Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 47
„ÞAÐ fóru héðan nýlega þaulvanir
menn, bræðurnir Hafliði og Ragnar
Halldórssynir, og félagar þeirra og
þeir voru með fimmtíu fiska, alla á
bilinu 3 til 10 punda. Þetta er fyrsta
stóra skotið hjá okkur í Vatnamótun-
um og það skemmtilega var að þeir
veiddu marga nýgengna fiska, bjarta
og suma jafnvel lúsuga,“ sagði Ragn-
ar Johansen, leigutaki Vatnamóta, í
samtali við Morgunblaðið.
Ragnar sagði þá félaga hafa veitt
flesta fiskana á maðk og örfáa á spón,
„það er búið að vera svo kalt að það
eina sem dugar er að koma agninu vel
niður þar sem fiskurinn liggur. Hann
hreyfir sig ekki mikið eftir agni í
svona kulda eins og verið hefur. Ann-
ars sögðu þeir félagar að á sumum
blettum hefðu verið torfur af fiski.
Það verður fjör og hasar í bergvatns-
ánum þegar þessi ganga fer upp, hve-
nær sem það verður, en tæplega verð-
ur það þó á meðan svona kalt er í
veðri,“ bætti Ragnar við. Í gær hætti
síðan hópur með 26 fiska, en nokkrir
þeirra voru dregnir úr Hörgsá.
Stærðin hin sama, mest 3 til 6 pund og
einn 10 pund.
Ýmsar tölur
Ragnar sagði að einhver skot hefðu
verið í Laxá og Brúará í Fljótshverfi,
t.d. hefðu veiðst þar 16 birtingar einn
daginn fyrir nokkru. Sjálfur hefði
hann fengið þar 13 bleikjur, 1-3 punda
fyrir stuttu.
Sextíu birtingar hafa veiðst í
Hörgsá, bæði neðarlega og frammi í
gljúfri. Drýgstur er þó að venju hylur
númer þrjú við ármót Geirlandsár.
Þá er frá því að segja að góð skot
hafa verið í Vola að undanförnu, þar
fékk veiðimaður einn t.d. þrjá ný-
runna laxa í vikunni, alla á Flæðar-
mús, og félagi hans fékk tíu sjóbirt-
inga, bæði smáa fiska og góða í bland.
Söxuð smábleikja
Veiðimaður einn sem upplifði treg-
veiði í Tungufljóti nýverið, reyndist
tilbúinn í ýmsar tilraunir, enda vissi
hann af talsverðu af sjóbirtingi í efsta
hyl, Bjarnafossi. Þar sem allt agn
samkvæmt lögum er leyfilegt þá
greip þessi til þess ráðs að saxa niður
smábleikju sem hann hafði náð á land,
og beita bleikjubitum á öngul. Skipti
þá engum togum að hann dró þrjá
birtinga í beit, en svo ekkert meira.
Þetta voru 2,5, 4 og 5 punda fiskar
og grútlegnir. Eini afli hollsins utan
ein 3 punda bleikja.
Besta hollið í
Vatnamótunum
Sjóbirtingar úr Vatnamótunum.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN? Hundasýning
um helgina
ÁRLEG haustsýning Hundaræktar-
félags Íslands verður haldin um
helgina, 3.–5. október, í reiðhöll Gusts
í Kópavogi. Alls verða sýndir um 350
hundar. Sýningin hefst í dag, föstu-
dag, kl. 16 og verða sýndir hvolpar af
mörgum tegundum fram eftir kvöldi
auk þess sem börn og unglingar
keppa um titilinn besti ungi sýnand-
inn. Dómarar eru: Rodi Hübenthal og
Wera Hübenthal frá Noregi og Bo
Skalin frá Svíþjóð.
Á laugardag og sunnudag hefst
sýningin kl. 10. Á laugardag verða
vinnu- og veiðihundar sýndir auk ís-
lenskra fjárhunda. Á sunnudag verða
ýmsir smáhundar áberandi og jafn-
framt verða sýndir veiðihundar, til
dæmis spaniel- og retriever-hundar.
Um kl. 15 á sunnudag munu úrslit
sýningar hefjast. Afrekshundur árs-
ins verður heiðraður í fyrsta sinn og
jafnframt þjónustuhundur ársins,
sem unnið hefur í almannaþágu á
árinu, segir í fréttatilkynningu.
SÍBS-dagur
á sunnudag
SÍBS-dagurinn er á sunnudaginn 5.
október. Í tilefni dagsins verður opið
hús kl. 13 – 16 í Síðumúla 6 í Reykja-
vík fyrir þá sem vilja kynna sér starf-
semi samtakanna. SÍBS flutti nýlega
höfuðstöðvar sínar í Síðumúla 6.
