Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 21 www.dalecarnegie.is R Ú N A sími 555 7080 Vilt þú auka söluna um 38%? *Um 2.500 Dale Carnegie þjálfarar eru starfandi í 90 löndum í dag. Átta vikna söluþjálfun Dale Carnegie byggir á verklegum æfingum og skilar áþreifanlegum árangri. Ármann Rafn Úlfarsson hjá Vélasölunni náði 38% söluaukningu á meðan á þjálfuninni stóð og hefur haldið henni síðan. Á meðal fjölda ánægðra viðskiptavina eru Síminn, Skýrr, 66°N o.fl. Þjálfunin skilar þátttakendum: Betri yfirsýn yfir sölutækifæri Skipulagi við sókn á markaðinn Betri nýtingu á tíma og fjárfestingu Skilvirku spurningaferli Tækni til að sigrast á mótbárum Öryggi í framkomu Fleiri árangursríkum söluheimsóknum AUKINNI SÖLU ! ! ! Stjórnandi þjálfunarinnar er Thor Ólafsson sem hefur víðtæka reynslu af sölustjórnun á Íslandi og var nýlega valinn einn af 10 bestu Dale Carnegie þjálfurum heims á árinu 2002.* Næsta söluþjálfun hefst 13. október. BORGARRÁÐ hefur samþykkt með fjórum samhljóða atkvæðum að eig- anda hússins í Heiðargerði 76 verði veittur 50 daga frestur til að fjar- lægja viðbyggingu af húsinu, sem byggð var í óleyfi árið 2000 að mati borgaryfirvalda. Verði húseigandinn ekki við þessum fyrirmælum verður hann beittur 50 þúsund króna dag- sektum. Í bréfi lögfræðings húseigandans til borgarstjóra kemur fram að hús- eigandinn telur ekki að um óleyfis- byggingu sé að ræða, þar sem skipu- lags- og byggingaryfirvöld borgarinnar hafi ekki gætt lög- mætra skilyrða við útgáfu bygging- arleyfis vegna viðbyggingarinnar á sínum tíma. Þá segir húseigandinn að fyrir liggi vilyrði frá fyrrverandi formanni skipulagsnefndar um að ekki verði óskað eftir niðurrifi á við- byggingunni á meðan unnið sé að deiliskipulagi Heiðargerðisreits. Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hafi einnig sagt á fundi með húseiganda og syni hans að veittur yrði 6 mánaða frestur, ef krafist yrði niðurrifs. Lögfræðingur húseigandans telur fjárhæð dagsekta fáheyrða miðað við ekki meiri hagsmuni. „Reykjavíkur- borg er hér að eiga við ellilífeyris- þega, sem hafa verið búsettir í Reykjavík frá fæðingu, í máli, þar sem skipulags- og byggingaryfirvöld borgarinnar fóru ekki að lögum við veitingu byggingarleyfis vegna hinna umdeildu framkvæmda,“ segir jafnframt í bréfi lögfræðings húseig- andans til borgarstjóra. Endurskoða þarf deiliskipulag til að leyfa bygginguna Fulltrúi borgarlögmanns telur hins vegar að á grundvelli dómsnið- urstöðu Hæstaréttar sé eiganda hússins skylt að fjarlægja umrædda viðbyggingu án kostnaðarþátttöku borgaryfirvalda. Hann sagðist jafn- framt telja að til þess að leyfa við- bygginguna væri nauðsynlegt að yf- irfara deiliskipulagstillögu fyrir Heiðargerðisreitinn, enda þurfi að auka svokallað nýtingarhlutfall lóð- arinnar til þess að viðbyggingin verði lögleg. Enda segi í dómi Hæstaréttar að næstu nágrannar húseigandans hefðu mátt treysta því að ekki yrði ráðist í frekari stækkun hússins án þess að unnið yrði að deiliskipulagi þar sem tekið yrði tillit til byggðamynsturs svæðisins. Óleyfisbygging í Heiðargerði Fær 50 daga frest til að rífa viðbygginguna Hafnarfirði | Borgarráð hefur samþykkt að Orkuveita Reykjavíkur kaupi hlut Hafnarfjarðarbæjar í fyr- irtækinu, en hlutur Hafnarfjarðar var tæplega 1% í OR. Söluverðið á þessum 1% hlut Hafnfirðinga er rúmar 346 milljónir króna, en ákvörðun kaupverðs tók mið af samningi Orkuveitunnar og Garða- bæjar um kaup á eignarhlut bæj- arins fyrir tæpu ári síðan. Sam- kvæmt samningnum við Hafnarfjarðarbæ verður þriðjungur kaupverðsins greiddur út strax en eftirstöðvarnar verða greiddar með þremur greiðslum næstu þrjú árin. OR kaupir hlut Hafnarfjarðar Miðbæ | Íbyggnar sitja ungu stúlkurnar þrjár á bekk við Lækj- argötuna í miðbæ Reykjavíkur og njóta haustblíðunnar milli anna í skólanum. Framtíðin er þeirra og vafalaust munu þær í fyllingu tímans feta í fótspor fjórðu stúlk- unnar, sem stendur á stalli að baki og huggar