Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR
54 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, hefur ekki gefið upp vonina um að
lið hans hampi Evrópumeistaratitlinum
næsta vor þrátt fyrir óvænt tap fyrir tyrk-
neska liðinu Beskitas á heimavelli í fyrra-
kvöld. „Það er allt opið upp á gátt í riðlinum
þar sem Lazio og Sparta Prag skildu jöfn,“
segir Ranieri en sveinar hans halda til Rómar
í næsta mánuði þar sem þeir eiga í höggi við
Lazio. Ranieri segir mjög mikilvægt fyrir lið
sitt að það komist á sigurbraut á ný og vinni
Middlesbrough í úrvalsdeildinni á sunnudag.
„Sá leikur verður virkileg prófraun á liðið
og þar reynir á hvernig það bregst við eftir
ósigur. Ég er bjartsýnn enda veit ég hvað í
liði mínu býr. Það er mikill karakter í hópn-
um og ég held að hann eigi eftir að skipta
sköpum í leiknum við Middlesbrough. Við
getum dregið ýmiss konar lærdóm af þessum
leik á móti Besiktas.“
Óvíst er hvort miðjumaðurinnöflugi, Michael Ballack, getur
leikið með Þjóðverjum þegar þeir
taka á móti Íslendingum í undan-
keppni EM í Hamborg 11. þessa
mánaðar en Ballack varð fyrir
ökklameiðslum í leik Bayern Münc-
hen og Anderlecht í Meistaradeild-
inni í vikunni.
Rudi Völler, landsliðsþjálfari
Þjóðverja, valdi í gær þá 18 leik-
menn sem mæta Íslendingum og
Ballack í þeim hópi en Völler heldur
í vonina um að Ballack verði búinn
að ná sér. Þýski hópurinn er mjög
svipaður og í leiknum á móti Íslend-
ingum á Laugardalsvelli í síðasta
mánuði. Sebastian Deisler sem var í
byrjunarliðinu í þeim leik er ekki í
hópnum að þessu sinni vegna
meiðsla og kemur Fabian Ernst,
miðjumaður hjá Werder Bremen, í
hans stað. Þá kemur Oliver Nauville
inn í hópinn að nýju en hann var ekki
með í síðasta leik Þjóðverja – sig-
urleiknum á móti Skotum.
Landsliðshópurinn sem Völler
teflir fram er þannig skipaður:
Markverðir:
Oliver Kahn, (Bayern), Jens Leh-
mann, (Arsenal).
Varnarmenn:
Frank Baumann (Werder Brem-
en), Arne Friedrich (Hertha Berlin),
Michael Hartmann, (Hertha Berlin),
Andreas Hinkel (Stuttgart), Marko
Rehmer (Hertha Berlin), Christian
Worns (Borussia Dortmund).
Miðjumenn: Michael Ballack
(Bayern München), Fabian Ernst
(Werder Bremen), Sebastian Kehl
(Borussia Dortmund), Christian
Rahn (Hamburg), Carsten Ramelow
(Bayer Leverkusen), Bernd Schnei-
der (Bayer Leverkusen).
Framherjar: Fredi Bobic (Hertha
Berlin), Miroslav Klose (Kaiserslau-
tern), Kevin Kuranyi (Stuttgart),
Oliver Neuville (Bayer Leverkusen).
Þjóðverjar sakna margra sterkra
leikmanna sem eru frá vegna
meiðsla, sumir hafa verið lengi frá
en aðrir skemur. Þetta eru leikmenn
eins og Dietmar Hamann, Christian
Ziege, Torsten Frings, Jörg Böhme,
Paul Frier, Jens Jeremies, Sebast-
ian Deisler og Jens Nowotny.
Ballack ekki með?
HADNDKNATTLEIKUR
Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin:
Selfoss: Selfoss – ÍR..............................19.15
Víkin: Víkingur – Afturelding ..............19.15
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin:
Framhús: Fram – Stjarnan.......................20
Hlíðarendi: Valur – FH..............................20
KA-heimili: KA/Þór – ÍBV ........................20
Liðin mætast aftur á Húsavík kl. 14 á
morgun, laugardag.