Starfsfólk og fulltrúar aðildar-
félaga SÍBS verða á staðnum til að
fræða gesti og gangandi um samtök-
in og þau verkefni sem SÍBS stendur
að.
Í TILEFNI af alþjóðadegi ungtempl-
ara 3. október sendir stjórn Íslenskra
ungtemplara (ÍUT) frá sér nokkrar
áskoranir þar sem segir meðal ann-
ars:
„Stjórn ÍUT skorar á ríkisstjórn
Íslands að hún beiti sér fyrir endur-
skoðun á áfengisvörnum í landinu.
Undanfarin 5 ár hafa framlög hér á
landi til grasrótarsamtaka í vímu-
efnavörnum dregist mjög mikið sam-
an! Það er óskiljanleg þróun þegar
haft er í huga að frjáls samtök hafa
rekið hér um árabil óeigingjarnt og
víðtækt vímuvarnastarf sem lengst af
hefur skilað sér í betra samfélagi og
minni fíkniefnaneyslu en þekkist ann-
ars staðar.
Stjórn ÍUT skorar á ríkisstjórn Ís-
lands að stórauka fjárstuðning við
forvarnastarf og beita sér fyrir því að
grasrótarsamtök í vímuvörnum verði
metin af verðleikum á nýjan leik.
Á ári hverju látast í Evrópu a.m.k.
150.000 ungmenni, 15–25 ára, af völd-
um áfengisneyslu. Hér á landi liggja
ekki fyrir tölur um dauðsföll ung-
menna vegna áfengisneyslunnar og
því lítið vitað um umfang þess skaða
sem áfengið veldur meðal æskufólks.
Stjórn ÍUT skorar á yfirvöld að
gera úttekt á skaðlegum afleiðingum
áfengisneyslu á ungmenni hér á landi
og hvernig sporna megi við frekara
tjóni.
Neysla ólöglegra fíkniefna hefur
aldrei verið meiri hér á landi en um
þessar mundir. Flestir sem verða
háðir þessum efnum byrja neyslu
þeirra ungir að árum og því einsýnt
að forvarnir meðal barna og unglinga
eru mikilvægasti þáttur vímuvarna.
Stjórn ÍUT skorar á yfirvöld að
stórauka varnir gegn ólöglegum
fíkniefnum með því að auka stuðning
við heilbrigt æskulýðsstarf og styðja
sérstaklega við bakið á frjálsum sam-
tökum sem berjast með fordæmi sínu
gegn neyslu fíkniefna.“
Alþjóðleg-
ur baráttu-
dagur ung-
templaraBOLLI Thoroddsen og stuðnings-
menn hans í Heimdalli sendu frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu í gær:
„Í gær [í fyrradag] fór fram aðal-
fundur í í Heimdalli, félagi ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Um 70
af ríflega 4.000 félagsmönnum Heim-
dallar sáu ástæðu til að mæta á fund-
inn og styðja þann lista sem var í
kjöri. Framboð okkar hafði fyrr um
daginn verið dregið til baka vegna
þeirrar valdníðslu fráfarandi stjórn-
ar, sem lýsti sér í því að meina um eitt
þúsund nýjum sjálfstæðimönnum að
ganga í Heimdall og taka þátt í kosn-
ingum til stjórnar. Það gerðist þrátt
fyrir þá yfirlýsingu formanns Heim-
dallar að nýir félagar gætu skráð sig í
Sjálfstæðisflokkinn og þar með
Heimdall fram til kl. 18.00 á mánu-
dag.
Nú hafa um átta hundruð ungra
sjálfstæðismanna sem sl. þriðjudag
var meinað að taka þátt í stjórnar-
kjörinu undirritað yfirlýsingu þar
sem vinnubrögð stjórnar eru harð-
lega gagnrýnd. Þessir ungu sjálf-
stæðismenn sem nú hafa undirritað
yfirlýsinguna höfðu í hyggju að
styðja framboð okkar til stjórnar, en
gátu það ekki sökum óbilgirni stjórn-
ar félagsins.
Sú staðreynd að sama stjórn og
lýsir yfir opinberum stuðningi við
annað framboðið fari með fram-
kvæmd kosninganna vekur upp
margar spurningar. Ekki síst þegar
sýnt þykir að brögð hafa verið í tafli.
Er augljóst að þegar fráfarandi
stjórn Heimdallar gerði sér ljóst að
1.000 nýir félagsmenn vildu styðja
framboð okkar og vinna með okkur
að því að efla starf Heimdallar, tók
hún þá fordæmalausu ákvörðun að
fresta inntöku þeirra fram yfir
stjórnarkjörið. Þannig tryggði frá-
farandi stjórn kjör þeirrar stjórnar
Heimdallar, sem henni var þóknan-
leg og hún hafði opinberlega stutt.
