Morgunblaðið - 03.10.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐNI Ágústsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, sagði í um-
ræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra á Alþingi í gærkvöld að það
þyrfti að skoða hvort bankar ættu
samtímis að vera viðskiptabankar
og fjárfestingabankar. Þá sagði
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins, að í
ljósi átaka í íslenskum fjár-
málaheimi á síðustu vikum og mán-
uðum, hlyti það að vera eitt af við-
fangsefnum Alþingis að yfirfara og
skerpa lög Samkeppnisstofnunar,
Fjármálaeftirlitsins og Vinnu-
málastofnunar.
Guðni Ágústsson sagði m.a. að í
íslensku viðskiptalífi ríkti mikill
kraftur; bankar og fjármálafyr-
irtæki væru í útrás með starfsemi á
erlendri grundu. „Þetta er jákvætt,“
sagði hann. „Hins vegar þarf að
skoða hvort bankar eiga samtímis
að vera viðskiptabankar og fjárfest-
ingarbankar.“ Ítrekaði hann að yfir
það þyrfti að fara.
Hjálmar Árnason gerði íslenska
viðskiptalífið einnig að umtalsefni.
Hann sagði að samkeppnin þar væri
grimm og miskunnarlaus. „Hlutverk
Alþingis er að setja skýrar og opnar
leikreglur og sjá til þess að þeim sé
framfylgt. Í því skyni hefur Fram-
sóknarflokkurinn einmitt lagt ríka
áherslu á að styrkja lagaramma og
starfsmöguleika Samkeppnisstofn-
unar, Fjármálaeftirlitsins og Vinnu-
málastofnunar, þeirra stofnana sem
m.a. er ætlað að koma í veg fyrir
óeðlilega hringamyndun, fákeppni
og misnotkun á þeim leikreglum
sem eiga að stuðla að heilbrigðu at-
vinnulífi. Í ljósi átaka síðustu vikna
og mánaða hlýtur það að vera eitt
viðfangsefni Alþingis að yfirfara og
skerpa lög um þessar stofnanir
þannig að enginn vafi leiki á að þeim
sé gert gerlegt að sinna skyldum
sínum og taka á hugsanlegum mis-
ferlum hins vanburðuga markaðar.“
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, vék m.a. að
þeim deilum sem nú standa yfir
vegna starfskjara og aðbúnaðar
starfsmanna ítalska fyrirtækisins
Impregilo við Kárahnjúka. „Flestir
þingmanna jafnaðarmanna studdu
virkjunarframkvæmdir við Kára-
hnjúka en við styðjum ekki að rétt-
indabarátta verkalýðshreyfing-
arinnar – sem svo að segja sérhver
Íslendingur nýtur góðs af í dag – sé
skrúfuð áratugi aftur í tímann.“
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, vék einnig að aðbúnaði og
kjörum starfsmanna Impregilo.
Hann sagði að það væri einbeittur
„ásetningur þessa verktaka Lands-
virkjunar að nýta sér og gera út á
atvinnuleysi og eymd verkamanna á
vanþróuðum svæðum“. Hann sagði
einnig að viðvörunarbjöllur hefðu
átt að hringja þegar „hið lága tilboð
Impregilo barst“ Landsvirkjun.
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins,
fjallaði m.a. um ívilnun línubáta.
„Það dylst engum að loforðið um
línuívilnun var óspart notað af
stjórnarflokkunum á lokaspretti
kosningabaráttunnar.“ Hann sagði
að sennilega yrði þetta loforð aldei
efnt, nema í einhverju skötulíki.
Hjálmar Árnason, formaður þingflokks framsóknarmanna
Alþingi yfirfari og skerpi lög
um eftirlitsstofnanir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingmenn fylgjast grannt með umræðum á Alþingi í gærkvöld.
HALLDÓR Blöndal, forseti Al-
þingis, greindi frá því við upphaf
þingfundar á Alþingi í gær-
kvöldi, að hann hefði rætt við
formenn þingflokkanna um að
fréttastofa Stöðvar 2 hefði feng-
ið afrit af stefnuræðu forsætis-
ráðherra í vikunni og flutt brot
úr henni. Hann sagði þá sam-
mála um að um mjög alvarlegt
trúnaðarbrot væri að ræða.