barn sitt blíð- lega. Morgunblaðið/Ásdís Þrjár á bekk og ein á stalli Bessastöðum | Ungur fálki birtist í gær í heimsókn á Bessastöðum, fuglaáhugamönnum til ánægju en öðrum fuglum á svæðinu var lítt skemmt. Fálkinn tyllti sér niður á túnið við Bessastaði rétt neðan við kirkjuna og sat þar hinn rólegasti og fylgdist vel með bæði fugla- og mannlífinu, að sögn fuglaáhugamanna sem fylgdust grannt með athæfi fálk- ans. Eftir nokkra stund flaug hann upp og stakk sér að gæsahóp og smáfuglum, en tókst ekki að ná sér í bráð. Þá flaug hann í stórum boga yfir bæinn og lenti að því loknu við Skógtjörn. Þaðan hóf hann sig á loft á ný og lauk heimsókn sinni til Bessastaða, a.m.k. í þetta skiptið. Að sögn þeirra sem sáu fuglinn var skemmtilegt að fylgjast með heim- sókn fálkans, sem virtist vel hald- inn og pattaralegur ungur fugl. Þegar hann flaug hringinn varð mikill óróleiki meðal annarra fugla á svæðinu, m.a. varð lóuhóp bylt við. Hópur margæsa sem var búinn að halda til á Skógtjörninni hefur ekki sést eftir heimsókn fálkans, líklega óvanar slíkum heimsóknum þar sem fálkar hafa hingað til verið fáséðir á þessum slóðum.    Fálki í heimsókn á Bessastöðum Seltjarnarnesi | ÁTVR hefur opnað nýja vínbúð á efri hæðinni á Eiðistorgi. Í tengslum við þessa opnum hefur gömlu vínbúðinni í kjallara Eiðistorgs verið lokað en þar hefur hún verið síðan árið 1989. Í tilefni opnunarinnar var gest- um boðið í morgunmat og hélt Ívar J. Arndal forstjóri tölu um tildrög þess- ara breytinga. Málverk eftir Tolla prýða veggi vínbúðarinnar, en hann mun sýna list sína í völdum vínbúðum ÁTVR næsta árið. Unnið er að því að breyta útliti allra vín- búða ÁTVR og á því að vera lokið árið 2005. Nýja verslunin á Eiðistorgi er með nýja útlitinu og þar verður boðið upp á um 900 tegundir af víni og bjór. Verslunarstjóri er Einar Benediktsson og er búðin opin kl. 11–18 virka daga nema föstudaga, þá er hún opin til kl. 20. Á laugardögum er opið kl. 11–16. Vínbúð í nýju húsnæði á Eiðistorgi Hafnarfirði | Íslensk-þýsk göngu- messa verður haldin sunnudaginn 5. október í Hafnarfirði, þegar gengið verður eftir göngukrossi frá nýja minnismerkinu um fyrstu lútersku kirkjuna við Hafnarfjarðarhöfn að Hafnarfjarðarkirkju, þar sem mess- unni verður fram haldið. Á göngunni verður staldrað við nokkra merkisstaði þar sem Jón- atan Garðarsson mun skýra frá sögulegum atburðum. Sr. Kristján Valur Ingólfs- son mun þýða það sem fram fer yfir á þýsku og ganga í fararbroddi ásamt sr. Gunnþóri Þ. Ingasyni sóknarpresti í Hafnarfjarðarkirkju. Göngumessan hefst kl. 10.30 við minnismerkið um fyrstu lútersku kirkjuna á Íslandi, sem þýskir kaup- menn reistu í Hafnarfirði árið 1533. Forsetar Íslands og Þýskalands af- hjúpuðu minnismerkið, sem er í got- neskum stíl, 1. júlí í sumar og Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands vígði. Alda Ingibergsdóttir syngur einsöng við minnismerkið, lesin verða valin ritningarorð og Jónatan Garðarsson mun rifja upp sögubrot frá fyrri tíð. Á leiðinni frá minnismerkinu verð- ur fyrst staldrað við fyrir sunnan fiskmarkaðinn við Cuxhavengötu, þar sem fyrsta lúterska kirkjan mun hafa staðið. Þaðan verður gengið að hinni gömlu Flensborg og einnig verður áð undir Skipahamri, þar sem Bjarni Sívertssen hóf skipasmíðar fyrir hartnær tveimur öldum. Að lokinni messu býður sóknarnefnd til kaffi í Hásölum. Fyrir 15 árum voru mynduð vinabæjatengsl milli Cuxhaven og Hafn- arfjarðar en rétt rúmlega 400 ár eru liðin frá því að að þýskir kaupmenn frá Hamborgarsvæðinu sigldu frá Hafnarfirði í síðasta sinn með haust- skipum árið 1603. Ári fyrr var einok- unarverslun komið á hér á landi, en umsvif þýsku kaupmannanna voru talsverð í Hafnarfirði og kirkjan sem þeir reistu mun hafa verið vegleg og smíðuð úr sérvöldum eikarviði. Hún var síðan rifin niður líkt og önnur ummerki um veru og verslun þýsku kaupmannanna í Firðinum. Íslensk-þýsk göngumessa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.