Stjórn sem nú hefur verið kosin á að-
alfundi þar sem mætti 71 félagsmað-
ur.
Rök fráfarandi stjórnar voru, að
grunur léki á að þetta fólk ætlaði ekki
að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.
Hringdu stuðningsmenn þeirra í
nokkra og höfðu í frammi ýmiss kon-
ar aðdróttanir, dónaskap og jafnvel
hvatningar um að þetta fólk segði sig
aftur úr flokknum.
Við munum fyrir hönd okkar og
þeirra sem meinað var um inntöku í
Heimdall skoða stöðu okkar. Mikil-
vægt er að uppræta vinnubrögð af
þessu tagi í Sjálfstæðisflokknum. Við
sögðum fyrir kosningarnar að Heim-
dallur mætti aldrei verða klíka. Því
miður benda atburðir síðustu daga til
annars. Við munum þó halda ótrauð
áfram að skapa vettvang fyrir alla
unga sjálfstæðismenn, ekki einungis
þá sem tilheyra tilteknum klíkum.“
Undir yfirlýsinguna rita: Bolli
Thoroddsen, Steinunn Vala Sigfús-
dóttir, Brynjar Harðarson, Brynjólf-
ur Stefánsson, Gísli Kristjánsson,
Hreiðar Hermannsson, Margrét Ein-
arsdóttir, María Sigrún Hilmarsdótt-
ir, Sigurður Örn Hilmarsson, Stef-
anía Sigurðardóttir, Tómas
Hafliðason, Ýmir Örn Finnbogason.
Mótmæla vinnubrögðum
Heimdallar
Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist
frá stuðningsmönnum Bolla Thor-
oddsen, en með yfirlýsingunni var
tekið fram að um átta hundruð ungir
sjálfstæðismenn hefðu ritað undir
hana.
„Við undirrituð, ungir sjálfstæðis-
menn í Reykjavík, sem höfðum hug á
því að styðja framboð Bolla Thorodd-
sen til stjórnar Heimdallar, mótmæl-
um harðlega þeim óforsvaranlegu
vinnubrögðum stjórnar Heimdallar
sem hafa komið í veg fyrir eðlilega
kosningu nýrrar stjórnar. Ákvörðun
stjórnarinnar um að meina stórum
hópi ungs fólks aðild að félaginu er
ekki hægt að kalla annað en ofbeldi
gagnvart því unga fólki sem vildi hafa
áhrif á störf félagsins með því að taka
þátt í því, sem átti að vera opin og lýð-
ræðisleg ákvörðun, um hvaða ein-
staklingar ættu að sitja í stjórn fé-
lagsins á komandi starfsári. Þessi
svívirða er ekki aðeins Sjálfstæðis-
flokknum til mikils tjóns, heldur
stríðir hún bersýnilega gegn öllum
þeim grundvallargildum og hugsjón-
um sem flokkurinn kennir sig við og
byggist á. Þetta framferði er fráfar-
andi formanni og stjórn til mikillar
skammar og varpar dökkum skugga
á kjör nýrrar stjórnar, sem ekki er
með nokkru móti hægt að segja að
hafi hlotið umboð frá almennum fé-
lagsmönnum til þeirra starfa.“
Segja 71 atkvæði á bak
við stjórn Heimdallar
Heimdallur má
aldrei verða klíka
Kynning á námi, leik og starfi
erlendis. Í dag, föstudaginn 3.
október, býðst ungu fólki á aldr-
inum 15–25 ára að kynna sér hvað
stendur til boða varðandi nám, leik
og starf erlendis. Kynningin fer
fram í Hinu húsinu, Pósthússtræti
3–5, og stendur frá 15–18.
Eftirfarandi aðilar verða á staðn-
um: – AFS á Íslandi (Alþjóðleg
fræðsla og samskipti), Al-
þjóðaskrifstofa háskólastigsins, Al-
þjóðleg Ungmennaskipti (AUS),
EES-Vinnumiðlunin, Enskuskólinn
Bell – language for life, Nordjobb,
Snorri West-verkefnið, Stúd-
entaferðir, Ungt fólk í Evrópu
(UFE), Upplýsingamiðstöð Hins
hússins / Eurodesk, Veraldarvinir
og lýðháskólar á Norðurlöndunum.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Hins hússins, www.hitt-
husid.is. Aðgangur er ókeypis.
Í DAG
Íþróttadagur Íþóttafélagsins Asp-
ar verður laugardaginn 4. október í
íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14, kl. 14–16.
