Morgunblaðið - 03.10.2003, Page 23

Morgunblaðið - 03.10.2003, Page 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 23 2.- 5. okt. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 22 42 2 1 0/ 20 03 Fjölskyldudagar Frábær tilboð ára 2 Ævintýraland Kringlunnar er tveggja ára. Af því tilefni förum við í afmælis- stuð og verðum með fjölskyldudaga frá fimmtu- degi til sunnudags. Öll börn sem koma í Ævintýraland fá gjöf og blöðru. skemmtir börnunum kl. 16.00 í dag. 5 heppnir fá miða fyrir 2 á Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu og aðrir 5 fá Línu Langsokk bol. Línuleikur Solla stirða fyrir alla krakka á veitingastöðum Kringlunnar Keflavíkurflugvelli | Vöruútflutning- ur um Keflavíkurflugvöll hefur rúm- lega tvöfaldast á sjö árum. Í gær opn- aði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra formlega nýtt fragtflughlað á vellinum en því er ætl- að að bæta þjónustu við vöruflutn- ingana. Fragtflughlaðið er um 19 þúsund fermetrar að stærð og er það í bein- um tengslum við sérhæfðar fragtmið- stöðvar sem IGS og Vallarvinir hafa reist. Fjórar flugvélar geta athafnað sig í einu á planinu. Hingað til hefur þurft að afgreiða vöruflutningavél- arnar á stæðum farþegavélanna við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fram kom hjá Birni Inga Knúts- syni flugvallarstjóra við athöfn sem fram fór af þessu tilefni að heildar- kostnaður við planið væri um 195 milljónir kr. Samið var við Íslenska aðalverktaka um verkið, að loknu út- boði, og hóf fyrirtækið framkvæmdir í byrjun maí. Verðmætasti útflutningurinn Björn Ingi sagði að mikil aukning hefði orðið í fragtflutningum til og frá Keflavíkurflugvelli á undanförnum árum. Tæp 42 þúsund tonn af vörum hafi farið þar um á síðasta ári, þar af um 25 tonn til útlanda en þaðværi lið- lega tvöfalt meira en fyrir sjö árum. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði að stór hluti af útflutn- ingnum væri sjávarafurðir sem flogið væri með beint á markaði og til við- skiptavina víðs vegar um heim. „Þessi útflutningur hefur verið vaxtarbrodd- ur á undanförnum árum og kemur án efa til með að aukast á næstu árum og áratugum. Útflutningur sjávarafurða með flugi skiptir máli þar sem oft er um verðmætustu afurðirnar að ræða, vörur sem skapa mikilvægar gjald- eyristekjur fyrir þjóðina,“ sagði Hall- dór. Búist er við áframhaldandi aukn- ingu á fragtflugi frá Keflavíkurflug- velli. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagði að það kæmi sér ekki á óvart þótt Keflavíkurflugvöllur yrði innan fárra ára stærsta útflutnings- höfn fyrir íslenskar sjávarafurðir. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar á Keflavíkurflug- velli (IGS), dótturfélags Flugleiða, kvaðst ánægður með að nýtt flughlað væri komið í notkun. Hann sagði að vörumeðhöndlum batnaði með betri tengingu við fragtstöð fyrirtækisins og styttri flutninga á milli. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tekið í notkun: Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri aðstoðar Halldór Ásgrímsson við að klippa á borðann. Nýtt fragtflughlað tekið í notkun á Keflavíkurflugvelli Vöruútflutningur hefur tvöfaldast á sjö árum Keflavík | „Ég vinn þetta allt í eld- húsinu, með vasahnífnum,“ segir Vagna Sólveig Vagnsdóttir sem opnar í dag sýningu á tréskúlptúr- um og leirmunum í Gráa kettinum á Hafnargötu 18 í Keflavík. Vagna Sólveig býr á Þingeyri og starfaði þar sem fiskverkakona. Hún segist hafa lent í vinnuslysi fyrir um það bil átta árum og misst vinnuna. Eftir það hafi hún skorið út fígúrur í tré. „Fólki leist vel á þetta og ég prófaði að gera fleiri,“ segir Vagna Sólveig. Síðan hefur hún haldið nokkrar einkasýningar, meðal annars tvær í Gallerý Fold í Reykjavík. Sýningin í Reykjanesbæ er að undirlagi Guðbjargar dóttur hennar sem býr í sveitarfélaginu. Auk tréskúlptúranna eru á sýn- ingunni leirmunir sem Vagna Sól- veig hefur gert. Hún tekur þó fram að þeir teljist varla til listar því þeir eigi sér ákveðnar fyrirmyndir. Tré- fígúrurnar skáldi hún sjálf og harð- neitar því að hægt sé að þekkja andlit nágranna hennar á Þingeyri á spýtunum. „Það er svo skrítið að fólkið sem ég móta í leir lítur allt upp en þau andlit sem ég sker út eru með lokuð augu eða líta til jarð- ar. Þetta gerist ósjálfrátt, ég hef enga skýringu á því,“ segir Vagna Sólveig. Sýning Vögnu Sólveigar er sölu- sýning, hún er opin alla daga frá klukkan 13 til 18 og stendur til sunnudagsins 12. október. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Með Vaktaranum: Vagna Sólveig heldur upp á þennan virðulega skúlptúr. Allt tréfólkið lítur ósjálfrátt til jarðar Hausthátíð | Varnarliðið heldur sína árlegu hausthátíð á Keflavík- urflugvelli á morgun, laugardag. Há- tíðin er með „karnival“-sniði og fer fram í stóra flugskýlinu, næst vatns- tanki vallarins, frá klukkan ellefu að morgni til þrjú síðdegis. Í boði verð- ur fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna – lifandi tónlist, þraut- ir, leikir, matur og hressing og sýn- ingar af ýmsu tagi. Þá verða flug- vélar og annar búnaður varnar- liðsins til sýnis á svæðinu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.    Fjölbrautaskólinn | Opið hús verður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík næstkomandi laugardag. Foreldrum nemenda er sérstaklega boðið að koma til að kynna sér starf- semi skólans, svo og grunn- skólabörnum og öðrum áhugamönn- um. Tekið er á móti gestum á milli klukkan 10 og 14. Gefið verður sýn- ishorn af þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer innan veggja skólans og gestir fá nasasjón af því sem nemendur og starfsfólk skólans fást við. Leikfélag | Anton Þór Sigurðsson og Berta Ómarsdóttir hafa end- urvakið leikfélag Grindavíkur. Fé- lagið var stofnað 1975 en lagðist í dvala fyrir fjórtan árum. Ný stjórn félagsins hyggst standa fyrir upp- setningu leiksýninga í vetur. Berta er formaður og Anton Þór varafor- maður og með þeim í stjórn eru Haf- rún Pálsdóttir, Gígja Egilsdóttir og Stefán Borgþórsson.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.