Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JAPANSKIR kaupsýslumenn
standa hér álútir við tölvur sínar á
meðan Shinto-prestur í fullum
skrúða blessar þær í þeim tilgangi
að halda í burtu veirum og kerf-
isgöllum. Hreinsunarathöfnin fór
fram í Kanda Myojin-helgidómnum
í Tókýó í gær.
Ekki fylgir sögunni hvort aðferð-
in hafi hingað til gefist vel, en hver
veit, ef til vill er hér kominn leynd-
ardómurinn á bak við gífurlega vel-
gengni Japana á tæknisviðinu í
gegnum tíðina. Reuters
Hreinsar
tölvurnar
af veirum
Hvað olli því að þú varðst vitni að
atburðunum í Kibeho?
Það var liðið ár frá þjóðarmorð-
inu í Rúanda. Menn höfðu gagnrýnt
Sameinuðu þjóðirnar harkalega fyr-
ir að hafa ekki gert neitt til að koma
í veg fyrir það. Ég fór til Rúanda til
að komast að því hvort sú ásökun
ætti við rök að styðjast.
Ég vonaðist til þess að hitta SÞ-
friðargæsluliða sem höfðu orðið
vitni að þjóðarmorðinu, til að heyra
hvaða fyrirmæli þeir höfðu fengið.
Á ferðalagi mínu í Rúanda heyrði
ég um lítinn hóp friðargæsluliða
sem voru fastir í flóttamannabúðum
sem hétu Kibeho. Ég ákvað að fara
þangað og komast að því hvað þar
væri að gerast. Ég endaði með því
að festast sjálf í Kibeho.
Ef marka má bókina þá hættirðu
að vera áhorfandi, blaðamaður,
og gerðist þátttakandi.
Þannig blaðamennsku stunda ég,
ef þörf krefur. Ég átti þó ekki von á
að verða þátttakandi í jafn afdrifa-
ríkum atburðum og áttu sér stað í Kibeho.
Þegar ég vil kynna mér eitthvað þá fer ég þangað og
geri mig heimakomna. Ég tek mér tíma, hitti fólk og
ræði við það, gára yfirborð fréttarinnar en kafa líka of-
an í málin. Núna er ég að vinna að frásögn um demant-
ana í Sierra Leone. Til að byrja með bjó ég í demant-
abúðum úti í frumskógi en seinna fór ég að starfrækja
mína eigin demantanámu. Ég er enn að því. Það er
mjög skemmtilegt.
Þegar ég var að vinna að rannsóknum vegna bókar
minnar um friðargæslusveitir SÞ var það markmið
mitt að komast að kynnast sjónarhorni friðargæslulið-
anna sjálfra. Ég fór því einfaldlega til þeirra landa þar
sem SÞ var með friðargæslusveitir og bankaði upp á í
herbúðum friðargæsluliða í Sómalíu, Rúanda og Haítí.
Ég gekk að því vísu að þeir myndu bjóða mig vel-
komna. [...] Líklega hjálpaði það upp á að ég er kona.
Hermennirnir kunnu að meta félagsskap konu og þeir
höfðu gaman af því að tala við mig.
Þegar til kastanna kom gátu hermennirnir, hvað þá
þú, ekkert gert til að koma í veg fyrir morðin í
Kibeho. Það hlýtur að hafa verið erfið lífsreynsla?
Auðvitað. Mjög svo. Það gildir enn frekar fyrir her-
mennina frá Zambíu heldur en fyrir mig. Ég hafði þó
afsökun fyrir því að gera ekki neitt, ef svo má að orði
komast. Ég var á staðnum en ég var utanaðkomandi,
gestur, óbreyttur borgari. Hermennirnir sem voru í
Kibeho á vegum SÞ höfðu verið gerðir ábyrgir fyrir
flóttamannabúðunum en án réttra fyrirmæla. Þessir
menn höfðu hlotið bardagaþjálfun en fyrirmælin sem
þeir fengu frá SÞ bönnuðu þeim að berjast. Fyrir vikið
voru þeir sem getulausir skólastrákar, sem var afar
erfitt fyrir þá.
Þetta var enn erfiðara fyrir þá sökum þess að þeir
höfðu staðið vörð um flóttamanna-
búðirnar í Kibeho um margra mán-
aða skeið áður en fjöldamorðin þar
áttu sér stað. Þeir höfðu því kynnst
mörgum fórnarlambanna persónu-
lega.
