu einstaklinga
sem hafa sameiginlega sýn á við-
fangsefnið og samanlagt nægjanlega
þekkingu og færni til að leysa hvert
verkefni farsællega og á árangurs-
ríkan hátt. Hver einstaklingur sem
þessum störfum sinnir þarf að hafa
yfirsýn og þekkingu sem nauðsynleg
er til að sjá viðfangsefnið í samfélags-
legu samhengi en líka kunnáttu og
innsýn á afmörkuðu sviði, sem nefna
má sérfræði. Þannig er kennaranum
kleift að takast á við einstök við-
fangsefni á sérfræðilegan hátt. Þessi
sérfræði geta t.d. tengst aldri nem-
enda, félagslegri stöðu, líkamlegu og
andlegu atgervi, kennslugrein eða
tæknilegum lausnum af ólíku tagi.
Viðfangsefni kennara er svo yf-
irgripsmikið og flókið að enginn ein-
staklingur getur haft nægjanlega
þekkingu eða færni til að takast á við
öll þau fjölbreytilegu tilvik sem upp
koma og krefjast lausnar.
Sjálfsskoðun og ígrundun
Undirbúningur fyrir svo fjölþætt
störf krefst mikillar og góðrar undir-
stöðumenntunar, bæði almennrar og
sérhæfðrar. Umfram allt er mik-
ilvægt að menntunin sé fræðileg í
besta skilningi þess orðs. Höfuðmáli
skiptir tóm til ígrundunar og gagn-
rýni. Og gagnrýnin má ekki einungis
beinast út á við. Hún verður líka að
ná til kennarans sjálfs í formi sjálfs-
skoðunar og ígrundunar. Það eru
gagnvirk tengsl iðju og ígrundunar,
athafna og kenninga, rannsókna og
framkvæmda, sem eru lykillinn að
menntunarferlinu – leiðarljós í kenn-
aramenntun.
Lengra kennaranám
Við Íslendingar höfum ekki lagt
sama metnað og aðrar þjóðir í kenn-
aramenntun. Langflestar Evr-
ópuþjóðir hafa skipulagt kenn-
aramenntun sem fjögurra til fimm
ára háskólanám og nokkrar sem sex
ára nám. Finnar, sem við lítum
gjarnan til þegar rætt er um náms-
árangur í skólum og þróun nútíma
rannsókna- og þekkingarsamfélags,
gerðu fyrstir Evrópuþjóða árið 1979
kröfu um meistarapróf fyrir kennara
eftir fimm til fimm og hálfs árs há-
skólanám. Er hugsanlegt að merki-
legur árangur Finna á fjölmörgum
sviðum sé að verulegu leyti að þakka
meiri og betri kennaramenntun? Við
eigum að sjálfsögðu að setja markið
hátt. Kennarar eru fagstétt sem
sinnir mikilvægu og flóknu verkefni í
nútímasamfélagi. Það eru engin rök
fyrir því að þeim nægi mun styttra
nám en öðrum fagstéttum, svo sem
lögfræðingum, hjúkrunarfræðingum,
viðskiptafræðingum eða prestum.
Það er tímabært að hefja á nýjan
leik alvarlega umræðu um lengingu
kennaranáms á Íslandi.
Kennaranám í þágu þekkingarsamfélags
Eftir Ólaf Proppé
Höfundur er rektor
Kennaraháskóla Íslands.
Umferðaröryggi í Hafnarfirði
Umferðarmál verða í sér-
stökum brennidepli í Hafnarfirði
nú í september-
mánuði, en um-
ferðarvika stendur
þá yfir. Við fram-
setningu sér-
stakrar umferð-
arviku, sem nú er
haldin í sjöunda
sinn, er það von
þeirra sem að þessu verkefni
koma að bæjarbúar verði varir
við og geti nýtt sér þær upplýs-
ingar sem liggja frammi.
Áætlun til framtíðar
Dómsmálaráðherra hefur á ári
hverju óskað eftir því við sveit-
arfélögin að gerð yrði grein fyrir
framkvæmdaáætlun eða tillögum
sem leiði til aukins umferðarör-
yggis. Markmiðið er að fækka al-
varlegum umferðarslysum hér á
landi. Margir þættir tengjast
þessu markmiði, s.s. umferð-
arfræðsla, ástand ökutækja,
vegakerfið, umhverfisþættir o.fl.
Mikilvægi upplýsingastarfs er
aldrei vanmetið sem þáttur í að
hafa áhrif á vegfarendur þannig
að þeir öðlist rétt viðhorf og sýni
rétta hegðun í umferðinni. Veg-
farendur gegna mismunandi hlut-
verkum í umferðinni og þess
vegna þarf að koma á framfæri
upplýsingum sem henta hverjum
hópi. Hafnarfjarðarbær reynir í
umferðarvikunni að ná til sem
flestra hópa og miðla fjölbreyti-
legum upplýsingum.
Hjóla- og gönguleiðir
áhugamál margra
Mikilvægt er í almennum upp-
lýsinga- og fræðsluþætti að ná til
yngstu vegfarendanna. Umferð-
arráð, lögreglan og skólarnir
hafa sinnt þessu verkefni af alúð
sl. áratugi. Samstarfsverkefni
innan skólanna hafa mörg hver
gengið afar vel eftir þar sem t.d.
er hugað að göngu- og hjólaleið-
um barna. Niðurstöður slíkra
verkefna ættu að henta vel sem
grunnur að góðu upplýsingaefni
fyrir börn og foreldra. Reynslan
er sú að það er stækkandi hópur
sem vill huga sérstaklega að
göngu- og hjólreiðafólki bæði í
fræðsluefni og í skipulagsmálum.
Vonandi tekst sveitarfélögunum
hér á höfuðborgarsvæðinu að
setja tengingar á milli svæða
fram með þeim hætti að fyllsta
öryggis sé gætt hvað varðar
aukningu í umferð gangandi og
hjólandi. Sveitarstjórnarfólk og
þingmenn eru áhugasamir um
þessi mál jafnt sem fjölmargir
aðrir.
Sá þáttur sem er hvað viða-
mestur í umferðaröryggismálum
er beinar umferðarörygg-
isaðgerðir sem oftar en ekki eru
endurhönnun og breytingar á
umferðarmannvirkjum. Í Hafn-
arfirði hefur á undanförnum ára-
Umferðarmál – allra hagur
Eftir Gunnar Svavarsson