Morgunblaðið - 03.10.2003, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VERÐ á slægðri ýsu á fiskmörkuðum
hefur fallið úr 185 krónum fyrir kílóið
í um 60 krónur frá vorvertíðinni 2002,
en verðið á fiskmörkuðunum í upphafi
vikunnar var 85 krónur á kíló. Lækk-
unin er fyrst og fremst rakin til meiri
ýsuveiði og aukins framboðs á kvóta.
Fisksalar segja að nokkur lækkun
hafi orðið á góðri ýsu út úr fiskbúðum
en benda jafnframt á að verð á ýsu í
stórmörkuðum hafi ekki lækkað og
þar sé verðið töluvert hærra en í fisk-
búðunum eða á bilinu 900 til 1.200
krónur. Fisksalarnir telja þó flestir að
salan á ýsunni hafi ekki aukist í takt
við lækkandi verð.
Ýsan oftar á tilboðsverði
Ýsa er oftar á tilboðsverði nú en áð-
ur en kílóverðið hefur annars ekki
lækkað mikið þrátt fyrir töluverða
lækkun á fiskmörkuðum, að sögn Ei-
ríks Auðunssonar í fiskbúðinni Vör en
hjá honum hefur ýsan lækkað um
15% frá því um áramótin og verðið á
flökum frá 499 til 899 krónur. Hann
bætir við að miklar sveiflur séu í fisk-
verði á mörkuðum, en ómögulegt sé
að fylgja þeim eftir daglega og betra
að halda verðinu stöðugu. „Þegar
verðið er lægra á mörkuðum er álagn-
ingin meiri hjá okkur en álagningin er
minni eftir því sem verðið er hærra á
mörkuðunum,“ segir hann og leggur
áherslu á að tilboðum hafi fjölgað.
„Við höfum líka lækkað verð á öðrum
tegundum á kostnað ýsunnar.“
Eiríkur segir að allir vilji sjá lækk-
un þegar markaðsverðið lækki en
enginn samþykki hækkun þótt mark-
aðsverðið hækki. „Af hverju eigum
við alltaf að lækka verðið þegar við
kaupum á lægra verði en megum svo
ekki hækka þegar þegar verðið er
hátt án þess að allt verði vitlaust?“
spyr hann. „Það er miklu betra að
auglýsa oftar tilboð og hafa jafnara
verð.“
Allt að helmingi hærra
verð í stórmörkuðum
Ingvar Gunnarsson, eigandi fisk-
búðarinar Svalbarða, segist hafa selt
ýsuflök með roði á 590 krónur kílóið í
á fjórða mánuð en áður hafi verðið
verið 850 krónur. „Við höfum selt roð-
lausa og beinlausa ýsu á 690 krónur
og ég held að það sé enginn með
lægra verð nema þá á tilboðum sem
standa kannski bara í takmarkaðan
tíma. Við ætlum okkur að halda okkur
við þetta verð.“
Ingvar segir að þrátt fyrir mun
lægra verð á ýsunni hafi salan aukist
merkilega lítið. Hann bendir á að í
stórmörkuðum sé algengt að roðlaus
og beinlaus ýsuflök séu seld á hátt í
1.200 krónur þannig að verðið hjá sér
sé allt að helmingi lægra, en ef allt sé
eðlilegt eigi stórmarkaðirnir alveg að
geta keppt við verðið hjá fisksölunum.
Garðar Smárason, annar eigenda
Sjávargallerís við Háaleitisbrautina,
segir verð á ýsunni hjá sér hafa lækk-
að í samræmi við lækkanir á uppboðs-
mörkuðunum, þeir einu sem ekki hafi
lækkað verðið séu stórmarkaðirnir.
„Það eru þeir sem eru að reyna að
halda verðinu uppi og í raun svívirði-
legt hvað þeir selja ýsuna dýrt eða allt
að 1.300 krónum kílóið.“
Garðar segir verðið hjá fisksölun-
um vera töluvert lægra og hafi raunar
verið það síðustu þrjú til fjögur árin.
Hann segir þó erfitt að merkja það að
salan hafi tekið mikinn kipp með
lækkandi verði en fleira fólk komi þó
til að versla og það sé almennt mjög
ánægt með að ýsan hafi lækkað í
verði.
