Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 43 ✝ Anna Jóna Guð-munda Betúels- dóttir fæddist í Görð- um í Aðalvík 14. desember 1924. Hún lést á Landspítala við Hringbraut 24. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Betúel Jón Betúelsson, bóndi í Görðum, og Krist- jana Benedikta Jós- efsdóttir, húsfreyja. Systkini Önnu eru Ingibjörg, f. 27. febr- úar 1926, Margrét, f. 14. maí 1928, d. 17. apríl 1999, Betúel, f. 6. júlí 1930, Sturla, f. 27. maí 1932, d. 4. ágúst 1997, og upp- eldisbróðir Jósef Markússon, f. 12. nóvember 1923. Anna giftist 13. desember 1947 eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorkeli Guðmundssyni, f. 30. sept- ember 1924, frá Litla-Hóli, Viðvík- urhreppi, Skagafirði. Dætur þeirra eru: 1) Erna Kristjana, f. 8. júní 1947. Maki Ágúst Guðmunds- son, f. 15. júlí 1944. Synir Ernu og Jóhanns Geirssonar eru Geir, f. 22. nóv. 1967, d. 2. apríl 1976; Geir Þór, f. 6. okt. 1977, d. 13. apríl 1992, og Arnar Þorkell, f. 25. febr- úar 1979. Sonur Arnars er Em- brek Snær. 2) Hildur, f. 30. sept. 1952. Maki Atli Við- ar Jónsson, f. 22. maí 1953. Börn þeirra: Anna Björk, f. 22. sept. 1979, sambýlis- maður Stefán Arn- alds; Þór Örn, f. 26. sept. 1982, og Hjalti Geir, f. 3. júní 1984. 3) Gerður, f. 27. mars 1957. Maki Torfi Em- il Kristjánsson, f. 11. júní 1955. Synir þeirra eru Kristján Emil, f. 20. febr. 1990, og Pétur, f. 8. sept. 1992. 4) Fann- ey, f. 8. febrúar 1959. Maki Haf- steinn Þór Hilmarsson, f. 21. jan. 1967. Dóttir Fanneyjar og Johns F. Jensen er Unnur, f. 21. sept. 1988. Anna gekk í barnaskólann á Sæ- bóli í Aðalvík. Hún fór sem ung stúlka til starfa á Ísafirði og þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún starfaði m.a. á Elliheimilinu Grund og við verslunarstörf. Auk heimilisstarfa og uppeldis dætra sinna vann hún á sama tíma í fjöl- mörg ár í frystihúsinu á Kirkju- sandi og síðustu starfsárin vann hún hjá Hollustuvernd ríkisins. Anna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Við viljum þakka elsku mömmu fyrir allt sem hún var okkur. Hún var besta móðir sem hægt var að hugsa sér, alltaf til staðar fyrir okk- ur. Við söknum hennar mjög mikið. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Góði Guð, veittu föður okkar styrk í sorginni. Dæturnar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nú þegar kallið er komið langar okkur að þakka Önnu tengdamóður okkar fyrir samfylgdina. Hugurinn reikar til baka og minningarnar streyma fram um okkar fyrstu kynni við hana og tengdaföður okk- ar, Þorkel Guðmundsson. Þessi samhentu sæmdarhjón tóku okkur opnum örmum þegar við komum inn í fjölskylduna og urðum við strax hluti af henni. Við tengdasynir Önnu kynntumst henni hver á sinn hátt. Það sem einkenndi hana framar öðru var hæfileiki til að eiga sam- skipti við fólk, að geta talað við hvern sem er um hvað sem er, sett sig inn í mál og rætt þau ofan í kjöl- inn. Það var því sannarlega ekki komið að tómum kofunum hjá henni. Við eigum ekkert nema góðar minningar um þessa glæsilegu og góðu konu. Anna var hnarreist, kvik á fæti, lífsglöð, hafði mikla ánægju af dansi og tónlist og mjög félagslynd. Áhugamálin voru hann- yrðir og gerð listrænna muna. Hún gætti þess vandlega að vera æv- inlega vel til höfð og naut þess að klæðast fallegum fötum. Við sjáum Önnu fyrir okkur hressa og glaða umkringda fjöl- skyldu sinni og vinum. Það voru hennar bestu stundir. Ekki var það nú verra ef líka var rætt um Að- alvík, en þar fæddist Anna og ólst upp. Hennar