Þjálfarar hinna ýmsu íþróttagreina
verða á staðnum og svara spurn-
ingum um starf og æfingar hjá félag-
inu. Boðið verður upp á léttar veit-
ingar á vægu verði.
Sýning á stærðfræðikennslugögn-
um á vegum ÍMÍ, Íslensku mennta-
samtakanna, verður á morgun, laug-
ardaginn 4. október, kl. 14–16, í
Smáraskóla, Kópavogi. Allir vel-
komnir. Sýningin er sjálfstæður hluti
af námskeiðinu Einstaklingsmiðað
stærðfræðinám sem samtökin standa
fyrir dagana 10. og 11. október í
Smáraskóla. Aðalfyrirlesari nám-
skeiðsins er Hope Martin sem kennt
hefur í 30 ár og er höfundur 15 bóka
um það efni. Á námskeiðinu verða
kynntar nýjar aðferðir í stærðfræði-
kennslu sem miða við einstaklings-
bundið nám og hvernig stærðfræði
tengist daglegu lífi fólks. Einnig verð-
ur kynnt stærðfræðinámsefni sem
ÍMS hafa unnið að varðandi ein-
staklingsmiðað nám.
Félag nýrnasjúkra verður með
opið hús á morgun, 4. október, kl.
14–16, í tilefni af degi líffæragjafar í
Evrópu. Heitt verður á könnunni.
Útskriftarnemar í Snyrtiskólanum
halda veislu á Chefs&Company,
Grensásvegi 3, á morgun, laug-
ardginn 4. október, kl. 20–3. Boðið
verður upp á þriggja rétta máltíð og
sýndur magadans. Aðgangseyrir er
3.000 kr.
Bílskúrssala Kvennakórs Kópa-
vogs. Kvennakór Kópavogs heldur
bílskúrssölu laugardaginn 4. október
á Bjarnhólastíg 16, Kópavogi, kl. 11–
17. Til sölu verða húsgögn, fatnaður,
leikföng, bækur og margt fleira. Bíl-
skúrssalan er liður í fjáröflun kórsins.
Trúarbrögð og mannréttindi er yf-
irskrift málþings sem haldið verður á
morgun, laugardaginn 4. október, í
Odda, stofu 201, í Háskóla Íslands, kl.
10.30–16. Málþingið er öllum opið.
Erindi flytja Terry Gunnel dósent,
Haraldur Ólafsson prófessor, Pétur
Pétursson prófessor, Bjarni Randver
Sigurvinsson doktorsnemi í almenn-
um trúarbragðafræðum, Páll Sig-
urðsson prófessor, Margrét Jóns-
dóttir félagsfræðingur og sr.
Sigurður Pálsson.
Evrópskir fugladagar. Evrópskir
fugladagar verða 4. og 5. október.
Viðburðir verða um alla Evrópu og
eru þátttökuþjóðirnar 30 talsins. Evr-
ópskir fugladagar eru skipulagðir af
BirdLife International, sem eru al-
þjóðleg fuglaverndarsamtök með yfir
100 aðildarfélögum víðsvegar um
heiminn.
Fuglaverndarfélagið skipuleggur
fuglaskoðun í Grafarvogi, Reykjavík,
sunnudaginn 5. október. Í Grafarvogi
er fuglaskoðunarskýli og verða þar
fuglaskoðarar til leiðsagnar frá kl.
11–13, en flóð er kl. 15. 19 í Reykja-
vík.
Á MORGUN
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
TVEIR sjálfboðaliðar héldu til
Palestínu á miðvikudaginn á
vegum Félagsins Ísland-Pal-
estína, Sigrid Valtingojer lista-
kona og Viðar Þorsteinsson,
háskólanemi og varaformaður
félagsins.
Þau munu fyrstu vikuna
sameinast alþjóðlegum hópi
fólks sem með nærveru sinni
veitir palestínskum bændum
vernd gagnvart ísraelskum
landtökumönnum og hernáms-
liði, en ólífutínslan er nú að
hefjast, segir í frétt frá félag-
inu. Í framhaldi af því munu
Sigrid og Viðar vera í sjálf-
boðastarfi í 2–3 vikur á vegum
læknishjálparnefndanna
(UPMRC), sem dr. Mustafa
Barghouthi er í forsvari fyrir,
en alls hafa nú 19 Íslendingar
farið héðan til hjálparstarfa á
herteknu svæðunum á rúmu
ári.
Sjálfboða-
liðar til
Palestínu
ÓLAFUR Egilsson sendiherra hef-
ur afhent Tuanku Syed Sirajuddin
Putra Jamalullail, konungi Malasíu,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Ís-
lands í Malasíu.
Afhenti
trúnaðar-
bréf