Morgunblaðið - 03.10.2003, Side 22

Morgunblaðið - 03.10.2003, Side 22
AKUREYRI 22 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. NÝ SENDING SAMKVÆMISJAKKAR TOPPAR BLÚSSUR KÁPUR - ÚLPUR ÞAÐ var mikið líf og fjör á skólalóð Síðuskóla í góða veðrinu í fyrra- dag, þegar blaðamaður Morgunblaðsins átti þar leið um, og þrátt fyrir að skóladegi væri lokið gátu börnin ekki hugsað sér að fara heim. Þau vildu heldur leika sér í eltingaleik í nýjum og glæsilegum kastala sem komið hefur verið fyrir á skólalóðinni. „Þetta er flottasti skólinn í bænum og með flottustu leiktækin,“ sögðu börnin einum rómi. Innan dyra skólans var einnig tekist á en með rólegra móti þó. Þar sátu nemendur í 5. bekk II yfir skák- borðum og tefldu af hjartans lyst, undir stjórn Gunnars Halldórs- sonar kennara. Helena Eydís Ing- ólfsdóttir kennari 5. bekkjar tók einnig þátt. Nemendur í 3., 4. og 5. bekk eiga þess kost að mæta í skáktíma einu sinni í viku og hafa um 30 börn nýtt sér það vikulega að sögn Gunnars. „Við erum með þessu að koma skákinni í gang í skólanum, þótt alltaf sé eitthvað teflt í flestum stofum. Börnin eru mjög áhuga- söm og hafa mætt vel, stelpurnar ekki síður. Þau kunna flest eitt- hvað fyrir sér en við kennum þeim sem þurfa mannganginn og reyn- um að bæta við kunnáttu annarra. Annars leggjum við aðaláhersluna á að börnin hafi gaman að þessu,“ sagði Gunnar í samtali við Morg- unblaðið. Í vikunni komu góðir gestir frá skákfélaginu Hróknum í Síðuskóla og færðu öllum nemendum í 3. bekk bókina Skák og mát sem bókaútgáfan Edda gaf út í sam- vinnu við Hrókinn. Óhætt er að segja að gjafirnar hafi fallið í góð- an jarðveg. Morgunblaðið/Kristján Flottustu tækin: Börnin léku á als oddi í kastalanum á lóð Síðuskóla og sögðu leiktækin þau flottustu í bænum. Skák og mát: Gunnar Halldórsson kennari leiðbeinir ungum og efnilegum skákmönnum. Áhugi fyrir þessari göfugu íþrótt er talsverður í Síðuskóla. Líf og fjör úti og inni VALDÍS Jónsdóttir heyrnar- og tal- meinafræðingur tekur heils hugar undir með Guðrún Þóru Björns- dóttur kennara í Glerárskóla, um að hljóðkerfi ætti að vera staðalbún- aður í hverri kennslustofu. Guðrún Þóra hefur notað hljóðkerfi við kennsluna í um eitt ár og segir bún- aðinn hafa nýst sér vel, en viðtal var við hana í Morgunblaðinu á dög- unum. Valdís sagði að trúlega stæði engin stétt í jafn erfiðum kring- umstæðum við að koma sínu á fram- færi og kennarar. „Þeir þurfa að tala í gegnum hávaða og eru í stofum þar sem ekki hefur verið tekið tillit til að hljómburður eigi að gagnast þeim markhópi sem þar er.“ Valdís skrifaði doktorsritgerð, sem fjallar um kennararöddina sem atvinnutæki. „Niðurstöður rann- sókna sem liggja þar að baki benda allar til þess að með hljóðkerfi eigi kennarinn mun auðveldara með að tala og börnin með að hlusta. Og það hlýtur að vera hið æskilega samspil.“ Valdís sagði að í Bandaríkjunum hefði það verið reiknað út að það kostaði bandaríska rík- ið 2,5 billjónir dollara á ári að standa straum af veikindafríum kennara bara vegna raddmissis. Það myndi því ekki taka marga daga að borga upp eitt hljóð- kerfi í kennslustofu. „Ég er að láta mér detta í hug hvort við erum ekki að hengja bakara fyrir smið, þeg- ar við tölum um lélega kennara, lélegan námsárangur nem- enda eða léleg námsgögn. Er málið bara ekki einfaldlega það að nem- endur heyra ekki það sem kennarinn er að segja,“ sagði Valdís. „Röddin er hljóð sem lýtur sömu lögmálum og birta – hún dofnar með fjarlægð. Af því við heyrum okkar ágætu rödd glymja svo flott inni í kollinum á okkur, gerum við okkur ekki grein fyrir því að það sé ekki eins víst að aðrir heyri hana jafn vel. Við getum aldrei sagt að röddin berist vel, því þú þarft að standa fyrir utan þinn eigin skrokk til að geta verið með slíkar fullyrð- ingar. Í bekk er alltaf bakgrunnshá- vaði og miklu meiri en góðu hófu gegnir.