Morgunblaðið - 03.10.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 03.10.2003, Síða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 25 Vestmannaeyjum | Það er vart til sá Vest- mannaeyingur sem ekki hefur verslað í Eyja- búð sl. 50 ár, en Eyjabúð var opnuð 1. október árið 1953. Á afmælisdaginn var haldið upp á það í Eyjabúð að 50 ár eru liðin frá því að Friðfinnur Finnsson frá Oddgeirshólum í Vestmanna- eyjum opnaði Eyjabúð í Vosbúð. Verslunin var þar í skamman tíma þar til hún flutti yfir göt- una gegnt Vosbúð að Strandvegi 60 og hefur verið þar síðan. Nú 50 árum síðar er fjórði ætt- liðurinn innanbúðar í Eyjabúð, barnabarnabarn Friðfinns á Oddgeirshólum, Gunnar Friðfinns- son. Friðfinnur á Oddgeirshólum rak búðina til ársins 1965, en þá tók við sonur hans Finnbogi Friðfinnsson. Bogi í Eyjabúð eins og allir Eyja- menn kalla hann rak búðina óslitið til ársins 1998. Þar af rak hann búðina um tíma í Reykja- vík þegar eldgosið á Heimaey stóð yfir, en þeir feðgar Bogi og Friðfinnur fluttu Eyjabúð eins fljótt og mögulegt var aftur til Eyja og var Eyjabúð ein fyrsta verslunin sem var opnuð eft- ir gos. Búðin var rekin í húsnæði verslunar- innar Verðandi í Reykjavík og komu margir Eyjamenn þangað til að hittast, fá fréttir og versla við Boga í Eyjabúð. Margir Eyjamenn muna eftir auglýsingunum frá þeim á þeim ár- um sem enduðu alltaf Verðandi-Eyjabúð. Verkfæri og sólarferðir Árið 1998 tók sonur Finnboga, Friðfinnur, við rekstri Eyjabúðar og rekur hana enn og Eyjabúð virðist lifa góðu lífi. Ekki hafa orðið miklar breytingar á búðinni frá upphafi, og við- skiptavinirnir vita að hverju þeir ganga. Frá upphafi hefur áhersla verið lögð á vörur fyrir útgerð og byggingariðnaðinn, verkfæri og margt fleira. Eftir að Friðfinnur tók við rekstr- inum hefur sonur hans, Gunnar, unnið með hon- um innanbúðar, enda fleiri járn í eldinum. Frið- finnur er ötull sölumaður sólarlandaferða fyrir ferðaskrifstofurnar Úrval-Útsýn og Plúsferðir sem hann segir ágæta búbót þegar bátum hefur fækkað mjög í Eyjum eins og víða á lands- byggðinni og verslun eins og Eyjabúð þurft að laga sig að þeim breytingum sem því fylgja. „Það er komið gos …“ Á afmælisdaginn var mikill gestagangur í Eyjabúð, hnallþórurnar glöddu gamla og góða viðskiptavini, og kókið úr hinum margfræga kókkassa rann vel niður, en kókkassinn er 35 ára og mörg tilboð hafa borist í hann, en hann er ekki falur. Fjölmargir velunnarar og við- skiptavinir samfögnuðu feðgunum og fjöl- skyldum þeirra á þessum tímamótum og glatt var á hjalla eins og alltaf hefur verið í Eyjabúð í gegnum árin enda Bogi og Friðfinnur þekktir fyrir hnyttin tilsvör og góðan húmor. Þrátt fyrir aldurinn ber Eyjabúð hann vel og er hún löngu orðin órjúfanlegur hluti af Eyjum og menningu hennar, enda fjölmargar skemmtisögur sem eiga uppruna sinn þar. Þegar Heimaeyjargosið hófst aðfaranótt 23. janúar árið 1973 var Bogi í Eyjabúð eins og aðrir Eyjamenn í fastasvefni á heimili sínu í Bogahlíð. Um nóttina kemur þangað björgunarmaður og bankar upp á til að vekja þau hjón, eftir nokkurn tíma heyrir maðurinn að Bogi spyr hvað sé að. Maðurinn við dyrnar kallar háum rómi: „Það er komið gos, það er komið gos.“ Bogi svaraði alveg grandalaus: „Settu það á tröppurnar, væni.“ „Settu það á tröppurnar, væni“ Morgunblaðið/Sigurgeir Hornafirði | Lokið er við að þreskja af síðasta kornakrinum í Hornafirði en í ár var sáð í hátt í fjörutíu hektara. Kornrækt er stunduð á átta bæjum í Suðursveit, Mýrum og Nesjum og er uppsker- an í ár á bilinu 70–80 tonn af korni. Árið 1997 stofnuðu bændur, fyrir- tæki og sveitarfélög með sér félag um rekstur kornskurðarvélar. Þór- hallur Einarsson stjórnar vélinni og þreskir allt korn í sýslunni. Hann segir uppskeru misjafna milli bæja og meiri afföll en verið hefur og kennir hann hvassviðri um. Hann segir að álftir og gæsir hafi ekki spillt kornökrum í ár en mikil brögð voru að því í fyrra. Jón Jónsson, bóndi í Árbæ, er í forsvari fyrir Kornfélagið. Jón ræktar korn á tæpum tíu hekturum lands og uppskeran reyndist í haust um 30 tonn. Hann segir það mjög góða uppskeru og álftir hafi ekki gert usla hjá honum. Þær komu ekki fyrr en 10. september en venjulega fara álftirnar að sækja í kornakrana um 20. ágúst. Kornið er notað sem fóðurbætir fyrir kýr og er það valsað áður er það er gefið. Kornið er ýmist geymt í stórum sekkjum sem er pakkað í rúlluplast eða bætt í það própan- sýru og verkað líkt og vothey. Álftir og gæsir spilltu ekki korn- ökrum í Hornafirði eins og í fyrra Ljósmynd/Sigurður Mar Á kornakrinum: Ef ekki sæist jökullinn í baksýn gæti myndin verið tekin í útlöndum. Þórhallur Einarsson þreskir bylgjandi kornakur á Seljavöllum. Þórhallur lýkur við að þreskja Afmælinu fagnað: Þrjár kynslóðir aðstandenda Eyjabúðar glaðar í bragði þegar hálfrar aldar afmæli verslunarinnar var fagnað. Á mynd- inni eru, frá vinstri: Gunnar Friðfinnsson, Inga Jónsdóttir, Friðfinnur Finnbogason, Kristjana Þorfinnsdóttir og Finnbogi Friðfinnsson. Eyja- menn hittust gjarnan hjá Boga í Eyjabúð á sínum tíma til að fá fréttir, á meðan verslunin var rekin í Reykjavík meðan á gosinu stóð. Eyjabúð, sem nú er orðin 50 ára, var rekin í Reykjavík á meðan gaus í Heimaey

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.