Morgunblaðið - 25.10.2003, Page 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Stefnt er að því að nýrskóli, Sjálandsskóli,taki til starfa í
Garðabæ haustið 2005. Við
hönnun skólans er ein-
staklingsmiðað nám og
fjölbreytni í kennsluhátt-
um höfð að leiðarljósi.
Samráðshópur sem
starfaði að undirbúningi
hönnunar skólans leggur
sérstaka áherslu á að við
skipulag náms verði tekið
mið af þörfum og náms-
getu einstaklinganna.
Miðvikudaginn 5. nóv-
ember 2003 kl. 20–22 verð-
ur haldinn opinn fundur
með íbúum Garðabæjar
þar sem kennslufræði og
hönnun nýs skóla verður
kynnt og öllum gefst kost-
ur á að láta í ljós skoðun
sína og koma hugmyndum
sínum á framfæri.
Sjálandsskóli
Fermingarbarnamót var haldið á Laugum í Sæ-lingsdal 23.–24. október. Rúmlega 80 tilvonandifermingarbörn úr Snæfellsness- og Dalapró-
fastsdæmi tóku þátt í mótinu og skemmtu sér konung-
lega. Á Laugum fengu börnin fræðslu hjá sex prestum
prófastsdæmisins en einnig var farið í gönguferðir um
fornar slóðir Guðrúnar Ósvífursdóttur, kvöldvaka
haldin með ýmsum uppákomum og íþróttir stundaðar
af kappi. Mótinu var slitið með helgistund í Hjarðar-
fellskirkju í Dölum.
Morgunblaðið/Elín Una
Fermingarbarnamót
Einar Kolbeinssonsá á dögunum fyr-irsögn í DV sem
var eitthvað á þessa leið:
„Dýrara að fæðast og
deyja“. Honum skildist að
málið snerist um hækkun
gjaldskrár fyrir hin ýmsu
prestsverk:
Klerkar hækka kaupið rýrt,
kjörin hlaða undir,
enda þykir djöfull dýrt,
að deyja um þessar mundir.
Af kúluskítshátíð
Kúluskítshátíðin viðMývatn var velsótt í haust.
Björn Ingólfsson hugsaði
sitt á Grenivík og orti vís-
ur með sneiðrími:
Upp til þeirra allra lít
sem eiga heima í
Mývatnssveit;
eiga kássu af kúluskít
karlar í þeim blómareit.
Aldrei slíkt ég augum leit
auðmjúkur ég játa hlýt
að menn sem búa í minni
sveit
meira tala um kúaskít.
Dýrt að deyja
Eyrarbakka | Fá kennileiti í Árborg
voru nefnd oftar á nýafstöðnum
íbúaþingum en listaverkið Krían
eftir Sigurjón Ólafsson mynd-
höggvara, sem stendur í úfnu
hrauni skammt frá vegamótum
Eyrarbakkavegar og Gaulverja-
bæjarvegar og sést víða að.
Listasafn Alþýðu gaf Eyrbekk-
ingum listaverkið í minningu Ragn-
ars Jónssonar frá Mundakoti, en
hann var jafnan kenndur við fyr-
irtæki sitt, Smára.
Krían hefur nú staðið af sér öll
veður í aldarfjórðung og er farin að
láta nokkuð á sjá, búin að missa
nokkrar fjaðrir og er allmikið veðr-
uð. Í ráði mun vera að gera við
Kríuna á næstunni og vonandi verð-
ur þá bætt aðgengi að henni með
lagningu göngustígs, eins og íbúar
allra þéttbýliskjarnanna lögðu til.
Grettir er höggmynd eftir Sig-
urjón Ólafsson og stendur hún
framan við æskuheimili Sigurjóns,
Einarshöfn. Verk þetta er gjöf til
Eyrbekkinga frá bróður Sigurjóns,
Guðna Ólafssyni apótekara.
Krían missir fjaðrir
Ráðgert er að gera við Kríuna.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Grettir, höggmynd frá árinu 1947.
Fullgild á vinnumarkaði | Í ágúst sl.
hófst á Húsavík einstakt verkefni sem varð-
ar endurmenntun og endurhæfing örorku-
og endurhæfingarlífeyrisþega. Að sögn
Guðmundar Birkis Þorkelssonar, skóla-
meistara Framhaldsskólans á Húsavík, er
verkefnið samstarfsverkefni skólans, Fé-
lags- og skólaþjónustu
Þingeyinga og Heil-
brigðisstofnunar Þing-
eyinga.
Auglýst var eftir þátt-
takendum í héraðinu og
sextán einstaklingar
valdir til að taka þátt í
verkefninu. Markmið
þeirra er að verða full-
gild á ný á vinnumarkaði
og í félagslegri þátttöku
og er miðað við að endurhæfingin taki ár.
Guðmundur Birkir segir áherslu lagða á
endurmenntun í bóklegum greinum, s.s. ís-
lensku, stærðfræði, ensku og tölvutækni.
