Morgunblaðið - 12.09.2003, Side 50

Morgunblaðið - 12.09.2003, Side 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Mánafoss, Skógafoss og Poseidon fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sunna kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa kl. 13–16.30 opin smíðastofa. Bingó spil- að 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9– 12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 vefnaður og frjálst að spila í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun og hár- greiðslustofan opin, kl. 14 söngstund. kl. 9– 16.30 púttvöllurinn op- inn. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Bingó spilað síðasta föstudag í mánuði. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mynd- list o.fl., kl. 9.30 gönguhópur, frjálst, kl. 14 almenn spila- mennska. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. brids kl. 13, billjard kl 13.30. Púttkeppni á Hrafn- istuvelli, keppt verður við Púttklúbb Hrafn- istu, mæting kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Opið hús, vetrardagskráin kynnt frá kl. 14–16 í Ásgarði, Glæsibæ í endur- bættum húsakynnum. Nýtt í félagsstarfi. Skemmtiatriði, harm- onikkuleikur, söngur o.fl. S. 588 2111. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur op- inn, s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 13.15 brids, kl. 20.30 félagsvist. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 almenn handavinna, útskurður, baðþjón- usta, fótaaðgerð og hárgreiðsla. Hvassaleiti 58–60. Kl. 14.30 föstudagskaffi. Hársnyrting. Fótaað- gerðir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrýdans, kl. 13.30 sungið við flygilinn við undirleik Sigurbjargar Petru Hólmgríms- dóttur. Dansað í kaffitímanum við lagaval Halldóru, pönnukökur með rjóma, allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morgun- stund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi al- menn, kl. 12.30 leir- mótun, kl. 13.30 bingó. FEBK. Brids spilað kl. 13.15 í Gjábakka. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laug- ardögum. Félag kennara á eft- irlaunum heldur skemmti- og fræðslu- fund í Húnabúð, Skeif- unni 11, laugardaginn 13. september klukkan 13.30. Á dagskrá verður fé- lagsvist, veislukaffi og Óli Kr. Jónsson segir frá norrænu móti kennara sem haldið var á Íslandi í júní síð- astliðnum. Minningarkort Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl. 10–15. Sími 568-8620. Bréfas. 568-8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu endurhæf- ingardeildar Landspít- alans í Kópavogi (fyrr- verandi Kópavogs- hæli), síma 560-2700, og skrifstofu Styrktar- félags vangefinna, s. 551-5941, gegn heim- sendingu gíróseðils. Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, eru afgreidd í síma 551-7868 á skrif- stofutíma og í öllum helstu apótekum. Gíró- og kreditkorta- greiðslur. Í dag er föstudagur 12. septem- ber, 255. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Sá sem trúir á mig, – frá hjarta hans munu renna lækir lif- andi vatns, eins og ritningin segir. (Jh. 7, 38.) Svanborg Sigmars-dóttir skrifar pistil á Kreml.is og fjallar um gagnrýni á að íslenzk stjórnvöld skuli hafa tek- ið á móti Luo Gang, ein- um af foringjum kín- verska Kommúnista- flokksins. Svanborg bendir á að ýmsir hafi hneykslazt á framferði stjórnvalda, mótmælt því að Luo Gan skuli yfirhöfuð vera á Ís- landi og gagnrýnt að ráðamenn skuli hafa tal- að við manninn og meira að segja boðið honum í mat. Nefnir hún sér- staklega pistil, sem Illugi Jökulsson flutti í Íslandi í bítið.     