Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA opinbera réttarrannsókn-
in á dauða Díönu prinsessu og elsk-
huga hennar, Dodi Fayed, sem hald-
in hefur verið í Bretlandi hófst
formlega í gær. Dánardómstjórinn,
Michael Burgess, frestaði hins veg-
ar vitnaleiðslum og málarekstri fyrir
opnum tjöldum til ársins 2005 sök-
um umfangs rannsóknarinnar og
þess gífurlega magns upplýsinga
sem fara þarf yfir. Upplýsti hann
jafnframt að Sir John Stevens, lög-
reglustjóri í London, hefði verið
beðinn um að rannsaka þrálátan
orðróm um að slysið sem dró Díönu
til dauða hefði verið af manna völd-
um.
Fyrirfram var talið ljóst að rétt-
arrannsóknin myndi standa í marga
mánuði en markmið hennar er að
reyna að varpa ljósi á tildrög bíl-
slyssins sem olli dauða Díönu og
Dodis í París 31. ágúst 1997. Nið-
urstaða réttarrannsóknar í Frakk-
landi árið 1999 var sú að bílstjórinn
Henri Paul, sem einnig lést í slysinu,
hefði borið ábyrgð á slysinu en hann
hefði bæði verið undir áhrifum
áfengis og ekið of hratt. Lengi hafa
hins vegar verið á kreiki samsær-
iskenningar um að óþekkt öfl hafi
verið að verki: að Díana hafi í reynd
verið myrt. Faðir Dodis, Moham-
med al-Fayed, hefur m.a. haldið
slíkum kenningum mjög á lofti.
Al-Fayed fagnaði því í gær að haf-
in væri rannsókn á dauða Díönu og
Dodis og kvaðst vonast til þess að
sannleikurinn yrði nú leiddur í ljós.
Sagði hann að Díana og Dodi hefðu
verið fórnarlömb „hryllilegs morðs“.
Bryti Díönu
með umtalaða bók
Aðeins einn maður lifði bílslysið í
París af, Trevor Rees Jones, lífvörð-
ur Díönu. Hann hefur jafnan sagt að
hann myndi lítið frá hinni örlagaríku
nóttu.
Fyrir síðustu jól kom út í Bret-
landi ævisaga Pauls Burrells, fyrr-
verandi bryta Díönu prinsessu, en
þar birti hann handskrifaða orð-
sendingu frá Díönu þar sem hún
segir tiltekinn mann vera að und-
irbúa að skemma hemlana á bíl
hennar svo hún muni lenda í bílslysi
og hljóta alvarlega höfuðáverka eða
dauða. Markmiðið væri að ryðja
henni úr vegi svo Karl Bretaprins
gæti með góðri samvisku kvænst
aftur. „Nú er hættulegasta tímabil
ævi minnar,“ sagði Díana í bréfinu.
Orðsendinguna til Burrels mun
Díana hafa skrifað tíu mánuðum áð-
ur en hún dó. Nafn mannsins, sem
Díana taldi vilja drepa sig, var aftur
á móti ekki birt í bók Burrells eða í
The Daily Mirror, sem birti kafla úr
bókinni áður en hún var útgefin. Í
gær tók blaðið hins vegar af skarið
og birti nafn mannsins. Mun það
hafa verið í óþökk Burrells. „Það var
alltaf ætlun mín að gera þetta nafn
aldrei opinbert,“ sagði hann.
Burrell hyggst þó afhenda Burg-
ess, sem stýrir réttarrannsókninni
sem hófst í gær, bréfið, að því er
fram kom breskum fjölmiðlum.
Önnur blöð og fjölmiðlar greindu
frá uppljóstrunum Daily Mirror en
létu framan af degi vera að birta
nafnið af ótta við málsókn. Á heima-
síðu Daily Mirror mátti hins vegar
lesa allt um að það hefði í reynd ver-
ið Karl Bretaprins sjálfur, sem
Díana óttaðist að vildi koma sér fyr-
ir kattarnef. Fylgdu aðrir fjölmiðlar
í kjölfar Daily Mirror þegar leið á
daginn og birtu nafnið. Ritstjóri
Daily Mirror, Piers Morgan, sagði í
leiðara í gær að blaðið hefði ákveðið
að birta nafn Karls þar sem menn
teldu útilokað annað en að það yrði
gert opinbert í tengslum við áður-
nefnda réttarrannsókn.
Engin gögn hafa fundist sem
tengja Karl við dauða Díönu og
Morgan sagði að þó að hér væri auð-
vitað um „algerlega ótrúlegar“ ásak-
anir að ræða þá væru þær að sama
skapi líklega „fráleitar“.