afstaða til lífsins mót- aðist af þessum tíma þar sem ekki var mikið um veraldleg gæði, held- ur horft til kærleikans, umburðar- lyndisins og heiðarleikans. Anna og Þorkell hafa verið mjög samhent um þessi gildi í hjónabandi sínu og í uppeldi dætra sinna. Þegar Anna var með dætrunum gekk hún um glöð og geislandi, þær rifjandi upp gamla atburði og mikið gátu þær hlegið innilega saman. Þessar stundir voru þeirra, sem ekki einu sinni við gátum truflað. Anna og Þorkell komu sér upp unaðsreit í Eilífsdal í Kjós þar sem dvalist var á sumrin við að yrkja landið. Þessi reitur ber þess fag- urlega merki í dag hvaða árangri er hægt að ná í sáningu í grýtta jörð þegar eljusemi og tilfinning fyrir lífi er fyrir hendi. Þegar fjölskyldan kom saman í Furugerði eða Eilífs- dal var alltaf mikil veisla og þess vel gætt að allir fengju nóg. Á sínum lífsferli hefur Anna ver- ið mjög heilsuhraust en fyrir um þremur mánuðum fór að bera á veikindum sem komu öllum í opna skjöldu og þótt glíman við meinið hafi verið erfið var mikil reisn yfir henni allan tímann. Á þessum erf- iða tíma hefur Þorkell sýnt mikinn styrk og vék varla frá Önnu. Hann dvaldi ásamt dætrum sínum við sjúkrabeð hennar síðustu vikurnar þar til yfir lauk. Anna vissi hvert stefndi og tók því af miklu æðruleysi, þakkaði árin sem hún hafði átt hér á jörðu, fyrir góða foreldra, eiginmann, dætur og fjölskyldu. Sérstakir þakkir bað hún fyrir til starfsfólks deildar 13 D Landspítala við Hringbraut fyrir góða umönnun og hlýhug í sinn garð. Við tökum undir þessar þakk- ir. Við viljum færa Önnu innilegar þakkir fyrir að hafa gefið okkur dætur sínar og þökkum henni fylgdina á lífsleiðinni. Við vitum að hún er nú umvafin ljósi og kærleika og biðjum góðan Guð að veita Þorkeli styrk og blessa minningu hennar. Tengdasynir. Við eigum góðar minningar um ömmu okkar. Hún hafði alltaf mikinn áhuga á að fá fréttir af okkur, hvað við vær- um að gera og hvernig gengi í skól- anum og í vinnunni. Þegar við komum í heimsókn til ömmu og afa tóku þau alltaf mjög vel á móti okkur. Við þökkum ömmu fyrir allt það góða sem hún gaf og við eigum eftir að sakna hennar sárt. Við kveðjum hana með bænunum sem hún kenndi mæðrum okkar og þær síð- an okkur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ókunnur.) Við biðjum Guð að blessa minn- ingu ömmu og hugga afa og styrkja. Barnabörnin. Nú er Anna frænka dáin. Eftir veikindi hennar síðustu vikur kem- ur það reyndar ekki á óvart, því vit- að var hvert stefndi. En samt er fréttin alltaf óvænt og óvægin þeg- ar hún berst. Við fráfall náins ættingja stöðv- ast manns eigin veröld um stund og framhjá streyma minningar um liðnar samverustundir. Anna var móðursystir mín og á mínum yngri árum var ég mikið á heimili hennar og Þorkels. Af mörgu er því að taka úr minningasjóðnum. Frá barn- æsku eru það öll skemmtilegu sumrin á Bakka, drekkutími við eldhúsborðið á Rauðalæknum, þar sem nýbakaðri, gómsætri hafra- mjölstertu og kaldri mjólk var úðað í sig. Seinna skemmtilegir og fræð- andi dagar í Aðalvík og á síðustu árum hangikjötsafmælisboðin í Furugerðinu. Anna frænka var kjarnakona ættuð úr Aðalvík og af Hornströnd- um. Það sem umfram allt einkenndi hana var glaðværð, bjartsýni og já- kvæði. Það var henni eðlislægt að reyna alltaf að gera gott úr öllu og sjá björtu hliðarnar í lífinu. Á kveðjustundu vil ég þakka minni kæru frænku þá umönnun og umhyggju sem hún sýndi mér alla tíð. Kæri Þorkell, kæru Erna, Hild- ur, Gerður og Fanney, tengdasynir og barnabörn. Ég