Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 64
MORGUNSTUND gefur gull í mund, segir spakmælið. Gullið fyrir kon-
una og hundinn hennar hefur án efa verið í formi hollustunnar og heil-
brigðisins er þau fengu af því að fara í göngu um Seltjarnarnesið einn
morguninn þar sem haustlitirnir setja mark sitt á umhverfið.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunstund á Seltjarnarnesi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SÍF er nú að hefja sölu á ferskum, pökk-
uðum sjávarafurðum í fyrsta sinn hér á
landi. Þetta eru sömu vörur og SÍF selur á
kjarnamörkuðum sín-
um í Evrópu og Norð-
ur- Ameríku.
Meðal þeirra afurða
sem SÍF býður upp á til
að byrja með er reyktur
piparmakríll, sem er
nýjung hér á landi. Auk
þess er boðið upp á
laxasteikur, þorsk, ýsu, rækju og reyktan
lax. Þegar fram líða stundir er fyrirhugað
að bjóða sjaldséðari afurðir eins og túnfisk-
steikur, sverðfisk og heitsjávarrækju.
Það er dótturfyrirtæki SÍF, Tros, sem
stýrir sölu afurðanna. Níels Rafn Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Tross, segir
þetta meðal annars gott tækifæri til að sýna
hluta af því sem SÍF er að gera á erlendum
mörkuðum, en markmiðið sé að bjóða neyt-
endum upp á hágæða fiskafurðir í hand-
hægum pakkningum.
Ferskur fiskur
frá SÍF í ís-
lenzkar búðir
Bjóða/14
RÚMLEGA þrítugur söngvari, Einar Guð-
mundsson, er kominn á samning hjá Þjóðar-
óperunni (Volksoper) í Austurríki eftir einungis
fjögurra ára söngnám. Einar, sem er fæddur og
uppalinn í Garðabænum, fór stuttlega í guð-
fræði áður en hann skipti yfir í Kennaraháskól-
ann árið 1995 og lauk þaðan námi þrem árum
síðar. „Ég ætlaði að verða prestur þegar ég var
yngri. Það á vel við mig að standa yfir fólki og
öskra eitthvað yfir það og þá skiptir ekki svo
miklu máli hvort maður er prestur, kennari eða
söngvari.“
Eftir kennaranámið réð Einar sig sem skóla-
stjóra í Seljalandsskóla, lítinn grunnskóla undir
Eyjafjöllum.
Lauk söngnámi á tveimur árum
Einar stýrði Seljalandsskóla í þrjú ár, en þeg-
ar hann var nýsestur í skólastjórastólinn var
honum tjáð að það vantaði karlaraddir í söng-
deild Tónlistarskólans á Hvolsvelli. „Einhverjir
heimamenn þóttust vita að ég væri eitthvað við-
riðinn tónlist af því að ég spilaði á gítar í hljóm-
sveitum í mörg ár. Ein bændakonan skráði mig
bara í söngdeildina og ég fór að læra söng af
kappi meðfram starfinu.“ Einar vann það starf
ekki með hangandi hendi frekar en önnur og
lauk áttunda stigi í söng á tveimur árum, námi
sem venjulega tekur fjögur til fimm ár.
Vorið 2001, eftir að hann lauk áttunda stiginu
í söng, sagði Einar upp sem skólastjóri og sótti
um í Mozarteum-tónlistarháskólanum í Salz-
burg í Austurríki. „Ég komst beint inn og fór út
um haustið og naut þar handleiðslu mjög góðra
kennara, Mörthu Sharp og Wolfgang Holzmair.
Ég var þarna í tvö ár, námið tekur venjulega
þrjú, en kennararnir sögðu að ég ætti bara að
drífa mig og fara að syngja fyrir og reyna að
komast að í einhverju óperuhúsi.“
Ótrúlega hröð atburðarás
Einar fór í prufusöng í júní í Þjóðaróperunni í
Vín og var tekinn inn undir eins. Hann hefur nú
sungið hlutverk dr. Falke í Leðurblökunni og er
nú að fara að syngja Tristan lávarð í óperunni
Mörtu eftir Flotow. Einnig eru framundan á
þessari leiktíð verkin Carmen og La Bohème
auk annarra stykkja.
Atburðarásin í lífi Einars er ótrúlega hröð.
„Ef einhver hefði sagt mér fyrir fjórum árum,
þegar ég byrjaði að syngja, að ég ætti eftir að
standa á sviðinu í Volksoper-húsinu, hefði ég tal-
ið hann haldinn alvarlegum svima. Þetta er bara
spurning um að halda haus og láta stressið ekki
fara í taugarnar á sér. Ég held að ég hafi lært
mikið af því að vera skólastjóri, því maður lærir
að vinna með fólki og höndla stressið.