„Samkvæmt þingsköpum
skal eftirrit af ræðunni afhent
þingmönnum sem trúnaðarmál
eigi síðar en þremur dögum áð-
ur en hún er flutt. Hingað til hef-
ur þessi trúnaður verið haldinn.
Í fyrradag brá hins vegar svo
við að fréttastofa Stöðvar 2
skýrði frá því að hún hefði eft-
irrit af ræðunni undir höndum
og var farið með kafla úr ræð-
unni,“ sagði Halldór í gærkvöld.
„Ég tók þetta mál upp á fundi
með formönnum þingflokka í
dag. Við vorum sammála um að
hér væri um mjög alvarlegt
trúnaðarbrot að ræða. Þetta mál
verður áfram til athugunar og
hvernig bregðast skuli við því.“
Forseti Alþingis
Um alvar-
legt trún-
aðarbrot
að ræða
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Hugvit hf. hefur skrifað undir vilja-
yfirlýsingu við bandaríska hugbún-
aðarfyrirtækið Microsoft um víð-
tækt samstarf í N-Evrópu við þróun
á nýrri GoPro Professional-vörulínu
Hugvits fyrir .Net umhverfið. Frá
þessu var greint á kynningu sem fé-
lagið hélt í gær á Hótel Loftleiðum
fyrir viðskiptavini félagsins, en
Hugvit sérhæfir sig í smíði raf-
rænna skjala- og málastjórnunar-
kerfa og hefur þróað GoPro-hug-
myndafræði sína um árabil.
Á fundinum voru möguleikar
GoPro Professional-vörulínunnar
kynntir en þar kom fram að vörulín-
an býður upp á nýja möguleika í
notkun og tryggir aukinn árangur í
starfi.
Auk væntanlegs samstarfs við
Microsoft á fyrirtækið í samstarfi
við IBM-tölvufyrirtækið og er
stefnt að því að víkka það samstarf
út, að því er kom fram í máli Ólafs
Daðasonar á fundinum. „Stefnan er
að gera GoPro Professional að mest
seldu lausninni á sviði rafrænnar
skjala- og málastjórnunar í Evrópu
á innan við tveimur árum,“ sagði
Ólafur.
Hann sagði einnig að á sínu sviði
væri Hugvit markaðsleiðandi á öll-
um þeim mörkuðum þar sem það
starfaði; GoPro væri mest notaða
mála- og skjalastjórnunarkerfi í
N-Evrópu í dag.
Í dag verður opið hús hjá Hugviti
í húsakynnum félagsins í Skútuvogi
1B á milli klukkan 16 og 19 þar sem
fólki gefst kostur á að kynna sér
starfsemi féalagsins og möguleikana
sem felast í hinni nýju vörulínu
GoPro Professional.
Samstarf við
Microsoft í
burðarliðnum
Hugvit kynnir nýja vörulínu
Á ÞINGI Mont Pelerin-samtakanna,
sem haldið var í Chattanooga í
Tennessee, var samþykkt að halda
þing samtakanna á Íslandi 21.-24.
ágúst 2005. Í undirbúningsnefnd eru
m. a. Nóbelsverðlaunahafarnir Gary
Becker og James M. Buchanan.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor við Háskóla Íslands, sótti
fundinn, en hann gegnir nú störfum
varaforseta samtakanna. Á
myndinni er Hannes Hólmsteinn að
spjalli við Vaclav Klaus, forseta
Tékklands, og prófessor Carlos
Cáceres, fyrrverandi fjármálaráð-
herra Chile.
Þing Mont Pelerin-
samtakanna á Íslandi
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
og Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra undirrituðu samning í
gær fyrir hönd ríkisins við Íslenskt
sement ehf. um sölu á Sements-
verksmiðjunni hf. á Akranesi.
Söluverðið var 68 milljónir króna.
Íslenskt sement er í eigu Fram-
taks fjárfestingarbanka, BM Vall-
ár, Norcem á Íslandi og Björg-
unar.