“ Hljóðkerfi hjálpar bæði kennurum og nemendum Valdís Jónsdóttir heyrnar- og talmeina- fræðingur skrifaði doktorsritgerð um kennararöddina sem atvinnutæki Guðrún Þóra Björnsdóttir talar til nemenda sinna í gegnum hljóðkerfi. EYFIRSKIR hestamenn hafa ekki gefið upp alla von um að fá landsmót hestamannafélaga 2006 á Melgerðis- mela, þrátt fyrir að meirihluti stjórn- ar Landssambands hestamanna- félaga hafi samþykkt að ganga til samninga við Skagfirðinga um að halda landsmótið þá á Vindheimamel- um. „Það er ekki búið að ganga frá samningum við Skagfirðinga og það er enginn leikur tapaður fyrr en búið er að flauta af,“ sagði Kjartan Helga- son, formaður Hestamannafélagsins Léttis. Stjórn Léttis fundaði um málið í vikunni. „Við höfum ekki gefið upp alla von en það er langur vegur frá því að við séum sáttir við stöðu mála.“ Kjartan sagði að þegar eyfirsku hestamannafélögin gengu aftur í landssambandið árið 1995 hefði verið mikil umræða um að fjölga móts- svæðunum. „Það er ekki nafngreint í samþykktum landssambansins hvaða svæði um er að ræða en alltaf talað um þessi fjögur, Melgerðismela, Vindheimamela, Reykjavík og Hellu.“ Landsmót eru haldin á tveggja ára fresti, það var haldið á Vindheima- melum í Skagafirði í fyrrasumar og mótið verður haldið á Gaddstaðaflöt- um við Hellu árið 2004. Mótið var haldið í Reykjavík árið 2000 og á Mel- gerðismelum í Eyjafirði árið 1998 og því telja Eyfirðingar að það sé komið að þeim aftur að halda mótið árið 2006. Skagfirðingar sóttu um landsmótið 2006 á móti Eyfðingum og þá sagði Kjartan að Sunnlendingar hefðu sótt um mótið 2008 á móti Reykvíkingum. Hann sagðist ekki getað úttalað sig um næstu skref í málinu en að stjórn- ir hestamannafélaganna Funa og Léttis myndi hittast á fundi fljótlega. Þar yrði tekin ákvörðun um fram- haldið. Hann sagði að mikill hiti væri líka innan hestamannafélaga á höfuð- borgarsvæðinu og að þau ætluðu einnig að hittast á sameiginlegum fundi á næstunni. Landsmót hestamannafélaga 2006 Eyfirðingar hafa ekki gefið upp alla von MIKILL áhugi er meðal Akureyr- inga og nærsveitunga þeirra á beinu flugi Air Greenland milli Ak- ureyrar og Kaupmannahafnar, skv. frétt frá félaginu, en beint flug milli þessara áfangastaða hófst í lok apr- íl sl. Mikið um að félagasamtök og vinnustaðahópar hafi bókað sig í slíkar ferðir. Flugfélagið býður nú í október upp á tilboðsverð á flug- miðum og kostar fargjaldið fram og til baka 26.670 krónur. Eins er í boði miði frá Akureyri til Kaup- mannahafnar á 14.350 krónur, en ef ferðast er frá Kaupmannahöfn og til Akureyrar er miðinn á 15.235 krónur með sköttum.    Borgin við sundin heillar Fundað um skíðasvæði | Tony Waddell, eigandi og framkvæmda- stjóri skíðasvæðis í Norður-Karolínu í Bandaríkjunum hefur framsögu á opnum fundi um skíðasvæði sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands efnir til á mánudag, 6. október Hann mun ræða um skíðasvæði í víðum skilningi; stöðu skíðaiðnaðar- ins, skíðasvæði og ferðaþjónustu, iðkendur, skíði og snjóbretti, veður og snjóframleiðsla svo eitthvað sé nefnt. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA frá kl. 16-18 www.islandia.is/~heilsuhorn Kelp Fyrir húð, hár og neglur SENDUM Í PÓSTKRÖFU Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Fjarðarkaupum Árnesaptóteki Selfossi og Yggdrasil Kárastíg 1. Friðland Svarfdæla | Fundur verður haldinn um Friðland Svarf- dæla á mánudag, 6. október nk. í Dalvíkurskóla kl. 20.15. Þrjú fram- söguerindi verða á fundinum, Árni Einarsson líffræðingur ræðir um fuglalíf og fuglaskoðun og Sigrún Helgadóttir, líffræðingur og kennari, fjallar um útikennslu barna og hvernig nýta má Friðland í kennslu og þá fjallar Friðrik Arn- arson um hugyndir að skipulagi göngustíga og merkinga.   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.