Þetta er dálítið ævintýrakennt, en maður
verður bara að prófa þetta. Annars bakkar mað-
ur bara heim í kennsluna aftur.“
Kominn á samning hjá Þjóðaróperunni í Vín eftir fjögurra ára söngnám
„Dálítið ævintýrakennt“
Einar syngur hlutverk montpriksins einmana í
óperunni Litla prinsinum á móti söngkonunni
Yvonne, sem fer með hlutverk prinsins.
ÆTLAÐUR eldislax veiddist um 6
km uppi í Selá í Vopnafirði fyrrihlut-
ann í september, og í gær staðfesti
sérfræðingur Veiðimálastofnunar að
um eldislax væri að ræða.
„Þetta er það sem við óttumst
mest, að þessi lax gangi upp í árnar
og blandist við villta laxinn. Þetta er
að öllum líkindum lax af norskum
uppruna. Við óttumst að hann fari á
hreiðrin okkar og skemmi fyrir.
Einnig er vísindalega staðfest að af-
kvæmin eru mjög léleg,“ segir Orri
Vigfússon, formaður Veiðiklúbbsins
Strengs, sem er leigutaki árinnar.
Sigurður Guðjónsson, fiskifræð-
ingur hjá Veiðimálastofnun, segir
staðfest að fiskurinn sé eldislax, en
ekki sé vitað hvort hann sé af norsk-
um stofni, og segir hann að DNA-
rannsókn þurfi til að staðfesta það.
Sigurður segir að ekki komi sér-
staklega á óvart að laxinn náist
svona langt uppi í ánni: „Þegar þeir
eru komnir í kynþroskann þá reyna
þeir að fara í ferskvatn eins og nátt-
úran segir þeim, og helst þar sem
þeir finna lykt af laxi. Áhrifin af mik-
illi og langvarandi blöndun gæti ver-
ið vanhæfari fiskur, og gæti honum
því fækkað,“ segir Sigurður.
Ráðherra hafnar samvinnu
Orri segir að ekki sé vitað ná-
kvæmlega hvaðan laxinn sé kominn.
„Við viljum gjarnan komast að því
hvaðan hann er og ætlum að láta fara
fram DNA-rannsókn á þessum fiski,
sem og öðrum eldislöxum sem veið-
ast á þessu hausti. Það torveldar
þessa rannsókn að landbúnaðarráð-
herra hefur hafnað samvinnu við
okkur.“ Landbúnaðarráðherra hefur
að sögn Orra ekki svarað bréflegum
erindum með fyrirspurnum um tölu-
legar upplýsingar.
Veiddu eldislax
langt uppi í Selá
Eldislaxinn sem veiddist um 6 km
uppi í Selá í í byrjun september.
SÝNINGU Vesturports á Rómeó og
Júlíu, sem frumsýnd var í Young Vic
í London á miðvikudaginn var, hefur
verið afar vel tekið af leiklist-
argagnrýnendum bresku dagblað-
anna. Allir virðast á einu máli um að
þótt texti Shakespeares hafi verið
styttur mikið takist einstaklega vel
að fanga anda verksins í uppsetning-
unni. Charles Spencer hjá Tele-
graph segir sýninguna búa yfir
miklum krafti jafnframt því sem hún
sé full af kynþokka. Michael Bill-
ington hjá Guardian hefur sérstakt
orð á því hve vel hafi tekist að skapa
sjónrænan heim á sviðinu sem sam-
samist fullkomlega heimi textans.
Rómeó og
Júlía fær
lofsamlega
dóma
Nær að fanga/28
GÍSLI K. Kristjánsson, 24 ára gam-
all Íslendingur búsettur í Noregi,
hefur fengist við tónlist með ýmsum
hljómsveitum ytra en eftir að hann
fór að sinna sóló-
ferli hafa hlut-
irnir gerst hratt.
Nú er svo
komið að stór út-
gáfufyrirtæki
eins og East-
West, EMI og
Sony eru öll að
bera víurnar í
hann. Þetta er
haft eftir um-
boðsmanni hans,
Sam Johnson.
Ekkert hefur
enn komið út með Gísla en hann
mun koma hingað til hljóm-
leikahalds á Airwaves-hátíðinni,
sem hefst 15. október næstkomandi.
Með tilboð
frá þeim
stærstu
Humar/60