Morgunblaðið - 21.09.2003, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 37
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert nútímaleg/ur og
kannt að meta fegurð. Einn-
ig laðast þú að ráðgátum,
spennu og undarlegum
uppákomum. Þetta gæti orð-
ið eitt besta ár lífs þíns.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til fé-
lagslífs, sérstaklega til að
leika sér við börn. Sköp-
unargleðin er mikil í dag og
rétt að veita henni útrás.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Upplagt er að verja deginum
í hlýjum faðmi fjölskyldunnar
eða einn heima fyrir í þínum
einkaheimi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta er dagurinn til að taka
það rólega, njóta þess að tala
við börnin, félaga eða ná-
granna. Þú ert með spaugs-
yrði á vörum í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt njóta þess að fara í
búðir í dag og gætir fundið
eitthvað fallegt eða listrænt
fyrir einhvern í fjölskyldunni
eða heimilið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í merki þínu í dag
og það veitir þér aukinn
kraft. Þú munt njóta þess að
tala við alla, sem þú hittir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þrátt fyrir afstöðu stjarn-
anna væri rétt að hvíla sig í
dag og ná andanum. Ekki er
hægt að verða við öllum kröf-
um, sem lagðar eru á herðar
þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samtöl við vini og hópa munu
ganga mjög vel í dag. Nóg er
af góðum tilfinningum og þú
ættir að nota tækifæri til að
koma öðrum til hjálpar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Samtöl við foreldra og yf-
irboðara munu ganga vel í
dag. Það væri skynsamlegt
að heimsækja foreldrana og
jafnvel einhvern annan, sem
þú berð virðingu fyrir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert í essinu þínu í dag og
það er gott vegna þess að
meira verður tekið eftir þér
en venjulega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Líklegt er að einhver muni
veita þér aðstoð eða gefa þér
gjöf í dag. Ef það gerist er
réttara að þiggja því að dóna-
legt væri að hafna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Umræður um ferðlög, æðri
menntun og útgáfudrauma
ganga vel í dag. Ekki vera
hræddur við að segja góðum
vini leyndarmál. Það mun
borga sig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er kraftur í þér í dag og
þú vilt skipuleggja þig betur.
Ekki ganga of langt, en nýttu
tækifærið til að láta til skarar
skríða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KVEÐIÐ Á SANDI
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima.
Nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
Kristján Jónsson.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 21.
september, er áttræð Hel-
ena Sigtryggsdóttir, lengst
af húsmóðir á Siglufirði en
nú búsett í Kópavogi. Eig-
inmaður hennar var Jóhann
G. Möller en hann lést árið
1997. Helena tekur á móti
ættingjum og vinum á Mar-
bakkabraut 32 í Kópavogi
frá kl. 18 í kvöld.
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 21.
september, er sextugur
Ólafur S. Guðmundsson,
pípulagningameistari, Urð-
arbakka 36, Reykjavík.
Eiginkona hans er Sig-
urbjörg Smith. Þau eru
stödd erlendis.
Alls staðar þar sem minnst
er á Howard Schenken
(1905-1979) í bridsbókum er
þess getið í framhjáhlaupi
að hann hafi sennilega verið
besti spilari allra tíma.
Bobby Wolff segir um
Schenken:
„Hann spilaði öllum öðr-
um betur; svo vel, að and-
stæðingunum fannst þeir sí-
fellt vera að spila af sér.“
Þetta er eitt af meist-
arastykkjum Schenkens.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 6532
♥ ÁK95
♦ G72
♣K9
Vestur Austur
♠ KDG108 ♠ 9
♥ 32 ♥ DG1086
♦ 95 ♦ KD103
♣G743 ♣652
Suður
♠ Á74
♥ 74
♦ Á864
♣ÁD108
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf
Pass 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspilið var spaðakóngur.
Schenken dúkkaði fyrsta
spaðann, en drap þann
næsta þegar austur henti
hjarta. Útlitið var ekki beys-
ið, því jafnvel þótt laufið
gæfi fjóra slagi sáust ekki
nema átta. Og einhvern veg-
inn varð að særa fram þann
níunda án þess að vestur
kæmist inn. Lausin fólst í
sögnunum. Af hverju strögl-
aði vestur ekki á einum
spaða með svo góðan lit?