Samkvæmt upplýsingum frá
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu var samningurinn gerður á
grundvelli samkomulags sem gert
var á milli þessara aðila í júlí. Sem-
entsverksmiðjan var síðasta verk-
smiðjan í eigu ríkisins, en á síðustu
árum hefur ríkið m.a. selt Íslenska
járnblendifélagið á Grundartanga,
Kísiliðjuna við Mývatn, Steinullar-
verksmiðjuna á Sauðárkróki,
Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi
og nú Sementsverksmiðjuna.
Í tengslum við söluna mun rík-
issjóður yfirtaka eignir verksmiðj-
unnar sem ekki tengjast rekstri
hennar, s.s. skrifstofubyggingu á
Akranesi að mestu, fasteignir og
eignir á Sævarhöfða í Reykjavík,
hlutabréf og skuldabréf verksmiðj-
unnar í Speli og hlutabréf í GECA
hf. Kaupverð þessara eigna er
samtals 450 milljónir króna. Þá
mun ríkissjóður yfirtaka lífeyris-
skuldbindingar Sementsverkmiðj-
unnar hf. sem verksmiðjan tók yfir
með samkomulagi árið 1997.
Sementsverksmiðja ríkisins hóf
starfsemi á Akranesi árið 1958 en
frá 1. janúar 1994 hefur hún verið
rekin sem hlutafélag í eigu rík-
isins. Um þessar mundir starfa þar
um 65 manns. Reksturinn hefur
verið erfiður á undanförnum árum
og frá árinu 2000 er uppsafnað tap
um 500 milljónir króna.
Í tilkynningu framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu segir, að
með sölunni og yfirtöku og eigna
og skuldbindinga standi vonir til að
rekstur Sementsverksmiðjunnar
sé tryggður og þar með samkeppni
á innlendum markaði.
Skrifað undir samninga um sölu á Sementsverksmiðjunni
Síðasta verksmiðjan
í eigu ríkisins seld
„MÖRGUM spennandi hugmyndum
var velt upp,“ sagði Björgólfur Guð-
mundsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, að loknum fundi
með forystumönnum Reykjavík-
urborgar um byggingu nýrra höf-
uðstöðva bankans í miðborg
Reykjavíkur.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
borgarráðs, sagði Landsbankamenn
hafa skýrt nánar frá hugmyndum
sínum um uppbyggingu í borginni,
þar á meðal áhugaverðum hug-
myndum um nýtingu annarra eigna
bankans á þessu svæði. Of snemmt
sé að fara út í það að svo stöddu.
Björgólfur mætti til fundar við
Alfreð og Steinunni Valdísi Ósk-
arsdóttur í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gær ásamt bankastjórunum Sig-
urjóni Þorvaldi Árnasyni og Hall-
dóri J. Kristjánssyni. Véku Alfreð
og Steinunn af fundi borgarstjórnar,
sem stóð yfir, til að sitja samráðs-
fundinn.
Steinunn Valdís, formaður skipu-
lags- og bygginganefndar, sagði
reitinn sunnan Geirsgötu til um-
ræðu þar sem bílastæði séu nú.
Svæðið er fyrir framan hús Toll-
stjóra og við söluvagn Bæjarins
bestu pylsur. Hún sagði að rætt hafi
verið hvernig samnýta megi bygg-
ingu húss Landsbankans og fjölgun
bílastæða í miðborginni. Gott sam-
komulag hafi verið á milli allra aðila.
Björgólfur og bankastjórarnir
sögðu viðtökurnar góðar og fund-
urinn hafi komið málinu af stað.
Annar fundur verði innan tíðar til að
vinna að málinu áfram.
Alfreð sagði að allir hefðu verið
sammála um að flýta þessari vinnu
eins og kostur er. Reykjavíkurborg
muni ekki láta sitt eftir liggja í þeim
efnum.
Stjórnendur Landsbankans
ræddu við borgarfulltrúa
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Kristjánsson, Alfreð Þorsteinsson, Björgólfur Guðmundsson,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Sigurjón Þorvaldur Árnason við upphaf
fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.