Í KVÖLD
GLEN Rice fyrrverandi körfu-
knattleiksmaður með Miami Heat,
Charlotte, Lakers, Knicks og nú síð-
ast Houston Rockets er enn og aftur
að pakka föggum sínum niður því
hann mun leika með Utah Jazz í vet-
ur. John Amaechi fer í staðinn frá
Jazz til Rockets og að auki samdi
Rockets við Jim Jackson sem á líkt og
Rice langa ferðasögu að baki, en hann
lék m.a. með Dallas, New Jersey,
76’ers, Portland, Hawks, Cleveland,
Heat og Sacramento.
ENSKI landsliðsmaðurinn Steven
Gerrard segir í gær við enska fjöl-
miðla að allar líkur séu á því að hann
semji á ný við Liverpool, en núgild-
andi samningur hans rennur ekki út
fyrr en árið 2005. Gerard Houllier
knattspyrnustjóri liðsins segir að
þetta séu góðar fregnir fyrir félagið
og hann vonist til þess að Gerrard láti
meira að sér kveða á næstu tveimur
til þremur árum og verði þá á meðal
bestu leikmanna heims.
Á aðalfundi enska úrvalsdeildar-
liðsins Arsenal í gær sagði stærsti
hluthafi félagsins Danny Fiszman að
félagið myndi halda sínu striki í áætl-
unum sínum um byggingu nýs heima-
vallar, Ashburton Grove, þrátt fyrir
að enn vanti töluvert fé til þess að ráð-
ast í framkvæmdina. Fiszman bætti
því við að ekki kæmi til greina að fé-
lagið myndi leika heimaleiki sína á
nýja Wembley vellinum sem verið er
að reisa í Lundúnum en hafist yrði
handa við framkvæmdir á Ashburton
Grove á fyrsta ársfjórðungi næsta
árs. Fjárhagsáætlun Arsenal gerir
ráð fyrir að nýr völlur muni kosta um
52 milljarða kr.
TIMO Hildebrand markvörður
þýska liðsins Stuttgart sem lagði
Man. United að velli, 2:1, í Meistara-
deild Evrópu segir við Sky-sjónvarps-
stöðina að Cristiano Ronaldo hafi lát-
ið sig falla í vítateig liðsins í þeim
tilgangi að fiska vítaspyrnu í stöðunni
2:0. Hildebrand segir að vissulega
hafi hann snert Ronaldo í viðureign
þeirra við mark Stuttgart en bætir
því við sú snerting hefði ekki dugað til
þess að fella Ronaldo. Ruud van Nist-
elrooy skoraði úr vítaspyrnunni.
FERÐASAFN til minningar um
frábæran knattspyrnuferil Diego
Maradona, fyrrverandi fyrirliða
heimsmeistara Argentínu í HM í
Mexíkó 1986, hefur verið opnað í höf-
uðborginni Buenos Aires. Á safninu
eru ýmsir munir, myndir og mynd-
bönd, sem sýna flesta eftirminnileg-
ustu leiki sem Maradona, 42 ára, tók
þátt í – sem leikmaður í Argentínu,
með Barcelona og Napolí.
MARADONA var á Kúbu þegar
safnið var opnað á mivikudaginn. Það
verður í Buenos Aires til 15. nóvem-
ber, en þá verður haldið með það vítt
og breitt um Argentínu.
FÓLK
Logi fer til Noregs til að sjáframherjana Tryggva Guð-
mundsson og Ríkharð Daðason í
leik, en þeir eru aft-
ur komnir á ferðina
eftir meiðsli. Ásgeir
mun ræða við
Brynjar Björn
Gunnarsson, leikmann Nottingham
Forest, í Englandi og þá hittars
Logi og Ásgeir í Gautaborg á
mánudaginn, til að sjá leik IFK
Gautaborgar og Hammarby. Það
mætast tveir varnarmenn í lands-
liðshópnum, Hjálmar Jónsson og
Pétur Hafliði Marteinsson.
Log og Ásgeir koma síðan á ný til
landsins á þriðjudag og daginn eftir
halda þeir til Hamborgar, þar sem
landsliðshópurinn kemur saman
síðdegis miðvikudaginn 8. október
til að undirbúa sig fyrir rimmuna
miklu gegn Þjóðverjum.