Þú varðst vitni að hroðalegum
atburðum. Ertu sködduð á sálinni
fyrir lífstíð?
Já, án efa. Ég er hins vegar þakk-
lát fyrir það að þessi reynsla eyði-
lagði mig ekki algerlega. Ég minnist
þess að á sínum tíma varð ég alger-
lega ónæm. Ég geri ráð fyrir að það
hafi átt við okkur öll: hermennina,
fórnarlömbin, jafnvel Tútsana sem
sátu um okkur en vissu ekki hvernig
þeir gætu bundið enda á umsátrið.
Þessir atburðir voru svo hrikalegir
að heilinn bregst við eins og ósjálf-
rátt, gerir mann andlega ónæman
til að maður missi ekki vitið. Ég var
meðvituð um hvað var að gerast í
kringum mig, limlestingar, höf-
uðleðursflettingarnar og börnin
sem kastað var yfir vegginn til okk-
ar. En heilinn leyfði mér ekki að
„finna fyrir“ þessum hryllingi. Hann leyfði mér varla
að finna nokkurn skapaðan hlut.
Nokkrum dögum eftir þessi fjöldamorð var ég kom-
in heim, til Hollands. Fyrst þá fann ég fyrir ótta. Ótta
við martraðir, ótta við minningar sem héldu fyrir mér
vöku. Ég þekki fólk, blaðamenn, sem fékk taugaáfall
eftir að hafa upplifað hryllinginn í Rúanda og Bosníu.
Þetta fólk er ekki nema skugginn af sjálfu sér í dag,
ófært jafnvel um að vinna.
Ég fór sjálf til geðlæknis og spurði hann hvort hann
teldi mig hafa orðið fyrir andlegu áfalli og hvort hann
teldi að ég þyrfti að hafa áhyggjur af andlegri heilsu
minni. Hann var góður og vís maður. Hann sagði já, að
enginn vafi léki á því að ég hefði orðið fyrir áfalli en að
það þýddi ekki endilega að ég myndi missa vitið. Hann
lýsti áfalli sem fötu innan í manni. Vond reynsla safn-
aðist saman í fötunni og einn daginn myndi fatan verða
orðin full og þá flæddi upp úr. Engin leið væri að vita
hvenær mín fata væri orðin full, eða nokkurs manns,
og því ráðlagði hann mér að halda áfram að lifa og
sinna þeim verkum sem ég kysi helst: að ferðast og
skrifa.
Ég gerði það því. Og geri enn.
Hver bar ábyrgð á því að SÞ brugðust svo
hrapallega í þessum löndum?
Fyrst og fremst báru stríðandi fylkingar á staðnum
ábyrgðina, Hútúar, Tútsar, sómalskir stríðsherrar eða
aðrir. Í öðru lagi báru aðildarríki SÞ ábyrgðina. Sú
meginskoðun sem fram kemur í bók minni er að SÞ
séu þjónn, ekki herra. Sameinuðu þjóðunum var ekki
um að kenna. SÞ gera það sem við, aðildarríkin, skip-
um þeim að gera. Hvorki meira né minna.
Spurt og svarað | Linda Polman
Varð vitni að fjölda-
morðum í Rúanda
Nýlega kom út á ensku bók hollensku blaðakonunnar Lindu Polman, We
did nothing: Why the truth doesn’t always come out when the UN goes
in. Þar fjallar Polman um friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna og það
sem fyrir augu hennar bar í Sómalíu, Haítí og Rúanda 1993–1995. Sér-
staklega áhrifarík er lýsingin á fjöldamorðunum sem Polman varð vitni
að í Rúanda. Polman svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðsins.
Linda Polman
’ SÞ gera það semvið, aðildarríkin,
skipum þeim að
gera. Hvorki meira
né minna. ‘
Davíð Logi Sigurðsson | david@mbl.is
MISTÖK Edúards Shevardnadze,
fyrrum forseta Georgíu, verða ekki
endurtekin. Þetta segir Mikhail
Saakashvili, nýkjörinn forseti lands-
ins og maðurinn sem stóð fyrir frið-
samlegu byltingunni er kostaði for-
vera hans embættið í nóvember.
Saakashvili sem er 36 ára gamall
lögfræðingur, menntaður í Banda-
ríkjunum, var kjörinn forseti
Georgíu um liðna helgi með miklum
yfirburðum.