Lækkandi verð hefur verið á ýsu á uppboðsmörkuðum frá því í vor
Verðið ekki lækkað
í stórmörkuðunum
GRUNUR um riðusmit hefur verið
staðfestur með mótefnalitun í einni
kind á bænum Ísabakka í Hruna-
mannahreppi. Að sögn Sigurðar Sig-
urðarsonar, dýralæknis á Keldum,
verður væntanlega ráðist í það í þess-
ari viku að farga öllu fé á bænum, um
250 fullorðnum kindum og á fjórða
hundrað lömbum. Einnig gæti þurft
að farga sauðfé sem hefur gengið
með fénu frá Ísabakka í heimahög-
um.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
á þriðjudag hefur riða greinst þrisvar
áður í Hrunamannahreppi á seinustu
fimmtán árum, í öllum tilvikum á
svipuðum slóðum og síðast fyrir
tveimur árum. Er þetta fjórða riðu-
tilfellið hér á landi á þessu ári; tvö
hafa verið á Suðurlandi og tvö á
Norðurlandi, en tvö tilvik komu upp
allt síðasta ár og eitt árið þar áður.
Sigurður hefur áhyggjur af fjölgun
riðutilfella, þó að þau séu langtum
færri en þegar verst lét. Verulegur
árangur hafi náðst í riðuvörnum frá
því að sjúkdómurinn var til staðar á á
annað hundrað bæjum.
„Vont er að eiga við þetta þegar
veikin getur lifað í umhverfinu jafn-
vel árum saman. Reglur hafa verið
hertar og það er algjört bann við
verslun með fé á riðusvæðum í 20 ár
eftir að veikin finnst. Á þessu svæði í
Hrunamannahreppi verða menn að
vera varkárir því veikin getur verið á
fleiri bæjum. Fyrst og fremst þarf að
passa að samgangur sauðfjár sé eins
lítill og hægt er, helst enginn í heima-
löndum. Mikilvægt er að allt fé í
hreppnum sé vandlega merkt með
eyrnamerkjum og bæjarnúmeri.
Ekki má hýsa fé frá öðrum og jafnvel
þarf að farga fé sem hýst er annars
staðar. Fylgjast þarf vel með heilsu-
fari fjár og láta vita um kindur sem
eru grunsamlegar. Þá komum við að
rannsaka þær, mönnum að kostnað-
arlausu,“ segir Sigurður.
Riðusmit staðfest í Hrunamannahreppi
Farga þarf á sjöunda
hundrað fjár á einum bæ
ÞETTA er auðvitað heilmikið
kjaftshögg, bæði fyrir okkur og
sveitarfélagið líka. Við erum varla
búin að jafna okkur á tíðindunum,“
sagði Agnar Jóhannsson á Ísabakka
við Morgunblaðið, skömmu eftir að
hann hafði fengið að heyra stað-
festingu um riðusmitið. Agnar og
hans fjölskylda hafa frá árinu 2000
stundað eingöngu sauðfjárbúskap á
Ísabakka, ásamt vinnu utan heim-
ilis. Fyrri ábúendur höfðu verið
með sauðfé allt frá áttunda áratug
síðustu aldar.
Að sögn Agnars urðu gangna-
menn varir við grunsamlega hegð-
un hjá einni kind í annarri leit á af-
rétti. Fór Agnar með hana beint til
rannsóknar á tilraunastöð Háskóla
Íslands í meinafræðum á Keldum.
„Við vorum búin að fara í gegn-
um féð heima fyrir og sáum ekkert
að því, það virtist allt vera heil-
brigt. Þess vegna komu þessi tíð-
indi flatt upp á okkur,“ sagði Agnar
en áður en riðutilfellið kom upp
höfðu 130 kindur farið frá bænum
til slátrunar á Selfossi.
„Kjaftshögg fyrir okkur“
BÚNINGAR frá íslenska sportfatnaðarframleið-
andanum Henson eru komnir til Írak og hefur lið
breska hersins spilað við heimamenn í búning-
unum að undanförnu. Forsaga málsins er sú að
Halldór Einarsson hjá Henson var beðinn um að
sauma og gefa búninga á tvö fullskipuð knatt-
spyrnulið vegna fyrirhugaðs leiks milli liðs
breska hersins og íraska knattspyrnuliðsins Al-
Minaa. Ætlunin með leiknum var að vekja athygli
á enduruppbyggingu knattspyrnuleikvangsins í
Basra sem Bretar hafa haft veg og vanda af.