Kallaði á krafta Loga
Það vakti þónokkra athygli, eftir
að Ásgeir var ráðinn þjálfari lands-
liðsins í maí, að hann kallaði á
krafta Loga Ólafssonar, fyrrver-
andi landsliðsþjálfara, til að fá hann
til að vinna með sér við erfitt verk-
efni – að byggja upp sjálfstraust í
landsliðshópnum eftir að á móti
hafði blásið. Atli Eðvaldsson sagði
starfi sínu lausu og Ásgeir tók við.
Ásgeir segir að hann hafi kallað á
krafta Loga af þeirri einföldu
ástæðu að hann sé maður sem gott
sé að umgangast og vinna með.
„Logi er frábær félagi, sem hefur
yfir miklum húmor að ráða. Hann
er mjög reyndur þjálfari sem á auð-
velt með að ná til leikmanna – fá þá
á sitt band, bæði með léttleika og
festu.
Þegar unnið er með Loga gerir
maður sér fyllilega grein fyrir því
hvað hann er snjall þjálfari sem
hefur lagt mikið á sig til að styrkja
sig í starfi. Hann hefur stjórnað
Víkingi og ÍA til sigurs á Íslands-
móti og starfað sem þjálfari í Nor-
egi. Þar kynntist hann hvernig
Norðmenn hafa byggt upp sína
knattspyrnu en þar eiga leikmenn
helst ekki að leika knettinum frjálst
á milli sín, heldur vinna eftir
ákveðnu leikskipulagi. Logi hefur
víkkað sjóndeildarhring sinn á fag-
mannlegan hátt og hann er mjög
næmur að flokka frá atriði sem við
þurfum ekkert á að halda í okkar
uppbyggingu. Logi hefur afar
næmt auga fyrir því að halda sig við
kjarna málsins.“
Hvernig tók Logi – fyrrverandi
landsliðsþjálfari – þér, þegar þú
gekkst á hans fund og óskaðir eftir
kröftum hans?
„Logi tók mér og mínum hug-
myndum vel og við ræddum málin.
Ég var ekki að ræða við Loga í
fyrsta skipti – ég hef þekkt hann
síðan við lékum saman í unglinga-
landsliðinu. Hann kom til Þýska-
lands þegar ég lék þar með Stutt-
gart og kynnti sér þjálfun. Við
settumst niður og ég sagði honum
frá hugmyndum mínum að vinna
saman með landsliðið sem samherj-
ar – við erum báðir þjálfarar liðs-
ins, ekki að Ásgeir sé þjálfari lands-
liðsins, Logi aðstoðarmaður hans.
Ég sagði við Loga að hann hefði
miklu meiri reynslu við þjálfun en
ég. Ég hef aftur á móti reynslu sem
atvinnuknattspyrnumaður í Evr-
ópu, sem leikmaður í Belgíu og
Þýskalandi – af knattspyrnu og
ýmsu sem er að gerast í kringum
íþróttina.
Eftir að við höfðum rætt saman
fundum við að hugmyndir okkar
áttu samleið.
Logi er mjög snjall þjálfari sem
kemur hugmyndum okkar betur til
skila til leikmanna á æfingum en
ég. Við ræðum um leikinn, leik-
menn okkar og annað, en Logi
stjórnar æfingum. Ég fylgist með
og fæ þá tækifæri til að sjá ýmsa
hluti hjá leikmönnum sem Logi sér
ekki. Ég er þeirrar skoðunar að það
sé mjög gott að tveir menn vinni
saman með lið, því að betur sjá
augu en auga þegar í mörg horn er
að líta,“ sagði Ásgeir, sem sagði að
hann hefði verið mjög ánægður
þegar Logi ákvað að slá til. „Það er
mikill styrkur fyrir íslenska knatt-
spyrnu og landsliðið að hann leggur
krafta sína í að þjálfa liðið.“
Var látinn fara
Logi var landsliðsþjálfari Íslands
frá ársbyrjun 1996 til júníloka 1997.
Þá var honum sagt upp störfum og
Guðjón Þórðarson leysti hann af
hólmi. Logi tók þá við Skagamönn-
um og þjálfaði þá 1998 og 1999 og
síðan FH 2000 og 2001. Á síðasta
ári var hann aðstoðarþjálfari Lille-
ström í Noregi. Logi hafði m.a.
þetta að segja við Morgunblaðið
þegar tilkynnt var að hann væri
orðinn landsliðsþjálfari með Ás-
geiri.