Ef við viljum virkilegastyðja mannréttinda- baráttu í Kína er það ekki rétta leiðin að loka land- inu fyrir kínverskum ráðamönnum,“ segir Svanborg. „Ef það væri gert hefðu samtök eins og Amnesty ekki jafngóð tækifæri til að hafa í frammi sýnileg mótmæli, baráttufólk mannrétt- indamála ætti erfiðara með að lýsa andúð sinni á framferði kínverskra stjórnvalda í heimalandi sínu og færri tækifæri væru til þess að vekja at- hygli almennings á mann- réttindabrotum sem eru framin í löndum eins og Kína. Heldur Illugi kannski að þorri almenn- ings væri meðvitaður um stöðu Falun Gong- meðlima í Kína ef ekki hefði komið til opinberr- ar heimsóknar forseta Kína í fyrra og umfjöll- unar fjölmiðla af því til- efni?     En heimsókn Luo Gangefur ekki bara til- efni til mótmæla – hún gefur einnig íslenskum stjórnvöldum, a.m.k. þeim aðilum sem fengu að tala við manninn, tæki- færi til samræðna og í gegn um þær möguleika á að sýna kínverskum stjórnvöldum að hægt sé að halda uppi lögum og reglu án mannréttinda- brota. Slíkt mistókst reyndar í fyrra, þar sem íslensk yfirvöld gengu gegn tjáningarfrelsi á Ís- landi til að þóknast „ör- yggiskröfum“ kínverska forsetans og því var nú tilvalið tækifæri að reyna að bæta skaðann sem þá varð. Ef það er sér- staklega haft í huga hvaða stöðu Luo Gan hef- ur í Kína, sem yfirmaður öryggis- og löggæslu- mála, á að bjóða mann- inum sem oftast til að sýna honum hvernig stað- ið er að löggæslumálum án misþyrminga og pynt- inga. Ef kínverskum ráða- mönnum er haldið í fíla- beinsturni í sínu heima- landi læra þeir lítið á reynslu og þekkingu ann- arra þjóða – þeirra þjóða sem við teljum skara fram úr í virðingu mann- réttinda. Í sínum fíla- beinsturni mun hugs- unarháttur þeirra lítið breytast og því mun lítið þokast áfram í mannrétt- indabaráttu Kínverja. Því segi ég bjóðum Luo Gan aftur heim að ári – og öll- um hans vinum.“ STAKSTEINAR Bjóðum Luo Gan sem oftast Víkverji skrifar... VÍKVERJA finnst óborganlegt aðHeilbrigðiseftirlitið í Hafnarfirði og Kópavogi skuli hafa viljað banna dagmömmu að gæta barna í íbúð á þriðju hæð í blokk, á þeim for- sendum að slysahætta fylgdi því að vera með börn í húsnæði þar sem að- koma væri um stigagang. Úrskurð- arnefnd í kærumáli dagmömmunnar á hendur stofnuninni komst að þeirri niðurstöðu að ekkert væri því til fyr- irstöðu að dagmamman fengi starfs- leyfi. Nefndin fann ekkert í reglum, sem kvað á um að húsnæði með stig- um væri óviðunandi vegna öryggis barna. Það er líka eins gott, vegna for- dæmisgildisins. Ef niðurstaðan hefði verið sú að taka undir með Heil- brigðiseftirlitinu hefði allt barnafólk í blokkum líklega orðið að flytja og kaupa sér einbýlishús á einni hæð, þar sem stigar ógna ekki öryggi barnanna. Unga fólkið í gömlu timb- urhúsunum með bröttu stigunum hefði líka orðið að selja og flytja í hættulausar íbúðir á jarðhæð. Sennilega hefði verið í lagi að geyma gamla fólkið í blokkunum, en það er spurning hvort það hefði mátt passa barnabörnin. LEIKSKÓLINN, þar sem dóttirVíkverja dvelur í góðu yfirlæti á meðan foreldrar hennar eru í vinnunni, er rekinn í gömlu fjölbýlis- húsi. Þar eru allbrattir stigar, en Víkverji hefur enn ekki heyrt af því að neinn hafi slasað sig alvarlega þar, enda er brýnt fyrir smáfólkinu að halda sér í handriðið og hlaupa ekki. En ef einhver dytti nú og meiddi sig – myndi Heilbrigðiseft- irlitið þá loka leikskólanum? Þessi vitleysa í Heilbrigðiseftirlit- inu er gott dæmi um að góðviljuð forsjárhyggja stjórnvalda gengur stundum út í algerar öfgar. x x x VÍKVERJI er með miklu verðugraverkefni fyrir Heilbrigðiseft- irlitið í Hafnarfirði og Kópavogi. Það er að gera útlæga kvenskó með háum hælum. Að undanförnu hefur Víkverji nokkrum sinnum frétt af því – og jafnvel orðið vitni að því sjálfur – að virðulegar frúr hrynji í gólfið eða götuna er alltof háir pinnahælarnir brotna undan skón- um þeirra. Þarna er ljóslega um miklu nærtækari slysahættu að ræða en vegna stiga í fjölbýlishúsum og ólíkt stigunum gera háu hælarnir ekkert gagn (stigarnir spara land- rými, því