Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 267. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Grandvar efa-
hyggjumaður
John Maxwell Coetzee fær bók-
menntaverðlaun Nóbels | Listir 31
Betur sjá
augu en auga
Samvinna landsliðsþjálfaranna
Ásgeirs og Loga | Íþróttir 54
Minning
meistara
Johnny Cash heiðraður á minn-
ingartónleikum | Fólk 61
VATN er öllum mönnum bráð-
nauðsynlegt og ekki verður deilt
um ágæti þess. Sumir virðast þó
reiðubúnir til að greiða það
hærra verði en aðrir, a.m.k. ef
marka má eftirsóknina eftir fötu
af kranavatni sem nú er hægt að
bjóða í á uppboðsvefnum
ebay.com.
Seljandinn kallar sig „fötu-
manninn“ og að um „dásamlega
fötu af kranavatni frá Bristol“ sé
að ræða en Bristol er borg í Vest-
ur-Englandi. „Þetta er einstakt
tækifæri fyrir alla vatnssafnara
sem fýsir að fjárfesta í einhverju
fersku og svalandi,“ segir í vöru-
kynningu á www.ebay.com. „Nota
má vatnið til að svala þorstanum,
til þrifa eða til skreytingar,“ segir
þar ennfremur.
Tólf höfðu boðið í vatnsfötuna
kl. tíu í gærmorgun og hljóðaði
hæsta boð upp á 117 sterlings-
pund, um fimmtán þúsund íslensk-
ar krónur. Uppboðinu lýkur rétt
fyrir miðnætti næsta mánudag.
„Fötumaðurinn“ segir að gróði
vegna sölunnar á þessum forláta
grip, ef svo má að orði komast,
verði látinn renna til Oxfam-
hjálparsamtakanna en þau að-
stoða við leit að vatni í Suður-
Súdan „þar sem menn eiga ekki
dropa af vatni, hvað þá heila fötu
af því“. Sá galli er hins vegar á
gjöf Njarðar fyrir kaupandann að
vatnsfötuna verður hann að sækja
á heimili „fötumanns“ í Bristol.
Fata af kranavatni boðin upp
Bristol. AFP.
SÚ fullyrðing Norður-Kóreumanna að þeir
hafi lokið endurvinnslu á kjarnorkueldsneyt-
isstöngum er „alvarlegt áhyggjuefni“, sagði
Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í gær. Í yfirlýsingu frá n-kóreska utan-
ríkisráðuneytinu í gær sagði, að lokið væri
endurvinnslu á átta þúsund notuðum elds-
neytisstöngum, og hefði þannig fengist nægt
plúton í um það bil sex kjarnorkusprengjur.
„Þetta er í þriðja sinn sem þeir hafa sagst
hafa lokið endurvinnslu á stöngunum,“ sagði
Powell á fréttamannafundi. „Við höfum enga
staðfestingu á því. Því segja þeir enn einu
sinni að þeir hafi endurunnið stangirnar. Ég
tel þetta vera alvarlegt áhyggjuefni fyrir al-
þjóðasamfélagið,“ sagði Powell.
Aðstoðarutanríkisráðherra N-Kóreu,
Choe Su-hon, tjáði kínversku fréttastofunni
Xinhua að n-kóreskum stjórnvöldum væri
nauðugur einn kostur þar sem Bandaríkja-
menn hefðu hótað þeim beitingu kjarna-
vopna. Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC,
er þetta í fyrsta sinn sem N-Kóreumenn gefa
svo afdráttarlausa yfirlýsingu opinberlega.
Colin Powell ræðir við fréttamenn í gær.
„Alvarlegt
áhyggjuefni“
Washington. AFP.
VOPNASÉRFRÆÐINGUR bandarísku
leyniþjónustunnar (CIA), David Kay, sagði í
gær, að engin gereyðingarvopn hefðu enn
fundist í Írak, en „umtalsverðar vísbending-
ar“ væru um að Írakar hefðu haft í hyggju að
framleiða efna- og lífefnavopn. Kay stjórnar
rannsóknarhópi er sendur var til Íraks eftir
að Saddam Hussein var hrakinn frá völdum.
Kay lét í gær bandaríska þingmenn fá
frumskýrslu um framgang leitarinnar. CIA
hafði áður greint frá því, að Kay myndi ekki
leggja fram afgerandi vísbendingar um að
gereyðingarvopn væri að finna í Írak. Donald
Rumsfeld varnarmálaráðherra ítrekaði að
skýrsla Kays væri „til bráðabirgða“, og að
rannsóknarhópurinn ætti enn mikið óunnið.
Engin vopn
fundin í Írak
Washington. AFP, AP.