Saakashvili sagði í viðtali við AP-
fréttastofuna í gær að fyrsta verk
hans í embætti yrði að beita sér fyrir
„stórbrotinni löggjöf gegn spill-
ingu“. Efnahagur Georgíu er að
hruni kominn og er sú óheillaþróun
ekki síst rakin til spillingar í landinu.
Aðstoð erlendis frá hefur verið stolið
og ríkiseigur lent í höndum fárra án
þess að fyrir þær kæmi eðlilegt
gjald. „Ríkastir allra voru Shev-
ardnadze og ættmenni hans,“ sagði
Saakashvili. „Ég hef aldrei heitið
Shevardnadze því að við munum
ekki gera upptækar þær eigur sem
hann komst yfir með ólöglegum
hætti. Ég lofaði honum því að öryggi
hans yrði tryggt,“ sagði Saakashvili
en athygli vakti í kosningunum á
sunnudag þegar Shevardnadze lýsti
yfir að hann hefði greitt forsetanum
nýja atkvæði sitt.
Georgía er almennt talið eitt
spilltasta ríki í heimi. Þetta hefur í
senn orðið til þess að hefta einka-
framtakið í landinu og komið í veg
fyrir erlendar fjárfestingar. Saaka-
shvili sagði ekki unnt að útiloka að
þeir sem högnuðust á spillingunni
hygðust reyna að berjast gegn
stjórninni nýju og þá jafnvel beita
ofbeldi.
Pólitískt ofbeldi hefur löngum sett
mark sitt á Georgíu. Tvívegis, hið
minnsta, var reynt að ráða Shev-
ardnadze af dögum er hann gegndi
embætti forseta og fyrsti forseti
landsins, Zvíad Gamsakhúrdía, var
tekinn af lífi. „Við gerðum ráð fyrir
þessari hættu þegar við ákváðum að
leita eftir þessu embætti,“ sagði
Saakashvili.
Segir Bandaríkin
hvergi hafa komið nærri
Um 5,5 milljónir manna búa í
Georgíu og margir búa við sára fá-
tækt. Vatn skortir víða og orkukerfi
eru í meira lagi ótrygg. Hið sama
gildir um samgöngur í landinu og
heilbrigðiskerfinu lýsir Saakasvili á
þann veg að það sé „villimannslegt“.
Hann kvaðst þó ekki hafa í huga aft-
urhvarf í þessu viðfangi. „Við getum
ekki endurreist hið gamla velferðar-
kerfi sovéttímans,“ sagði hann.
Í máli Saakasvilis kom fram að
hann teldi sig hallan undir Vestur-
lönd en sú afstaða hans kann að
styggja ráðamenn í Rússlandi. Hann
þvertók hins vegar fyrir að Banda-
ríkjamenn hefðu á einhvern hátt
staðið að baki byltingunni þegar
Shevardnadze var steypt af stóli. Því
hefur verið haldið fram að olíu-
hagsmunir Bandaríkjamanna kunni
að hafa ráðið einhverju um endalok
stjórnar Shevardnadze. „Þeir hjálp-
uðu okkur aldrei sem pólitísku afli.
Þeir héldu sig frá stjórnarandstöð-
unni,“ sagði hann.
Forsetinn ítrekaði að Georgíu-
menn treystu því að Rússar efndu
loforð sitt og kölluðu heim þá her-
menn sem enn er að finna í Georgíu.
Brottflutningur þessi hefur tafist en
Saakasvili lagði áherslu á að hann
hygðist ekki þrýsta á Rússa. „Það er
mikilvægt að öryggistilfinning
Rússa raskist ekki.“
Í kosningabaráttunni og mótmæl-
unum í nóvember héldu andstæð-
ingar Saakashvili því fram að hann
væri lýðskrumari og fasískur stjórn-
málamaður. Hann kveðst hins vegar
hafa lært sitthvað af því að fylgjast
með ferli Edúards Shevardnadze.
„Ég mun aldrei láta sem svo að lögin
í landinu og ég séu eitt og hið sama.“
Víðtæk löggjöf
gegn spillingu
Nýr forseti Georgíu segir að mistök
Shevardnadze verði ekki endurtekin
Tiblisi. AP.
Reuters
Mikhail Saakashvili
’ Ríkastir allra voruShevardnadze og
ættmenni hans. ‘