„Við Ásgeir munum vinna mjög
náið saman með liðið og reynum að
bæta hvor annan upp.“
Logi taldi sig mun betur í stakk
búinn til að fást við þjálfun lands-
liðsins en þegar hann stýrði því á
sínum tíma. „Ég hef fengist við
þjálfun allar götur síðan og fengið
reynslu af því að vinna erlendis með
atvinnumönnum. Ég kvaddi lands-
liðið á sínum tíma á annan hátt en
ég hafði áhuga á og þykir því mjög
vænt um að fá tækifæri til að koma
að því á nýjan leik,“ sagði Logi.
Eins og fyrr segir þá hafa þeir
Ásgeir og Logi náð mjög góðum ár-
angri með landsliðið – þjappað
landsliðshópnum, sem er til alls lík-
legur, saman. Næsta verkefnið er í
Hamborg.
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa náð að rífa landsliðið í
knattspyrnu upp úr öldudal og framundan er stórleikur í Hamborg
Betur
sjá augu
en auga
ÞAÐ verður mikið að gera hjá
Ásgeiri Sigurvinssyni og Loga
Ólafssyni, landsliðsþjálfurum í
knattspyrnu, næstu dagana –
fyrir hinn þýðingarmikla úrslita-
leik gegn Þjóðverjum í Evrópu-
keppni landsliða sem fer fram í
Hamborg eftir rúma viku – laug-
ardaginn 11. október. Þeir fé-
lagar, sem hafa náð að rífa
landsliðið upp úr öldudal sem
það var komið í, hafa stjórnað
landsliðinu í þremur sigur-
leikjum í röð og jafnteflisleik
gegn Þjóðverjum á Laugardals-
vellinum sem vakti mikla athygli
víða um heim og verða á ferð og
flugi næstu dagana til að fylgj-
ast með leikmönnum sínum í
Noregi, Englandi og Svíþjóð.
Eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
KNATTSPYRNUSAMBAND Íslands hefur
fengið óskir frá enska úrvalsdeildarliðinu
Charlton um að Hermann Hreiðarsson
verði ekki í landsliðshópi Íslands sem mæt-
ir Þýskalandi í Hamborg 11. október. For-
ráðamenn liðsins segja að Hermann sé
ekki búinn að ná sér eftir meiðsli og hann
hafi lítið getað æft með knött og þess
vegna sé hann ekki tilbúinn að leika lands-
leikinn í Hamborg. „Hermann kemur til
Hamborgar. Við munum láta lækni okkar
og sjúkraþjálfara kanna ástand hans. Það
eru þeir sem segja hvort Hermann sé
tilbúinn í slaginn eða ekki,“ sagði Ásgeir
Sigurvinsson landsliðsþjálfari.
Ef Hermann er ekki klár í slaginn er
hann fjórði leikmaðurinn sem lék gegn
Þjóðverjum á Laugardalsvellinum sem
verður ekki með í Hamborg. Heiðar
Helguson og Lárus Orri Sigurðsson eru
meiddir, Jóhannes Karl Guðjónsson er í
leikbanni.
Charlton vill
ekki sleppa
Hermanni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hermann Hreiðarsson og Oliver
Kahn, markvörður Þýskalands.
BANDARÍKIN slógu Noreg út í átta liða úr-
slitum í heimsmeistarakeppni kvenna í fyrri-
nótt með 1:0 sigri. Um leið varð ljóst að
norsku stúlkurnar fá ekki tækifæri til að
verja Ólympíumeistaratitilinn í Aþenu á
næsta ári þar sem þær náðu ekki að tryggja
sér keppnisrétt þar.
Tvö Ólympíusæti standa Evrópuþjóðum til
boða á HM og nú er ljóst að það verða Svíþjóð
og annaðhvort Þýskaland eða Rússland sem
hreppa þau.
Bandaríska liðið hafði talsverða yfirburði
gegn því norska en þó skildi aðeins eitt mark,
sem Abby Wambach skoraði á 20. mínútu,
þau að. Hún skoraði með hörkuskalla eftir
aukaspyrnu en hún hafði átt svipaðan skalla í
þverslána strax á fimmtu mínútu leiksins.
Bandaríkin leika við Þýskaland eða Rúss-
land í undanúrslitum en sá leikur hófst um
það leyti sem blaðið fór í prentun í nótt.
Þær norsku
ekki til Aþenu
Ranieri er
bjartsýnn