♦ ♦ ♦
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í
stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi, að vonir
stæðu til að Landssími Íslands hf. yrði seldur á
þessu kjörtímabili. Hann sagði að reynslan hefði
sýnt að frestun á sölu Símans hefði verið skyn-
samleg. „Aðstæður fjarskiptafyrirtækja á fjár-
málamarkaði hafa nú breyst til betri vegar og
standa vonir til að Landssíminn hf. verði seldur
á þessu kjörtímabili.“
Forsætisráðherra vék einnig að hrefnuveið-
um Íslendinga í vísindaskyni, en þeim lauk í lok
september. „Upphaf hvalveiða í vísindaskyni
fékk minni andbyr erlendis en spáð var,“ sagði
hann. „Málið er þó mjög viðkvæmt og nauðsyn-
legt að sýna varfærni og tillitssemi þegar næsta
skref vísindaveiðanna verður stigið.“
Þá fjallaði ráðherra um fyrirhugaðar breyt-
ingar á lögum um stjórn fiskveiða. Hann sagði
að unnið yrði að breytingum á lögunum svo
hægt verði að hrinda í framkvæmd upptöku
veiðileyfagjalds 1. september 2004. „Þá verður
unnið að breytingum á lögum um stjórn fisk-
veiða svo hægt verði að taka upp línuívilnun á
næsta ári.“
Í eðlilegum farvegi
Davíð fór einnig yfir stöðu varnarmála og
samskiptin við Bandaríkin. „Eftir bréfaskipti
milli mín og forseta Bandaríkjanna, viðræður
við öryggisráðgjafa hans og beina íhlutun forset-
ans sjálfs eru varnarmálin í eðlilegum farvegi á
ný. Það þýðir að þau verða leyst sameiginlega en
ekki afgreidd einhliða sem hefði eyðilagt grund-
völl varnarsamningsins.“
Að auki minntist ráðherra á að um síðustu
áramót hefði hann lagt til að skipuð yrði nefnd
er samkomulag stjórnarflokkanna að hinn 15.
september 2004 taki hæstvirtur utanríkisráð-
herra við embætti forsætisráðherra og utanrík-
isráðuneyti og umhverfisráðuneyti flytjist á for-
ræði Sjálfstæðisflokksins. Og nú, þegar ég hef
lokið flutningi sautjándu stefnuræðu minnar frá
vordögum 1991, er því ljóst, að þetta verður síð-
asta stefnuræða mín, í þessum áfanga.“
allra flokka til að fjalla „á faglegan hátt um
veigamikil álitaefni sem snerta Evrópumálin“.
Hann sagði að ekki hefði tekist að koma nefnd-
inni á fót fyrir kosningar en nú væri stefnt að
stofnun hennar. „Nefndinni verður einkum ætl-
að það að skýra og skerpa umræðuna, greina að-
alatriði málsins og helstu staðreyndir þess.“
Undir lok stefnuræðunnar vék Davíð Odds-
son að því að ræðan væri síðasta stefnuræða sín
„í þessum áfanga“, eins og hann orðaði það. „Það
Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti síðustu stefnuræðuna „í þessum áfanga“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöldi.
Vonast til að Síminn verði
seldur á kjörtímabilinu
Hagstjórn…/32
KAFARAR í sprengjudeild Land-
helgisgæslunnar hafa fundið tvær
djúpsjávarsprengjur út af Hliðsnesi
á Álftanesi. Verða þær gerðar óvirk-
ar í dag og samkvæmt upplýsingum
frá Landhelgisgæslunni má búast
við að hávær hvellur heyrist í
grennd. Almenningi er sögð engin
hætta búin en lögreglumenn gengu í
hús næst staðnum og báðu menn að
dvelja ekki sjávarmegin í húsunum.
Talið er að sprengjurnar eigi ræt-
ur að rekja til sprengjuflugvélar af
gerðinni Lockheed Hudson, sem
hrapaði í sjóinn á þessu svæði á
stríðsárunum með þeim afleiðingum
að allir um borð fórust. Voru
sprengjurnar notaðar til að ráðast á
kafbáta óvinaþjóða. Kafarar Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins fundu tor-
kennilegan hlut á svæðinu við æfing-
ar á þriðjudag. Höfðu þeir samband
við sprengjudeild Landhelgisgæsl-
unnar í kjölfarið.
Verða færðar frá byggðinni
Í hvorri sprengju eru 215 kíló af
efninu torpex en það er mun kraft-
meira en TNT og jafnast allt þetta
efni á við eitt tonn af dýnamíti,
samkvæmt upplýsingum Gæslunnar.
„Vandinn sem sprengjusérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar standa
frammi fyrir er nálægð við íbúa-
byggð, staðsetning sprengnanna á
grunnsævi og hversu viðkvæmur
kveikibúnaðurinn er. Ef sprengjurn-
ar væru ekki svo nálægt íbúabyggð
væri hægt að eyða þeim þar sem
þær eru nú. Hugmyndin er hins veg-
ar að færa þær lengra í burtu frá
byggð áður en þær verða sprengd-
ar,“ sagði Dagmar Sigurðardóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar.
Sprengjur fundust við Álftanes