að þeir gera fólki kleift að byggja á mörgum hæðum) heldur eru bara upp á punt. Það mætti jafn- vel fara fram á það við Evrópusam- bandið að það gæfi út tilskipun um leyfilega hæð skóhæla í Hafnarfirði og Kópavogi og jafnframt um styrk- leikaprófanir og staðlaðan frágang á hælum, sem væru innan hæð- armarkanna. Morgunblaðið/Golli Eru hús á mörgum hæðum hættu- leg börnum? Dýrt í strætó MIG langaði bara að koma því á framfæri hversu dýrt mér finnst að borga í stræt- isvagna. Ég er einstæð tveggja barna móðir í Garðabænum og bý frekar langt frá skóla barnanna. Það myndi taka þau ca 40 mín. að ganga heim og þess vegna taka þau strætó þeg- ar ég kemst ekki að ná í þau. Það kostar samtals 440 kr. fyrir þessar 7 mínútur sem þau eru í strætó. Það er auðvitað ódýrara að kaupa miða en samt of dýrt að mínu mati. Krakkarnir frá Álftanesi fá fría strætó- miða og það er örugglega svipað langt að fara og heim til okkar. Einnig, til að leggja áherslu á orð mín, vildi ég sýna að það kostar mig 8.800 bara í strætókostnað á mánuði ef börnin mín tækju strætó aðeins heim eftir skóla. Með von um að þetta eigi eftir að breytast. Ásta. Animal Planet MIG langar að benda á þann dónaskap sem Norð- urljós sýna áskrifendum sínum þessa dagana. Ég hef frá því Stöð 2 var stofnuð verið áskrifandi og núna sl. tvö ár verið með fjölvarpið eingöngu. Hef notið þess að geta horft á Animal Planet ásamt öðr- um góðum stöðvum sem í boði eru. En hvað gera þeir svo ekki hjá Stöð 2? Bæta inn efni fyrir M12 áskrifendur og taka það út á kostnað þeirra sem eru með fjöl- varpið og endurvarpa því á rás Animal Planet. Bestu þættirnir eru á kvöldin á Animal Planet þ.e. frá 18–23. Eins hitt að við borgum fullt gjald fyrir Fjölvarpið en missum þar 6 klst. Og t.d. eru 3 tónlistar- stöðvar. Af hverju ekki að minnka eitthvað á einhverri þeirra? Ég varð svo hissa að ég átti ekki til orð yfir þessum dónaskap, að loka rásinni frá kl. 18:00 til þess eins að endurtaka það sem hefur verið fyrir um kvöldið á Stöð 2! En verði þeim að góðu. Ég sagði upp áskriftinni eftir öll þessi ár og fékk mér Breiðbandið. Kveðja, Anna. Hraðahindranir á Ægissíðu HRAÐI bifreiða eftir Æg- issíðu er æðislegur, iðulega keyrt á 80–90 km hraða. Það er því algjör nauðsyn að leggja þar hraðahindr- anir, einkanlega á kaflan- um frá Hofsvallagötu að Suðurgötu, til að tryggja öryggi fyrir gangandi veg- farendur. Á þeim kafla er gatan notuð sem hraðakst- ursbraut. Páll G. Hannesson, íbúi við Ægissíðu. Tapað/fundið Karlmannsreiðhjól týndist SVART Trek-karlmanns- reiðhjól fyrir fullorðinn með rauðum stöfum var tekið úr bakgarði við Haga- sel í Seljahverfi laugar- dagskvöldið 23. ágúst sl. ásamt öðru hjóli. Þeir sem hafa séð eða orðið varir við þetta hjól eru beðnir um að hafa samband í síma 587 2312 eða 840 5384 (Sig- urður). Barnareiðhjól í óskilum RAUÐBRÚNT barnahjól er í óskilum á Select í Hraunbæ 102. Upplýsingar í síma 847-7374. Telpnareiðhjól í óskilum LJÓSGRÆNT telpnareið- hjól er í óskilum í Ásenda. Hjólið er búið að vera þarna lengi. Upplýsingar í síma 553-3646. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar LÁRÉTT 1 vanga, 4 útlimir, 7 rödd, 8 sóum, 9 rölt, 11 kögur, 13 kveina, 14 sorg, 15 boli, 17 storms, 20 lík, 22 rödd, 23 auðum, 24 ákveð, 25 deila. LÓÐRÉTT 1 litið, 2 fiskinn, 3 virða, 4 ágeng, 5 oft, 6 baula, 10 stirðleiki, 12 spor, 13 bókstafur, 15 þurrka, 16 trylltur, 18 snákum, 19 setja saman, 20 bylur, 21 borðandi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 skítmenni, 8 teppa, 9 rupla, 10 nei, 11 mussa, 13 runni, 15 svöng, 18 strák, 21 lúi, 22 gaufa, 23 nagar, 24 samtvinna. Lóðrétt: 2 kopps, 3 trana, 4 eyrir, 5 næpan, 6 átum, 7 hani, 12 son, 14 urt, 15 soga, 16 ötula, 17 glatt, 18 sinni, 19 regin, 20 kort. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.