sendi ykkur mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Birna Jóhannesdóttir. Anna Betúelsdóttir starfaði á rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins á árunum 1988–1994. Við fyrrum samstarfsmenn Önnu minn- umst hennar sem sérstaklega dug- legs og skemmtilegs samstarfs- félaga. Anna var ávallt létt í lund, viðræðugóð og með ákveðnar skoð- anir á þeim hlutum sem voru til umræðu hverju sinni. Þegar Anna hóf störf á rann- sóknastofunni hafði hún enga sér- staka menntun eða reynslu af rann- sóknastörfum. Á ótrúlega stuttum tíma tókst henni að ná ágætum tök- um á þeim störfum sem hún hafði umsjón með og var einnig fljót að aðlagast breytingum og nýjungum í starfsemi rannsóknastofunnar. Þó að nokkuð sé um liðið frá því að Anna hætti störfum á rann- sóknastofunni, hélt hún alltaf reglu- lega sambandi og mætti á flestar stærri hátíðarsamkomur þar sem starfsfólk rannsóknastofunnar og Hollustuverndar ríkisins kom sam- an. Síðast hittum við flest Önnu á jólahlaðborði stofnunarinnar á síð- asta ári. Þá var hún eins og ávallt hress og kát. Haft var á orði hversu glæsileg hún væri og að ekki væri að sjá að konan sem hætti störfum þegar hún náði sjötugsaldri hefði elst hið minnsta. Þannig viljum við samstarfsfólkið minnast Önnu Betúelsdóttur. Við sendum eiginmanni, börnum og öðrum aðstandendum Önnu okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Fyrrum vinnufélagar hjá rannsóknastofu Hollustuverndar ríkisins. ANNA J.G. BETÚELSDÓTTIR Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON frá Engey í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis á Hásteinsvegi 53, Vestmannaeyjum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þriðjudaginn 23. september, verður jarðsung- inn frá Landakirkju laugardaginn 4. október nk. kl. 14.00. Ægir Sigurðsson, Arnþór Sigurðsson, Guðlaug Björk Sigurðardóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, GUÐMUNDUR SVERRISSON frá Hvammi, Borgarbraut 65a, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju mánu- daginn 6. október kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið eða Sjúkrahús Akraness. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Indriði Valdimarsson, Sigríður Herdís Guðmundsdóttir, Sverrir Guðmundsson, Sigþrúður Margrét Þórðardóttir, Guðmundur Stefán Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRETAR BÍLDSFELLS GRÍMSSON, Syðri-Reykjum, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugar- daginn 4. október kl. 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landspítalann háskólasjúkrahús. Lára Jakobsdóttir, Grímur Þór Gretarsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigurður Ólafur Gretarsson, Selma S. Gunnarsdóttir, Guðmundur Hrafn Gretarsson, Þórey S. Þórisdóttir, Ingibjörg Ragnheiður Gretarsdóttir, Sigurgeir Guðjónsson, Dagný Rut Gretarsdóttir, Einar Guðmundsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARÐAR GUÐMUNDSSONAR, Fornhaga 11, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar V4 á hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða um- önnun síðasta æviárið. Kristrún Guðnadóttir, Guðni Harðarson, Helga Fagerer Harðarson, Grétar Hrafn Harðarson, Sigurlína Magnúsdóttir, Sverrir Harðarson, Salbjörg Óskarsdóttir, Sólrún Harðardóttir, Skúli Skúlason, Elva, Lilja, Styrmir, Björk og Arnheiður. Eiginmaður minn, ÞORSTEINN SIGURBJÖRN JÓNSSON frá Ólafsfirði, Bogahlíð 15, Reykjavík, er látinn. Hólmfríður Jakobsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.