Hann átti greinilega ekkert
annað og því ákvað Schen-
ken að spila strax tígli að
blindum. Hann lét sjöuna úr
borði og austur drap með
tíu.
Austur skipti yfir í hjarta-
drottningu, sem Schenken
drap og spilaði tígulgosa og
dúkkaði drottningu austurs.
Þegar nían kom úr vestrinu
var slagur kominn á tígul-
áttu með svíningu. Þá var
það laufið. Austur spilaði
aftur hjarta á blindan og
Schenken svínaði tíguláttu
og tók ásinn. Vestur var í
vanda og henti spöðum í
tíglana tvo. Schenken þurfti
þá ekkert að velta fyrir sér
laufgosanum heldur spilaði
spaða og fríaði níunda slag-
inn á spaðahund.
AV gerðu ekkert af sér,
en eins og Wolff réttilega
bendir á:
Þeir hafa ábyggilega
haldið að þetta væri allt
þeim að kenna.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4.
Rgf3 cxd4 5. Rxd4 Rc6 6.
Rxc6 bxc6 7. Bd3 Rf6 8. O-O
Dc7 9. c4 Bd6 10. h3 O-O 11.
Dc2 dxe4 12. Bxe4 Rxe4 13.
Rxe4 Be7 14. c5 e5 15. f4 Bf5
16. Be3 Hab8 17. Had1 Hfe8
18. Rf6+ Bxf6 19. Dxf5
Hxb2 20. Hd7 Da5 21. De4
Dxa2 22. Dxc6 Hf8 23. fxe5
Bxe5 24. He7 Hb1 25. Hexf7
Hxf1+ 26. Hxf1
Staðan kom upp á al-
þjóðlegu móti sem fram fór í
Egyptalandi fyrir
stuttu. Spartak Vy-
sochin (2560) hafði
svart gegn Esam Aly
Ahmed (2403).
26...Bh2+! vinnur
skiptamun og
nokkru síðar skák-
ina. 27. Kxh2 Hxf1
28. Dd7 Hf7 29. Dd4
De6 30. Bf4 h6 31.
Da4 Hf6 32. Bg3 a6
33. Bd6 De2 34.
Db3+ Kh7 35. Db1+
Hg6 36. Bg3 De3 37.
Bd6 De2 38. Bg3 h5
39. Db7 Dd3 40. Bd6
a5 41. Da8 Hg5 42. De8 Dd5
43. De2 a4 44. Dc2+ Hg6
45. h4 a3 46. Bg3 a2 47. Db2
Ha6 og hvítur gafst upp. Í
Ráðhúsi Reykjavíkur munu
skákkonur í Taflfélaginu
Helli gera tilraun til að bæta
Norðurlandamet í kvenna-
fjöltefli. Allar konur eru
hvattar til að mæta og taka
þátt í þessum einstaka við-
burði sem hefst kl. 14. Skák-
félagið Hrókurinn efnir til
mikils barnaskákmóts sem
fram fer í Broadway í dag.
Nánari upplýsingar um
mótið er að finna á hrok-
urinn.is.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 3. október og
laugardaginn 4. október í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol þann 1. október í 3 vik-
ur. Nú getur þú notið skemmtilegasta
tíma ársins á þessum vinsælasta áfanga-
stað Íslendinga í sólinni og búið við frá-
bæran aðbúnað. Þú bókar núna, og
pantar tvö sæti, en greiðir aðeins fyrir
eitt og þú getur valið um úrvalsgististaði á meðan á dvölinni stendur.
Á Costa del Sol er að finna besta veðurfar í Evrópu og hér er auðvelt
að njóta lífsins
við frábæran
aðbúnað.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 1. okt., 3 vikur.
Almennt verð kr. 52.450
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Verð kr. 39.963
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960
Verð kr. 19.950
Flugsæti til Costa del Sol, 1. okt. með
sköttum. 2 fyrir 1.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
24. sept. – 9 sæti
1. okt. – 21 sæti
3 vikur til
Costa del Sol
1. október
frá kr. 19.950
Vissir þú...
að hér á landi er starfandi
vandaður sálarrannsóknarskóli?