„Búningarnir komust á réttan stað á réttum
tíma en það varð reyndar ekkert af þessum
ákveðna leik vegna öryggisástæðna,“ sagði Hall-
dór í samtali við Morgunblaðið í gær. „En þess í
stað hafa Bretarnir verið að spila nokkra leiki við
heimamenn og þetta virðist vera mjög vel lukk-
að.“
Bretarnir léku við heimamenn í bænum Al
Hartha, sem er 20 km norður af Basra, þar sem
meðfylgjandi mynd er tekin. „Mér brá svolítið
þegar ég sá þetta,“ segir Halldór um myndirnar
sem hann fékk sendar að utan. „Það er svo skrít-
ið að sjá þessa búninga sem voru hér í rólegu
andrúmslofti og svo nokkrum dögum síðar eru
þeir komnir á vígvöllinn. Það er sláandi að sjá
búningana mína þarna úti.“ Hann segir ánægju
vera með verkefnið en aðstandendur þess hafa
einnig m.a. verið að dreifa fótboltaskóm og fót-
boltum í grunnskólum í Írak.
Ljósmynd/Michael Thomas
Spilað í búningum frá Henson í Írak
SVEIN Ludvigsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, hefur falið norsku
strandgæslunni að ná Guðrúnu
Gísladóttur af hafsbotni og tæma
jafnframt skipið.
Í tilkynningu norsku strandgæsl-
unnar segir að björgunin verði fram-
kvæmd á kostnað útgerðarfyrirtæk-
isins Festi þar sem ekki hafi verið
staðið við tilskilda fresti sem gefnir
voru til björgunarinnar. Þar segir og
að reiknað sé með að björgunarað-
gerðirnar muni taka u.þ.b. fjórar vik-
ur ef veður verður skaplegt og muni
kosta um ellefu milljónir norskra
króna, jafngildi tæpra 120 milljóna
íslenskra króna. Strandgæslan gerir
kröfu um að skipinu verði lyft og öll
olía verði tæmd úr því og farmur
þannig að komið verði í veg fyrir alla
mengunarhættu frá skipinu.
Norðmenn
lyfta Guðrúnu
Gísladóttur
FÉLAG íslenskra atvinnuflug-
manna hefur sent Flugmála-
stjórn Íslands formlegt erindi
vegna fullgildingar stofnunarinn-
ar á skírteinum erlendra flug-
manna í störfum hjá íslenskum
félögum. Er m.a. spurt um
hvernig háttað sé heilbrigðis-
skoðunum, hvort samráð hafi
verið haft við samgönguráðu-
neytið og Vinnumálastofnun og
hvort horft sé til þess að viðkom-
andi flugrekandi geti hugsanlega
ráðið íslenska flugmenn sem séu
atvinnulausir.
Halldór Sigurðsson, formaður
FÍA, segir bréfið hafa verið sent
23. september en ekki hafi borist
nein viðbrögð. Hann segir 14
flugmenn Icelandair hafa hætt
störfum um síðustu mánaðamót
og 15 til viðbótar muni hætta í
lok mánaðarins. Segir hann því
verða nærri 30 flugmenn at-
vinnulausa frá 1. nóvember en fé-
lagið réð þennan hóp í vor til
tímabundinna starfa meðan flog-
ið væri eftir sumaráætlun. Þá
segir hann á annan tug íslenskra
flugmanna í FÍA við störf hjá er-
lendum flugfélögum, suma í
skammtímaráðningum en aðra í
allt að þriggja ára stöðum.
Að sögn Halldórs hafa hundr-
uð erlendra flugmanna fengið
fullgildingu skírteina hjá Flug-
málastjórn. Í bréfi FÍA er spurt
hvort Flugmálastjórn beiti sömu
reglum við fullgildingu skírteina
hvort sem viðkomandi flugmenn
framvísi skírteinum útgefnum af
aðildarríkjum JAA, Flugöryggis-
samtaka Evrópu, eða séu utan
þeirra. Í bréfinu óskar lögmaður
FÍA eftir því að fá ljósrit af sam-
þykkt JAA-ríkja vegna fullgild-
ingar skírteina og beðið er einnig
um ljósrit gagna frá Flugmála-
stjórn sem fylgdu umsókn um áð-
urnefnt samþykki JAA-ríkja.
FÍA óskar svara
vegna skírteina
erlendra
flugmanna
SÝSLUMAÐURINN í Borgarnesi
hefur lagt lögbann við opinberum
tónlistarflutningi á veitingastaðnum
Búðarkletti í Borgarnesi. Þar hefur
verið leikin tónlist sem nýtur vernd-
ar samkvæmt höfundarréttarlögum,
en höfundar hafa ekki gefið heimild
sína til tónlistarflutningsins.
Lögbann
við tónlist
♦ ♦ ♦