Vísbending
um ástand Díönu
Sem fyrr segir skrifaði Díana orð-
sendinguna í október 1996, tveimur
mánuðum eftir að endanlega var
gengið frá skilnaði hennar og Karls.
Hefur Burrell sagt að á þessum tíma
hafi Díana verið á nálum og jafnvel
talið að heimili hennar í Kensington-
höll væri hlerað. Orðsending hennar
gefi til kynna „hvað helst fór um
huga hennar síðustu mánuðina sem
hún var á lífi“. Orðsendinguna hafi
hún afhent Burrell sem „tryggingu“
ef eitthvað slæmt gerðist.
Vinir Díönu hafa aftur á móti
sagt, ef marka má frétt Daily Mirror
í gær, að áður en hún dó hafi hún
verið búin að ná sáttum við Karl og
að hún hafi óskað þess heitt að þau
gætu orðið vinir, en þau Karl og
Díana áttu tvo syni saman, þá Will-
iam og Harry. Í tengslum við skiln-
aðarmál þeirra Karls og Díönu hafði
Karl reyndar viðurkennt að hafa
haldið fram hjá konu sinni með gam-
alli ástkonu, Camillu Parker-Bow-
les, en aðeins eftir að ljóst var orðið
að hjónabandi þeirra Díönu yrði
ekki bjargað.
Parker-Bowles er nú ástkona
Karls og býr með honum í Clarence-
byggingunni í London og í High-
grove í Gloucester-skíri. Hún hefur
m.a. fylgt honum í heimsóknum
hans til annarra landa. Orð Díönu,
um að Karl vildi hana úr veginum, til
að hann gæti kvænst Parker-Bowles
kunna að vísa til mats prinsessunnar
á almenningsálitinu í Bretlandi.
Díana sögð hafa talið að
Karl vildi losna við hana
Réttarrannsókn
á dauða Díönu
prinsessu
formlega hafin
í Bretlandi
London. AFP.
ORÐSENDINGIN sem Díana sendi
bryta sínum og vini, Paul Burrell, í
október 1996 hljóðaði svo, að því er
fram kemur í The Daily Mirror:
„Nú er hættulegasta tímabil ævi
minnar – eiginmaður minn er að
undirbúa „slys“ í bílnum mínum, að
skemma hemlana á honum svo að
alvarlegir höfuðáverkar hljótist af,
í þeim tilgangi að ryðja öllum
hindrunum úr vegi fyrir því að
hann geti kvænst.“
Í bók Burrells hafði „eiginmaður
minn“ verið þurrkað út og Burrell
lét ennfremur breyta „hann“ í
„Karl“, og hljóðaði síðasti hluti orð-
sendingarinnar þá þannig: „að
ryðja öllum hindrunum úr vegi fyr-
ir því að Karl geti kvænst [á ný].“
„Eiginmaður
minn undir-
býr slys“
AÐ MINNSTA kosti fimmtán manns, flest þeirra börn,
biðu bana og ellefu særðust alvarlega þegar öflug
sprengja sprakk í borginni Kandahar í suðurhluta Afg-
anistans í gær.
Sprengingin varð nálægt hermannaskálum afganskrar
sérsveitar sem tekur þátt í leitinni að talibönum og liðs-
mönnum al-Qaeda. Um 20 mínútum áður sprakk minni
sprengja, sem olli ekki manntjóni, en börn úr nálægum
skóla söfnuðust þá saman á staðnum til að forvitnast um
hvað væri á seyði.
Hamid Karzai, forseti Afganistans, fordæmdi tilræðið
og lýsti því sem „villimennsku“. Afganskur hermaður á
staðnum sagði að flest fórnarlambanna hefðu verið börn
á aldrinum 7-15 ára. Lögreglan hefði handtekið mann,
sem grunaður væri um fyrra tilræðið, og hann hefði sagt
að fleiri sprengjum hefði verið komið fyrir í borginni.
„Þetta var verk talibana. Maðurinn virtist vera einn af
liðsmönnum þeirra,“ sagði hermaðurinn. Talibanar voru
með höfuðstöðvar í Kandahar áður en hersveitir undir
forystu Bandaríkjamanna komu þeim frá völdum eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001.
Fimmtán manns bíða bana í tilræði í Afganistan
Flest fórnar-
lamba voru börn
AP
Afganskur hermaður gengur framhjá staðnum þar sem
sprengjan sprakk í borginni Kandahar í gær.
Kandahar. AFP.
Karl Bretaprins og Díana prinsessa á meðan allt lék í lyndi.