• Vissir þú að hérlendis er starfræktur vandaður sálarrann-
sóknarskóli eitt kvöld í viku sem venjulegt fólk á öllum aldri
sækir til að fræðast um flestöll dulræn mál og líkurnar á lífi
eftir dauðann sem og hvar framliðnir eru og hvers konar
þjóðfélag er þar að öllum líkindum?
• Og vissir þú að í þessum skóla eru vandaðir fyrirlestrar um
allt sem vitað er um skyggnigáfuna, draugagang, fyrirboða,
orkubrautir líkamans, líkamninga að handan, svipi framlið-
inna, álfa og huldufólk, geimverur, berdreymi, árur líkam-
ans, ásókn, um guðlegar sýnir, ásamt öllum hinum fjölda-
mörgu rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið á þessum
merkilegu hlutum í dag en alltof fáir vita yfirleitt um?
• Og vissir þú að sálarrannsóknir Vesturlanda eru líklega ein
af örfáum ef ekki eina fræðilega og vísindalega leiðin sem
svarar mörgum ef ekki flestum grundvallarspurningum
okkar í dag um mögulegan sem og líklegan tilgang lífsins
hér í heimi, sem venjulegt fólk langar alltaf að vita meira
um?
Ef þú vissir það ekki, þá er svo sannarlega tími kominn til að
lyfta sér upp eitt kvöld í viku í skóla sem hefur hófleg skóla-
gjöld og fræðast um flestar hliðar þessara mála.
Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um
skemmtilegasta skólann í bænum í dag.
Svarað er í síma skólans alla daga frá kl. 13 til 19.
Sálarrannsóknarskólinn
- skemmtilegasti skólinn í bænum
Síðumúla 31 • s. 588 6060
Það er vel þekkt, að ekki
henta merkingar ýmissa
orða vel í ákveðnu um-
hverfi og stundum alls
ekki. Þó verða þau með
góðum vilja ekki misskil-
in. Þetta datt mér í hug,
þegar ég fyrir nokkru las
frásögn af hörmulegu
slysi, þar sem var ekki
náð í þann lækni, sem
stytzt var til. Þá var í
einni blaðafregn talað um,
að samband hefði verið
haft við vitlausan lækni,
því að annar hefði verið
nær vettvangi. Í öðru
blaði var hins vegar talað
um rangan lækni í þessu
tilviki, og það hefur auð-
vitað þótt eðlilegra mál á
þeim bæ. Hér hefði svo í
þriðja lagi e. t. v. mátt tala
um réttan lækni og það
verið alveg hlutlaus frá-
sögn. Fáum dögum síðar
varð bílvelta norður í
landi. Þá orðaði blaðamað-
urinn það svo, að bíllinn
hefði farið marga hringi
niður brekkuna, áður en
hann stanzaði undir rof-
barði. Ég staldraði við no.
hringur í frásögninni,
enda á ég von á, að ein-
hverjir hafi gert hið sama.
Þegar bifreið á í hlut eða
eitthvert annað farartæki,
er talað um, að hún hafi
oltið og farið svo og svo
margar veltur í brekk-
unni, en ekki hringi, þótt
enginn geti vissulega mis-
skilið, við hvað var átt.
Þessi dæmi sýna okkur
mjög vel, að ekki er sama
hvaða orð við notum í
ofangreindum setningum,
þótt allt skiljist að lokum.
Engum dettur í hug, að
náð hafi verið í „vitlausan“
lækni, þótt hann hafi verið
of langt sóttur á slysstað.
En hér átti lo. vitlaus eng-
an veginn heima. Við
hringjum stundum í vit-
laust símanúmer og jafn-
vel vitlausan mann, þegar
við ætluðum að hringja í
annað númer og annan
mann. Hér er þetta ein-
ungis ábending um það,
að menn verða að velta
orðunum fyrir sér, svo að
þeir noti ekki „vitlaus“
orð í frásögn sinni, heldur
rétt orð eða rétta merk-
ingu orðs. – J.A.J. jaj-
@simnet.is
ORÐABÓKIN
Tvíræð orð