Þá er unnið markvisst að bættu heilsufari,
styrkari efnahagsstöðu og eflingu sjálfs-
myndar. Verkefnið fer afar vel af stað og
áhugi og einbeitni skín af fólkinu og nú eftir
fyrsta mánuðinn er ekki annað að sjá en að
flestum muni takast að ná markmiðum sín-
um. Guðmundur Birkir segir verkefnið hafa
vakið mikinn áhuga.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Guðmundur Birkir
Þorkelsson
Byggt yfir
líkamsrækt
Siglufirði | Siglufjarðarkaupstaður hefur
óskað eftir tilboðum í viðbyggingu íþrótta-
hússins þar sem m.a. á að koma upp lík-
amsræktaraðstöðu. Tilboð verða opnuð
hinn 4. nóvember nk. og skal verkinu vera
að fullu lokið 31. mars á næsta ári og verð-
ur þá líkamsræktaraðstaða tekin í notkun í
framhaldi af því. Teikningar af fyrirhug-
aðri viðbyggingu og aðstöðu verða m.a. til
sýnis í íþróttahúsinu.
Grundarfirði | Framkvæmdum við lagn-
ingu nýs vegar og smíði brúar yfir Kol-
grafafjörð í Eyrarsveit miðar vel. Nýverið
var gengið frá samningum við verktaka um
flýtingu verksins. Samkvæmt upphaflegri
áætlun áttu verklok að vera haustið 2005
en þeim hefur verið flýtt til áramóta 2004.
Að sögn Ingva Árnasonar, deildarstjóra
hjá Vegagerðinni í Borgarnesi, eru fylling-
ar á landi að mestu búnar og vinnsla á
grjóti í fyllingu út í fjörðinn hafin í Mjó-
sundum. Búið er að steypa 2 landstólpa og
3 af fjórum millistöplum og vinna við brú-
argólf hafin. Gólf brúarinnar, sem er 230
metra langt, verður steypt í tveimur áföng-
um og er gert ráð fyrir að brúarvinnu verði
lokið í desember á þessu ári. Verktakar við
framkvæmdirnar eru Háfell sem sér um
vegalagninguna og Eykt sem annast brú-
arsmíðina.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Vegalagn-
ingu um
Kolgrafa-
fjörð flýtt
Kraftur í kvennahreyfingu | Mikill
kraftur hefur einkennt fyrsta starfsár
kvennahreyfingar bænda, Lifandi landbún-
aði, að því er fram kemur í frétt frá samtök-
unum.
Samtökin héldu fund nýverið þar sem
farið var yfir starfið og stöðuna og ýmsar
ályktanir samþykktar.
Meðal annars var þess farið á leit við
Bændasamtök Íslands að þau sjái fjöl-
miðlum fyrir vönduðu myndefni um íslensk-
an landbúnað og mælist jafnfram til þess
við fjölmiðla að þeir taki tillit til þess að
neytendur kæra sig ekki alltaf um að vera
minntir á samhengi hlutanna, s.s. að sjá
innyfli dregin úr lambinu þegar rætt er um
gómsætt lambakjöt.
Lifandi landbúnaður eru grasrótar-
samtök sem enn eru í mótun og í tilkynn-
ingunni eru allar konur í landbúnaði hvatt-
ar til að skrá sig í hópinn á netfangið
ams@bondi.is.
Sigríður Bragadóttir á Síreksstöðum í
Vopnafirði er formaður samtakanna en aðr-
ar í stjórn eru Sigrún Ásta Bjarnadóttir,
Stóru-Mástungu, Laufey Guðmundsdóttir,
Lækjarhúsum, Ragnhildur Sigurðardóttir,
Álftavatni, Anna Margrét Jónsdóttir,
Sölvabakka og Kristín Linda Jónsdóttir,
Miðhvammi.
Hveragerði | Listmunasýning var opnuð í vik-
unni í anddyri Grunnskólans í Hveragerði. Þetta
er sýning á steinum sem nemendur 4.–8. bekkja
hafa málað og í sumum tilfellum límt saman
nokkra steina, og búið til alls kyns dýr og fíg-
úrur.
Það er myndmenntakennari skólans, Lilja
Guðmundsdóttir, sem á veg og vanda að sýning-
unni. Henni fannst vel við hæfi að gefa öllum kost
á að sjá hvað er að gerast í myndmenntinni. Sýn-
ingin var opnuð með viðhöfn. Tveir nemendur
skólans, Birgitta Lára Herbertsdóttir og Aron
Karl Ásgeirsson, buðu gesti velkomna og settu
sýninguna formlega. Þá komu stelpur í 5. bekk
og sungu lagið Óskasteinar við undirleik tón-
menntakennarans, Guðmundar Benediktssonar.
Morgunblaðið/Margrét
Listamenn
Óskasteinar barnanna
♦ ♦ ♦